Morgunblaðið - 21.04.2009, Page 16
16 Daglegt líf
ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2009
Reykjanesbær og nágrannasveit-
arfélög taka í fyrsta sinn þátt í hátíð-
inni List án landamæra, sem hefst á
sumardaginn fyrsta, 23. apríl með
leik, söng og dansi í Frumleikhúsinu.
Á hátíðinni vinna fatlaðir og ófatlaðir
saman að ýmsum listtengdum verk-
efnum. Meðal annarra dagskrárliða
er opið hús í Hæfingarstöðinni,
vinnustað fatlaðra, dagana 27.-30.
apríl þar sem listaverk þjónustunot-
enda verða sýnd.
Vallarheiði heitir ekki lengur Vall-
arheiði heldur Ásbrú. Breytingin er
gerð til þess að skapa nafn um þá
uppbyggingu sem hefur átt sér stað á
gamla varnarsvæðinu eftir að Banda-
ríkjaher yfirgaf landið og einnig til að
skapa eitt sameiginlegt nafn á svæði
sem að undanförnu hefur gengið
undir hinum ýmsu nöfnum. Nafnið
Ásbrú kemur úr goðafræði og táknar
brúna á milli goðheima og mann-
heima.
Opinn dagur verður í Ásbrú laug-
ardaginn 25. apríl, þar sem aðilar á
svæðinu munu kynna starfsemi sína.
Hjá Keili – Miðstöð vísinda, fræða og
atvinnulífs verða kynntar þær náms-
brautir sem í boði verða næsta haust
og sú þjónusta sem námsmönnum
býðst. Gestir geta einnig skoðað
námsmannaíbúðir og kynnt sér að-
stöðuna á háskólasvæðinu. Frí-
stundahátíð Reykjanesbæjar verður
einnig á Ásbrú þessa helgi, en þar
verða tómstundafélög og handverks-
fólk í Reykjanesbæ með kynningu á
starfseminni. Nýjasta nýtt á Ásbrú
er uppbygging rannsóknarseturs í
orkuvísindum í húsakynnum Keilis.
Árlegt framkvæmda- og skipulags-
þing bæjarins er í dag. Þar verða
m.a. kynntar tillögur að nýju að-
alskipulagi Reykjanesbæjar 2008-
2012 og farið yfir framkvæmdir í
bænum. Það þarf ekki að tíunda um
árferðið, svo oft hefur það borið á
góma í fjölmiðlum að undanförnu, en
þess má geta að smiðshöggin í
Hljómahöllinni eru hljóðari en áður
vegna erfiðleika við fjármögnun.
Hugmyndir eru uppi um að taka
framkvæmdina í fleiri áföngum,
klára breytingar á Stapa, síðan
Hljómahöllina og loks Tónlistarskól-
ann.
Reykjanesbæingar og reyndar Suð-
urnesjamenn allir hafa fengið Nettó-
verslun. Samkaup breyttist rétt fyrir
páska í Nettó og í kjölfarið bauðst
íbúum nýr valkostur í lágverðs-
verslun.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Ásbrú Nýja heitið á gamla Varnarsvæðinu. Nafninu er ætlað að skapa eitt
sameiginlegt nafn á svæðinu, sem gengið hefur undir ýmsum nöfnum.
REYKJANESBÆR
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Þær eru mjög ánægðar í þessu námiog það er gaman að fá svona við-brögð,“ segir Margrét DórótheaSigfúsdóttir, skólameistari Hús-
stjórnarskólans í Reykjavík.
Það var nóg að gera í eldhúsi Hússtjórn-
arskólans er ljósmyndari Morgunblaðsins
kom þar við, sá hópur nemenda sem nú er í
eldhúshluta námsins var önnum kafinn við
að elda karrífiskrétt sem upphaflega er kom-
inn frá Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Enda í fullu samræmi við þá hagsýni sem er
í hávegum höfð í skólanum og nú nýtur meiri
vinsælda hjá landanum en undanfarin ár.
Ostafgangar sem rifnir hafa verið niður og
geymdir í frysti henta vel í slíka rétti og an-
anasdós má finna á flestum heimilum.
Annars hafa nemendur í eldhúsi í nógu að
snúast þessa dagana því á morgun, sum-
ardaginn fyrsta, bjóða þeir foreldrum sínum
til veislu. Þá hefur komið sér vel að geta
gripið til frosinna afganga, en í skólanum er
áhersla lögð á að nýta matvæli vel. „Það er
ekki hægt að elda stórar máltíðir á sama
tíma og verið er að undirbúa veislu,“ segir
Margrét, en helmingur nemenda býður nú
foreldrum sínum til veislu – hinn hlutinn hélt
slíka veislu fyrr í vetur og er þá einnig sett
upp handavinnu- og vefnaðarsýning.
