Morgunblaðið - 18.04.2009, Page 35
35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
Þung augnlok í þinglok Þingmenn hafa staðið í ströngu upp á síðkastið og láir þeim enginn að halla aðeins aftur augunum þegar sér fyrir enda þingsins.
Ómar
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson | 17. apríl
Kristján Þór og
bæjarstjórnarlaunin
Fyrirspyrjandi úti í sal
spurði hvort Kristjáni
Þór Júlíussyni fyndist
það eðlilegt að þiggja
80 þús. kr. tímakaup
fyrir að sitja bæjar-
stjórnarfundi, en gagnrýna einnig
launagreiðslur til Evu Joly vegna rann-
sókna á mögulegum glæpum sem
leiddu til bankahrunsins. Fyrirspyrjand-
inn velti því að vísu ekki fyrir sér að
e.t.v. eyddi Kristján miklum tíma í að
undirbúa sig og Kristján svo sem leið-
rétti það alls ekki - heldur hélt því
fram að hann hefði alltaf unnið vel fyr-
ir Akureyrarbæ. Mátti þannig jafnvel
skilja á honum að hann ætti nú bara
80 þús. kr. á tímann skilið, því að hann
væri svo frábær!
Nú ætla ég ekki að halda því fram
að Kristján hafi ekki unnið langan
vinnutíma sem bæjarstjóri eða alþing-
ismaður - ég á miklu frekar von á að
hann hafi unnið fyrir kaupinu sínu,
þannig séð; ég var og er ósammála
áherslum hans og Sjálfstæðisflokksins.
Mér finnst hins vegar athugavert að al-
þingismaður ætli sér líka að sinna
störfum bæjarfulltrúa í stóru sveitarfé-
lagi, jafnvel í litlu; varamaður ætti að
taka sæti þess sem situr á þingi. Því
að þetta getur komið niður á báðum
störfunum sem viðkomandi var kjörinn
í. Þessi skoðun er ekki byggð á því að
ásaka Kristján sérstaklega - enda er
hann ekki eini maðurinn sem hefur
setið í þessum sporum. Aðrir, svo sem
Árni Þór Sigurðsson og Steinunn Val-
dís Óskarsdóttir, sögðu af sér sem
borgarfulltrúar þegar þau settust á Al-
þingi.
Meira: ingolfurasgeirjohannesson-
.blog.is
STAÐFESTA, ráð-
deild og forgangsröðun
velferðarverkefna ein-
kenna efnahagsáætlun
ríkisstjórnarinnar.
Áætlunin er fram-
kvæmd í náinni sam-
vinnu við Alþjóðagjald-
eyrissjóðinn (AGS) og
byggir á stuðningi hans
og fjölmargra vina-
þjóða sem hafa fallist á
að leggja Íslandi lið á grundvelli
áætlunarinnar. Markmiðið er að
stýra íslensku samfélagi fljótt úr
brimskaflinum sem það er statt í
og byggja upp til framtíðar. Sú
uppbygging grundvallast á nýjum
samfélagssáttmála samstöðu, rétt-
lætis og jöfnuðar. Áætluninni er
ætlað að tryggja að hér verði innan
fárra vikna virkt bankakerfi sem
getur með afli þjónað fyrirtækjum
og heimilum. Áætluninni er ætlað
að koma stöðugleika á gengi krón-
unnar til þess að fyrirbyggja frek-
ari verðbólgu, lækka vexti og
tryggja fyrirtækjum ákjósanleg
vaxtarskilyrði sem fyrst. Áætl-
uninni er einnig ætlað að takmarka
skuldsetningu ríkissjóðs eins og
kostur er svo óbærilegar byrðar
verði ekki lagðar á komandi kyn-
slóðir. Á sama tíma er mikilvægt að
verja hag þeirra sem verst standa
og velferðaþjónustuna.
Aðhald og skýr forgangsröðun
í ríkisfjármálum
Stefnan í ríkisfjármálum er skýr
og mikilvægt að árétta að AGS set-
ur engar kröfur um einstök verk-
efni í þessum efnum. Mótun fjár-
laga innan ramma áætlunarinnar er
alfarið í höndum ríkisstjórnarinnar
og Alþingis. Samkvæmt áætluninni
er stefnt að því að skilað verði nær
hallalausum fjárlögum árið 2012 og
afgangi árið 2013. Þetta er gríð-
arleg umbreyting frá fjárlögum
ársins 2009 þar sem gert er ráð
fyrir nær 150 milljarða króna halla.
