Morgunblaðið - 12.05.2009, Blaðsíða 31
Menning 31FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2009
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Íslands
býður í haust í fyrsta skipti upp á
námskeið fyrir ungmenni sem eru
komin langt í hljóðfæranámi. Nám-
skeiðinu lýkur með tónleikum laug-
ardaginn 26. september, þar sem
Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands, eins og ákveðið hefur verið að
kalla hljómsveitina, leikur Sinfóníu
nr. 5 eftir Dimitri Sjostakovits, undir
stjórn aðalhljómsveitarstjóra Sinfón-
íuhljómsveitarinnar, Rumons
Gamba, en hann verður jafnframt að-
alleiðbeinandi á námskeiðinu.
Arna Kristín Einarsdóttir er tón-
leikastjóri hljómsveitarinnar: „Þetta
er viðbót í starfsemi hljómsveit-
arinnar. Við erum mjög meðvituð um
gildi fræðslustarfs í því að efla okkar
áheyrendahóp og þurfum að vera
virk í því að ná til yngri áheyrenda.
Við trúum því að með þessu starfi
gerum við það. Við erum líka að huga
að framtíð hljóðfæraleiks á Íslandi.
Það þarf að vera til ungt fólk sem
getur tekið við af þeim eldri.“
Upplifa heim atvinnumennsku
Arna segir verkefnið mikilvæga
leið til að ná til ungs fólks, og að kom-
ast í bein tengsl við það. Öll umgjörð
námskeiðsins er miðuð að því að
unga fólkið upplifi því sem næst
sömu vinnu og fram fer í hljómsveit-
inni dags daglega og upplifi heim at-
vinnumennskunnar í tónlistinni. Ru-
mon Gamba verður sem fyrr segir
aðalleiðbeinandi, en auk þess munu
hljóðfæraleikararnir ungu fá raddæf-
ingar á sín hljóðfæri með leiðurum
hljómsveitarinnar. Arna segir nám-
skeiðið byggt á fyrirmynd frá Sinfón-
íuhljómsveitinni í San Francisco.
„Þar er starfrækt ungliðahljómsveit,
sem þykir ein sú besta í Bandaríkj-
unum. Stjórnandi þeirrar sveitar,
Benjamin Shwartz stjórnaði Sinfón-
íuhljómsveitinni á tónleikum í mars,
og þá fengum við tækifæri til að ræða
við hann um ungmennastarfið. Það
kom fram hjá honum, að það að unga
fólkið fái að vinna með hljómsveit-
arfólkinu, leiðurum hljóðfærahóp-
anna, sem eru alla daga að finna
lausnir í hljómsveitarleiknum, sé lyk-
illinn að því að hljómsveitin verði góð.
Það er grunnvinnan, en svo kemur
hljómsveitarstjórinn og púslar öllu
saman í listrænu vinnunni.“
Ekkert námskeiðsgjald verður
innheimt af unga fólkinu og segir
Arna það gott, þar sem ungt fólk sé
sá hópur sem eflaust fari hvað verst
út úr kreppunni.
Sinfóníuhljómsveitin hefur haldið
úti tónleikum fyrir ungt fólk undir yf-
irskriftinni „Heyrðu mig nú“. Arna
segir að þar hafi glöggt komið í ljós
hve Rumon Gamba hafi sérstakt lag
á því að ná til ungs fólks.
Samstarf verður haft við tónlistar-
skólana um verkefnið. Miðað verður
við að nemendur frá miðstigi og upp-
úr geti sótt um, nemar á aldrinum 12
– 21 árs, en þeir lengst komnu ganga
fyrir, en reynt verður að taka sem
flesta. Unga fólkið fær líka að
spreyta sig á leiðarastarfi hvers
hljóðfærahóps, og fær það að þreyta
prufuspil um það sæti. „Þannig er
það í atvinnumennskunni, þeir sem
leiða sinn hljóðfærahóp geta alls
staðar átt von á því að þurfa að fara í
prufuspil fyrir leiðarastarfið.“
Hefðin er til staðar
Á áttunda áratug síðustu aldar var
Sinfóníuhljómsveit æskunnar starf-
rækt í mörg ár í samvinnu Tónlistar-
skólans í Reykjavík og bandaríska
fiðluleikarans og hljómsveitarstjór-
ans Pauls Zukofskys. Sú starfsemi
lagðist af fyrir aldamótin. Á síðustu
árum hefur ungt fólk einnig starf-
rækt eigin hljómsveit, Ungfóníu, sem
Gunnsteinn Ólafsson hefur stjórnað.