Líkt og fyrri ár þá eru 24 nemendur í
skólanum á þessari önn og Margrét er
ánægð með hópinn. „Þetta eru æðislega fín-
ar stelpur, þó allir nemendur virðist raunar
verða jafn hissa á því að námið sé svo
strangt.“ 24 eininga nám krefjist hins vegar
töluverðrar tímasóknar og mikillar heima-
vinnu í handavinnu, þ.e. útsaum, prjóni og
hekli. Ekki sé hægt að segja að eitthvert eitt
fag sé vinsælla hjá nemendum en annað. Er í
eldhúsið er komið þykir henni hins vegar
vænt um vinsældir kjötsúpunnar. „Þær eru
ákafar í að fá að gera kjötsúpu og það er
mikil breyting sem orðið hefur á und-
anförnum árum.“
Grunnatriðin skipta öllu máli
Í þeim þætti sem snýr að matreiðslu segir
hún aðalatriðið að nemendur læri und-
irstöðuatriðin. „Því að ef að þær kunna
grunnaðferðirnar þá geta þær gert allt.“ Í
því felist að kunna að meðhöndla matvæli,
lesa uppskriftir og þekkja hráefnin svo hægt
sé að bregðast við sé ekki allt til í skápunum.
„Við viljum nefnilega líka að nemendurnir
hugsi sjálfstætt og geti breytt út frá upp-
skriftum eftir því sem þörf er á.“
Karrífiskur með
hrísgrjónum
600 g fiskflök, roð- og beinhreinsuð og
skorin í stykki
Stykkjunum raðað á bretti. Kryddað með
sítrónusafa og season all. Látið bíða á meðan
afgangurinn er tekinn til.
2 dl hrísgrjón
2 dl sýrður rjómi
4 msk. léttmajónes
2 tsk. karrí
aromat og örlítið salt
2-3 ananashringir, skornir í bita
ananassafi
100 g nýir sveppir
3-4 msk. ostur, rifinn
Sjóðið hrísgrjónin eftir leiðbeiningum á
umbúðum. Hrærið saman sýrðan rjóma,
majónes, karrí, krydd og safa.
Setjið soðin hrísgrjónin í smurt ofnfast
fat, setjið sítrónusafa og örlitla olíu yfir.
Blandið saman. Raðið fiskstykkj- unum yfir
hrísgrjónin.
Sneiðið sveppina og
dreifið þeim yfir fiskinn ásamt ananasbit-
unum.
Hellið karrísósunni yfir réttinn.
Stráið osti yfir og bakið réttinn í ofni
við 190°C í ca. 30-40 mínútur.
Súrsætur svínakjötsréttur
½ kg svínagúllas
Steikt í olíu og sett á eldhús-
pappír og síðan í pott.
1 rauð paprika, skorin
í grófa bita
1 græn paprika,
skorin í grófa bita
2 gulrætur, skornar
í sneiðar
2 laukar, skornir í geira
1 dós ananas (125 g)
Sósa:
2 msk. sykur
3 msk. edik
2 msk. sojasósa
2 msk. tómatpuré
2 tsk. sítrónusafi
2 ½ sm ferskur engifer
ananassafi
3 dl vatn
sósujafnari
Paprika skorin í bita (ekki smátt). Gulræt-
ur skornar í sneiðar og laukur í geira. Látið
krauma á pönnu. Sett í pottinn ásamt því
sem fer í sósuna, og soðið. Jafnað með sósu-
jafnara ef þarf.
Gulrótarkaka
2 bollar hveiti
1 tsk. matarsódi
2 tsk lyftiduft
½ tsk salt
1 tsk. kanill
½ tsk múskat
½ tsk allrahanda
4 egg
2 bollar sykur
2 tsk vanilludropar
¾ bolli olía
1 ¼ bolli rifnar gulrætur
1 dós ananaskurl (1/2 dós) ekki með vökva
½ bolli kókosmjöl (má sleppa)
½-1 bolli saxaðar valhnetur eða möndlur
(má sleppa)
1 bolli rúsínur (má sleppa)
Blandið saman í skál hveiti, lyftidufti, mat-
arsóda, salti, kanil, múskati og allrahanda.
Blandið saman í annarri skál eggjum, sykri,
vanilludropum og olíu. Blandið síðan öllu
saman og hrærið með sleif. Deigið sett í
smurða ofnskúffu (20x30 cm) og bakað í ofni
við 175°C í 55-60 mínútur.
Vinsældir kjötsúpunnar fara vaxandi
„Ooh, skólinn er að verða búinn, getum við ekki verið lengur?“
Slík viðbrögð nemenda kæmu væntanlega flestum kennurum á
óvart. En ekki í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík.
Morgunblaðið/Heiddi
Fiskréttur
undirbúinn
Nemar læra
að nýta mat
og fara vel
með hráefni.
Matarkúnstir
Nemum er skipt í
tvo hópa og er sá
hópur sem nú
sinnir eldhús-
störfum önnum
kafinn við að und-
irbúa veislu fyrir
foreldra.
Ofnbakaður fiskur Hollur og
góður hversdagsmatur.
TÓNLISTARSKÓLINN
Í REYKJAVÍK
2009-2010
Innritun stendur yfir
Nánari upplýsingar á
tono.is