Það er því ljóst að næstu árin þarf
að sýna mikið aðhald
í ríkisrekstrinum til
að ná endum saman.
Fækkun ráðuneyta,
sameiningar stofn-
ana, stórhertar að-
gerðir gegn skatt-
svikum og ný
forgangsröðun verk-
efna verða að koma
til þannig að velferð-
arkerfið og kjör
hinna verst settu
verði varin. Skatta-
hækkanir munu ekki
leysa vandann en þegar hagvöxtur
eykst á ný munu auknar skatt-
tekjur vegna aukinnar veltu létta
undir með ríkissjóði.
Skuldir ríkissjóðs
vel viðráðanlegar
Þrátt fyrir að skuldir ríkissjóðs
hafi aukist í kjölfar bankahrunsins
verður stærstur hluti þeirra gagn-
vart innlendum aðilum í íslenskum
krónum. Heildarskuldir ríkissjóðs
verða líklega nærri 1.100 millj-
örðum króna í árslok 2009. Það
jafngildir um 73% af landsfram-
leiðslu ársins.
Erlendar skuldir ríkissjóðs eru
áætlaðar um 240 milljarðar króna í
árslok 2009. Stærstur hluti þessara
skulda er frá 2006 vegna styrk-
ingar gjaldeyrisforðans. Auk þess
telur skilanefnd Landsbankans að
líklega falli 73 milljarðar króna á
ríkissjóð vegna Icesave. Hugs-
anlegt er þó að fjárhæðin verði
lægri.
Innlendar skuldir ríkissjóðs
munu hins vegar verða um 817
milljarðar króna við næstu áramót
en þær voru aðeins 157 milljarðar
við árslok 2007.
Skuldaaukninguna má rekja til
halla á ríkissjóði í ár, beins taps
Seðlabankans og ríkissjóðs á hruni
fjármálafyrirtækja og eiginfjár-
framlags ríkissjóðs til banka og
sparisjóða.
Á móti þessum skuldum koma að
sjálfsögðu verulegar eignir. Eign-
arhlutir ríkissjóðs í fyrirtækjum
eru metnir á 581 milljarð við árslok
2009. Auk þess mun ríkissjóður
eiga um 355 milljarða í kröfum og
handbæru fé. Hrein staða ríkissjóðs
verður því aðeins neikvæð um 152
milljarða við árslok 2009 ef áætl-
unin gengur eftir, sem er um 10%
af landsframleiðslu.
Auk ofangreindra skulda mun
AGS og ýmsar vinaþjóðir leggja
Seðlabankanum til ríflega 5 millj-
arða bandaríkjadala. Þessu fjár-
magni er einvörðungu ætlað að
styrkja gjaldeyrisforða Seðlabank-
ans og auka stöðugleika krónunnar.
Lánið eykur því ekki á nettóskuldir
ríkissjóðs þar sem peningaleg eign
kemur á móti skuldinni. Einhvern
vaxtamun þarf ríkið engu að síður
að bera vegna þessara lána, líklega
um 2%.
Lægri vextir og stöðugt gengi
Veiking krónunnar undanfarnar
vikur hefur eðlilega valdið mörgum
áhyggjum. Veikingin er fyrst og
fremst vegna árstíðarbundinna
vaxtagreiðslna út úr landinu og
þess að einstök útflutningsfyrirtæki
virðast hafa farið á svig við gjald-
eyrishöftin. Allar forsendur eru
hins vegar fyrir styrkingu krón-
unnar. Gengið er þegar mun lægra
en eðlilegt getur talist til lengdar
og mikill afgangur af vöruskiptum
og minni útgreiðslur vaxta ættu að
leiða til styrkingar. Það er hins
vegar háalvarlegt mál ef einhverjir
aðilar grafa undan krónunni með
því að fara á svig við gjaldeyr-
ishöftin. Á slíku verður tekið af
fullri hörku sé það raunin.
Árangur efnahagsáætlunarinnar
er þegar farinn að sýna sig í lækk-
un verðbólgu og vaxta. Á nokkrum
mánuðum hefur verðlagsþróun á
milli mánaða farið úr ríflega 29%
verðbólgu á ársgrundvelli yfir í
6,9% verðhjöðnun. Ef svo heldur
fram sem horfir mun verðbólgan
verða talsvert undir fyrri áætl-
unum ársins og hafa náð 2,5%
markinu yfir 12 mánaða tímabil í
byrjun næsta árs. Mikil lækkun
verðbólgu hefur nú þegar leitt til
2,5% lækkunar vaxta. Hratt vaxta-
lækkunartímabil er hafið og við
vonumst að sjálfsögðu öll eftir
stórum og hröðum skrefum í þess-
um efnum. Við verðum að treysta á
leiðsögn og ákvörðunarvald nýrrar
peningastefnunefndar í þessu efni
og minnast þess að hún er skipuð
framúrskarandi sérfræðingum.
