Morgunblaðið - 18.04.2009, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
BARACK Obama, forseti Banda-
ríkjanna, hefur fullvissað starfs-
menn bandarísku leyniþjónustunnar
CIA um að þeir verði ekki sóttir til
saka fyrir að beita harkalegum yf-
irheyrsluaðferðum sem embættis-
menn í forsetatíð George W. Bush
höfðu heimilað. Obama hafði áður
bannað yfirheyrsluaðferðirnar og
sagt að þær jafngiltu pyntingum.
Obama birti í gær minnisblöð þar
sem lögfræðilegir ráðgjafar Bush
lýstu aðferðum, sem leyniþjónustu-
mönnum væri heimilt að beita þegar
þeir yfirheyrðu fanga sem grunaðir
væru um aðild að hryðjuverkastarf-
semi. Lögfræðingarnir sögðu að að-
ferðirnar jafngiltu ekki pyntingum
þar sem þær yllu ekki miklum and-
legum eða líkamlegum þjáningum.
Embættismennirnir heimiluðu
t.a.m. þá aðferð að föngum væri
haldið niðri á meðan vatni væri hellt
yfir andlit þeirra, þannig að þeim
fyndist þeir vera að drukkna. Meðal
annars var leyft að slá fanga í andlit-
ið og kviðinn og neyða þá til að vera í
stellingum sem valda miklu álagi á
líkamann.
Í einu minnisblaðanna kom fram
að CIA hafði óskað eftir úrskurði
stjórnvalda um hvort það jafngilti
pyntingum að nota meinlaus skordýr
til að hræða meintan hryðjuverka-
mann al-Qaeda, Abu Zubaydah, sem
mun vera sjúklega hræddur við
pöddur. Embættismennirnir komust
að þeirri niðurstöðu að þar sem þessi
aðferð ylli ekki líkamlegum sársauka
teldist hún ekki jafngilda pyntingum
og væri því heimil.
Embættismönnum refsað?
Stjórn Obama sagði ekkert um
hvort hún hygðist vernda leyniþjón-
ustumenn, sem beittu harkalegri að-
ferðum en þeim sem lýst er í minn-
isblöðunum, eða embættismenn sem
heimiluðu yfirheyrsluaðferðirnar.
Hugsanlegt er því að lögfræðing-
arnir, sem skrifuðu minnisblöðin,
verði sóttir til saka en yfirlýsingar
Obama bentu til þess að hann vildi
ekki neinar saksóknir í málinu.
„Þetta er tími ígrundunar, ekki
réttlátrar refsingar,“ sagði Obama.
„Við höfum gengið í gegnum dimm-
an og erfiðan kafla í sögu okkar. En
nú þegar við stöndum frammi fyrir
erfiðum úrlausnarefnum og skað-
legri óeiningu er enginn ávinningur
af því að eyða tíma og orku í að bera
sakir á menn fyrir fortíðina.“
Reuters
Í prísund Fangar í Guantanamo-
fangabúðum Bandaríkjahers.
CIA-mönnum ekki
refsað fyrir pyntingar
Obama verndar leyniþjónustumennina og birtir skjöl um
yfirheyrsluaðferðir sem embættismenn Bush heimiluðu
Í HNOTSKURN
» Mannréttindasamtökgagnrýndu þá ákvörðun
Obama að vernda leyniþjón-
ustumennina.
» Framkvæmdastjóri Am-nesty International í
Bandaríkjunum sagði það
undarlegt að dómsmálaráðu-
neytið skyldi vilja vernda
menn sem dómsmálaráðherr-
ann Eric Holder teldi að hefðu
gerst sekir um pyntingar.
HILLARY Clinton, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, hefur
gert stuðningsmönnum sínum til-
boð sem vandséð er að þeir geti
hafnað: tækifæri til að eyða degi
með eiginmanni hennar, Bill, gegn
því að þeir hjálpi henni að greiða
skuldir sínar vegna framboðs henn-
ar í forkosningum demókrata.
Tilboðið er kunngert í tölvupósti
frá James Carville, sem stjórnaði
kosningabaráttu Hillary Clinton.
Þar kemur fram að þeir sem leggja
henni til fimm dollara, sem svarar
tæpum 650 krónum, eigi möguleika
á nokkrum glæsilegum vinningum,
meðal annars miðum í úrslitaþátt
American Idol, kvöldverði í Wash-
ington með James Carville og degi
með sjálfum Bill Clinton í New
York-borg.
Hillary Clinton skuldar nú 2,3
milljónir dollara, sem svarar tæp-
um 300 milljónum króna, vegna
framboðsins. Hún má ekki annast
slíka fjársöfnun sjálf á meðan hún
gegnir ráðherraembættinu.
bogi@mbl.is
Clinton býður Bill sinn í
vinning fyrir fjárframlagið
Reuters
Vinningur Bill Clinton með banka-
stjóra á ráðstefnu í Washington.
ÞETTA fyrirbrigði, svokallaður „dreyrafoss“, litar
sporð Taylors-jökuls á Suðurskautslandinu rauðan en
um er að ræða járnoxíð, öðru nafni ryð. Er það komið
úr fornum, afar söltum sjó undir jöklinum en stundum
nær hann upp úr ísskildinum. Vegna saltsins frýs hann
ekki þótt meðalhitinn sé mínus 10°C. Í þessum pækli
þrífst mjög sérstakt örverulíf, sem nýtir járn, brenni-
stein og kolefni sér til vaxtar.
AP
„Dreyrafoss“ á Suðurskauti