Morgunblaðið - 18.04.2009, Page 31
Fréttir 31ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
NICOLAS Sarkozy, forseti
Frakklands, fékk það óþvegið í
ýmsum evrópskum fjölmiðlum í
gær en hann er sagður hafa talað
niður til ýmissa þjóðarleiðtoga.
„Asnar og ugluspeglar – dómur
Sarkozys um aðra þjóðarleiðtoga“
var fyrirsögnin í The Guardian en
The Times kallaði hann „rætna,
litla prinsessu“. ABC á Spáni
sagði, að stórmennskubrjálæði
Sarkozys ætti sér engin takmörk.
Ástæðan er sú, að á hádeg-
isverðarfundi með þingmönnum
þar sem rætt var um fjár-
málakreppuna sagði Sarkozy, að
Barack Obama Bandaríkjaforseti
„næði ekki máli“. Hann væri að
vísu vel gefinn og geðugur en
reynslulaus þeg-
ar kæmi að því
að taka ákvörð-
un.
Um Jose Luis
Rodriguez Zapa-
tero, forsætis-
ráðherra Spán-
ar, sagði
Sarkozy, að lík-
lega væri hann
ekki mjög vel
gefinn og um Angelu Merkel,
kanslara Þýskalands, sagði hann,
að hún hefði þó haft vit á að fylgja
fordæmi hans í kreppumálum.
Sarkozy hafði hins vegar allt gott
að segja um Silvio Berlusconi, for-
sætisráðherra Ítalíu. svs@mbl.is
Sarkozy niðrar
þjóðarleiðtogum
Nicolas Sarkozy
Frakklandsforseti.
STJÓRNVÖLD í Lettlandi eiga í
mesta basli með að uppfylla skilyrði
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS)
sem sett voru í tengslum við 1.260
milljarða króna lán sjóðsins og ann-
arra lánveitenda, þar með talið ESB,
til stjórnarinnar um síðustu áramót.
Í skýrslu sjóðsins um stöðu lettn-
eska þjóðarbúsins, sem samin var í
febrúar en birt opinberlega í gær,
segir að það hafi reynst mun meiri
áskorun að mæta þessum kröfum en
ráðgert var þegar lánið gekk í gegn.
Stjórnin hefur þegar fengið 269
milljarða króna af láninu en fékk
hins vegar ekki 33,5 milljarða króna
lán afgreitt frá sjóðnum nýverið með
þeim rökum að hún hefði ekki fylgt
áætlun hans nægjanlega vel eftir.
Þá gæti pólitískur óstöðugleiki
sett frekara strik í reikninginn, að
mati skýrsluhöfunda sjóðsins.
Meginkröfur sjóðsins er að skorið
verði verulega niður í ríkisútgjöldum
og greindi Einars Repse, fjármála-
ráðherra landsins, frá því í fyrradag
að flest benti til að stjórninni myndi
ekki takast að uppfylla skilyrði fyrir
285 milljarða króna væntanlegu láni
frá sjóðnum, nema henni tækist að
draga úr útgjöldum um 40 prósent til
viðbótar frá fyrri niðurskurði.
Lánið forsenda viðreisnarinnar
Valdis Dombrovskis, forsætisráð-
herra Lettlands, hefur dregið upp
dökka mynd af stöðu þjóðarbúsins
og varað við því að Letta kunni að
bíða þjóðargjaldþrot fáist næsta lán
hjá AGS ekki afgreitt í júní nk.
Umskiptin eru mikil fyrir Letta
sem litu framtíðina björtum augum
árin 2006 og 2007 þegar hagvöxtur
var 11,9 prósent annars vegar og
10,2 prósent hins vegar. Nú er hins
vegar reiknað með að þjóðarfram-
leiðslan dragist að óbreyttu saman
um 13 prósent í ár. baldura@mbl.is
Gjaldþrot vofir
yfir Lettlandi
Hefur ekki uppfyllt kröfur AGS
RIGNINGIN, hið dæmigerða sumarveður Íslendinga, og haustlægðirnar
sem tæma göturnar eru í raun himnasending, ef marka má nýja rannsókn.
