Morgunblaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 1. A P R Í L 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
106. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«ÍRIS GUÐMUNDSDÓTTIR SKÍÐAKONA
VARÐ ÍSLANDSMEISTARI
Í TVEIMUR GREINUM
«KRISTÍN ÞÓRA JÓHANNESDÓTTIR
ÓREYNDUR SÖNG-
FUGL TEKINN TALI
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
BORGARAHREYFINGIN sem
býður fram O-listann fær fjóra menn
kjörna á þing, verði niðurstöður kosn-
inga í samræmi við skoðanakönnun
sem Capacent Gallup birti í gær.
Samfylkingin fengi 20 menn kjörna
á þing, samkvæmt þessari könnun,
tveimur fleiri en við síðustu kosn-
ingar. Vinstrihreyfingin – grænt
framboð fengi 17 þingmenn í stað
þeirra níu sem flokkurinn hefur.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 15 þing-
menn og missti tíu frá síðustu kosn-
ingum. Frjálslyndi flokkurinn fengi
engan mann kjörinn en fékk fjóra
fyrir tveimur árum.
Nýr flokkur hefur ekki náð mönn-
um á þing frá árinu 1999 þegar
Frjálslyndi flokkurinn fékk fyrst
menn kjörna. „Það er ekki auðvelt að
brjóta það mót sem flokkakerfið er í,“
segir Gunnar Helgi Kristinsson, pró-
fessor í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, og telur niðurstöðu Borg-
arahreyfingarinnar mikil tíðindi. | 2
Nýr flokkur á Alþingi samkvæmt nýrri skoðanakönnun
O-listi fengi fjóra
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
ÁHÖFN íslensks fiskiskips sem
var að veiðum suðaustur af land-
inu á laugardaginn gerði lögregl-
unni viðvart um ferðir smygl-
skútunnar Sirtaki sem þá var á
leið til landsins. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins þótti sjó-
mönnunum grunsamlegt að sjá
skútu á þessum slóðum á þessum
árstíma.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri
á höfuðborgarsvæðinu, sagði á
blaðamannafundi í gær að að-
gerðirnar, sem leiddu til hand-
töku sex manna og haldlagningar
109 kg af fíkniefnum, hefðu verið
í tengslum við rannsókn sem
fíkniefnadeild lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu og tollgæslan
hefðu unnið að í sameiningu í all-
nokkurn tíma.
„Aðgerðirnar bar samt sem áð-
ur nokkuð brátt að,“ sagði Stefán
á fundinum. Það kann að benda
til þess að ekki hafi verið vitað
um nákvæman komutíma skút-
unnar fyrr en á laugardag.
Kom handtakan
mjög á óvart
Talið er að þrír menn hafi farið
á hraðskreiðum slöngubáti frá
Djúpavogi og átt stefnumót við
skútuna um 15-20 sjómílur suður
af Papey um kl. 20.00 á laug-
ardagskvöld. Þeir lönduðu svo
fengnum í Gleðivík við Djúpavog
og þar skildi leiðir. Einn hélt suð-
ur firðina á pallbíl með fíkniefnin.
Lögreglan á Höfn stoppaði bílinn
um nóttina á þjóðvegi 1, rétt
vestan við afleggjarann að Höfn.
Í bílnum fundust fíkniefnin sem
grunur leikur á að hafi verið sótt í
skútuna. Einnig var í bílnum
haglabyssa, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Hinir tveir voru á
amerískum jeppa og ætluðu norð-
ur um. Lögreglumenn frá Eskifirði
og úr sérsveitinni stoppuðu þá rétt
utan við Djúpavog. Þremenning-
arnir munu ekki hafa sýnt neinn
mótþróa og virtist handtakan
koma þeim mjög á óvart, að sögn
lögreglu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á landleið Belgíska skútan Sirtaki fannst um 74 sjómílur VNV af Mykinesi í
Færeyjum. Í gærkvöldi var gert ráð fyrir að skútan kæmi til hafnar á Eski-
firði klukkan 8 í dag. Þriggja manna áhöfn, tveir Íslendingar og einn Hol-
lendingur, var handtekin. Varðskipið Týr fylgdi henni til hafnar í gær.
Fiskiskip
lét vita af
skútunni
Lagt var hald á 109 kg af fíkniefnum
Haglabyssa var í fíkniefnabílnum
Í HNOTSKURN
» Hollendingurinn sem varhandtekinn um borð í
skútunni var fenginn til að
sigla skútunni til hafnar
ásamt varðskipsmönnum. Um
borð voru einnig sérsveit-
armenn til að hafa gætur á
honum.
»Fíkniefnin voru amfeta-mín, marijúana, hass og
nokkur þúsund e-töflur. Um
helmingurinn var svonefnd
„hvít efni“. Samtals 109 kg.
» Nokkuð er liðið frá þvísíðast komst upp um mari-
júanasmygl en lögregla telur
að öflugar aðgerðir gegn
kannabisræktun hafi valdið
skorti á marijúana hérlendis.
»Ljóst þykir að hér er umað ræða eitt stærsta
smyglmál Íslandssögunnar.
Sex karlar | 8
ÞAÐ hvort íslenska ríkið getur
staðið undir skuldum sínum ræðst
ekki aðeins af höfuðstóli skuldanna,
heldur einnig af vaxtakjörum og
hagvexti.
Til að halda hlutfalli skulda og
landsframleiðslu óbreyttu þarf að
reka ríkissjóð með ákveðnum af-
gangi, að gefnu hagvaxtar- og
nafnvaxtastigi. Til dæmis þyrfti að
reka ríkissjóð með ríflega 60 millj-
arða króna afgangi væru nafn-
vextir á skuldum hans 8% og hag-
vöxtur 3%. Til samanburðar voru
heildarútgjöld ríkisins um 480
milljarðar árið 2008 og er því um að
ræða 12,5% af þeirri upphæð. »14
Ríkissjóður þyrfti að skila
afgangi upp á tugmilljarða
„VINNAN hef-
ur tekið lengri
tíma en búist var
við, meðal annars
við end-
urskipulagningu
bankakerfisins.
Þá skipti einnig
töluverðu máli að
það urðu pólitísk-
ar breytingar í landinu fyrr á árinu
og á meðan þær gengu yfir lá vinnan
nánast alveg niðri,“ sagði Franek
Rozwadowski, fulltrúi Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins á Íslandi, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi. Hann
segir tæknilegar ástæður við grein-
ingu á efnahagsvanda Íslands hafa
leitt til þess að tafir urðu á greiðslu
155 milljóna dollara af um 2,1 millj-
arðs dollara láni sjóðsins hingað til
landsins. Töfin sem slík hafi hins
vegar lítil sem engin áhrif á efnahag
þjóðarinnar. »6
Pólitískar breytingar töfðu
starf IMF og stjórnvalda
Á BORGARAFUNDI í beinni út-
sendingu í Ríkissjónvarpinu í gær
sagði Björgvin G. Sigurðsson, odd-
viti Samfylkingarinnar, að samstarf
við VG kæmi ekki til álita nema Evr-
ópumálin væru leyst. Atli Gíslason,
efsti maður Vinstri grænna í kjör-
dæminu, ítrekaði að flokkurinn væri
ekki tilbúinn í aðildarviðræður. »12
Oddvitar ósammála um ESB