Morgunblaðið - 18.04.2009, Side 50
50 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
Sólrún
Kjartansdóttir
✝ Sólrún Kjart-ansdóttir fæddist
í Reykjavík 25. sept-
ember 1932. Hún lést
á Hjúkrunarheimilinu
Eir 31. mars 2009.
Útför Sólrúnar var
gerð í kyrrþey.
Meira: mbl.is/minningar
Sveinn Snjólf-
ur Þórðarson
✝ Sveinn SnjólfurÞórðarson fædd-
ist í Steinholti í
Stöðvarfirði 15. jan-
úar 1918. Hann lést á
hjúkrunardeild Fjórð-
ungssjúkrahússins í
Neskaupstað 28.
mars sl.
Útför Sveins var gerð frá Norðfjarð-
arkirkju 6. apríl sl.
Meira: mbl.is/minningar
Kristinn
Guðbjartsson
✝ Kristinn Guð-bjartsson fædd-
ist í Reykjavík 25.
september 1982.
Hann lést á heimili
sínu laugardaginn 21.
mars 2009 og var út-
för hennar gerð frá
Grafarvogskirkju 2. apríl.
Meira: mbl.is/minningar
Minningar á mbl.is
Guðrún
Álfgeirsdóttir
✝ Guðrún Álf-geirsdóttir
fæddist í Reykjavík
14. nóvember 1939.
Hún lést á gjör-
gæsludeild Land-
spítalans í Fossvogi
14. mars 2009.
Foreldrar hennar
voru Álfgeir Gíslason frá Gröf í
Hrunamannahreppi, f. 20.12. 1897,
d. 8.8. 1974 og Olga Vilhelmína
Sveinsdóttir frá Læk í Önundarfirði
f. 30.7. 1901, d. 30.8. 2000. Guð-
rún átti 2 systkini : Gísla Álfgeirs-
son f. 29.5. 1931, d. 25.2. 1997 og
Kristin Álfgeirsson f. 8.1. 1937.
Hinn 5. desember 1964 giftist
Guðrún Guðmundi Jóhannssyni hús-
gagnakaupmanni frá Patreksfirði f.
31.5. 1941, d. 7.6. 1998.
Börn Guðrúnar og Guðmundar
eru: 1) Olga Björk hjúkrunarfræð-
ingur f. 5.4. 1963, maki: Snorri
Hreggviðsson, þeirra börn eru Heið-
dís, f. 28.10. 1987, og Harpa, f. 2.11.
1994. 2) Hólmfríður sjúkraliði, f.
16.7. 1968, maki: Sighvatur Bjarna-
son, þeirra börn eru Fannar Freyr, f.
18.6. 1997 og Brynjar Dagur f. 11.7.
2003. 3) Jóhanna Hjördís þjónustu-
fulltrúi, maki: Jóhannes R. Ólafsson.
Þeirra börn eru Dagný Björk, f.
19.12. 1995 og Guðmundur Aron f.
19.7. 2004.
Guðrún starfaði við verslunarstörf
lengst af ævi sinnar og stunduðu
þau hjónin saman verslunarrekstur.
Síðustu árin vann Guðrún við sjálf-
boðaliðastörf hjá Rauða krossi Ís-
lands.
Útför Guðrúnar fór fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík föstudaginn
20. mars sl.
Meira: mbl.is/minningar
Stefán
Halldórsson
✝ Stefán Hall-dórsson fæddist
á Hlöðum í Hörgárdal
20. maí 1927. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri laugardaginn
4. apríl 2009.
Útför Stefáns fór fram frá Gler-
árkirkju 11. apríl sl.
Meira: mbl.is/minningar
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför okkar elskulegu móður, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
FJÓLU BJARNADÓTTUR,
Kirkjuvegi 5,
Keflavík.
Þökkum veitta aðstoð.
Stefán Haraldsson, Svanhildur Kjær,
Guðrún Haraldsdóttir, John Bridger,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, bróður, mágs, afa og
langafa,
RAGNARS HEIÐARS SIGTRYGGSSONAR,
Gógó,
Kjarnagötu 14,
Akureyri,
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahlynningar á
Akureyri fyrir kærleiksríka umönnun.