Þá hafa tónlistarskólarnir líka haft
hljómsveitir innan sinna vébanda.
Fjölmargir hljóðfæraleikarar í
Sinfóníuhljómsveit Íslands fengu
sína fyrstu reynslu af hljómsveit-
arleik í Sinfóníuhljómsveit æsk-
unnar. Ungsveit Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands verður með eina
tónleika á ári, og nýr hljómsveit-
arstjóri verður ráðinn í hvert sinn.
„Þótt margir hafi verið að gera frá-
bæra hluti tel ég að við getum gert
þetta stærra í sniðum, og við von-
umst auðvitað eftir samstarfi við sem
flesta. Við erum mjög meðvituð um
að leiðin að því að fjölga áheyrendum,
sem þó eru margir í dag, er sú að
vera í virku samstarfi við ungt fólk.
Með því að nýta aðstöðu okkar og
þekkingu, á tímum þegar aðrar
hljómsveitir glíma við niðurskurð í
fræðslumálum, getum við látið þenn-
an draum okkar rætast.“
Virkt samstarf við ungt fólk
Morgunblaðið/Einar Falur
Sinfónían stofnar Ungsveit Öll umgjörð námskeiðsins er miðuð að því að unga fólkið upplifi heim atvinnumennskunnar í tónlistinni.
Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands tekur til starfa í haust með námskeiði og
tónleikum Starfar í umhverfi atvinnumennskunnar undir stjórn Rumons Gamba
Morgunblaðið/Ásdís
Tónleikastjóri Arna K Einarsdóttir.
Morgunblaðið/Kristinn
Hljómsveitarstjóri Rumon Gamba.
Í TILEFNI Menningarvors í
Mosfellsbæ er boðið upp á dag-
skrá í Bókasafni og Listasal
Mosfellsbæjar, í samráði við
listamenn úr Mosfellsbæ, þrjá
þriðjudaga nú í sumarbyrjun.
Önnur dagskráin fer fram í
kvöld, 12. maí, kl. 20 til 21.30.
Jón Kalman Stefánsson rithöf-
undur kemur og spjallar við
gesti um verk sín.
Kristjana Helgadóttir
flautuleikari og Hrönn Helgadóttir organisti spila
af fingrum fram. Tindatríóið og kvartettinn Spari-
tónar flytja einnig nokkur lög. Aðgangur ókeypis,
allir velkomnir og heitt á könnunni.
Hugvísindi
Jón Kalman spjall-
ar um verk sín
Jón Kalman
KLASSÍSKI listdansskólinn
heldur útskriftarsýningu í
Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 20.
Skólinn hefur verið starf-
ræktur í 15 ár en útskrifar nú
fyrsta nemendahóp sinn af
framhaldsbraut.
Nemendur sýna dansverk
samin í samvinnu við danshöf-
und, endursköpun þekktra
dansverka, dansverk samin af
nemendunum sjálfum, víd-
eóverk, ljósmyndainnsetningu og rannsókn-
arkynningu.
Miðasala er í Borgarleikhúsinu. Miðaverð er
1.200 kr. fyrir námsmenn en 2.500 kr. fyrir aðra.
Dans
Útskriftarsýning
listdansara
Ballettdans.
ÁRNESINGAKÓRINN í
Reykjavík heldur sína árlegu
vortónleika í Fella- og Hóla-
kirkju annað kvöld, miðviku-
daginn 13. maí, kl. 20.
Þema tónleikanna er trúar-
tónlist úr ýmsum áttum og
mun kórinn frumflytja mess-
una Missa Lumen eftir tón-
skáldið Maierhofer ásamt ein-
söngvurunum Eyjólfi
Eyjólfssyni og Huldu Björk
Garðarsdóttur og strengjasveit Árnesinga.
Píanóundirleikur er í höndum Judith Þorbergs-
son og stjórnandi er Gunnar Ben.
Nánir upplýsingar á www.kor.is
Tónlist
Vortónleikar
Árnesingakórsins
Hulda Björk
BALLETTDANSARAR í Covent
Garden hafa hækkað viðmiðið í fóta-
lyftingum smátt og smátt í gegnum
árin. Rannsókn sýnir að á und-
anförnum fimmtíu árum hafa þeir
lyft fótunum stig
af stigi hærra á
sviði.
Borin var sam-
an frammistaða
dansara í röð af
uppfærslum á
ballettinum
Þyrnirós í Kon-
unglega óp-
eruhúsinu og
kom í ljós að fóta-
lyftingar hafa
aukist. Þykir það endurspegla nú-
tímasmekk fyrir líkamlegum öfgum.
