Morgunblaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
JÓHANNA Sigurðardóttir, for-
sætisráðherra og formaður Samfylk-
ingarinnar, vill að Ríkisendurskoðun
fari yfir fjármál stjórnmálaflokk-
anna og skoði þá sérstaklega tímabil-
ið frá árinu 2000 til 2007, þegar ný
lög um fjármál stjórnmálaflokkanna
tóku gildi. „Það mega ekki vera
svona grunsemdir uppi um að það
séu hagsmunatengsl og óeðlileg af-
skipti af fyrirtækjum. Það verður allt
að vera uppi á borði. Og ég mun
skoða það í fullri alvöru að það verði
allt uppi á borðum og að Ríkisend-
urskoðun leggi hlutlaust mat á það,“
sagði Jóhanna í umræðuþættinum
Zetan á mbl.is í gær.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins, tók
undir þessi orð Jóhönnu í viðtali við
Zetuna. Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri grænna, og Guðjón Arnar
Kristjánsson, formaður Frjálslynda
flokksins, segjast vilja að Ríkisend-
urskoðun skoði
fjármál stjórnmálaflokkanna. Allir
segjast þeir „ekki hafa neitt að fela“.
Mikilvægt sé að almenningur fái
traust á stjórnmálaflokkum í land-
inu. „Við í Vinstri grænum erum
stolt af því að hafa verið með opið
bókhald alla tíð,“ segir Steingrímur.
Bjarni segir mikilvægt að flokk-
arnir nái þverpólitískri sátt um fag-
lega umfjöllun um fjármál flokkanna
fyrir gildistöku laganna árið 2007.
Allir styrktir af bönkum
Styrkir til stjórnmálaflokka hafa
verið töluvert til umræðu síðan tveir
stórir styrkir til Sjálfstæðisflokks-
ins, frá FL Group og Landsbank-
anum upp á samtals 55 milljónir,
skömmu fyrir gildistöku fyrrnefndra
laga um fjármálin komu upp á yf-
irborðið. Lögin gera ráð fyrir að lög-
aðilar megi ekki styrkja stjórn-
málaflokka um meira en 300 þúsund
krónur.
Samfylkingin og Framsókn-
arflokkurinn opnuðu bókhald sitt
fyrir árið 2006 eftir að upplýst hafði
verið um fyrrnefnda styrki. Hjá
þeim voru bankarnir þrír sem nú eru
fallnir, Glitnir, Landsbankinn og
Kaupþing, allir á meðal stærstu
styrkveitenda ásamt fjárfesting-
arfélögum og verktökum. Verktaka-
fyrirtækið Eykt var stærsti einstaki
styrkveitandi Framsóknarflokksins,
með fimm milljóna króna styrk, en
hjá Samfylkingunni veitti Kaupþing
stærsta styrkinn, fimm milljónir. FL
Group og Landsbankinn voru lang-
samlega stærstu styrkveitendur
Sjálfstæðisflokksins með 30 milljónir
hvort fyrirtæki en Landsbankinn
veitti fimm milljóna styrk til viðbótar
við fyrrnefndan 25 milljóna styrk.
Óskað eftir upplýsingum
Ekki liggja fyrir allar upplýsingar
um fjármál undirfélaga stjórn-
málaflokkanna. Samfylkingin,
Framsóknarflokkur og Sjálfstæð-
isflokkur hafa ekki gert grein fyrir
fjárhag undirfélaga, svo sem sjálf-
stæðra aðildar- og hverfafélaga, um
land allt. Magnús Norðdahl, gjald-
keri Samfylkingarinnar, segist þegar
hafa óskað eftir upplýsingum um
fjármál allra undirfélaga Samfylk-
ingarinnar en þau hafa í gegnum tíð-
ina verið með sjálfstæðan fjárhag. „Í
síðustu viku sendum við sérstaka
beiðni á öll okkar aðildarfélög og öll
okkar kjördæmisráð um að senda
upplýsingar um fjáröflun til mín, í
því skyni að upplýsingarnar verði
teknar saman og birtar,“ sagði
Magnús. Hann segist ekki geta svar-
að því hvort samantekt á upplýsing-
unum verði lokið fyrir kosningar.
