Morgunblaðið - 18.04.2009, Page 44
44 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
✝ Hreinn ÞórirJónsson var
fæddur að Stað í Að-
alvík í N-Ísafjarð-
arsýslu 3. október
1930. Hann lést á
Fjórðungssjúkrahús-
inu á Ísafirði 10. apríl
síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru hjónin Dóróthea
Margrét Magn-
úsdóttir frá Sæbóli í
Aðalvík, f. 30. júlí
1906, d. 28. maí 1969,
og Jón Magnússon
frá Stað, f. 22. júlí, 1904, d. 14.
mars 1995. Systkini Hreins eru
Baldur Trausti, f. 14. júní 1932, d.
6. janúar 1996, og Guðný Hrefna, f.
27. júlí 1935.
Þann 10. mars 1955 kvæntist
Hreinn eftirlifandi eiginkonu sinni
Amalíu Kristínu Einarsdóttur
(Kiddý) frá Ísafirði, f. 19. júní
1931. Foreldrar hennar voru hjón-
in Elísabet Samúelsdóttir, f. 18.
ágúst 1913, d. 25. maí 1974, og
Einar Gunnlaugsson f. 10. mars
1905, d. 19. október 1977.
Börn Hreins og Kiddýar eru: 1)
Einar, f. 4. nóvember 1954, maki
Anna Karen Kristjánsdóttir. Þeirra
börn eru: a) Kristín Dröfn, maki
m.a. við netagerð á Ísafirði, Siglu-
firði og í Keflavík. Árið 1953 hóf
hann nám í rafvirkjun hjá Þórólfi
Egilssyni á Ísafirði og starfaði við
iðn sína í áratug þar til hann ræðst
sem vélgæslumaður hjá Íshúsfélagi
Ísfirðinga árið 1964 og starfaði þar
í 35 ár. Hreinn og Kiddý reistu sér
hús að Engjavegi 16 á Ísafirði og
hafa búið þar síðan árið 1957.
Hreinn stundaði skíðagöngu á sín-
um yngri árum og lagði hönd á
plóg við að efla skíðaíþróttina í
bænum. Hann hafði yndi af söng
og var félagi í Karlakór Ísafjarðar
og formaður hans um tíma. Hann
átti sæti í stjórn Vestfirskra nátt-
úruverndarsamtaka á áttunda ára-
tugnum og var ákafur stuðnings-
maður stofnunar
Hornstrandafriðlands. Einnig sat
hann í sóknarnefnd Ísafjarð-
arkirkju í mörg ár. Hreinn hafði
sterkar taugar til æskustöðvanna
og var um árabil formaður Átt-
hagafélags Sléttuhrepps á Ísafirði
og nágrenni. Árið 1980 byggðu
þau hjónin lítið sumarhús í Aðalvík
og var þar þeirra sælureitur alla
tíð.
Útför Hreins fer fram frá Ísa-
fjarðarkirkju í dag, 18. apríl 2009,
og hefst athöfnin kl. 14.
Meira: mbl.is/minningar
Þórarinn Örn Andr-
ésson og eiga þau tvö
börn. b) Benedikt
Hreinn, sambýliskona
Þuríður Pétursdóttir.
c) Dóróthea Margrét,
sambýlismaður
Magni Hreinn Jóns-
son, d) Kristján Sig-
mundur, e) Sunna
Karen. 2) Margrét
Kristín, f. 1. sept-
ember 1958, maki
Þorsteinn Jóhann-
esson. Þeirra börn
eru a) Magnús Þórir
b) Þuríður Kristín. 3) Jón Heimir,
f. 18. júní 1963, maki Inga Bára
Þórðardóttir. Þeirra synir eru a)
Hreinn Þórir b) Hjalti Heimir. 4)
Baldur Trausti, f. 15. mars 1967,
maki Harpa Magnadóttir. Þeirra
börn eru a) Tómas Helgi b) Eva.
Hreinn ólst upp í Aðalvík, fyrst
að Stað og í Þverdal en árið 1936
reisa foreldrar hans nýbýlið Sæ-
borg í landi Garða og búa þar í 12
ár þar til þau flytja að Seljalandi í
Skutulsfirði.
Hreinn gekk í barnaskólann á
Sæbóli, Héraðsskólann að Núpi og
lýkur síðan gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskólanum á Ísafirði vor-
ið 1948. Eftir það starfaði hann
Hreinn Þórir Jónsson var stór-
brotinn persónuleiki og í samræmi
við það kvaddi hann þetta líf á dán-
ardægri frelsarans. Fyrstu kynni
okkar voru 1961, ég 10 ára púki
sem lagðist inn á sjúkrahús vegna
botnlangabólgu, hann 31 árs raf-
virki sem hafði slasast á hendi.