Sonja Gunnarsdóttir,
Guðrún Friðjónsdóttir, Aðalsteinn Árnason,
Gunnar Jónsson, Sigrún Gunnarsdóttir,
Ragnheiður Ragnarsdóttir, Auðun Benediktsson,
Sigtryggur Ragnarsson,
Kamilla Ragnarsdóttir, Ragnar Björnsson,
Hermann Lýður Ragnarsson, Elín Ragnarsdóttir,
Borgar Ragnarsson,
Sigurður R. Ragnarsson, Bjarney Jóný Bergsdóttir,
Arna Ragnarsdóttir,
Anna Ragnarsdóttir, Guðmundur Sigurðsson,
Hermann Sigtryggsson, Rebekka Guðmann,
afa- og langafabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður og afa,
SIGURÐAR ÞORLEIFSSONAR
frá Karlsstöðum,
Boðahlein 22,
Garðabæ,
sem lést á heimili sínu sunnudaginn 5. apríl.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til allra þeirra sem sinntu honum í veikindum hans.
Stefanía M. Sigurðardóttir, Sveinn Elísson,
Sigríður A. Sigurðardóttir, Kári Húnfjörð Bessason,
Sólveig Þ. Sigurðardóttir,
Sigrún G. Sigurðardóttir, Ólafur Ásgeirsson,
Siggerður Ó. Sigurðardóttir,
Jóna K. Sigurðardóttir, Þór Jónsson
og barnabörnin.
✝
Alúðarþakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð
og vinarhug við fráfall móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
JÓNÍNU GUÐJÓNSDÓTTUR,
Þórshöfn.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilisins
Nausts fyrir hlýhug og góða umönnun á liðnum
árum.
Guðjón Davíðsson, Anna Eymundsdóttir,
Þórdís Davíðsdóttir, Hafsteinn Steinsson,
Oddný Suarez, William Suarez,
Jón Davíðsson, Sigríður Bjarnadóttir,
Sigurjón G. Davíðsson, Erla Jóhannesdóttir,
Steinunn B. Björnsdóttir, Halldór K. Jakobsson,
Jónína M. Davíðsdóttir, Einar Ólafsson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Seljahlíð,
áður til heimilis í Grýtubakka 10,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Seljakirkju mánudaginn 20.
apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim er vildu minnast
hennar er bent á Minningarsjóð Stefaníu G. Pétursdóttur,
0327-13-300571, kt. 570904-2990.
Ásgeir Sigurðsson, Guðrún Gunnarsdóttir,
Hilmar Sigurðsson,
Valgeir Sigurðsson, Sigríður Sæmundsdóttir,
Steinunn Sigurðardóttir, Árni Steingrímsson,
Auður Sigurðardóttir, Þorgrímur Guðmundsson,
Kristín Sigurðardóttir, Jón Steingrímsson,
Sigríður Breiðfjörð Sigurðardóttir, Sverrir Sandholt,
Sigrún Edda Sigurðardóttir, Pétur Emilsson,
Rúnar Sigurðsson, Rósa Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Alvöru blómabúð
Allar skreytingar unnar af fagfólki
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499
Heimasíða: www.blomabud.is
Netfang: blomabud@blomabud.is
Við systkinin vorum
svo heppin að fá að
kynnast Óla í sveitinni
hjá afa og ömmu.
Einnig áttum við oft góðar stundir
með honum á æskuheimili okkar á
Akureyri. Óli var glaðvær og hvers
manns hugljúfi.
Óli frændi ólst upp í sveitinni hjá
foreldrum sínum. Meðan hann bjó
þar sinnti hann sínum fastaverkum
Ólafur Snæbjörn
Bjarnason
✝ Ólafur SnæbjörnBjarnason fæddist
í Blöndudalshólum í
Austur-Húnavatns-
sýslu 29. febrúar
1944. Hann lést á
Kristnesspítala 2.
apríl síðastliðinn.
Útför Ólafs var
gerð frá Glerárkirkju
16. apríl sl.
af mikilli samvisku-
semi. Mjaltafólkið gat
alltaf reitt sig á að
kýrnar væru komnar í
fjós nákvæmlega kl
18:00 til seinni mjalta.
Áhugi Óla á tónlist var
mikill. Þegar Lög
unga fólksins eða
Óskalög sjúklinga
voru á dagskrá stóð
hann oft á ákveðnum
stað, úti á hlaði, þar
sem mótökuskilyrðin
voru best. Gamla Phil-
ips-útvarpstækið
hvíldi þá á öxlinni, upp við eyrað og
þá var eins gott að trufla ekki, innlif-
unin var slík.
Síðar flutti Óli til Akureyrar þar
sem hann var svo lánsamur að kynn-
ast Hólmfríði. Óli og Hófa giftust og
áttu mörg gleðirík ár saman. Þau
hjónin voru einstaklega gestrisin og
góð heim að sækja.
Það voru eflaust misgóðir tímar í
lífshlaupi Óla frænda en við teljum
hann hafa verið heppinn hvað hann
átti alls staðar góða að. Hann átti
góða fjölskyldu sem studdi hann í
uppvextinum, hann átti góða vini,
hann átti góða konu og tengdafjöl-
skyldu, hann átti góða stuðningsaðila
sem gerðu honum kleift að lifa góðu
lífi.
