Morgunblaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 36
36 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2009
Evróvisjón-þátturinn Alla leið
hóf göngu sína að nýju um helgina.
Á þessum stað í fyrra var þeirri
hugmynd varpað fram í kjölfarið á
þáttunum að einhver sjónvarps-
stöðin myndi nú ráða Pál Óskar
sem spjallþáttarstjórnanda, svo
öruggur væri hann í því hlutverki.
Hér er hnykkt á því aftur.
Páll Óskar ætti að vera
með eigin spjallþátt
Fólk
„ER þetta ekki bara nokkuð góð aðsókn“? segir
Andri Snær Magnason rithöfundur, spurður
hvort hann sé ánægður með að um 8.000 manns
hafi séð Draumalandið á þeim tveimur vikum
sem hún hefur verið í sýningu. „Ég geri mér ekki
grein fyrir því hvað telst góð aðsókn og hvað
ekki, dómar hafa allir verið mjög jákvæðir. En
ég veit ekki hvernig menning er fyrir því að fara
á heimildamyndir á Íslandi. Ég hefði talið að
8.000 manns væri góð aðsókn en auðvitað vill
maður alltaf að fólk láti sig mál varða og mæti.
Ég held samt að aðsóknin sé í samræmi við okk-
ar væntingar og tel að myndin eigi eftir að malla
lengi í bíóhúsum hér og erlendis. Við erum núna
að velja á milli kvikmyndahátíða, eigum fullt af
boðum en erum að bíða eftir besta boðinu, það
borgar sig að byrja á góðum stað.“
Spurður hvort hann hafi viljað sjá meiri um-
ræðu um myndina svarar Andri að hann hafi
ekki búist við neinu. „ Það er ekki okkar hlut-
verk að fá fólk til að bregðast við myndinni, við
lögðum hana fram. Það héldu margir að við
hefðum stillt hana inn á kosningar en hún er
stillt inn á sláttinn í kvikmyndahúsum. En mér
finnst mjög sérkennilegt að það skuli ekki vera
nein umræða um það brjálæðislega kosningalof-
orð Sjálfstæðisflokksins að lofa tveimur álverum
sem þurfa tvær Kárahnjúkavirkjanir. Auðvitað
kemur til uppgjafar ef það lítur út fyrir að þjóðin
verði að sökkva ennþá dýpra áður en gagnrýnin
umræða á sér stað,“ segir Andri Snær.
ingveldur@mbl.is
Andri Snær segir aðsókn í samræmi við væntingar
Morgunblaðið/Þorkell
Andri Snær Er hneykslaður á kosningaloforði
Sjálfstæðisflokksins um tvö álver til viðbótar.
Sigurganga íslenska bardaga-
íþróttamannsins Gunnars Nelsons
hélt áfram um helgina er hann vann
bæði til gull- og bronsverðlauna á
Opna New York-meistaramótinu í
jiujitsu (New York International
Open Jiu-Jitsu Championship 2009)
á laugardagskvöldið. Gunnar vann
sinn þyngdarflokk og lenti í þriðja
sæti í opnum flokki. Þess má geta
að Gunnar var hársbreidd frá því
að komast í úrslit í opnum flokki en
hann tapaði í undanúrslitum fyrir
sér miklu þyngri andstæðingi á
minnsta mögulega stigamun. Gunn-
ar stefnir á þátttöku í heimsmeist-
aramótinu í jiujitsu sem fer fram í
byrjun júní.
Gunnar Nelson fékk
bæði gull og brons
Myndband við lagið „Is It True?“
var frumsýnt um helgina. Varla er
hægt að segja að leikstjórinn hafi
brotið blað í kvikmyndasögunni við
gerð myndbandsins; smávindur,
grænskjár og málið var dautt. En
miðað við þau myndbönd sem hin
löndin hafa þegar sent frá sér þurf-
um við ekki að skammast okkar.