Þarna fékk ég að deila stofu með
þremur fullorðnum köllum, kynn-
ast kímni þeirra, stríðni og nær-
gætni. Ekki held ég að Hreini hafi
boðið í grun að þessi drengstauli
sem var stofufélagi hans ætti eftir
að verða tengdasonur hans, en frá
þessari stundu var okkur ætíð vel
til vina.
Hreinn fæddist og ólst upp í Að-
alvík og segja má að það umhverfi
hafi ávallt fylgt honum og sett svip
á gerðir hans og framkomu. Hann
var hafsjór fróðleiks, um menn,
málefni og búskaparhætti, og sagði
frá á hnyttinn og gamansaman
hátt. Það var gaman að ganga með
Hreini um æskuslóðir hans Aðal-
víkina, hlusta á hann segja sögu
sveitarinnar og þylja upp örnefni
hennar. Mér segir svo hugur að fá-
ir hafi haft þau á hraðbergi sem
hann. Hann merkti þessi örnefni
inn á mynd af „Víkinni“ þannig að
þau falla ekki í gleymskunnar dá
og verða komandi kynslóðum upp-
spretta þekkingar.
Hreinn hafði yndi af hverskyns
útiveru og náttúruskoðun, hann
kunni deili á fuglum og dýrum í ís-
lenskri náttúru betur en flestir og
var óþreytandi við að fræða afa-
börnin sem höfðu gaman af og
nutu samvista við hann. Ákafamað-
ur um skíði og skíðagöngu meðan
heilsan leyfði og naut þeirra
stunda með fjölskyldu sinni og vin-
um. Hreinn var félagslyndur mað-
ur og tók hann þátt í söng og öðru
menningarlífi Ísafjarðar, hann var
formaður Karlakórs Ísafjarðar um
árabil og heiðursfélagi karlakórs-
ins Ernis. Oft minntist hann þess-
ara ára með hamingjubliki í augum
og sagði frá skemmtilegum uppá-
komum í kórstarfinu og kórferðum
og dró ekki undan eigin flumbru-
skap.
Hreinn var starfsmaður Íshús-
félags Ísfirðinga lungann af starfs-
ævi sinni og bar hann hag Íshúss-
ins ávallt fyrir brjósti sér. Honum
þótti vænt um fyrirtækið og sam-
starfsmenn, en var ósáttur við
starfslokin. Hamingjumaður í
einkalífi, lagði sig í framkróka við
að koma sínum til manns, eignaðist
fjögur börn með konunni sinni
Kiddý sem ávallt stóð sem klettur
við hlið hans. Á skírdag heimsótt-
um við afa Hrein á sjúkrahúsið
ásamt börnum okkar þeim Magn-
úsi Þóri og Þuríði Kristínu. Þá var
ljóst hvert stefndi. Þegar afi skynj-
aði nærveru barnanna lifnaði hann
allur við og spjallaði örlítið, vatt
sér síðan að Magnúsi og sagði með
glettni í augum: „Jæja Magnús
minn, heldur þú að við eigum eftir
að fara aftur saman upp á Hjall-
hól?“ „Nei, það held ég nú ekki, afi
minn,“ svaraði afastrákurinn. Á
leiðinni heim frá afa segir Magnús
stundarhátt. „Ég veit að afi Hreinn
deyr á sama degi og Jesús.“
Nú er skarð fyrir skildi, eftir
sitja ástvinir og afkomendur og
sakna góðs eiginmanns, föður, afa,
langafa og tengdaföður, sem aldrei
þoldi vol né víl. Það verður tóm-
legra á Engjavegi16 en það tóma-
rúm verður fyllt með góðum minn-
ingum sem aldrei deyja. Ég kveð
kæran tengdaföður með virðingu
og þakklæti.
Þorsteinn Jóhannesson.
Elskulegur tengdafaðir minn,
Hreinn Þórir Jónsson, er látinn.
Með honum er genginn mætur
maður. Mig langar að minnast
hans. Vegir okkar Hreins lágu
saman eftir að ég kynnist Einari
eiginmanni mínum, elsta syni hans
og Kiddýjar.