Dansarar verða að ganga lengra og
taka meiri áhættu nú en áður og nú-
tíma danshöfundar vilja sjá öfga-
fyllri stellingar.
Þeir sem að rannsókninni stóðu
söfnuðu myndum og myndböndum
frá uppsetningu á Þyrnirós og ein-
blíndu á eitt atriði úr fyrsta þætti.
Þeir fundu út að á tímabilinu frá
1946 til 2004 hafa fótalyftingar farið
hækkandi. Markmið dansara er að
bæta lóðrétta línu líkamans, fara í
einskonar lóðrétt splitt.
Talið er að ástæðurnar fyrir þessu
séu m.a þörf danshöfunda fyrir að
gera eitthvað nýtt og öðruvísi og að
þjálfun í ballettskólum sé orðið mik-
ið harðari og því sveigjanleiki dans-
ara meiri. Fyrir fimmtíu árum vor-
udansarar ekki eins liðugir en núna
vinna þeir í því og vilja koma fæt-
inum eins hátt og mögulegt er. Þess-
ar öfgar eru þó ekki taldar gera
heilsu dansarana á efri árum gott.
Reuters
Ballett ...svona hærra með fótinn.
Öfgafyllri
fótalyftingar
Ballettdansarar
ganga lengra
Upplyfting Úr
Rósagarðinum.
ÆVINTÝRABÆKURNAR eftir
Enid Blyton verða endurútgefnar í
Bretlandi í haust af Egmont Press
útgáfunni. Það
sem vekur at-
hygli í nýju útgáf-
unni er að Fre-
derick Algernon
Trotteville hefur
fengið róttæka
útlitsbreytingu.
Frederick er leið-
togi krakka-
hópsins og er
kallaður Fatty
eða Feiti í ensku útgáfunni en fékk
nafnið Finnur í þeirri íslensku. Í
gömlu bókunum er hann þéttur
drengur eins, og viðurnefnið gefur
til kynna, en í nýju útgáfunni er
hann hafður grennri og látinn klæð-
ast gallabuxum. Samkvæmt útgáfu-
félaginu er nýtt útlit hans fyrir nýja
kynslóð lesenda. Notaðar eru ljós-
myndir í staðinn fyrir teikningar í
nýju útgáfunni og var fjöldi krakka
boðaður í prufur til að finna rétta út-
litið. Niðurstaðan varð síðan sú að
hafa Finn grennri og gæjalegri.
Finnur frækni
látinn grennast
Enid Blyton
Fræðslustarf Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands tók nýja stefnu
þegar hljóðfæraleikarar hljóm-
sveitarinnar Hallfríður Ólafsdóttir
og Þórarinn Már Baldursson
sömdu verkefni í barnabók og
tónlist um Maxímús Músíkús. Í
söguna fléttast ferð músarinnar á
æfingu hjá sinfóníuhljómsveit, og
er lagt upp með það að hljóm-
sveitir geti nýtt verkefnið í þágu
barna. Tónleikar hljómsveit-
arinnar með Maxa mús hafa verið
gríðarlega vinsælir og bókin hefur
þegar verið þýdd á nokkur erlend
mál og er komin út í Færeyjum.
Um helgina komu fræðslu-
fulltrúar erlendra hljómsveita á
tónleika með músinni, til að
kynna sér verkefnið. Þau voru frá
Berlínarfílharmóníunni, London
Symphony Orchestra, Konunglegu
Fílharmóníunni í Stokkhólmi og
Concertgebouw í Amsterdam, og
funduðu með íslenskum fulltrú-
um verkefnisins á eftir. Hljóm-
sveitirnar eru að sögn Örnu mjög
spenntar fyrir því að fá Maxímús
Músíkús til sín.
Anna Hildur Hildibrandsdóttir
hjá Útón hefur annast ráðgjöf og
kynningu á verkefninu erlendis í
samvinnu við Hallfríði sem Anna
Hildur segir hafa unnið gríð-
arlega gott undirbúningsstarf.
„Við höfum unnið að þessu í
tæpt ár og planið sem við lögð-
um upp með í byrjun hefur geng-
ið fullkomlega eftir, eins og það
að fá hingað það fólk sem kom
um helgina. Þetta eru stærstu
hljómsveitir í Evrópu og koma
þeirra er mælikvarði á það að
verkefnið hefur aðdráttarafl. Það
verður mjög spennandi að fylgj-
ast með framhaldinu.“
Erlendar hljómsveitir hrífast af Maxímús
En fall er fararheill
eins og sagt er og
vonandi að ferðin austur
til Bandaríkjanna gangi
betur 32
»