Morgunblaðið - 18.04.2009, Qupperneq 49
Minningar 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
✝ Erlendur Sigurðs-son fæddist á Urr-
iðaá í Álftaneshreppi
19.2. 1938, hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Akraness 13. apríl sl.
Foreldrar hans
voru voru Hólmfríður
Þórdís Guðmunds-
dóttir, f. 28.11. 1909,
d. 15.2. 2000 og Sig-
urður Guðjónsson
bóndi, f. 31.3. 1899, d.
16.7. 1990. Systur
hans eru Jóna, f. 1935,
maki Kjartan Magn-
ússon og Guðrún, f. 1951, maki Sig-
urbjörn Garðarsson. Árið 1966 gift-
ist Erlendur Guðmundu Ólafsdóttur,
f. 8.3. 1948, d. 16.11. 1998, eiga þau
eina dóttur, Sólveigu Róshildi, f.
25.8. 1964, maki Ólafur Júlíusson, f.
1964. Börn þeirra: Guðrún Hólm-
fríður, f. 1986, maki Hrannar Mark-
ússon, f. 1984, Elín Rós, f. 1991,
Thelma Lind, f. 1995 og Guðjón Óli,
f. 1997. Guðmunda og Erlendur
skildu. Sonur Erlendar og Rögnu Jó-
hannesd. er Þórir, f. 13.8. 1971. Með
fyrri konu sinni Hörpu Júlíusdóttur
á Þórir börnin Jóhönnu Steinunni, f.
1993, og Björn Bjarka, f. 1995, maki
Þóris er Berglind Ólafsdóttir og
aftur. Árið 1972 réði hann sig sem
ráðsmann að Árnesi í Aðaldal og
tveimur árum síðar fluttist hann í
Nes, þar var hann bóndi næstu 15
árin. Í Nesi var kúabú en fljótlega
fór Erlendur að leggja stund á
hestarækt enda mikill hestamaður,
seinustu árin í Nesi byggði hann
minkabú. Erlendur var mikill hand-
verksmaður og byrjaði að hanna og
smíða reiðtygi. Allt handverk hans
bar vott um nákvæmni og vönduð
vinnubrögð og urðu reiðtygi frá
honum eftirsótt um allt land. Hann
var barngóður og átti auðvelt með
að liðsinna ungdómnum, og eru þeir
ófáir drengirnir sem nutu leiðsagn-
ar hans í Nesi. Árið 1989 flutti Er-
lendur frá Nesi og næstu árin vann
hann ýmis störf. Árið 1998 kynntist
hann eftirlifandi eiginkonu sinni.
Hófu þau búskap í Keflavík árið
2000. Það var honum hugleikið að
allir gætu notið návistar við hestinn
og að undirlagi Guðrúnar Fjeldsted
hóf hann hönnun og smíði á hnakkn-
um Seif sem er ætlaður fyrir fatlaða.
Árið 2003 fluttust Erlendur og
Gunnfríður að Galtarholti í Borg-
arfirði. Árið 2004 stofnuðu þau
verslunina Knapann í Borgarnesi og
starfaði hann þar ásamt því að smíða
fyrir verslunina fram á síðasta dag.
Erlendur verður jarðsunginn frá
Borgarneskirkju í dag, 18. apríl, og
hefst athöfnin kl. 14.
Meira: mbl.is/minningar
eiga þau Ragnheiði
Ýri, f. 2006. Árið 1974
giftist Erlendur Arn-
dísi Steingrímsdóttur
frá Nesi í Aðaldal, f.
21.9. 1931 d. 11.1.
2004. Börn Arndísar
eru Sigríður Margrét,
f. 1956, Hálfdán, f.
1957 og Steingerður,
f. 4.10. 1971. Erlendur
gekk Steingerði í föð-
urstað, dóttir hennar
og Stefáns H. Björg-
vinssonar, f. 1969, er
Svandís Dögg, f. 1994.
