Morgunblaðið - 18.04.2009, Page 24
24 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
HAGRÆÐA þarf í ríkisrekstrinum, að sögn
Ástþórs Magnússonar, formanns Lýðræð-
ishreyfingarinnar. Hann hafnar öllum nið-
urskurði í heilbrigðis- og velferðarmálum og
kveðst enga áætlun hafa um hvernig hag-
ræðingunni skuli náð. Að halda því fram
væri „kosningakaramella“ sem hefði enga
þýðingu. Hann taki ekki þátt í slíkum skrípa-
leik. Hann heitir því hins vegar að komist
hann til valda muni hann fá færustu erlenda
hagfræðinga til að útfæra þá hagræðingu,
enda þurfi utanaðkomandi aðila til verksins.
Hann hafnar öllum skattahækkunum á almenning og segir
ómögulegt að sækja meiri pening þaðan. Frekar vill hann brúa
bilið með því að færa heim peninga sem útrásarvíkingar hafi
farið með úr landi og ráða 200 manns til stórátaks í markaðs-
setningu Íslands erlendis og hvetja til fjárfestinga og atvinnu-
uppbyggingar hér á landi.
Vill ekki niðurskurð
Ástþór
Magnússon
SIGMUNDUR Davíð Gunnlaugsson, for-
maður Framsóknarflokksins, viðurkennir
að hann sé ekki með áætlun um hvað skera
eigi niður. „Það eru hlutir einhvers staðar í
rekstri ríkisins sem ég þekki ekki til, því
það þarf að fara í gegnum alla útgjaldaliði
hjá öllum stofnunum ríkisins. Líklega getur
enginn þingmaður bent á hvað eigi að
skera niður, enda hefur enginn gert það,“
segir hann. Þess í stað kveðst hann viss um
aðferðina, öfuga nálgun sem gengur út á
útilokun á þeim þáttum sem ekki megi
skera niður. Hann fæst því ekki til að nefna málefnasvið eða
stofnanir sem hann vill sjá minnka stórkostlega.
Sigmundur Davíð óttast mjög að mikill niðurskurður hjá
ríkinu minnki eftirspurn í hagkerfinu enn meira og leiði af
sér enn dýpri kreppu. „Heildarlokanir eru ekki rétta leiðin af
þeirri ástæðu,“ segir hann, en vísar að öðru leyti í efnahags-
tillögur Framsóknarflokksins, sem hann segir að geti minnk-
að endanlega þörf fyrir niðurskurð.
Engar heildarlokanir
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
GUÐJÓN Arnar Kristjánsson, formaður
Frjálslynda flokksins, segir ekki hægt að
skera niður um meira en 35 milljarða án
þess að skaða verulega mennta-, velferðar-
og heilbrigðisþjónustu. Semja þurfi við
AGS ef þess þurfi, um að fara ekki lengra
en svo í niðurskurðinum. Hann telur hægt
að skera niður um 5-6 milljarða í þeim
málaflokkum. Guðjón Arnar vill helst skera
niður í utanríkisþjónustu og selja fasteignir
hennar. Jafnvel þurfi að draga þar stór-
kostlega saman um tíma. Þá segir hann
óhjákvæmilegt að skera niður framkvæmdir, en ekki þær
mannaflsfrekustu. Til að koma til móts við þetta vill hann
stórauka aflaheimildir í tvö til þrjú ár, meðan kreppan varir.
Hann vill að 260.000 tonn af þorski verði veidd árlega þann
tíma. Af þeim veiðum vill hann auðlindagjald.
Að hámarki 35 milljarðar
Guðjón Arnar
Kristjánsson
BOÐAÐUR niðurskurður er í boði AGS, að
sögn Herberts Sveinbjörnssonar, formanns
Borgarahreyfingarinnar. Að hans mati
kemur svona mikill niðurskurður ekki til
greina, það verði að endursemja við sjóð-
inn. „Við erum ekki reiðubúin að afsala
okkur heilbrigðis- og menntakerfinu til að
uppfylla skilyrði sem er óvíst að við ráðum
við,“ segir Herbert.
Niðurskurðurinn yrði þó einhver og seg-
ir Herbert að í forgangi yrði niðurskurður
hjá utanríkis- og dómsmálaráðuneytum, til
dæmis með niðurlagningu Varnarmálastofnunar. Spilling,
bitlingar, vinargreiðar og ógagnsæi innan stjórnsýslunar séu
stórir kostnaðarliðir sem taka þurfi á. Íslensk stjórnsýsla
þurfi alls ekki að kosta 220 milljarða á ári, eins og nú er.
