Morgunblaðið - 18.04.2009, Side 54
54 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
Sudoku
Frumstig
8 1 5 9 7
5 4
2 3
3
9 7 4
4 2 6 8
8 6
5
7 2 3 5 9
6 8
5 4 1
7 3 2 6
4 7 3
9
4 2 9
7 6 9
3 6 5 4
8 4
8 3 5
5 6 4
1 3
9
3 5 2 6
4 7
7 8 2
6 9 8 4
1 9
6 7 5 4 8 3 2 9 1
3 2 1 6 9 7 8 4 5
9 4 8 2 5 1 7 3 6
8 5 4 3 1 2 9 6 7
1 6 3 9 7 8 5 2 4
2 9 7 5 4 6 1 8 3
7 1 9 8 3 4 6 5 2
5 3 2 7 6 9 4 1 8
4 8 6 1 2 5 3 7 9
8 2 7 1 5 3 4 9 6
5 6 1 9 4 7 8 3 2
9 3 4 2 8 6 7 1 5
7 1 8 3 9 5 6 2 4
6 5 2 7 1 4 3 8 9
4 9 3 6 2 8 1 5 7
3 8 5 4 7 9 2 6 1
1 7 9 8 6 2 5 4 3
2 4 6 5 3 1 9 7 8
2 1 4 7 6 9 3 8 5
5 9 3 2 8 4 6 1 7
6 8 7 5 1 3 9 4 2
9 6 2 3 5 1 4 7 8
3 5 1 8 4 7 2 6 9
7 4 8 6 9 2 5 3 1
4 2 9 1 3 8 7 5 6
1 7 5 4 2 6 8 9 3
8 3 6 9 7 5 1 2 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 18. apríl,
108. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Þetta er mitt boðorð, að
þér elskið hver annan, eins og ég hef
elskað yður. (Jh. 15, 12.)
Hvernig getur það gerst aðtveggja barna móðir sem lifir
ósköp venjulegu lífi í Þýskalandi taki
ákvörðun um að gerast borg-
arskæruliði og fari að drepa fólk í
stórum stíl? Reynt er að svara þess-
ari spurningu í bíómyndinni um
Baader-Meinhof samtökin sem sýnd
hefur verið í Kringlubíói síðustu vik-
urnar. Myndin sýnir háskólastúd-
enta sem hafa brennandi áhuga á
stjórnmálum smátt og smátt fara út
í æ róttækari aðgerðir. Á sínum tíma
nutu aðgerðirnar ótrúlega mikillar
samúðar í Þýskalandi þar sem
Rauðu herdeildirnar störfuðu.
x x x
Það er hins vegar mikil einföldunað halda því fram að meðlimir
Rauðu herdeildanna hafi verið hug-
sjónafólk. Andreas Baader ber t.d.
ekki mikla virðingu fyrir konum og
hann tekur því afar illa þegar bíl
hans er stolið, en sjálfur stelur hann
öllu steini léttara. Kærasta hans,
Gudrun Ensslin, sýnir Ulriku Mein-
hof ótrúlega framkomu í fangelsinu,
sem tæplega er hægt að flokka undir
neitt annað en einelti. Þetta á sinn
þátt í því að Meinhof fremur sjálfs-
víg. Félagar reyna síðan að nota
sjálfsmorðið sér til framdráttar í
áróðursstríðinu við stjórnvöld.
x x x
Saga Baader-Meinhof samtak-anna er ekki eina dæmið um
hóp fólks sem telur að leiðin til þess
að bæta samfélagið sé að stunda
skemmdarverk og myrða samborg-
arana. Það er ekki ofsögum sagt að
samtökin hafi haldið þýsku sam-
félagi í heljargreipum á 8. áratug
síðustu aldar. Talið er að þau hafi
drepið um 30 manns, en hápunkti
náðu morðin þegar þau rændu og
drápu Hanns-Martin Schleyer,
framkvæmdastjóri samtaka þýskra
iðnrekenda. Í bíómyndinni eru með-
limir Rauðu herdeildanna sýndir
greiða atkvæði um hvort sýna eigi
hörku við ránið á Schleyer. Tillagan
var samþykkt. Þar með voru örlög
bílstjóra og förunauta Schleyers
ráðin. Morðið á þeim sýnir hvert
„hugsjónir“ geta leitt fólk.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 sérstakt spil,
4 hrista ryk úr, 7 loð-
skinns, 8 hæglát, 9 bekk-
ur, 11 vítt, 13 kaup, 14
slétta, 15 listi, 17 sam-
sull, 20 bókstafur, 22
hittum, 23 endurtekið,
24 ernina, 25 haldast.
