Morgunblaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 38
38 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
ÞRIÐJUDAGINN
31.3. birtist pistill eftir
Ragnhildi Sverr-
isdóttur í Morg-
unblaðinu undir fyr-
irsögninni
„Skóflustungur og ráð-
deild“. Fjallar Ragn-
hildur um byggingu
nýrra Stúdentagarða, talar um hegð-
un „eins og enn sé 2007“ og líkir við of
stóran lyfjaskammt sem hún þurfti að
kaupa handa dóttur sinni. Segir hún
að hálfbyggð hús á höfuðborgarsvæð-
inu ætti að nýta fyrir stúdenta líkt og
restina af hinum rándýru töflum hefði
mátt nýta fyrir annað barn.
Ragnhildur spyr nokkurra spurn-
inga sem ég tel mér skylt að svara.
Þær eru: „… er virkilega ástæða til
að reisa ný fjölbýlishús?“ „Væri ekki
hægt að ljúka við einhver þeirra fjöl-
mörgu, sem standa hálfkláruð um all-
ar trissur, eða breyta lítillega þeim
sem þegar eru risin?“ „… en af
hverju í ósköpunum
þurfa stúdentar að
byggja frá grunni? Er
eitthvert vit í því?“.
Félagsstofnun stúd-
enta (FS) er sjálfseign-
arstofnun í eigu stúd-
enta við Háskóla
Íslands sem hefur í 40
ár unnið að uppbygg-
ingu stúdentagarða.
Húsnæðisþörf stúdenta
er metin af eftirspurn.
Frá árinu 1996 hefur
takmark FS verið að
veita 15% stúdenta við HÍ kost á
garðvist, en það er samanlagður fjöldi
þeirra sem búa á görðum og þeirra
sem allajafna eru á biðlista. Er hlut-
fallið í takt við það sem sambærileg
félög á Norðurlöndum bjóða.
Fyrir nokkrum árum, þegar upp-
bygging stúdentagarða gekk sem
hraðast, gat FS boðið 7% stúdenta
við HÍ húsnæði. Vegna fjölgunar há-
skólanema, og skorts á úthlutun á
byggingarlandi, er hlutfallið nú ein-
ungis 5,4%. Tekið skal fram að stúd-
entum fjölgar ekki bara í kreppu en
samkv. tölum Hagstofunnar fjölgaði
nýnemum á háskólastigi um 70% á
árunum 1997-2007. Við uppbyggingu
stúdentagarða horfir FS til nokkurra
meginþátta: hagkvæmni, staðsetn-
ingar og endingar. Hagkvæmi við
byggingu Stúdentagarða næst helst
með því að byggja fjölbýli með mörg-
um smáum einingum og lítilli sam-
eign. Eru þeir frábrugðnir flestum
fjölbýlum sem hér hafa verið byggð
síðustu ár þar sem mikil áhersla hefur
verið lögð á stærð. Flestir Stúd-
entagarðar FS eru á háskólalóðinni
en þegar fullbyggt var á lóðinni var
sóst eftir úthlutun annars staðar í
borginni. FS hefur lagt áherslu á að fá
lóðir miðsvæðis, í nágrenni við HÍ, ná-
lægt strætisvagnaleiðum og hjólastíg-
um, þannig að þeir sem ekki vilja reka
bíl eigi raunverulegt val. FS hefur af-
þakkað fjölda tilboða um bygging-
arland sem uppfyllir ekki þessi skil-
yrði. Þau byggingafélög sem byggt
hafa fyrir námsmenn í úthverfum og á
landsbyggðinni hafa að undanförnu
gripið til aðgerða vegna skorts á eft-
irspurn. FS hefur ekki staðið frammi
fyrir sama vanda. Má það líklega
þakka stefnu um staðsetningu. FS
leggur áherslu á endingargott efnisval
til að lágmarka viðhaldskostnað. Einnig
er lögð áhersla á að lágmarka bygging-
arkostnað. Áherslur í byggingarstíl og
efnisvali síðustu ár hafa verið gerólíkar
áherslum FS. Þrátt fyrir mikinn þrýst-
ing, þörf á húsnæði, vilja og getu til að
byggja hefur uppbygging Stúd-
entagarða FS gengið hægt síðustu ár.