Erlendur og Arndís skildu. Þann
12.7. 2003 giftist Erlendur eftirlif-
andi eiginkonu sinni, Gunnfríði Sig-
urharðardóttur, f. 8.7. 1953. Hennar
foreldrar eru Sigurhörður Frí-
mannsson, f. 1929 og Ásta Krist-
insdóttir, f. 1925.
Erlendur ólst upp á Urriðaá í
Álftaneshreppi. Þar undi hann sér
við bústörfin. Ungur fór hann að
sýna handlagni við hverskyns smíð-
ar. Um tvítugt hélt hann suður og
fór á sjóinn. Hann réð sig sem ráðs-
mann að Korpúlfsstöðum. Hann
vann ýmis störf í landi, var bílstjóri
hjá Daníel Ólafssyni og á verkstæði
Strætós. Á árunum 67-71 sigldi hann
Kveðja frá eiginkonu
Nú er komið að kveðjustund, elsku
Elli minn. Mér finnst sú stund koma
alltof fljótt, en það ber að þakka
hversu vel allt gekk hjá okkur þann
stutta tíma sem við áttum saman. Og
sá tími var yndislegur, þú varst bak-
hjarlinn minn og ég var prinsessan
þín. Þú vildir allt fyrir mig gera, nú
sit ég eftir og hugsa um öll þau verk
sem þig langaði til að klára áður en
kallið kæmi og ég veit að börnin þín
og afabörnin munu hjálpa mér að
ljúka einhverju af þeim verkum sem
þér vannst ekki tími til.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Minning þín lifir í hjörtum okkar,
elsku Elli.
Far þú í friði, Guð geymi þig.
Þín,
Gunnfríður.
Ein fyrsta minningin mín er frá því
ég var þriggja ára gömul þegar þú
komst í Nes og gekkst mér í föður-
stað. Þú varst mér góður, vildir allt
fyrir mig gera og ég fékk að skottast
með þér í búverkunum. Hestar voru
þitt líf og yndi og ekki var ég há í loft-
inu þegar ég fór fyrst á hestbak. Þú
hvattir mig áfram, fórst með mig og
vinkonur mínar á reiðnámskeið, lést
mig hafa krefjandi hesta að kljást við
og leiðbeindir og fylgdir mér eftir
þegar ég fór að keppa. Þú hafðir
gaman af að ferðast og þá sérstak-
lega af hestaferðum. Ég og vinkon-
urnar fengum að fara í styttri ferðir
og fyrir okkur var það toppurinn á til-
verunni. Þú hafðir unun af að temja
og kenna dýrum ýmsar kúnstir, t.d.
smíðaðirðu aktygi á tíkina Pollý svo
hún gæti dregið mig á snjóþotu og
kenndir hestinum Skotta að rísa upp
á afturfæturna og tylla framfótunum
á axlirnar á þér.
Hugsi maður aftur til áranna í
Nesi, koma upp ýmis minningabrot:
Þú að leggja þig eftir hádegismatinn
og ég kúri hjá þér í stofusófanum.
Heyskapur og ég fæ að sitja á drátt-
arvélinni eða á baggavagninum. Á
vetrarkvöldum gripum við oft í spil
mér til mikillar ánægju. Gestkvæmt
var í Nesi og oft glatt á hjalla, þú
kynntist fjölda fólks gegnum smíð-
arnar og hestamennskuna, á sumrin
voru vinnumenn og oft komu ættingj-
ar í heimsókn. Ég man eftir hljóðinu í
rafsuðuvélinni og slípirokknum þeg-
ar þú varst að smíða ístöð eða stangir,
einnig leðurlyktinni þegar þú varst
að skera leður í reiðtygi. Þú varst
fjölhæfur og allt lék í höndunum á
þér hvort sem þú varst að vinna með
leður eða járn, viðgerðir sem og
hönnun.
Eftir skilnað ykkar mömmu, flutt-
ist þú suður og sambandið varð stop-
ulla, en eftir að þið Guffý kynntust,
hittumst við oftar, sérstaklega eftir
að þið fluttuð í Borgarfjörðinn. Það
var gott að geta kíkt í kaffi á leið suð-
ur eða norður og oftar en ekki fékk ég
gistingu. Alltaf var vel tekið á móti
manni með mat, kaffi og notalegheit-
um. Mér fannst þú blómstra þessi
síðustu ár á heimaslóðunum þar til
heilsan fór að gefa sig.