Semjum aftur við AGS
Herbert
Sveinbjörnsson
„ÞAÐ er niðurskurður, hagræðing og það
eru skattahækkanir. Að mínu viti eru
skattahækkanir ekki fyrsti kosturinn í
stöðunni,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir,
formaður Samfylkingarinnar. Hún vill
blandaða leið af niðurskurði og tekju-
öflun, en getur ekki sagt núna hversu stór
hluti þar af verði á formi niðurskurðar.
Hún segir mikilvægast að forgangsraða
til að vernda velferðina. Þetta sé vel hægt
að gera, líka í velferðarráðuneytunum.
„Velferðarmálin eru svo stór hluti af rík-
isútgjöldum að það verður að fara ofan í þau líka. Ég get
ekki sagt hér og nú hvernig það verður gert,“ segir hún.
Jóhanna vill sameina ráðuneyti og vill sameiningu Trygg-
ingastofnunar ríkisins og Vinnumálastofnunar. Hún nefnir
ekki einstakar stofnanir sem megi alfarið leggja niður, en
segir mögulegt að einhverjum verklegum framkvæmdum
gæti þurft að fresta. Hún efast um að sparnaður fáist með
því að segja upp láglaunafólki í umönnunarstörfum og ófag-
lærðum, sem þá taki atvinnuleysisbætur í staðinn.
Hvað aukna tekjuöflun ríkisins varðar boðar Jóhanna
átak gegn undandrætti frá sköttum. „Samkvæmt skýrslu
frá 2005, sem legið hefur í skúffu í fjármálaráðuneytinu, er
áætlað að undandráttur frá sköttum á árinu 2005 hafi verið
á bilinu 30-40 milljarðar.“ Hún vill því stórefla skattaeftirlit
og segist viss um að það margborgi sig. Jóhanna vill halda
sig við samkomulagið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, en ekki
semja aftur við hann um minni niðurskurð, að öllu óbreyttu.
Hins vegar sé enn margt á huldu um ríkisfjármálin, svo
sem um fjármögnun nýju bankanna og útkomuna úr Ice-
save-málinu.
Átak í skattaeftirliti
Jóhanna
Sigurðardóttir
„VIÐ teljum þetta ekki hægt nema með
blandaðri leið. Það beri að skera niður og
leita leiða til tekjuöflunar með sanngjörnum
og réttlátum hætti,“ segir Steingrímur J.
Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs. Einhvern hluta þessa
tugmilljarða bils þarf að brúa með skatta-
hækkunum að sögn Steingríms, svo niður-
skurður verði ekki of tilfinnanlegur. Vísar
hann í hugmyndir flokks síns um skatta-
hækkanir, svo sem hátekjuskatt og meiri
skattlagningu fjármagnstekna, til dæmis að
þeir sem hafi miklar fjármagnstekjur en ekki launatekjur þurfi
að reikna sér eitthvert endurgjald sem myndi skattstofn. Hann
segir ekki forsendur nú til að meta hversu stórt bil má brúa
með skattahækkunum, enda verði að fara varlega í þær í
ríkjandi kreppuástandi.
Um niðurskurðinn segir hann að almennt aðhald sé nauðsyn-
legt í öllum málaflokkum. Draga eigi úr fríðindum og dagpen-
ingum, auk þess sem jafna þurfi kjör fólks með því að lækka
laun einhverra hópa, gagngert til að fleiri geti haldið vinnunni.
Steingrímur vill fækka ráðuneytum og sameina stofnanir.
Hann vill sameina heilbrigðis- og menntastofnanir. Skera um-
talsvert niður hjá utanríkisráðuneyti og dómsmálaráðuneyti.
Sérstaklega segir hann að Varnarmálastofnun eigi að leggja
niður og hagræða eigi hjá Landhelgisgæslunni. Ekki megi úti-
loka að fleiri stofnanir verði lagðar niður. Mikir möguleikar séu
á sviði samgangna og vill hann sjá Siglingamálastofnun og
Vegagerðina í einni samgöngustofnun.
„Markmiðið er að ná að reka hér velferðarþjónustuna á eins
hagkvæman hátt og mögulegt er, þannig að hún geti þó sinnt
sínum verkefnum og haldið utan um samfélagið.“
Heildarlokun í myndinni
Steingrímur J.
Sigfússon
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
EF kjósendur ætla að láta val sitt í kjör-
klefanum ráðast af því, hvaða flokkur
muni taka með mestu öryggi á hinni erf-
iðu stöðu ríkisfjármála, eiga þeir erfitt
val fyrir höndum. Ekki er hægt að segja
að neitt framboð hafi mjög mótaðar hug-
myndir um hvar skurðarhnífurinn eigi að
koma niður á endanum.