„Þetta verður unnið eins hratt og
kostur er,“ segir Magnús.
Fjármálin verði skoðuð
Formenn stjórnmálaflokkanna sem voru með kjörna fulltrúa á þingi fyrir árið
2007 vilja að Ríkisendurskoðun fari yfir fjármál flokkanna Vafa verður að eyða
Morgunblaðið/Ómar
Mótmælt við Alþingi Leynd hvíldi að mestu yfir fjármálum stjórn-
málaflokkanna fyrir árið 2007 þegar ný lög um fjármálin tóku gildi.
Í HNOTSKURN
» Styrkir til Sjálfstæð-isflokksins á árinu 2006,
sem voru yfir einni milljón,
námu 80,9 milljónum króna.
Munaði þar mestu um styrki
FL Group og Landsbankans
upp á 60 milljónir samtals.
» Víðast hvar á Vest-urlöndum hefur verið lög-
fest gagnsæi í fjármálum
stjórnmálaflokka til þess að
koma í veg fyrir spillingu og
lítið traust almennings á
stjórnmálastarfi.
SKULDIR stjórnmálaflokkanna
námu 475 milljónum króna í lok
árs 2007. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins eru veðin að baki
hluta af lánum til flokkunum lítil
sem engin. Óljóst er hvernig
flokkarnir, einkum þeir sem
standa verst, eiga að getað borg-
að skuldir sínar til baka ef ekki
kemur til afskrifta eða mikillar
innspýtingar fjár. Staða Fram-
sóknarflokksins var einkum erfið í
árslok 2007 en þá skuldaði flokk-
urinn 154 milljónir króna, mesta
allra flokka. Samfylkingin var
með skuldir upp á 124 milljónir
króna. Frjálslyndi flokkurinn
skuldaði minnst, eða tæpar 30
milljónir.
Eins og greint hefur verið frá í
Morgunblaðinu, meðal annars í
fréttaskýringu 14. apríl sl., þá
voru flestir stórir styrkir til
stjórnmálaflokkanna veittir
skömmu áður en lög um fjármál
stjórnmálaflokkanna tóku gildi, í
byrjun árs 2007. Samkvæmt þeim
á gagnsæi að ráða för og hver
lögaðili má ekki styrkja flokkinn
um meira en 300 þúsund krónur.
Óljóst um veð að baki lánum til flokkanna
UMSÓKNARFRESTUR um sum-
arstörf hjá Reykjavíkurborg rann
út á sunnudaginn. Að sögn Lárusar
Haraldssonar, deildarstjóra vinnu-
miðlunar Hins hússins, var heild-
arfjöldi umsækjenda 4.165 talsins,
eða um 1.300 fleiri en í meðalári.
Lárus segir að undanfarin ár hafi
hver umsækjandi skilað inn að með-
altali þremur umsóknum svo óhætt
sé að gera ráð fyrir a.m.k. tólf þús-
und umsóknum. Eftir er að fara í
gegnum umsóknirnar en einhverjar
þeirra geta reynst ógildar eða
ómarktækar.
Meðal þeirra starfa sem Reykja-
víkurborg auglýsti fyrir sumarið
voru eldhússtörf, garðyrkjustörf,
vinna við heimaþjónustu og um-
ferðarmerkingar. ylfa@mbl.is
Morgunblaðið/Frikki
Yfir fjögur þúsund
umsækjendur
ALLS hafði 185 leyfum til hrein-
dýraveiða verið skilað eða staðfest-
ingargjald ekki verið greitt þegar
frestur til þess rann út um síðustu
mánaðamót. Búið er að úthluta
þessum leyfum til þeirra sem næst-
ir voru í biðröðinni.
Leyfilegt verður að veiða 1.333
dýr, þar af 925 kýr og 408 tarfa,
þegar veiðar hefjast í haust.
Þegar leyfi til hreindýra voru
auglýst bárust á 3.227 gildar um-
sóknir, eða talsvert fleiri en leyfin
sem í boði voru. Dregin voru 1.333
nöfn úr hópi umsækjenda í febrúar
síðastliðnum og hinum heppnu til-
kynnt um niðurstöðuna. Greiða
þurfti staðfestingargjald fyrir 1.
apríl, sem nam 25% af uppsettu
verði fyrir leyfin. Margir í þeim
hópi greiddu ekki leyfin og misstu
þar með af bráðinni.