Ástralskir sálfræðingar telja sig þannig hafa sýnt fram á að fólk standi
sig betur á minnisprófum þegar illa viðrar og góða skapið gufar upp.
Sálfræðingarnir, sem starfa við sálfræðideild University of New South
Wales, byggja rannsóknina á spurningalistum og minnisþrautum sem lagð-
ar voru fyrir viðskiptavini verslunar einnar í Sydney.
Niðurstöðurnar koma á óvart, en samkvæmt þeim tókst þátttakendum
að leggja þrefalt meira magn upplýsinga á minnið þegar veðrið var slæmt
á ástralskan mælikvarða og er orsakasamhengið talið það að skapið verði
þyngra í vondu veðri sem aftur skerpi á þessum andlegu hæfileikum.
Gáfaðri þegar illa viðrar
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
7
4
4
5192 / HÚSAVÍK
• Við leggjum okkur fram um að veita þér persónulega þjónustu.
• Við förum yfir kjörin sem þér bjóðast og svörum spurningum þínum.
• Við veitum einstaklingum og fyrirtækjum aðstoð við að skipuleggja fjármálin.
Elín rennir fyrir fisk
við Kinnarfjöllin.
Hún og 5 aðrir taka vel
á móti þér á Húsavík.
Komdu við í útibúinu að Garðarsbraut 19 á Húsavík
eða hringdu í okkur í síma 410 4000.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
HILLARY Clinton, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, viðurkenndi í
gær að stefna stjórnvalda í Wash-
ington gagnvart kommúnistastjórn-
inni á Kúbu hefði ekki borið árangur,
en 47 ár eru liðin frá því Bandaríkja-
menn settu viðskiptabann á eyjuna.
„Við höldum áfram að leita að upp-
byggilegum leiðum, því við lítum svo
á að núverandi stefna hafi mistek-
ist,“ sagði Clinton á blaðamanna-
fundi í Dóminíska lýðveldinu, áður
en fundur 34 leiðtoga Ameríkuríkja á
Trínidad og Tóbagó hófst í gær.
Hyggst skoða tilboð Castros
Kvaðst Clinton jafnframt reiðubú-
in að skoða alvarlega tilboð Rauls
Castro Kúbuforseta um viðræður, en
hann kveðst tilbúinn til að ræða
mannréttindi, stöðu pólitískra fanga,
frelsi fjölmiðla og önnur mál.
Á sama tíma kvaðst Jose Miguel
Insulza, framkvæmdastjóri Samtaka
Ameríkuríkja, OAS, myndu fara
þess á leit við meðlimi þeirra að
Kúbu yrði leyft ganga í þau á ný, 47
árum eftir að henni var vikið úr þeim.
Yfirlýsing Clinton kemur í kjölfar
þess að Bandaríkjastjórn samþykkti
fyrir helgi lög sem greiða fyrir heim-
sóknum Kúbverja sem eru búsettir í
Bandaríkjunum til ættingja sinna á
Kúbu og peningasendingum þangað.
Áður hafði Barack Obama Banda-
ríkjaforseti sagt það undir Kúbu-
stjórn komið hver næstu skref yrðu,
ásamt því sem hann ítrekaði að
stefnunni gagnvart henni yrði ekki
breytt á „einni nóttu“.
Aukin áhrif Kínverja
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
frá því viðskiptabannið var sett á ár-
ið 1962 í kjölfar byltingar Fidels
Castro, bróðurs núverandi forseta.
Kalda stríðinu er lokið og heims-
myndin mikið breytt frá því sem var
þegar Bandaríkjastjórn og Sovétrík-
in tókust á um kjarnavopn á eyjunni.
Nefna má að áhrif Kínverja á
Kúbu hafa farið vaxandi sem og víðar
í Mið- og Suður-Ameríku og kín-
verskar neysluvörur, s.s. örbylgju-
ofnar, vegið á móti viðskiptabanninu.
Kúbustefnan mistekist
Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, boðar
endurskoðun stefnunnar gegn kommúnistastjórninni á Kúbu
Reuters
Ný stefna Clinton á blaðamanna-
fundinum í Dóminíska lýðveldinu.