Var hinu svokallaða góðæri þar helst
um að kenna. Ýmsar lóðir voru í boði en
stofnunin féll aldrei í þá gryfju að kaupa
þær dýru verði. Slík kaup hefðu kallað á
lántökur sem hefðu orðið fjárhagsleg
byrði á stúdentum framtíðarinnar. Lóð-
ir voru einnig nefndar, og jafnvel taldar
til á undirrituðum viljayfirlýsingum
Reykjavíkurborgar, en breytingar í
borgarstjórn og tilboð fjársterkra aðila
urðu til þess að aðrir eignuðust þær. Á
meðan lengdust biðlistar, stúdentum
fjölgaði og húsaleiga á almennum
markaði hækkaði.
Á síðustu mánuðum hefur ástandið
hins vegar gjörbreyst eins og allir vita.
Skyndilega stendur húsnæði autt og
ekki er ljóst hvernig ljúka á við verkefni
sem komin eru af stað. FS hefur, eins
og aðrir, fundið fyrir þessari breytingu
og stofnuninni borist tilboð úr ýmsum
áttum, frá verktökum og eigendum
fasteigna, um íbúðarhúsnæði og lóðir til
kaups. Tökum við á móti öllum sem
telja sig hafa lausn á húsnæðisvanda
stúdenta og kynnum okkur hugmyndir
þeirra. Tilboðin eru margvísleg en
eiga það sameiginlegt að FS á að
greiða fyrir og ganga inn í verkefni
sem ekki gekk upp samkvæmt upp-
haflegu plani. Enn sem komið er hef-
ur enginn boðið hagkvæmari kost en
að stofnunin byggi áfram sjálf.
Ég tek undir með Ragnhildi, það er
slæmt að þurfa að kaupa 96 töflur
fyrir barn sem þarf aðeins að nota 28.
Eins tel ég óhagkvæmt að kaupa 96
fermetra fyrir stúdent sem kemst vel
af í 28. FS mun nú, sem fyrr, fyrst og
fremst hafa hagsmuni stúdenta að
leiðarljósi. Það er kannski hagur ein-
hverra að FS kaupi hálfbyggðar
blokkir í úthverfum borgarinnar en
það er ekki hagur stúdenta. Það er
dapurt að sjá ónotað húsnæði, en al-
veg skýrt að FS mun ekki ljúka við
verkefni sem aðrir lögðu af stað með,
nema það sé hagkæmt fyrir stúdenta.
Ég hef samúð með þeim sem hafa
tapað á húsnæði sem nú stendur autt
en það er hlutverk mitt að sýna ráð-
deild og gæta hagsmuna stúdenta
bæði í góðæri og kreppu.
Ég vona að ljóst sé af ofangreindu
að til að FS geti komið að fasteigna-
málum verður leiga að vera á stúd-
entaverði, hvort sem árið er 2007 eða
2009.
Guðrún Björns-
dóttir svarar pistli
Ragnhildar Sverr-
isdóttur um bygg-
ingu stúdentagarða
»Eins tel ég óhag-
kvæmt að kaupa 96
fermetra fyrir stúdent
sem kemst vel af í 28.
Guðrún Björnsdóttir
Höfundur er framkvæmdastjóri
Félagsstofnunar stúdenta.