Lóðrétt | 1 konungur, 2
hnöttum, 3 afturendi, 4
drumb, 5 sjór, 6 skyn-
færin, 10 fljót, 12 greina
frá, 13 tónverk, 15 yrkja,
16 nagdýr, 18 orðrómur,
19 sortna, 20 kveina, 21
blautt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 sumardaga, 8 kutum, 9 púlar, 10 upp, 11 lær-
ir, 13 ansar, 15 gruns, 18 smíða, 21 vit, 22 sadda, 23 ætt-
in, 24 rassbagan.
Lóðrétt: 2 urtur, 3 armur, 4 doppa, 5 gulls, 6 skel, 7
hrár, 12 inn, 14 nem, 15 gust, 16 undra, 17 svans, 18
stæla, 19 ístra, 20 anna.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4.
e4 d6 5. Be2 0-0 6. Bg5 h6 7. Be3
e5 8. d5 Ra6 9. Dc2 Rc5 10. b4
Rcxe4 11. Rxe4 Rxe4 12. Bxh6
Bxh6 13. Dxe4 Bf5 14. Df3 e4 15.
Db3 Dg5 16. Kf1 Hae8 17. h4 Df6
18. Hd1 e3 19. f3 De5 20. g4 Dg3
21. Rh3
Staðan kom upp á alþjóðlega
Reykjavíkurskákmótinu sem lauk
fyrir skömmu í Listasafni Reykja-
víkur í Hafnarhúsinu. Ingvar Þór
Jóhannesson (2.345) hafði svart
gegn Degi Andra Friðgeirssyni
(1.787). 21. … Bxg4! 22. fxg4
He4 23. Dc2 Hf4+! 24. Bf3 Dxf3+
25. Kg1 Hxg4+ og hvítur gafst
upp enda mát í næsta leik.
Svartur á leik.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Efinn.
Norður
♠K
♥54
♦9432
♣ÁK6532
Vestur Austur
♠G1096 ♠D8732
♥K87 ♥G109
♦D865 ♦G10
♣107 ♣G98
Suður
♠Á54
♥ÁD632
♦ÁK7
♣D4
Suður spilar 6G.
Hversu klókur er austur? Sú spurn-
ing verður áleitin síðar. Útspilið er ♠G.
Laufið þarf að falla, en eftir sem áður
vantar tólfta slaginn. Svíning í hjarta
getur beðið og fyrsta verk sagnhafa er
að kanna tígulinn. Góð hugmynd er að
spila tígli úr borði í öðrum slag með
þeirri áætlun að láta sjöuna heima ef
austur fylgir með smáu. Þannig má at-
huga tígulleguna áður en afstaða er tek-
in í hjartanu. En þegar ♦10 kemur úr
austrinu verður að taka með ás. Tían
vekur reyndar nýja von: að austur sé
með ♦G10 eða ♦D10 tvíspil. Ef sú er
legan má fría ♦9 með því að taka á ♦K
og spila að níunni. Það gengur, eins og
sést, en efi sagnhafa er þessi: Er austur
að blekkja með ♦DG108?
Það er vissulega möguleiki, en lík-
urnar eru minni en meiri. Það er ekki
fiskur undir öllum steinum.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Hrúturinn er svo sannarlega virk-
ur í dag. Hlutirnir taka óvænta stefnu og
áætlanir fara út í veður og vind. Að binda
trúss sitt við ranga fólkið getur leitt til
þess að framfarir stöðvist.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Notaðu skemmtun til þess að rjúfa
veggina milli fólks. Sýndu þolinmæði því
viðkomandi er bara sendiboði.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert með frábært minni og
rökhugsunin er meiriháttar. Hugur þinn
flýgur hátt og sér frábær tækifæri.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú vilt gera öllum til geðs en þarft
að muna að það er ekki alltaf mögulegt.
Farðu vel með sannfæringarkraftinn sem
þú býrð yfir.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Einbeittu þér að því sem þú ert að
fást við og leyfðu engum að trufla þig á
meðan.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Einhver hefur flutt inn í hjartað
þitt. Reyndu að leita skjóls frá ut-
anaðkomandi kröfum og hvíla þig.
Reyndu að temja þér ný vinnubrögð sem
leiða til ferskra lausna.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er ekki nóg að hugsa um hlutina
ef ekkert verður úr framkvæmdinni.
Láttu því óvæntar fréttir ekki koma þér
úr jafnvægi því þær eru hreint ekki eins
slæmar og þær virðast vera.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Reyndu ekki að slá ryki í
augu annarra ef mál taka óvænta stefnu.