Hreinn var hár, myndarlegur og
dökkur yfirlitum á sinum yngri ár-
um. Hreinn var elskulegur og góð-
ur tengdafaðir. Hann var mikil
barnagæla og var barnabörnum
sínum einstakur afi. „Afi er skrýt-
inn kall“ var viðkvæðið hjá honum
er hann var að gantast við afabörn-
in sín. Barnabörnin veittu honum
mikla gleði. Hann var ljúfur og
heiðarlegur. Hreinn gat verið
ákveðinn og fastur fyrir, en alltaf
léttur og kátur. Það var ávallt stutt
í húmorinn hjá honum. Hann sá
alltaf það spaugilega í tilverunni og
gat verið stríðinn. Í góðra vina
hópi átti hann það til að kasta fram
spaugilegri athugasemd eða fara
með vísukorn um málefni líðandi
stundar, sneri sér svo gjarnan
snöggt í hálfhring og hló hátt að
öllu saman.
Það var mikil gæfa fyrir Hrein
að hitta hana Kiddý, þau giftu sig í
mars 1955. Hún hefur staðið við
hlið hans í gegnum lífið. Fyrstu bú-
skaparár sín bjuggu þau í sambýli
við foreldra Hreins að Seljalandi
við Skutulsfjörð. Þau byggðu sér
svo hús að Engjavegi 16 á Ísafirði
og fluttu inn í það á jólum 1957.
Þar hafa þau svo búið í ástríku
hjónabandi allan sinn búskap. For-
eldrar Hreins fluttu síðar á neðri
hæðina. Í húsinu ríkti hamingja og
þar var gott að koma og alltaf tek-
ið á móti manni opnum örmum.
Hreinn hafði ávallt sterkar
taugar til æskuslóðanna, þar sem
lagðist byggð af á fimmta áratugn-
um. Hann var formaður Átthaga-
félags Sléttuhrepps um árabil og
sveitungar hans kölluðu hann
„hreppstjórann“. Hreinn og Kiddý
byggðu sér árið 1980 sumarbústað
í Aðalvík eða „kofa“ eins og Hreinn
kallaði hann. Þangað fóru þau á
sumrin, þar hitti hann gamla sveit-
unga og rifjaði upp bernskuárin.
Þar þótti þeim gott að dvelja. Ég
minnist ógleymanlegra ánægju- og
gleðistunda í „kofanum“ á Borg.
Hreinn var mikill áhugamaður
um skíðaíþróttina, hann stundaði
hana og var þátttakandi í uppbygg-
ingu skíðamannvirkja á Ísafirði á
sjötta og sjöunda áratugnum.
Hann hafði yndi af söng, var for-
maður Karlakórs Ísafjarðar og
heiðursfélagi.
Hreinn var duglegur og vinnu-
samur maður, rafvirki að mennt,
en mestan hluta starfsævi sinnar
vann hann sem vélstjóri hjá Íshús-
félagi Ísfirðinga. Fyrir nokkrum
árum veiktist Hreinn alvarlega og
náði sér aldrei fullkomlega upp úr
þeim veikindum. Þrátt fyrir að
hann héldi húmornum, dofnaði lífs-
gleðin sem alltaf einkenndi Hrein
og hann varð aldrei samur aftur,
lífsneistinn hvarf. Hreinn Jónsson
tengdafaðir minn kvaddi svo þenn-
an heim á föstudaginn langa.
Ég votta elskulegri tengdamóður
minni innilega samúð, missir henn-
ar er mikill. Stórt skarð er nú
höggvið í fjölskylduna. Hreins er
sárt saknað en minning hans mun
lifa.
Rótt við blíða blæinn
blóm hvert sofnað er,
kveð ég dáinn daginn
draumljúf nóttin heilsar mér.
(Úr ljóðinu Aðalvík e. Jón Pét-
ursson)
Anna Karen Kristjánsdóttir.
Núna er hann afi Hreinn dáinn.
Afi á Engjó, „stríðinn, ljótur og
leiðinlegur“ eins og hann sagði allt-
af og rak upp svo mikinn rokna-
hlátur að undir tók á Engjaveg-
inum. Einhvern tíma þegar ég var
lítil tókst honum að fá mig til að
samþykkja þessa lýsingu á honum
og það þótti honum óskaplega
fyndið. „Er afi ekki stríðinn, ljótur
og leiðinlegur?“ spurði hann mig
langt fram á fullorðinsár og fannst
alltaf jafn sniðugt þegar ég jánkaði
því. Hann var nefnilega mjög stríð-
inn, en hvorki ljótur né leiðinlegur.
Þvert á móti var afi bæði stór-
myndarlegur og stórskemmtilegur
karl.