Uppbygging stúdentagarða í góðæri og kreppu
KOSNINGABARÁTTA sú sem nú
stendur yfir hefur illu heilli hvorki
snúist um menn né málefni. Engin
gaumur er nú gefinn að þeirri stað-
reynd að vinstriflokkarnir hyggjast
nú hrinda öllum þeim málum, sem
þjóðin hefur ítrekað hafnað í fram-
kvæmd. Þannig fá Vinstri grænir og
Samfylkingin fullkominn frið til að
boða að atvinnuuppbygging í
tengslum við orkufrekan iðnað skuli
stöðvuð, lagður skuli auka tekjuskatt-
ur á launþega, laun skuli lækkuð,
lagður skuli á sérstakur eignaskattur
sem helst bitnar á eldri borgurum og
áfram mætti telja. Ekki einu sinni
kosningaloforð þessara flokka um að
setja þær atvinnugreinar sem enn
standa styrkum stoðum á hausinn fá
gagnrýna umfjöllun fjölmiðlanna.
Landsbyggðin lifir
á veiðum og vinnslu
Sú staðreynd kann að koma
vinstriflokkunum á óvart að í sjáv-
arbyggðum landsins býr enn drjúgur
hluti þjóðarinnar. Íbúar í heima-
byggðum höfunda þessarar greinar,
Vestfjörðum, Vestmannaeyjum og
Snæfellsnesi, eru um 5% þjóðarinnar.
Með elju, útsjónarsemi og óþrjótandi
trú á sjávarútveginn hefur íbúum
þessara svæða tekist að eignast um
30% af aflaheimildum Íslendinga.
Megnið af þessum verðmætum hafa
fyrirtæki og einstaklingar á þessum
atvinnusvæðum keypt, því andstætt
því sem vinstrimenn halda fram hafa
á milli 80 og 90% af aflaheimildum
skipt um eigendur frá því að afla-
markskerfinu var komið á. Að gefnu
tilefni og með tilliti til orðræðu vinstri
flokkanna skal það tekið fram að eng-
inn af höfundum þessarar greinar á
gramm af kvóta né hefur átt slík
verðmæti. Allir búum við hinsvegar í
bæjum þar sem allt stendur og fellur
með sjávarútvegi og hagsmunir okk-
ar, sjómanna, fiskverkafólks og út-
gerðarmanna fara því saman. Íbúar
þessara svæða hafa frá því að byggð
hófst haft metnað fyrir sjávarútvegi
og lifað á veiðum og vinnslu. Jafnvel
þegar útrásin stóð sem hæst blind-
uðust þeir ekki af skjótfengnum
gróða bankanna heldur héldu sínu
striki. Á þeim tíma fengum við í sjáv-
arbyggðum nokkuð góðan frið fyrir
löngum ríkisvæðingarfingrum Sam-
fylkingarinnar enda voru fingurnir þá
notaðir til að klappa fyrir Baugi sem
styrkti þá jú um þriðjung hverrar
krónu sem kom í kassa þeirra. Sjáv-
arútvegurinn var ekkert annað en
slorvinna sem við á landsbyggðinni
gátum dundað okkur við á meðan
elíta Samfylkingarinnar var að sinna
alvöru atvinnugreinum á borð við list-
sköpun, bókaskrifum, og vinnu á fjöl-
miðlunum.
Á að taka aflaheimildirnar
af afkomendunum?
Nú horfir öðruvísi við. Á ný hefur
höfuðborgarelíta Samfylkingarinnar
með varaformanninn og fyrrverandi
borgarstjóra í broddi fylkingar áttað
sig á að íslenskt hagkerfi stendur og
fellur með sjávarútvegi. Þar hefur hin
raunverulega verðmætasköpun átt
sér stað og enn eru þar verðmæti. Í
landsfundarályktun Samfylking-
arinnar segir „Allar aflaheimildir í
núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi
verða innkallaðar eins fljótt og auðið
er“. Þetta merkir að loforð Samfylk-
ingarinnar er að taka aflaheimild-
irnar af íbúum sjávarbyggðanna og
deila þeim út á „sanngjarnari máta“.
Getur verið að íbúar þessara byggða
vilji stuðla að því að kosningaloforð
þetta nái fram að ganga?