Til að auka líkurnar á ástalífi, vertu opinn
fyrir nýjungum, og hættu öllu neikvæðn-
ishjali.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það getur verið gaman að láta
ýmislegt eftir sér en í upphafi skyldi end-
inn skoða. Láttu réttlætiskennd þína
leiða þig og þá muntu koma öllum málum
farsællega í höfn.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Farðu ákaflega varlega í sam-
skiptum við ókunnuga, sérstaklega ef þau
snúast um fjármál að einhverju leyti.
Ekki láta þetta trufla þig.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ef þú segir hópi fólks brand-
ara og aðeins einn hlær, skaltu einbeita
þér að þessum eina. Skynsemi þín mun
koma þér að góðum notum.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Fiskurinn eyðir tíma með fólki
sem er mjög líkt honum sjálfum – það er
engu líkara en að hann sé í slagtogi með
spegli.
Stjörnuspá
18. apríl 1872
Jarðskjálftar ollu stórtjóni á
Húsavík. „Húsin léku til og
frá, teygðust sundur og sam-
an,“ segir í Annál nítjándu ald-
ar, og „varla gátu staðið á ber-
svæði nema styrkustu menn“.
Meira en hundrað manns urðu
húsnæðislausir. Stærstu
skjálftarnir voru 6-7 stig.
18. apríl 1935
Efnt var til „skíðaviku“ á Ísa-
firði í fyrsta sinn. Þátttak-
endur voru níutíu, flestir frá
Ísafirði. Skíðavikan hefur síð-
an verið árlega, um páskana.
18. apríl 1958
Volkswagen-bifreið var flutt
með flugvélinni Gljáfaxa frá
Reykjavík til Akureyrar.
„Þetta mun vera í fyrsta sinn
sem bíll er fluttur loftleiðis
hér innanlands,“ sagði Al-
þýðublaðið.
18. apríl 2007
Milljónatjón varð í stórbruna á
horni Lækjargötu og Austur-
strætis í Reykjavík. Rúmlega
200 ára gamalt hús gjör-
eyðilagðist og hús sem var
reist fyrir meira en 150 árum
stórskemmdist. „Mesti bruni í
miðbænum í fjörutíu ár,“
sagði Morgunblaðið.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
Sigrún Sturlu-
dóttir, Árskóg-
um 6 í Reykjavík,
er áttræð í dag,
18. apríl.
Sigrún og eig-
inmaður hennar,
Þórhallur Hall-
dórsson, eiga
einnig 60 ára
brúðkaupsafmæli. Af því tilefni
bjóða þau hjónin ættingjum og vin-
um að samgleðjast með sér og fjöl-
skyldunni í safnaðarheimili Bú-
staðakirkju kl. 14 í dag.
80 ára
Nýirborgarar
Reykjavík Mikael Lind-
berg fæddist 12. febrúar
kl. 19.34. Hann vó 3505 g
og var 51 cm langur. For-
eldrar hans eru Val-
gerður Lindberg og Jónas
Þór Þórisson.
Selfoss Rúnar Christian
fæddist 8. desember.
Hann vó 3.875 g og var
54,5 cm langur. For-
eldrar hans eru Katla
Rúnarsdóttir og Michel
Jones.
„ÞESSI tímamót mæta mér vel. Ég hugsa að ég fari
í sumarbústaðinn minn austur á Klaustri. Þangað
er gott að fara og taka á móti vorinu,“ segir Haukur
Valdimarsson læknir sem er 55 ára í dag. Hann seg-
ist venjulega ekki halda mikið upp á afmæli sín. En
oftast nær séu afmælisdagarnir þó með einhverjum
hætti frábrugðnir öðrum dögum. „Ég hélt upp á
fimmtugsafmælið með eftirminnilegum hætti, og
það var skemmmtileg stund sem ég átti þar með
fjölskyldu og vinum. Hugsa að það hafi verið yfir 50
gestir í afmælinu, og mikið fjör. Það verður nú ekk-
ert sambærilegt upp á teningnum í þetta skiptið.“
Haukur ætlar sér að eiga góðan dag með konu sinni, Hrefnu Sigurð-
ardóttur leikskólastjóra, og syni þeirra Fjalari Haukssyni. Afmælis-
dagar séu oftar en ekki notalegur fjölskyldutími. „Sonarsonur minn og
nafni, Haukur Bragi, er tveggja og hálfs árs og því á afar skemmti-
legum aldri. Hann gefur af sér mikla gleði og á örugglega eftir að
gleðja mann mikið á afmælisdaginn,“ segir Haukur.
Hann segist vera á besta aldri. „Ég lít nú ekki svo á að ég sé orðinn
gamall, eða að verða gamall. Held að ég sé bara á besta aldri.“
magnush@mbl.is
Haukur Valdimarsson læknir 55 ára
Með fjölskyldunni í bústað
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is