Morgunblaðið - 18.04.2009, Síða 36
36 UmræðanKOSNINGAR 2009
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
ÖSE stendur fyrir Öryggis- og sam-
vinnustofnun Evrópu og hefur starfað frá
1975. Markmið ÖSE er í sjálfu sér fjölþætt.
Hins vegar hefur eitt helsta markmið ÖSE-
þingsins verið kosningaeftirlit þess. Starf-
semi þess hefur aukist umtalsvert í samstarfi
við hinar ýmsu fjölþjóðastofnanir á síðustu
árum. Þetta árið hafa þeir ákveðið að koma
hingað. En af hverju ? Hér má nefna tvær
ástæður. Annars vegar hefur 5% reglan svo-
kallaða verið þyrnir í augum nýrra framboða.
Þessi regla beinlínis hamlar nýjum fram-
boðum og tryggir stöðu þeirra flokka sem nú
eru á þingi. Í öðrum löndum í kringum okkar er þessi
prósenta ekki nærri jafnhá fyrir utan Þýskaland (5%) og
ef til vill Svíþjóð (4%). Þess má geta að í aðdraganda al-
þingiskosninga 2007 lýsti formaður VG yfir mikilli sam-
úð með leiðtoga nýrrar hreyfingar út af 5% reglunni. Þó
heldur hann sem fastast í hana þessa dagana enda verð-
ur að gera allt til þess að hans flokkur fái sína ráðherra-
stóla. Ég hef heyrt að það sé nokkuð þægilegt að sitja í
þeim. Hins vegar juku stjórnmálaflokkar í sameiningu
styrki frá ríkinu til sín í samræmi við þá pró-
sentutölu sem þú fékkst. Til að fá styrkinn
þurfti samt ekki að hafa fengið yfir 5% heldur
þurfti aðeins að hafa náð 2,5% í síðastliðnum
kosningum. Til gamans má geta að sam-
kvæmt samstæðureikningum flokkanna námu
fjárframlög ríkisins til þeirra árið 2007 alls kr.
424.767.466. Í fyrsta lagi er ég alls ekki sam-
mála því að eftir því sem flokkurinn er stærri
því meiri pening fáirðu. Til að virkja lýðræðið
sem best þarf þetta fjármagn að vera til-
tölulega jafnt á alla flokka. Í öðru lagi fær
nýtt framboð enga fjármuni frá ríkinu, ekki
einu sinni þó það safni öllum meðmælendum
mögulegum. Þetta er lýðræðið sem við búum
við hér á landi.
Til að lýðræði virki þarf að bera virðingu fyrir því. Hér
hef ég nefnt tvö dæmi um ástæður fyrir því að ÖSE fylg-
ist með þessum kosningum og þó er ónefnt ábyrgð-
arhlutverk fjölmiðla sem þeir hafa alls ekki staðið sig í.
Meira um það í næstu grein.
Af hverju fylgist ÖSE með kosn-
ingunum á Íslandi árið 2009?
Eftir Jóhann Gunnar Þórarinsson
Jóhann Gunnar
Þórarinsson
Höfundur er á framboðslista Borgarahreyfingarinnar.
Þegar minnihlutastjórnin tók við í byrj-
un febrúar var það yfirlýst markmið henn-
ar að vinna í þágu atvinnulífs og heimila,
meðal annars með markvissum aðgerðum
til að sporna við atvinnuleysi. Nú er ljóst
að þessi loforð voru fagurgali og hjóm eitt.
Í nýrri skýrslu Vinnumálastofnunar kemur
fram að atvinnuleysi hefur þvert á mark-
mið vinstristjórnarinnar aukist um meira
en þriðjung á þeim stutta tíma sem hún
hefur setið við völd.
Verst af öllu er þó að hvergi eygir í að-
gerðir til að rétta þessa þróun við og það
virðist frekar vera þannig að ríkisstjórnin berjist
gegn atvinnuskapandi uppbyggingu. Skynsamleg
nýting orkuauðlinda landsins í þágu hagsældar ís-
lensku þjóðarinnar hefur ávallt verið stefna stjórn-
valda. Nú ríður á að staðinn verði vörður um þessa
stefnu, til dæmis í orkufrekum iðnaði. Það hlýtur
því að teljast áhyggjuefni ef ráðherrar Vinstri
grænna ætla sér að berjast gegn slíkri uppbygg-
ingu með kjafti og klóm.
Við Íslendingar höfum alltaf borið gæfu til þess
að nýta okkar orkuauðlindir og taka þeim tækifær-
um sem fyrir hendi eru. Ljóst er að slík uppbygg-
ing myndi færa okkur mörg þúsund störf núna á
ögurstundu í íslensku samfélagi.
Eins og áður sagði lýsti ríkisstjórnin því
yfir þegar hún tók við fyrir um tíu vikum
að atvinnulíf og heimili væru aðalviðfangs-
efni þeirra. Sárafá mál sem einhverju
skipta fyrir þessar tvær meginstoðir okk-
ar þjóðar hafa þó litið dagsins ljós og lítið
er gert til að bregðast við síversnandi
stöðu.
