Morgunblaðið - 21.04.2009, Side 4

Morgunblaðið - 21.04.2009, Side 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2009 Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is FYRSTU kríurnar sáust við Ósland á Höfn í Hornafirði um hádegisbilið í gær. Að sögn Brynjúlfs Brynjólfs- sonar, starfsmanns fuglaathugunar- stöðvar Suðausturlands á Höfn, sjást fyrstu kríurnar yfirleitt á bilinu 20.- 25. apríl en flestar koma þær ekki fyrr en um mánaðamótin. „Það eru alltaf einhverjar kríur á undan en fólk mun eflaust ekki sjá þær fyrr en eftir 7-10 daga,“ segir hann. „Það er alltaf tilviljun hver finnur þær fyrst en að vísu leitum við að henni hér. Hún kemur alltaf fyrst hér að landi, við segjum það,“ segir Brynjúlfur og skellihlær. Flestir farfuglanna komnir Fyrstu farfuglarnir, okkar helstu vorboðar, komu til landsins í febrúar en þá hófu sílamávar og súlur sum- ardvöl sína. Síðan þá hafa hinar ýmsu fuglategundir tínst til landsins en síðustu farfuglarnir, óðinshani og þórshani, koma í maí. Brynjúlfur segir flestar tegund- irnar hafa komið á áætluðum tíma. Líkt og með kríuna koma oft nokkrir fuglar áður en restin af hópnum kemur en þar munar yfirleitt aðeins nokkrum dögum. Fyrstu kríurnar komnar til landsins Morgunblaðið/Ómar Á snakki Kríunar verða flestar komnar til landsins um mánaðamótin. Í HNOTSKURN »Krían er víðförlust ís-lenskra farfugla. Varp- stöðvar hennar eru hér á landi en vetrarstöðvar við Suður- skautslandið, þó sumar haldi sig við Góðrarvonarhöfða í Suður-Afríku. »Ætla má að íslenskar kríurleggi að baki 30-40 þúsund kílómetra ferðalag á hverju ári, sem nemur því sem næst ummáli jarðar við miðbaug. FRAMKVÆMDIR við einbýlishúsið Esjuberg eru nú í fullum gangi. Húsið, sem stendur við Þingholtsstræti 29 A, hýsti áður gamla Borg- arbókasafnið og var um tíma í eigu norska listmálarans Odds Nerdrum en er nú í eigu Inn fjárfestingar ehf. sem Ingunn Werners- dóttir á. Hjá skipulags- og byggingarsviði Reykjavík- urborgar fengust þær upplýsingar að gefið hefði verið út byggingarleyfi í upphafi þessa árs, en seint á síðasta ári var sótt um leyfi til minniháttar breytinga inni í eldra húsinu auk breytinga á gluggum og dyraopum til austurs að garði og ennfremur um leyfi fyrir byggingu bílskúrs með aðkeyrslu að Grundarstíg með baðaðstöðu, geymslum og tæknirými í kjall- ara og stigatengingu við fyrstu hæð í ein- býlishúsinu. Alls fékkst leyfi fyrir tæplega 245 fm stækkun á lóðinni, þannig að bygging- armagnið verður samtals rúmir 712 fm eftir stækkun. Morgunblaðið/Ómar Framkvæmdir við gamla Borgarbókasafnið Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is GREIDDIR hafa verið rúmlega 2,5 milljarðar kr. úr Fæðingarorlofs- sjóði á fyrstu þremur mánuðum árs- ins en sjóðurinn hefur rúmlega 10,5 milljarða til ráðstöfunar á árinu skv. fjárlögum ársins. „Við erum því á mjög góðu róli enn sem komið er og vel innan marka en þess ber að geta að þyngstu mánuðir ársins eru fram- undan. Það eru sumarmánuðirnir því reynsla okkar er sú að þeir eru útgjaldamestu mánuðirnir,“ segir Leó Örn Þorleifsson, forstöðumaður Fæðingarorlofssjóðs. Fæðingarorlofssjóður er fjár- magnaður með tryggingagjaldi og er með ríkisábyrgð þar sem sjóðurinn á alltaf að hafa nægilegt laust fé til að standa við skuldbindingar sínar. Efnahagskreppan og aukning at- vinnuleysis hefur ekki a.m.k. enn sem komið er haft áhrif á fjölda til- kynninga um töku fæðingarorlofs. Að sögn Leós er fjöldi umsókna svipaður og verið hefur. „Við finnum hins vegar fyrir því, að fólk er tals- vert að breyta áður tilkynntu fæð- ingarorolofi. Hugsanlega er það til dæmis gert til að aðlaga fæðing- arorlof að uppsagnarfresti. Það er meira um slíkar breytingar núna en verið hefur,“ segir Leó. Meðal þess sem komið hefur í ljós að undanförnu er að foreldri skipta t.d. í meira mæli upp