Sumarið 2007 var ég í Borgarfirð-
inum í nokkra daga, mig langaði að
skoða Snæfellsnesið og bað ykkur
Guffý að koma með. Við fórum hring-
inn á Nesinu í fallegu veðri og skoð-
uðum það helsta. Ég vildi keyra en
það var engu tauti við þig komið, þú
keyrðir með súrefniskútinn aftur í,
ferðin gekk að óskum og allir voru
ánægðir.
Þrátt fyrir að vera heilsutæpur síð-
ustu árin, lagðirðu alltaf þitt af mörk-
um, fannst nýjar leiðir til að láta hlut-
ina ganga og komst upp aðstöðu til að
gera ýmislegt sem annars var ill-
mögulegt. Ég veit þú hefðir viljað
eiga fleiri stundir með Guffý en það
verður ekki á allt kosið og í raun var
ótrúlegt hvað þið náðuð að byggja
upp á ekki lengri tíma.
Elsku pabbi, ég er svo þakklát fyr-
ir að þú skyldir hringja í mig á páska-
dagskvöld og að ég hafi náð að kveðja
þig þá, þó ekki grunaði mig að þetta
yrði okkar síðasta samtal. Eftir situr
söknuður en jafnframt þakklæti fyrir
þann góða tíma sem við áttum saman.
Elsku Guffý, Rósa, Þórir og fjöl-
skyldur, guð veri með ykkur.
Steingerður Örnólfsdóttir.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
Hafðu gát á hjarta mínu
halt mér fast í spori þínu,
að ég fari aldrei frá þér,
alltaf, Jesús, vertu hjá mér.
Um þig alltaf sál mín syngi
sérhvern dag, þó eitthvað þyngi.
Gef ég verði góða barnið,
geisli þinn á kalda hjarnið.
(Ásmundur Eiríksson.)
Elsku afi Elli.
Mér fannst svo gaman að fá að
koma til þín og ömmu Guffý og fá að
gista hjá ykkur yfir heila helgi, í febr-
úar sl. Ég er alltaf segja mömmu og
pabba hvað það var gaman að vera
með ykkur og honum Tinna mínum.
Og eins þegar hann Björn Bjarki
var fermdur á skírdag, þá fannst mér
svo gaman að stinga af úr veislunni
og koma til þín út í bíl og „passa“ þig.
Ég þakka fyrir þann tíma sem við
áttum saman og ég mun ávallt sakna
þín.
Hvíldu í friði, elsku afi minn.
Elsku amma Guffý, ég bið góðan
Guð að vaka yfir þér.
Þín sonardóttir,
Ragnheiður Ýr.
Elsku afi Elli minn.
Þetta bjóst ég ekki við að fara að
gera, skrifa minningargreinina þína.
Þú varst ekki á leiðinni að fara að
kveðja þegar ég sá þig síðast, þann 9.
apríl síðastliðinn, þar sem þú sast í
fína jeppanum þínum sem þú loksins
eignaðist. Ég kyssti þig og knúsaði
og síðustu orð mín til þín voru:
„Komdu hérna og kysstu mig
sæti….“ Þú fórst að hlæja og kvaddir.
Ef ég bara hefði vitað að þetta væri
síðasta skipti sem ég myndi sjá þig,
elsku afi.
Núna verður allt svo skrýtið, eng-
inn afi Elli….enginn til að laga allt
sem bilar, brotnar og slitnar.
Elsku afi, þú varst svo mikill snill-
ingur, mér fannst þú kunna allt.
Ég er svo glöð hvað ég var mikið
með þér seinustu átta árin, þegar þú
fluttir upp í Keflavík og svo í Galt-
arholt í Borgarnesi með henni Guffý.
Elsku afi, það sást langar leiðir hvað
þú varst ástfanginn.