Hann hafði mikla ánægju af
barnabörnunum sínum og lék
ávallt á als oddi þegar þau voru ná-
lægt. Þau voru ófá skiptin sem
amma lánaði snyrtidótið sitt svo
hægt væri að snurfusa afa, setja
varalit, augnskugga, teikna á hann,
og setja teygjur í hárið. Það var nú
skrautlegt útlitið á honum eftir
þær aðfarir. Einu sinni um fimm
ára aldur, ofbauð mér svo stríðnin í
afa því hann hafði ítrekað kallaði
mig Skjónu, sem ég var ægilega
ósátt við. Ég varð á endanum svo
reið að ég sló hann í hnéð, en ekki
vildi betur til en svo að ég hand-
leggsbraut mig við höggið. Þessu
hefur mikið verið hlegið að síðan í
fjölskyldunni, þær eru nú örugg-
lega ekki margar 5 ára stelpurnar
sem hafa beinbrotnað við að lemja
afa sinn. En þetta fannst afa
Hreini alveg svakalega fyndið og
sagði oft söguna af þessu afdrífa-
ríka höggi.
Undanfarin ár hafði dregið mjög
af afa, en þegar hann var innan um
afabörnin sín, og svo síðan langafa-
börnin, lifnaði yfir honum og hann
naut þess að grínast og auðvitað
stríða svoldið. Hann var aldrei of
þreyttur fyrir krakkana. Það er
gott að hugsa til þess að við gátum
öll kvatt hann afa, öll fjölskyldan
var samankomin um páskana þeg-
ar hann kvaddi þennan heim. Svo-
leiðis hefði hann viljað hafa það.
Þegar við systkinin hugsum um
afa Hrein sjáum við hann fyrir
okkur sólbrúnan og sællegan norð-
ur í Aðalvík. Hvítt hárið úfið,
prakkarasvipur og bros sem
breytti öllu í gott grín. Þannig ætl-
um við að muna hann afa okkar.
Við sjáum hann fyrir okkur sigla á
skektunni inn í sólarlag sem aðeins
sést í Aðalvík.Takk fyrir allt elsku
afi, alla skemmtunina og fjörið. Þú
lifir í okkur.
Fyrir hönd systkinanna
á Urðarveginum,
Kristín Dröfn Einarsdóttir
(Kiddý litla)
Hreinn kom snemma inn í líf
okkar bræðra, þegar hann gerði
hosur sínar grænar fyrir elstu
systur okkar og hefur æ síðan ver-
ið órjúfanlegur hluti af lífi okkar.
Hann var mikill barnakall og nut-
um við þess í ríkum mæli. Ekkert
veitti honum eins mikla gleði og
börnin og hefur hann verið óþreyt-
andi að segja sögur af þeim. Hann
hefur allt fram á þennan dag sagt
sögur úr bernsku okkar og rifjað
upp spaugileg atvik og þannig
varðveitt dýrmæt augnablik frá
æskuárunum sem eru okkur mikils
virði. Ungur að árum þurfti hann
að yfirgefa Aðalvíkina sína þegar
byggð lagðist þar af og fluttist með
foreldrum sínum að Seljalandi í
Skutulsfirði en þar hófu þau
Hreinn og Kiddy sinn búskap.
Margs er að minnast frá langri
samfylgd með mági okkar. Ferð-
irnar á mótorhjólinu inn að Selja-
landi, þegar við stóðum varla útúr
hnefa, annar á afturhnakknum og
hinn á bensíntanknum. Öll jólin
þegar stórfjölskyldan kom saman,
fyrst hjá mömmu og pabba og svo
til skiptis hjá okkur systkinunum.
Sumrin í sumarhúsi fjölskyldunnar
í Aðalvíkinni böðuð af miðnætur-
sólinni við silungsveiðar, söng og
harmonikkuspil, glaðværðin og
hinn smitandi hlátur „hreppstjór-
ans“, allt er þetta geymt í minn-
ingabankanum í góðri ávöxtun.
Mágur okkar fór ekki varhluta af
erfiðleikum lífsins, síðustu árin
hafa verið honum erfið vegna
heilsubrests. Þótt ekki væri alltaf
bjart framundan var ávallt stutt í
húmorinn og frásagnarhæfileikann,
barna- og barnabarnabörnin héldu
áfram að koma og veittu honum
ómælda gleði.
Hvíl í frið, kæri mágur, takk fyr-
ir samfylgdina.
Þín verður sárt saknað.
Samúel Einarsson (Sammi) og
Gunnlaugur Einarsson (Gulli)
Um árabil var Hreinn vélstjóri í
Íshúsfélagi Ísfirðinga ásamt Gunn-
ari Kristjánssyni. Pabbi minn, Sig-
urleifur Jóhannsson, sá um að
setja þar upp nýjar vélar eða gera
við bilaðar eftir því sem þurfti.