Eitt af þeim málum sem ríkisstjórnin
hefur hvað mesta áherslu lagt á er frum-
varp um svokallaða greiðsluaðlögun og
eftir því máli biðu margir. Þegar á reyndi
kom í ljós að ferlið er of flókið og svifa-
seint og gengur út á að senda þá sem eru
illa staddir fyrir héraðsdóm þar sem þeir
fá tilsjónarmann. Þetta útspil leysir ekki vanda
þeirra fjölmörgu fjölskyldna sem nú standa höllum
fæti. Að sama skapi vantar upp á að stjórnin sé að
tala fyrir nýjum lausnum og tækifærum í atvinnulíf-
inu. Á meðan atvinnuleysisskráin telur nær 18 þús-
und manns verður að gera betur og bjóða upp á
lausnir og uppbyggingu. Staðreyndin er nefnilega sú
að atvinnuuppbygging sem tryggir störf er varanleg
lausn við greiðsluerfiðleikum og atvinnuleysi. At-
vinnuuppbygging er ekki tímabundinn verkjastillir
heldur sú breyting sem fólk í vanda statt þarf á að
halda.
Hvar er atvinnustefna
ríkisstjórnarinnar?
Eftir Kristján Þór Júlíusson
Kristján Þór
Júlíusson
Höfundur er alþingismaður.
ÞVÍ miður hafa kjör
launafólks rýrnað. Verð-
bólga og okurvextir hafa
séð um það. Hvað er til
ráða? Verðbólgan er
orðin að verðhjöðnun.
Vaxtaokrið er enn við
lýði. Peninganefnd
Seðlabankans hefur
ekki getað skýrt þá
ákvörðun sína að við-
halda 15,5% stýrivöxt-
um. Vaxtaokrið hefur
verið nefnt „tilvonandi fortíð-
arvandi“. Þetta er umhugsunarverð
áminning.
Ábyrgð gagnvart skuldurum
Okrinu verður að linna. Þeir sem
stýra vöxtum verða að axla ábyrgð
gagnvart lántakendum. Þá þarf að
finna með hvaða hætti á að létta
byrðar þeirra sem eru að kikna
undan þeim. Hér þurfum við að
vanda okkur því svigrúmið er tak-
markað. Þegar hafa verið samþykkt
lög um greiðsluaðlögun. Þau gefa
andrými. Sama á við um lög sem
styrkja réttarstöðu skuldara – erf-
iðara er nú að ganga að heimilum
þeirra við gjaldþrot. Aukið andrými
dugar þó ekki til. Frekari aðgerða
er þörf. Ástæðan fyrir því að við
þurfum að vanda okkur er sú að við
höfum úr takmörkuðum fjármunum
að spila – vitum reyndar ekki enn
hverjir þeir eru – og þurfum að
finna markvissustu formúlurnar.
Yfirvegun í stað óðagots
Talað hefur verið um að færa höf-
uðstól skuldara niður um tiltekið
hlutfall, einnig um tiltekna krónu-
tölu. Að mínu mati þarf að þróa
þessa hugsun áfram þannig að hún
taki til þeirra sérstaklega sem
keyptu íbúð þegar húsnæðisverð –
og í kjölfarið einnig verðbólgan –
var í hámarki. Með öðrum orðum,
tímasetning lántökunnar skiptir
höfðumáli. Markmiðið er
að jafna kjör og aðstöðu
þeirra sem urðu óðaverð-
bólgu og sprengingu á
húsnæðismarkaði að bráð
og okkar hinna sem
sluppum að þessu leyti.
En ég ítreka: Verst af
öllu er óðagotið.
Flumbrugangur síðustu
ríkisstjórnar, í þeim ráð-
stöfunum sem hún á ann-
að borð greip til, er ekki
til eftirbreytni.
Sumir lækka – aðrir hækka
Síðan eru það launakjörin. Verð-
bólgan hefur sargað í þau, auk nið-
urskurðar. Hvað launin áhrærir er
krafan afdráttarlaus. Stjórnendur í
fyrirtækjum og stofnunum verða að
hlífa þeim sem eru á lágum launum
og með meðaltekjur. Kjör þessara
hópa verður að bæta. Hinir sem
bera mikið úr býtum verða hins
vegar að lækka. Kjarajöfnun þýðir
að sumir lækka en aðrir hækka. Sá
sem tekur 24 milljónir inn á ári fyr-
ir hlutavinnu á að lækka. Sá sem er
með 2 milljónir fyrir fulla vinnu á
að hækka. Það er verkefni komandi
kjarasamninga. Það á að vera leið-
arljós stjórnenda. Þeir eiga að
vernda störfin og bæta kjör lág-
tekjuhópa.
Kjarajöfnun á nefnilega að þýða
kjarabót fyrir þá sem raunverulega
þurfa á henni að halda.
Áformin eru skýr
Um þær aðferðir þarf að mynda
þjóðarsátt. Í þessu sambandi eru
áform ríkisstjórnarinnar tvíþætt: a)
að stöðva uppboð og árásir á skuld-
ara og b) nota andrúmið til að þróa
aðferðir til að létta byrðarnar með
sanngjörnum hætti. Þannig getum
við komist út úr þeim tímabundnu
vandræðum sem okkur voru sköp-
uð.
Kjarajöfnun
er kjarabót
Eftir Ögmund Jón-
asson
Ögmundur
Jónasson
Höfundur er heilbrigðsráðherra.
* *
@
– meira fyrir áskrifendur
Sólskinsvika á Madeira
fyrir heppinn áskrifanda
Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift eða í síma 569 1122
Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar í Mogga-
klúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Í hverjum mánuði er t.d.
dregið út nafn heppins áskrifanda sem hlýtur veglegan ferðavinning.
Aprílvinningur í Moggaklúbbnum
Vikuferð fyrir tvo fullorðna og eitt barn til Madeira með Sumarferðum
að andvirði 300.000 kr. Dvalið á 5 stjörnu útsýnishótelinu CS Madeira.
APRÍL