„Vindur í hárinu,
lalalalalala …“
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
HÚN heitir Kristín Þóra Jóhanns-
dóttir og kom, sá og sigraði í Söng-
keppni framhaldsskólanna sem fór
fram á Akureyri á laugardags-
kvöldið. Kristín er á nítjánda ári og
nemandi á félagsfræðibraut Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi.
„Það verður að segjast að það var
ótrúlega gaman að vinna söng-
keppnina. Maður veit í sjálfu sér
ekki hvað sigurinn þýðir alveg strax,
hvað titillinn ber með sér. Þetta er
samt skemmtilegt og gefur mér von-
andi góð tækifæri í framtíðinni ef ég
vil gera meira,“ segir Kristín sem
fékk leyfi kennara til að fara úr tíma
í gærmorgun og tala við blaðamann.
Kristín er nánast óreynd á söng-
sviðinu að eigin sögn, hefur aldrei
fengið söngkennslu, ekki farið í tón-
listarskóla og aldrei verið í kór. Hún
hefur þó tekið þátt í leikritum sem
hafa verið sett upp í skólanum.
„Við settum upp Stone Free í vet-
ur, þar lék ég hippa og söng mjög
mikið,“ segir Kristín og bætir við að
feimni hafi hingað til komið í veg fyr-
ir að hún hafi sungið meira fyrir
framan fólk. „Mér finnst mjög erfitt
að koma fram enda nánast óreynd í
því. Fyrir utan leikritin höfðu for-
eldrar mínir aldrei heyrt mig syngja
áður fyrr en í söngvakeppninni. Þau
eru ólm í að styðja mig áfram í
söngnum úr þessu.“
Eru foreldrar þínir söngfólk?
„Nei, nei nei,“ svarar Kristín með
áherslu. „Ég á reyndar einn frænda
sem er í hljómsveit og hann er ekki
einu sinni blóðskyldur mér,“ segir
hún og hlær dátt.
Reyndi að velja erfitt lag
Lagið sem Kristín Þóra flutti heit-
ir „Angels“ eftir Robbie Williams og
flutti hún það í útgáfu Jessicu Simp-
son. Kristín lét íslenska textann og í
meðförum hennar hét lagið „Ein-
mana sál“. „Lagið er skemmtilegt og
gaman hvernig maður nýtir radd-
svið sitt í því, það var aðallega þess
vegna sem ég valdi það. Ég reyndi
að velja erfitt lag sem reyndi á en ég
bjóst samt ekki við sigri, það voru
svo margir góðir þarna og valið lík-
lega verið mjög erfitt hjá dómnefnd-
inni.“
Spurð út í tónlistarsmekk segist
Kristín hlusta á allt mögulegt en þó
mest það sem hægt er að syngja
með, teknó er í litlu uppáhaldi.
Þessi efnilega og unga söngkona
stefnir að því að útskrifast úr FVA
um næstu jól en segir framtíðina
vera óskrifað blað. „Ég ætla að nýta
mér þennan söngtíma sem ég fékk í
verðlaun hjá Heru Björk og svo
kannski læri ég söng, maður veit
aldrei,“ segir Kristín sem vinnur á
sambýli á Akranesi með skóla.
Skólasystkini hennar og kennarar
í FVA voru að vonum ánægð með ár-
angur sinnar manneskju. „Það er
mjög blómleg menning í FVA, hér er
mikið af góðu tónlistarfólki og fé-
lagslífið býður upp á marga mögu-
leika til að koma sér á framfæri, –
þeir sem vilja skína fá það.“
Óreyndur sigurvegari
Skagamærin Kristín Þóra Jóhannsdóttir sigraði í Söngkeppni framhaldsskól-
anna Á einn frænda í hljómsveit sem er ekki einu sinni blóðskyldur henni
Söngfugl Kristín Þóra stolt á plani Fjölbrautaskóla Vesturlands
með farand-verðlaunagrip Söngkeppni framhaldsskólanna.
