Morgunblaðið - 12.05.2009, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 12.05.2009, Blaðsíða 15
Fréttir 15VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2009 Við hlustum! Voltaren Gel® (Díklófenaktvíetýlamín 11,6 mg/g) er notað sem stað-bundin útvortis meðferð við vöðva- og liðverkjum. Lyfið má ekki bera á skrámur, opin sár eða á exem, varist snertingu við augu og slímhúðir, notist eingöngu útvortis og má aldrei taka inn. Þegar lyfið er notað án ávísunar læknis skal hafa samband við lækni ef einkenni batna ekki eða versna innan viku. Á meðgöngu skal ávalt leita ráða læknis eða lyfjafræðings áður en lyfið er notað, þó skal það ekki notað á síðasta þriðjungi meðgöngu. Voltaren Gel® er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára. Lítil hætta er á ofskömmtun vegna útvortis notkunar lyfsins. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. Fæst án lyfseðils 15% afsláttur af Voltaren Gel 100g Verkjastillandi og bólgu- eyðandi í túpu! Díklófenak tvíetýlamín 11,6 mg Notkunarsvið: Losec Mups sýruþolnar töflur innihalda efnið omeprazol sem hemur magasýruframleiðslu. Losec Mups er notað við tilfallandi brjóstsviða og súru bakflæði. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi fyrir omeprazoli eða einhverju öðru innihaldsefnanna eða samhliða lyfjum sem innihalda atazanavir. Gæta skal varúðar ef þú færð einhver af eftirtöldum einkennum: Verulegt þyngdartap, endurtekin uppköst, kyngingarerfiðleika, blóðuppköst eða blóð í hægðum. Þá skal hafa samband við lækni. Látið lyfjafræðing vita um önnur lyf sem eru notuð eða hafa nýlega verið notuð. Meðganga og brjóstagjöf: Losec Mups má nota á meðgöngu. Konur með barn á brjósti eiga að leita ráða hjá lækni áður en notkun hefst. Skömmtun: Ein Losec Mups 20 mg tafla ekki oftar en einu sinni á sólarhring. Ef einkennin hafa ekki horfið eftir 14 daga stöðuga notkun skal hafa samband við lækni. Gleypa á töflurnar heilar með ½ glasi af vökva. Hvorki má tyggja þær né mylja. Töflurnar má leysa upp í vatni eða einhverjum súrum vökva (t.d. ávaxtasafa) og taka þannig inn. Það skiptir ekki máli hvort Losec Mups er tekið inn með eða án matar. Algengustu aukaverkanir eru: Höfuðverkur, niðurgangur, ógleði/uppköst, kviðverkir, hægðatregða og aukinn vindgangur. Lesið vandlega allan fylgiseðilinn sem fylgir lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Mars 2009. ...Nú færðu Losec mups* án lyfseðils í næsta apóteki! Nýtt! FÆRÐUBRJÓSTSVIÐAEÐA SÚRT BAKFLÆÐI?... *Omeprazol annt um líf og líðan verkefnið í efnahagsmálum næstu hundrað daga sé að vinna markvisst að því að draga úr höftum í gjaldeyr- isviðskiptum. Sé það ein forsenda þess að skilyrði til hagvaxtar skapist sem fyrst. Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is EKKI mun koma til frekari tilslak- ana í gjaldeyrismálum á næstunni en þeirra sem þegar hafa verið kynnt, að sögn Sveins Haralds Øygard seðlabankastjóra. Kemur þetta fram í viðtali sem Bloomberg-fréttastofan tók við hann í Basel í Sviss. Vísar hann þar til áætlunar Seðla- bankans um að leiða saman erlenda krónubréfaeigendur og íslensk fyr- irtæki. Eins og fram hefur komið gerir áætlun Seðlabankans ráð fyrir því að erlendir fjárfestar, sem sitji á krónum hér á landi, geti lánað féð til íslenskra fyrirtækja sem hafi tekjur í erlendri mynt. Fyrirtækin gætu þá greitt viðkomandi lán til baka í er- lendum gjaldeyri. Segir hann að erlendir fjárfestar hafi því ekki í önnur hús að venda vilji þeir geta skipt krónum sínum í erlenda mynt. Vilja draga úr höftum „Gjaldeyrishöft eru til staðar og þau munu áfram vera eins stíf og nauðsyn krefur og eftirlit verður haft með því að ekki sé farið á svig við þau,“ segir Øygard við Bloom- berg. Komi hins vegar í ljós að hægt sé að virkja nýtt fjármagn innan reglurammans verði þær leiðir að minnsta kosti skoðaðar. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna segir hins vegar að eitt mikilvægasta „Trúverðug stefna í ríkisfjármál- um er nauðsynleg til að treysta bankakerfið, styðja gengi krónunnar og skapa forsendur fyrir eðlilegum gjaldeyrisviðskiptum,“ segir í sátt- málanum. Engar tilslakanir í burð- arliðnum hjá Seðlabanka Seðlabankastjóri segir gjaldeyrishöft óbreytt á næstunni Morgunblaðið/Ómar Höft Svein Harald Øygard seðlabankastjóri segir að erlendir fjárfestar eigi ekki von á frekari tilslökunum í gjaldeyrismálum á næstunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.