Morgunblaðið - 12.05.2009, Page 34

Morgunblaðið - 12.05.2009, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2009 Maðurinn er dýr. Með sínardýrslegu hvatir. Honumtekst misjafnlega að bæla þær niður og dýrið brýst oftast út þegar aðstæður reynast yfirþyrmandi, þegar rökhugsunin víkur og hömlurnar fjúka ein- hverra hluta vegna. Hvatirnar bera hina hugsandi veru ofurliði, hún getur svo sem reynt að skil- greina þær og kryfja, koma á þær böndum. Það er bara svo miklu meira fútt í að láta undan þeim.    Einhvern veginn þannig virk-aði sýningin Húmanimal á mig. Hún er (eða var, þ.e. ef sýn- ingar standa ekki lengur yfir) bræðingur ýmissa listgreina, fjallar umfram annað um kyn- hvötina. Eða þannig upplifði und- irritaður hana að minnsta kosti. Titill verksins vísar augljóslega til þess að maðurinn er eftir allt saman bara dýr. Spendýr. Í verk- inu er dansað á hinum óljósu mörkum hinnar hugsandi mann- veru og hinnar hamslausu mann- skepnu. Stundum án orða, stund- um með orðum en dýrið brýst alltaf út undir lokin og það með miklum látum.    Annað verk er á svipuðum nót-um en þó allt öðruvísi. Það er X-mannamyndin um Jarfa (e. Wolverine), mann sem er aðeins að hluta mennskur, e.k. bræð- ingur dýrs og manns. Bölvun Jarfa er sú að honum vaxa langar klær þegar hann reiðist, út úr hnúunum nánar tiltekið. Að auki býr hann yfir þeim fágæta eig- inleika að öll sár hans gróa og hann eldist ekki frekar en Dorian Gray. Þó þráir Jarfi ekkert frek- ar en að vera venjulegur vísitölu- launamaður, eins leiðigjarnt og það nú er. Lítill friður veitist honum þó til að njóta grámyglu- legs hversdagsleikans því að hon- um sækja illmenni og óværa sem reyna hvað þær geta að kalla fram í honum dýrið. Ein þeirra er skepnan bróðir hans, Sabretooth eða Sverðtanni (þýðing undirritaðs). Bróðirinn er algjör skepna, drepur án eftirsjár og tillits til þess hvert fórnar- lambið er, líkt og hungraður úlf- ur. Vígtenntur og loðinn, með klær og snerpu villidýrs. Sverð- tanni sættir sig illa við langanir bróður síns í hversdagslegt fjöl- skyldulíf og gerir hvað hann get- ur til að draga fram í honum villidýrið. Það tekst á endanum, villidýrið Jarfi losnar úr læðingi með tilheyrandi blóðsúthell- ingum. Hið dýrslega eðli reynist skynseminni yfirsterkara, líkt og þegar menn skeina sig með kjör- seðlum í stað þess að skila auðu.    Hin dýrslega bölvun er líkadraumur. Draumur manns- ins um að losna undan oki skyn- semi, rökhugsunar og hamla er ævaforn. Að hverfa aftur til nátt- úrunnar. Fátt lýsir þessu eins vel og varúlfsgoðsögnin. Um hinn dagfarsprúða og löghlýðna mann sem umbreytist þegar tungl er fullt og verður að úlfi. Hann fær engu um það ráðið og úlfurinn hlýðir aðeins lögum náttúrunnar. Spurningin er hins vegar sú hvort það sé gott að vera úlfur. Það vita úlfarnir einir. Dýrið í manninum AF LISTUM Helgi Snær Sigurðsson »Hið dýrslega eðlireynist skynseminni yfirsterkara, líkt og þegar menn skeina sig með kjörseðlum í stað þess að skila auðu. Húmanimal Maðurinn er, þegar á botninn er hvolft, bara dýr. Ólíkar birtingamyndir þess má sjá í verkinu Húmanimal og í persónu Wolverine í X-Men. Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó X-Men Origins: Wolverine kl. 8 - 10:10 B.i.16 ára The Boat that Rocked kl. 8 - 10:10 B.i.12 ára Draumalandið kl. 6 LEYFÐ Múmínálfarnir: Örlaganóttin kl. 6 LEYFÐ ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Sími 551 9000 500kr. UNCUT - S.V. MBL EMPIRE TOTAL FILM HÖRKUSPENNANDI MYND FRÁ LEIKSTJÓRA THE LAST KING OF SCOTLAND State of Play kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára I love you man kl. 5:40 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára Fast and Furious kl. 5:40 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára Crank 2: High Voltage kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára ....ERTU NÓGU MIKILL MAÐUR TIL AÐ SEGJA ÞAÐ? The Boat the Rocked kl. 6 - 9 B.i.12 ára X Men Origins: Wolverine kl. 6:30 - 9 B.i.14 ára ÞRIÐJUDAGUR ER TIL 500 KR. Á ALLAR SÝ 500 kr. 500 kr. STÆ RST A OP NU NIN Á Á RIN U 500 k r. Draumalandið kl. 6 - 8 -10 LEYFÐ I Love You Man kl. 5:40- 8 - 10:15 B.i.12 ára allar m yndir allar sý ningar alla þri ðjudag a HÖRKU HASAR! GEÐVEIKIN STOPPAR ALDREI, OG VIRÐIST ÞEIM FÉLÖGUM, LEIKSTJÓRUNUM NEVELDINE OG TAYLOR FÁTT VERA ÓMÖGULEGT. - V.J.V., - TOPP5.IS Nú eru Múminálfarnir komnir með sína fyrstu bíómynd sem segir frá stærsta ævintýrinu sem þeir hafa nokkurn tíma lent í. SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI VINSÆL ASTA MY NDIN Í HEIMIN UM Í DA G! S.V. MBL SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI 500 kr. OG BORGARBÍÓI 500 kr. 500 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.