Nú þegar hann er farinn frá okkur,
kominn til Hófu og foreldra sinna, þá
langar okkur að þakka honum fyrir
að fá að hafa verið samferða þennan
stutta spöl og fyrir þá liti sem hann
bætti í regnboga lífs okkar.
Sigurjón, Bjarni, Anna Ágústa
og Árni Guðmundur.
Í dag er mágur minn, Ólafur Snæ-
björn Bjarnason, borinn til grafar
eftir merkilega vegferð, sem stóð í
rúmlega hálfan sjöunda tug ára.
Hann var yngstur sex systkina,
fæddur 1944, sonur Önnu Margrétar
Sigurjónsdóttur og Bjarna Jónas-
sonar í Blöndudalshólum í Austur-
Húnavatnssýslu.
Enginn velur sér foreldra og engir
foreldrar eru að fullu undir það búnir
að mæta barni sínu er það fyrst birt-
ist. Sérstaða Ólafs fólst einkum í því
að heyra til þeim hópi sem lifir lífinu
með Downs-heilkenni og hans stóra
happ var að eiga foreldra, sem gátu
horfst í augu við þann veruleika. Þau
lögðu á sig ómælda fyrirhöfn til þess
að yngsti sonurinn gæti lifað lífi sínu
í foreldrahúsum eins og honum hent-
aði, voru þarna eins og á ýmsum öðr-
um sviðum í fararbroddi sinnar sam-
tíðar og enginn vafi að takmarkalaus
elja, umhyggja og þolinmæði móður
hans varð undirstaða þess að hann
lifði löngu og hamingjuríku lífi.
Upp úr 1960 brugðu foreldrar Óla
búi. Áður en þau sjálf fluttu síðan á
Blönduós skipti Óli um aðsetur í
fyrsta sinn, gerðist heimilismaður á
Sólborg á Akureyri og þannig varð
Akureyri hans heimabyggð í rúm 30
ár. Það sýnir best hið jákvæða upp-
lag, aðlögunarhæfni og lífsgleði Óla
að þetta reyndust frábær ár, allt þar
til hrumleiki ellinnar tók að leika
hann grátt. Hann bjó á ýmsum stöð-
um og tókst fagnandi á við fjölbreytt
tilboð viðfangsefna er boðin voru
hans hópi: Nám, verndaðir vinnu-
staðir, íþróttir, ferðalög, handíðir
hvers konar og aðrar fagrar listir,
einkum tónlist, sem alla tíð var hans
yndi. Síðast en ekki síst skiptu hin
mannlegu samskipti hann miklu og
hann var allajafna hrókur alls fagn-
aðar – einkum ef hann var í nálægð
fagurra kvenna, þær létu hann aldrei
ósnortinn. Á Akureyri varð Hófa
hans stóra ást og lífsförunautur. Þau
rugluðu saman reytum sínum um
1980, en 25. maí 1996 gengu Ólafur
Snæbjörn Bjarnason og Hólmfríður
Ósk Jónsdóttir í hjónaband. Þennan
tíma allan áttu þau saman einstak-
lega fallega sambúð á eigin heimili,
allt þar til hún lést 6. mars 2005. Þá
var Óla mjög farið aftur og ekki
löngu síðar fór hann á aðhlynning-
ardeild Fjórðungssjúkrahússins, þar
sem hann dvaldi til dauðadags.
Þetta er stutt yfirlit yfir vegferð
ótrúlega geðþekks manns, sem ekki
batt bagga sína alveg sömu hnútum
og algengast er, algerlega saklaus og
hjartahreinn einstaklingur sem átti
allt sitt undir umhyggju samferða-
manna sinna. Hann var sá gæfumað-
ur að njóta ævinlega þeirrar um-
hyggju og meðal annars þess vegna
þróaðist með honum sú ástúð, sem
honum var eðlilegt að sýna öðrum.
Uppvöxtur hans í foreldrahúsum er
til marks um hvers góð uppeldis-
stefna er megnug og ævi hans á Ak-
ureyri undirstrikar mátt velrekinnar
velferðarstefnu. Til alls þess fólks,
sem kom við sögu á báðum stöðum og
hvar annars staðar þar sem leiðir Óla
lágu, má að leiðarlokum beina gam-
alkunnum orðum fyrir hans hönd og
annarra, sem svipað er ástatt um í líf-
inu: Sannlega segi ég yður, það allt
sem þér gjörðuð einum minna
minnstu bræðra, það hafið þér gjört
mér.
Hinrik Bjarnason.