Ég á margar yndislegar minningar
frá því þegar ég var með ykkur
Guffý, eins og til dæmis þegar við fór-
um hringinn í kringum landið þegar
ég var 10 ára, ohh, það var svo gam-
an, við vorum bara þrjú, ég þú og
Guffý á gamla Chevrolet Malibuinum
ykkar. Mér fannst þú vera aðaltöff-
arinn og á þessari glæsikerru með
tjaldvagninn í eftirdragi þeyttumst
við um landið og skoðuðum okkur um
og heimsóttum ættingja víðsvegar
um landið.
Svo gleymi ég aldrei þegar ég kom
til ykkar í Galtarholt í hálfan mánuð
eitt sumarið og fór á reiðnámskeið
Guðrúnar Fjeldsted. Þú keyrðir mig
og sóttir alla dagana og stundum
horfðir þú á. Mér fannst ég gera þig
svo stoltan.
Sveitakall varstu. Þú varst nú ekki
sáttur þegar þú sást afastelpuna leifa
öllu sem var hollt og gott fyrir mann.
Ég átti að klára matinn og ekki taka
meira en ég þurfti á diskinn og hana-
nú!
Elsku afi minn, þú munt alltaf lifa í
hjarta mér og nú veit ég að þér líður
alltaf vel.
Elska þig, afi minn.
Við sjáumst á bláu eyjunni.
Þín,
Elín Rós Ólafsdóttir.
Erlendur Sigurðsson
Fleiri minningargreinar um Er-
lend Sigurðsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Ástkær stjúpfaðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
EIRÍKUR ELÍ STEFÁNSSON,
fyrrverandi skrifstofustjóri,
Bólstaðarhlíð 45,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 11. apríl.
Hann verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í
Reykjavík mánudaginn 20. apríl kl. 11.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á
minningarkort Hringsins til styrktar veikum börnum á Íslandi
Grétar H. Óskarsson, Ingibjörg G. Haraldsdóttir,
Eiríkur Á. Grétarsson, Lisa Grétarsson,
Ragnheiður Ýr Grétarsdóttir, Guðbrandur Magnússon,
Haraldur E. Grétarsson, Mjöll Þórarinsdóttir
og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærrar
eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
UNNAR STEINDÓRSDÓTTUR,
Vatnskoti 2,
Þykkvabæ,
sem lést miðvikudaginn 25. mars á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Guði blessi ykkur öll.
Gunnar Guðmundsson,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐFINNA P. HINRIKSDÓTTIR
frá Flateyri,
Litlu Grund,
Reykjavík,
sem andaðist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
miðvikudaginn 8. apríl, verður jarðsungin í Grafar-
vogskirkju mánudaginn 20. apríl kl. 15.00.
Guðrún Greipsdóttir, Sigurður Lárusson,
Hinrik Greipsson, Ásta Edda Jónsdóttir,
Eiríkur Finnur Greipsson, Guðlaug Auðunsdóttir,
Guðbjartur Kristján Greipsson, Svanhildur Bára Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, dóttur, ömmu og systur,
HELGU SIFJAR JÓNSDÓTTUR,
Skagabraut 28,
Garði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeildar Landspítalans
við Hringbraut og starfsfólks D-deildar og heimahjúkrunar
Heilbrigðistofnunar Suðurnesja.
Guðmundur Örn Ólafsson,
Halldór Kr. Guðmundsson,
Magni Freyr Guðmundsson, Kristjana Vilborg Þorvaldsdóttir,
Linda Guðmundsdóttir, Martin King,
Ólafur Örn Guðmundsson, Íris Birgitta Hilmarsdóttir,
Guðmundur Jökull Guðmundsson,
Jón H. Jónsson, Soffía Karlsdóttir,
barnabörn og systkini.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÞÓRHALLUR ÞORLÁKSSON,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn
21. apríl kl. 15.00.
Guðríður I. Einarsdóttir,
Örn Þórhallsson,
Þórunn Þórhallsdóttir,
Sigríður Þórhallsdóttir,
Einar Þ. Þórhallsson,
Hörn Harðardóttir.