Engu að síður stendur svo mikill nið-
urskurður fyrir dyrum að hætt er við að
hnífurinn verði bitlaus þegar allt er yf-
irstaðið. 35 til 55 milljarða króna þarf að
skera niður á fjárlögum ársins 2010, til
að fullnægja skilyrðum samkomulagsins
við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS), að
mati fjármálaráðuneytisins. Gerð fjár-
laga hefst fljótlega eftir kosningar.
Nokkrar hugmyndir eru uppi um þetta
meðal formanna flokkanna, einhverjir
þeirra hafa mótaðar hugmyndir um
hvernig hefði átt að koma í veg fyrir að
þetta ástand skapaðist, eða mótaðar hug-
myndir um hvernig megi ekki taka á rík-
isfjármálunum. Að mestu er þó á huldu
um hvar hnífurinn sker á endanum, enda
upphæðirnar stórar og dæmin sem nefnd
eru sjaldnast nóg til að brúa bilið. Varn-
armálastofnun, með sinn einn og hálfa
milljarð á fjárlögum, virðist til dæmis
vera í bráðri lífshættu, en einn og hálfur
milljarður dugir skammt upp í fimmtíu
og fimm.
Sjaldan er góð vísa of oft kveðin
Formönnum flokkanna er samt nokk-
ur vorkunn. Fjárlagagerð tekur að öllu
jöfnu marga mánuði og óraunhæft er að
blaðamaður hringi í þá snemma vors til
að krefja þá um fullklárað frumvarp. En
hver eru svörin? Allir vilja vernda vel-
ferðina. Formaður Sjálfstæðisflokksins
hafnar skattahækkunum og vill nýta
einkaframtakið, formaður Samfylkingar
tortryggir skattahækkanir en útilokar
þær ekki og formaður Vinstri-grænna
talar fyrir þeim. Formaður Framsókn-
arflokksins vill komast í stjórn til að
koma efnahagstillögum sínum í fram-
kvæmd. Formaður frjálslyndra vill rétta
kúrsinn úti á miðunum með risaaukningu
á þorskkvótanum. Líklega er fátt í þessu
sem kemur lesendum mjög á óvart.
En vitanlega er munur á framboðum.
Formaður Framsóknar vill sníða jafnt og
þétt af fjárlögunum og vill ekki loka heil-
um stofnunum. Aðrir nefna dæmi um
stofnanir sem megi loka. Sumir flokkar
vilja halda sig við áætlun Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins og skera niður í samræmi
við hana, aðrir vilja semja við sjóðinn upp
á nýtt og telja ómögulegt að skera svona
mikið niður. Einhverjir þrýsta á meiri
nýtingu náttúruauðlinda en aðrir ekki.
Svo leynast inn á milli góðar hugmyndir,
sumar raunhæfar, en aðrar langsóttari.
Velferðin er vernduð í
öllum niðurskurðinum
Barátta Það stefnir í að miklar hræringar verði á fylgi flokka í kosningunum um næstu helgi. Tvö ný framboð taka þátt núna.
Hugmyndir um hvar eigi að skera niður eru að mestu ómótaðar
Utanríkisþjónusta og varnarmál eru líkast til á höggstokknum
„LEITA þarf niðurskurðar í öllum mála-
flokkum. En við hljótum að forgangsraða í
þágu velferðarmálanna,“ segir Bjarni Bene-
diktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Hann vill að stjórnvöld haldi sig við sam-
komulagið við AGS að óbreyttu og skeri nið-
ur í samræmi við það.
Bjarni nefnir sérstaklega menntamála-,
utanríkis- og heilbrigðisráðuneytin, en nefn-
ir ekki einstakar stofnanir sem megi leggja
niður í heild, en sameina eigi stofnanir á
heilbrigðissviði og t.d. Varnarmálastofnun
og Landhelgisgæslu. Um niðurskurð í velferðarmálum segir
hann að með auknum tekjutengingum, sameiningu stofnana og
einföldun rekstrar megi ná árangri. Einnig vill hann halda
áfram að innleiða kosti einkarekstrar.
Bjarni hafnar skattahækkunum. Vissulega þurfi að auka
tekjur ríkisins, en þá sé mikilvægast að reyna áfram að lífga við
tekjustofnana, verja og skapa störf. „Þvert á móti geta tekj-
urnar aukist með því að við hækkum skattana ekki.“ Þá segir
hann að stjórnmálamenn verði að geta rætt um skynsamlega
nýtingu náttúruauðlinda.
Hækkar ekki skatta
Bjarni
Benediktsson