Þeir þrír unnu því mikið saman
lengi og tengdust sterkum vináttu-
böndum. Sú mynd sem greyptist í
huga mér í gegnum tíðina af
Hreini Jónssyni var að hann var
stór á allan hátt. Stórvaxinn, stór í
sér og hreinn og beinn. Eftir að
hafa séð hvað hann var stór í vin-
áttu sinni bar ég og ber enn
ómælda virðingu fyrir honum.
Það var hluti af vinskap þessara
manna að orða það sem þurfti með-
al annars í bundnu máli. Einn
skildi eftir fyrripart vísu á blaði á
vinnuborði og næsti samdi seinni-
partinn og skrifaði á blaðið sem
var áfram á borðinu fyrir þá sem
vildu lesa. Það er einhver sjarmi
yfir svona leik sem var leikinn í
áratugi með miklum húmor.
Bæði Hreinn og Baldur bróðir
hans voru viðkvæmir í lund, svona
stórir og sterklegir. Einhvern veg-
inn tengdi ég þetta Hornströnd-
unum, landslagi og veðurfari þar.
Þar lifði ekki annað fólk af en það
sem hafði mikla líkamlega burði.
En svo þurfti það líka að þekkja
sjálft sig og geta búið með fáum
öðrum náið lengi án þess að allir
fengju nóg. Ég var bara svona 7
ára þegar Baldur sat við kaffi-
borðið heima hjá okkur í Aðal-
strætinu og lýsti því með
tilþrifum að forynjur hefðu sótt
að sér um nóttina og hann hefði
ekki haft önnur ráð til varnar en
að fara innst í rúmið svo eiginkon-
an væri fyrir framan þegar draug-
arnir sóttu að. Mér fannst þetta al-
veg einstaklega fyndið að maður
sem hefði sómt sér leikandi Tarzan
í kvikmynd hræddist drauga og
segði það hverjum sem heyra vildi.
Pabbi og mamma gerðu samstund-
is ferskeytlu um atburðinn:
Við drauga og allskyns óhreint lið
oft á Baldur harða brýnu.
Það er helst hann fái frið
fyrir ofan Vigfúsínu.
En lífið er ekki bara húllumhæ
og Hreinn var ekki bara skemmti-
legur á góðum stundum. Þegar
veikindi voru var hann alltaf fyrsti
maður að koma í heimsókn með
hlýju og uppörvun. Það var ljóst að
pabba fannst mun bærilegra að
liggja með blæðandi magasár þeg-
ar Hreinn sat á næsta stól segjandi
honum á hverju gekk í bænum. Og
hann kom ekki bara einu sinni í
viku. Hreinn kom dag eftir dag.
Ég heyrði líka af Hreini hjá afa-
systur minni, Kristínu kennara.
Eitt sinn kom hún heim til okkar
og var mikið niðri fyrir. Hún hafði
verið í heimsókn hjá góðri vinkonu
sinni, mömmu Hreins og þær
höfðu rifist, sem næstum aldrei
gerðist. Kristín rauk á dyr í fússi.
Strunsaði út með látum. En hún
komst ekki langt. Hreinn kom á
eftir henni og tók hana í bónda-
beygju og bar hana inn í eldhús til
mömmu sinnar. Sagði þeim að þær
skildu ekki svona. Dyrnar yrðu
ekki opnaðar fyrr en þær væru
sáttar, annars yrðu þær báðar leið-
ar vikum saman. Margir menn
hefðu látið sem þeim kæmi svona
ekki við.
Hreinn átti góða fjölskyldu sem
mun harma hann endalaust og
minnast mannkosta hans.
Ég votta þeim samúð.
Svala Sigurleifsdóttir.
Sól að hafi hnígur
hamra gyllir tind,
með söngvum svanur flýgur,
sunnan móti þýðum vind.
Króna hægt á blómum bærist,
brosa þau svo unaðsrík.
Kvölds þá yfir friður færist,
fegurst er í Aðalvík.
(Jón Pétursson.)
Kær vinur er nú kvaddur, þakk-
aðar góðar stundir á bernskuslóð-
um,samvinna og samvera á fullorð-
ins árum. Aldrei verður farið svo í
Aðalvíkina að ekki verði með þökk
minnzt hreppstjórans á Borg og
glaðra, góðra stunda á Sæbóli. Ein-
lægar samúðarkveðjur til eigin-
konu og fjölskyldu Hreins Þóris
Jónssonar.
Snorri Hermannsson.
Hreinn Þórir Jónsson
Fleiri minningargreinar um Hrein
Þóri Jónsson bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.