Feigðarleiðin
Stjórnendur og starfsmenn sjávar-
útvegsfyrirtækja hafa lýst yfir mikl-
um áhyggjum af kosningarloforði
Samfylkingarinnar því þrátt fyrir að
ganga fram undir merkjum vinnu og
velferðar lofa þeir íbúum sjáv-
arbyggða gjaldþroti og atvinnuleysi.
Vönduð úttekt Deloitte á fyrning-
arleiðinni sýndi að það tekur stærstu
og öflugustu sjávarútvegsfyrirtæki
landsins einungis sex ár með fimm
prósenta fyrningu að fara á hausinn.
Leiðina mætti því allt eins kalla feigð-
arleiðina. Verði hraðar farið tekur
það skemmri tíma. Slíkt hefði í för
með sér hörmungar fyrir sjáv-
arbyggðirnar því er hægt að lofa.
Með loforð sem þetta í handraðanum
þarf ekki að undrast að vinstri flokk-
arnir vilji ekki ræða málefni. Stað-
reyndin er sú að þegar horft er bak
við sykurhúðun vinstriflokka á „sann-
gjarnri“ fyrningarleið blasir eftirfar-
andi við:
Fyrningarleiðin er í eðli sínu
þjóðnýting. Aflahlutdeildir sem út-
gerðin hefur keypt verða gerðar upp-
tækar og boðnar upp á almennum
markaði.
Fyrningarleiðin vegur að rótum
sjávarútvegsins; eykur óstöðugleika,
kemur í veg fyrir markmiðssetningu
og langtímahugsun og stórskaðar af-
komumöguleika fyrirtækjanna.
Fyrningarleið leiðir til óhag-
kvæmni og sóunar. Fyrirtækin geta
ekki gert langtímaáætlanir vegna
óvissu um aflaheimildir og verð
þeirra.
Fyrningarleiðin kemur til með
að valda fjöldagjaldþroti sjávar-
útvegsfyrirtækja og annarra fyr-
irtækja í sjávarbyggðum.
Vinstriflokkarnir lofa að reka
sjávarútveginn í gjaldþrot
Elliði Vignisson, Halldór Hall-
dórsson og Kristinn Jónasson
skrifa um sjávarútvegsmál
»Úttekt Deloitte á
fyrningarleiðinni
sýndi að það tekur öflug
sjávarútvegsfyrirtæki
einungis sex ár með
fimm prósenta fyrningu
að fara á hausinn.
Elliði Vignisson
Elliði er bæjarstjóri í Vestmanna-
eyjum, Halldór er bæjarstjóri
í Ísafjarðarbæ, Kristin er bæjarstjóri
í Snæfellsbæ
Kristinn Jónasson Halldór Halldórsson
Verslunin hættir 20. apríl kl. 18
Opið frá kl. 12-18 alla daga
Frábært verð
Langholtsvegi 42
RÝMINGARSALA
Utankjörstaðaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins
GÖNGUM HREINT TIL VERKS
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninganna
25. apríl nk. er hafin.
Kosið er hjá sýslumönnum um allt land. Í Reykjavík er kosið
í anddyri Laugardalshallarinnar alla daga kl. 10.00 - 22.00.
Erlendis er kosið í sendiráðum Íslands og hjá mörgum ræðis-
mönnum. Upplýsingar um kjörstaði erlendis má finna á xd.is.
Einnig er kosið á sjúkrahúsum og öldrunarstofnunum
skv. sérstökum auglýsingum þar um.
Munið að hafa skilríki meðferðis.
Utankjörstaðaskrifstofan veitir allar upplýsingar og aðstoð við
kosningu utan kjörfundar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar
á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins, www.xd.is og á upplýsingavef
dómsmálaráðuneytisins www.kosning.is.
Sjálfstæðisfólk!
Látið okkur vita um stuðningsmenn sem ekki verða heima
á kjördag, t.d. námsfólk erlendis.
Utankjörstaðaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 2. hæð, 105 Reykjavík
Sími: 515 1735 - Fax: 515 1717 - GSM: 898-1720
Netfang: utankjorstada@xd.is