Hennar er valdið en ekki stjórn-
málamanna.
Enduruppbygging
bankanna á lokastigi
Eitt mikilvægasta verkefni efna-
hagsáætlunarinnar er endurreisn
fjármálakerfisins. Í þeim efnum
höfum við notið liðsinnis erlendra
sérfræðinga á borð við Mats Jo-
sepsson, Kaarlo Jannari og al-
þjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins
Hawkpoint. Gríðarlegur árangur
hefur náðst á þessu mikilvæga
sviði í tíð núverandi ríkisstjórnar
og sér nú fyrir endann á því verk-
efni. Samningar við erlenda lán-
ardrottna gömlu bankanna og upp-
gjör Icesave-reikninganna eru
grein af þessum meiði og mik-
ilvægt að þeim verði lokið í sátt
samhliða endurreisn fjármálakerf-
isins. Slík sátt er forsenda þess að
Ísland geti áfram átt í fjármála-
legum samskiptum við erlenda
banka og ríki og með þeim hætti
verið virkur þátttakandi í alþjóð-
legum viðskiptum. Allir hljóta að
sjá að það er eina leiðin fyrir ís-
lenskt atvinnulíf, eigi það að ná sér
á fullan skrið innan fárra ára.
Samkvæmt áætlun ríkisstjórn-
arinnar ætti innan fárra vikna að
vera komið hér á laggirnar vel
starfhæft bankakerfi í réttum hlut-
föllum við hagkerfið. Slíkur bak-
hjarl er atvinnulífinu lífsnauðsyn-
legur í uppbyggingarstarfinu sem
framundan er.
Framtíðin er björt þrátt fyrir
tímabundna erfiðleika
Þrátt fyrir erfiða stöðu í efna-
hagsmálum þjóðarinnar og heims-
ins alls þá er mikilvægt að muna að
þetta eru tímabundnir erfiðleikar
sem íslenska þjóðin getur vel staðið
af sér. Samheldni, þolgæði og áræði
munu koma okkur út úr brimskafl-
inum innan skamms ef við gefumst
ekki upp eða berumst af leið. Hrak-
spár um þjóðargjaldþrot eða afsal
auðlinda þjóðarinnar eru tilefn-
islausar verði haldið áfram á þeirri
braut sem nú hefur verið mörkuð í
samstarfi við AGS og vinaþjóðir Ís-
lands. Hið eina sem gæti komið
okkur í slíka stöðu eru óábyrgar til-
lögur um að unnt sé að leysa vand-
ann með því að hafna samstarfi við
alþjóðasamfélagið og hlaupast á
brott frá skuldbindingum okkar. Ef
eitthvað ógnar framtíð Íslands um
þessar mundir eru það slík villuljós.
Á ríflega 70 dögum hefur rík-
isstjórninni tekist að snúa vörn í
sókn og endurreisnin er hafin í
samræmi við skýrt markaða efna-
hagsáætlun. Við verðum að halda
áfram á þeirri braut án hiks eða
undandráttar. Við verðum að
standa saman og tryggja hag
þeirra sem minnst mega sín. Við
verðum að horfa til framtíðar og
ekki leggja of þungar byrðar á
komandi kynslóðir. Við verðum að
nýta þann kraft sem býr í íslensku
þjóðinni og alls ekki gefast upp.
Efnahagsstefna stjórnvalda er
ábyrgur grundvöllur fyrir endur-
uppbyggingu hagkerfisins til
skemmri tíma. Með aðild-
arviðræðum við Evrópusambandið
og upptöku evru væri lagður
traustur grunnur að varanlegum
efnahagslegum stöðugleika á Ís-
landi og lífskjörum eins og þau ger-
ast best í Evrópu. Slíka framtíð-
arsýn kjósa þeir sem treysta
Samfylkingunni til áframhaldandi
forystu við stjórn landsins eftir
næstu kosningar.
Eftir Jóhönnu
Sigurðardóttur »Markmiðið er að
stýra íslensku sam-
félagi fljótt úr brim-
skaflinum sem það er
statt í og byggja upp til
framtíðar.
Jóhanna Sigurðardóttir
Höfundur er formaður
Samfylkingarinnar.
Ábyrg efnahagsstjórn út úr brimskaflinum
BLOG.IS