„ÉG bjóst ekkert frekar við því að
komast inn og eftir inntökuprófið
var ég orðin dálítið svartsýn,“ segir
Hulda Jónsdóttir, 17 ára fiðluleikari
sem hefur verið boðið að nema fiðlu-
leik í hinum virta listaskóla Juilliard
í New York næsta haust. Hulda mun
vera yngsti Íslendingurinn sem fær
inngöngu í skólann en Hulda var
einnig yngsti nemandinn sem fékk
inngöngu í diplóma-nám LHÍ þegar
hún hóf þar nám aðeins 15 ára göm-
ul.
Í vor útskrifast hún úr því námi
samhliða því að ljúka stúdentsprófi
frá Fjölbrautaskóla Garðabæjar en
skólann hefur hún stundað í fjar-
námi.
Mikil tónlistarfjölskylda
Hulda segir að námið í Juilliard
leggist ágætlega í hana.
„Allir fyrsta árs nemar eru skyld-
aðir til að dvelja á heimavist skólans
sem verður örugglega skemmtilegt
og svo er víst að þetta verður mjög
krefjandi nám og kappsamt enda
eru allir þeir sem komast inn mjög
góðir listamenn og ekki síður metn-
aðargjarnir.“
En hvað tekur svo við að loknu
náminu í Juilliard?
„Ég útskrifast með BA-gráðu frá
Juilliard og þá tekur við masters-
nám sem mig langar til að klára í
Evrópu, annað hvort í Þýskalandi
eða í Frakklandi,“ segir Hulda
hvergi bangin enda hefur hún stefnt
staðfastlega að því að lifa af tónlist-
inni frá því að hún var 10 ára gömul.
Þess má svo geta í lokin að næstu
tónleikar Huldu verða í Salnum hinn
29. apríl næstkomandi en það eru
jafnframt lokatónleikar hennar sem
nemandi við LHÍ.
Sautján ára íslenskur
fiðluleikari til New York
Morgunblaðið/Heiddi
Á meðal þeirra bestu Juilliard er einhver virtasti listaháskóli heims.
Hulda Jónsdóttir hlýtur inngöngu í Juilliard-listaháskólann
1990 Fjölbrautaskóli Suðurlands -
Lárus Ingi Magnússon
1991 Flensborgarskólinn í Hafnarfirði -
Margrét Eir Hjartardóttir
1992 Menntaskólinn í Reykjavík -
Margrét Sigurðardóttir
1993 Menntaskólinn í Reykjavík -
Þóranna Jónbjörnsdóttir
1994 Menntaskólinn í Kópavogi -
Emilíana Torrini
1995 Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra -
Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
1996 Menntaskólinn í Kópavogi -
Þórey Heiðdal Vilhjálmsdóttir
1997 Menntaskólinn við Hamrahlíð -
Haukur Halldórsson og Flóki Guðmundsson
1998 Menntaskólinn við Hamrahlíð -
Brooklyn Fæv
1999 Flensborgarskólinn í Hafnarfirði -
Guðrún Árný Karlsdóttir
2000 Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra -
Sverrir Bergmann
2001 Flensborgarskólinn í Hafnarfirði -
Arnar Þór Viðarsson
2002 Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra - Eva
Karlotta Einarsdóttir & the Sheep River Hooks
2003 Menntaskólinn á Akureyri -
Anna Katrín Guðbrandsdóttir
2004 Menntaskólinn við Hamrahlíð -
Sunna Ingólfsdóttir og Sigurlaug Gísladóttir
2005 Menntaskólinn í Reykjavík -
Hrund Ósk Árnadóttir
2006 Fjölbrautaskóli Vesturlands -
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir
2007 Verkmenntaskólinn á Akureyri -
Eyþór Ingi Gunnlaugsson
2008 Verslunarskóli Íslands -
Sigurður Þór Óskarsson
2009 Fjölbrautaskóli Vesturlands -
Kristín Þóra Jóhannsdóttir
Sigurvegarar