Dýrustu leyfin kosta 120 þúsund
krónur, fyrir tarfa á svæði 1. og 2.
sisi@mbl.is
Leyfum til að veiða
hreindýr úthlutað
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Samfylk-
ingunni vegna auglýsingar sem
birtist í Morgunblaðinu 19. apríl. Í
yfirlýsingunni segir m.a. að
þar sé alvarlega hallað
réttu máli um stefnu Sam-
fylkingarinnar í skatta- og
ríkisfjármálum. „Undir
auglýsinguna ritar áhuga-
hópur um endurreisn Ís-
lands, en sá hópur er
hvergi finnanlegur í skrám
yfir félög né heldur á leit-
arvélum internetsins. Að
mati Samfylkingarinnar er
auglýsingin því í raun nafn-
laus. Í henni er lýst meint-
um áformum Samfylking-
arinnar og Vinstri grænna í
skattamálum og því ranglega hald-
ið fram að Samfylkingin áformi
umtalsverðar og margvíslegar
skattahækkanir. Hið rétta er að
Samfylkingin hefur ítrekað sagt að
vandinn í ríkisfjármálum verði ekki
leystur með skattahækkunum held-
ur verði megináhersla lögð á að
mæta halla ríkissjóðs með aðhaldi,
niðurskurði og baráttu gegn skatt-
svikum. Óábyrgt sé hins vegar að
útiloka með öllu skattahækkanir
við þessar aðstæður, en mikilvægt
er að gæta sanngirni og forðast
margsköttun svo sem með auknum
eignasköttum sem Samfylkingin
hefur útilokað. Forgangsatriði er
að verja kjör og stöðu þeirra sem
lakast standa að vígi og á það bæði
við um verkefni stjórnvalda og
mögulegar breytingar á skattkerf-
inu.“Undir yfirlýsinguna
ritar fyrir hönd Samfylking-
arinnar Sigrún Jónsdóttir
framkvæmdastýra.
VG andæfa líka
Þá skrifar Davíð Stef-
ánsson, sem býður sig fram
fyrir VG, á bloggsíðu sinni
athugasemd um sömu aug-
lýsingu. Hann segir m.a.:
„Heilsíðuauglýsingar í
Mogganum í gær og
Fréttablaðinu í dag eru til
marks um algera mál-
efnaþurrð í hægrinu.
Meintar skattahækkanir eru eina
haldreipið. Og þær eru gripnar al-
gerlega úr samhengi, ýktar og upp-
spunnar. Þetta eru sorgleg stjórn-
mál. Hræðsluáróður af verstu gerð.
Og svona vinnubrögð sverta ásýnd
stjórnmálanna og minnka enn frek-
ar tiltrú almennings. Sannleikurinn
er svona: Í samþykktum ályktunum
VG um efnahagsmál var talað um
að taka upp sanngjarnan eigna-
skatt. Það voru nú öll herlegheitin.
Engar útfærslur. Forysta flokksins
hefur á síðari stigum rætt lauslega
um að setja á eignaskatt fyrir stór-
eignafólk sem er líka með háar
tekjur.“
Mótmæla auglýsingu
um skattahækkanir
Gildi - lífeyrissjóður
Sætúni 1
105 Reykjavík
Sími 515 4700
www.gildi.is
gildi@gildi.is
Á R S F U N D U R
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn á Grand Hótel,
Reykjavík þriðjudaginn 21. apríl kl. 17.00.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg ársfundarstörf.
2. Tillaga til breytinga á samþykktum sjóðsins.
3. Tillaga um lækkun réttinda.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögurnar munu liggja frammi á skrifstofu sjóðsins og birtar
á heimasíðunni, www.gildi.is tveimur vikum fyrir ársfundinn.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með
málfrelsi og tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð, að jöfnu skipað
fulltrúum stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda sem
að sjóðnum standa, fer með atkvæði á ársfundinum.
Reykjavík 6. apríl 2009,
lífeyrissjóður
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs.
2 0 0 9