fæðingarorlofi sínu. Einnig ber nokkuð á því að sögn Leós að fólk fresti töku fæðing- arorlofs. M.a. geti skýringin á því verið sú, að einstaklingar sem hafa fengið uppsagnarbréf ákveði að vinna út uppsagnarfrestinn áður en farið er í fæðingarorlof. „Eins sýnist okkur fólk vera að skipuleggja þetta svolítið eftir tekjum þannig að tekju- hærra foreldrið taki frekar fæðing- arorlofið. Það ber meira á því en áð- ur var,“ segir hann. Seinasta ár var þriðja mesta fæð- ingarár hér á landi frá því að mæl- ingar hófust samkvæmt tölum Hag- stofunnar. „Við megum því alveg búast við mikilli töku fæðingarorlofs á þessu ári eins og verið hefur sein- ustu ár. Við merkjum engan sam- drátt eða beina aukningu heldur er þetta í eðlilegu horfi og eykst jafnt og þétt,“ segir hann. Sjóðurinn á góðu róli  Ótryggt atvinnuástand veldur því að foreldrar breyta áætlunum sínum um töku fæðingarorlofs  Ekki hefur þó orðið breyting á fjölda umsókna um fæðingarorlof Starfsfólk Fæðingarorlofssjóðs verður þessa dagana í verulegum mæli vart við áhyggjur foreldra af áhrifum ótryggs atvinnuástands á fæðingarorlof. „Fólk er almennt mjög áhyggju- fullt yfir ástandinu og hefur áhyggjur af því hvort uppsagnir og erfiðleikarnir hafa áhrif á rétt þess til töku fæðingarorlofs t.d. ef það þarf vera tímabundið frá vinnu. Einnig hefur fólk mikið spurt um hvaða vernd það hafi gegn uppsögnum meðan á fæð- ingarorlofi stendur. Við fáum öðruvísi spurningar í dag en við fengum en fyrir ári síð- an,“ segir Leó Örn Þorleifsson, forstöðumaður Fæðingarorlofs- sjóðs. Skv. lögum er óheimilt að segja starfsmanni upp störfum af þeirri ástæðu að hann hefur tilkynnt fyrirhugaða töku fæðingarorlofs eða er í fæðingarorlofi, nema gild- ar ástæður séu fyrir hendi. Áhyggjufull vegna uppsagna og spyrja margs HANNES Sigmarsson, yfirlæknir við Heilsugæslu Fjarðabyggðar, ætlar að snúa aftur heim til Eski- fjarðar og mæta í vinnu á ný eftir að embætti ríkissaksóknara ákvað að vísa kæru Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) frá. Hannesi var 12. febrúar sl. vikið tímabundið frá störfum vegna rannsóknar á reikn- ingum frá honum. Á Eskifirði var niðurstöðu ríkissaksóknara í gær fagnað með því að flagga en Hann- es hefur starfað sem læknir á Aust- urlandi í tæpa tvo áratugi. Mál Hannesar hafði verið til skoðunar hjá HSA nokkra hríð áð- ur en til kæru kom. Hannes stefnir að því að mæta sem fyrst til starfa. guna@mbl.is Yfirlæknir aftur til starfa Morgunblaðið/Helgi Garðars ÖKUFERÐ gestkomandi manns í Vestmannaeyjum í september í fyrra endaði ekki vel. Hvorttveggja var að maðurinn tók bílinn trausta- taki og að auki var hann undir áhrif- um vímuefna enda lauk bíltúrnum með því að bíllinn rakst tvívegis utan í umferðarmerki. Þegar lögregla yf- irheyrði manninn viðurkenndi hann að hafa stolið bílnum og að hafa ekið ölvaður. En þegar maðurinn kom fyrir Héraðsdóm Suðurlands nýlega neitaði hann því að hafa verið ölv- aður en hefði hins vegar verið undir áhrifum lyfsins Tafil. Dómur yfir manninum féll í gær og var hann dæmdur í 30 daga skil- orðsbundið fangelsi fyrir nytjastuld og akstur undir áhrifum lyfja. Dóm- arinn sagðist þó ekki geta sakfellt manninn fyrir ölvunarakstur þar sem hvorki var tekið blóð- né þvag- sýni úr honum þegar hann var hand- tekinn. Um hálfrar milljónar króna bóta- kröfu bíleigandans var vísað frá dómi. Áfengisprófið gleymdist UTANRÍKISRÁÐHERRA skipaði í gær nýja stjórn Útflutningsráðs. Í fyrsta sinn í 22 ára sögu ráðsins eru konur í meirihluta stjórnarinnar. Aðalmenn, tilnefndir af atvinnu- lífi, eru Valur Valsson, Hjörtur Gíslason, Anna G. Sverrisdóttir, og Ólafur Daðason. Aðalmenn skip- aðir án tilnefningar eru Linda B. Gunnlaugsdóttir, Heiðrún Jóns- dóttir, og Bryndís Kjartansdóttir. Konur í meiri- hluta í ráðinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.