Morgunblaðið - 12.05.2009, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2009
Kvikmyndin The Boat ThatRocked fjallar um þádapurlegu tíma þegartónlistarsmekkur unga
fólksins var gjörsamlega hundsaður
á öldum ljósvakans. Við á SV-
horninu höfðum til allrar hamingju
„Kanann“, til að stytta okkur stund-
ir, en þó svo að breska poppbyltingin
væri að leggja undir sig heiminn fór
það lengi vel framhjá Breska rík-
isútvarpinu, BBC. Popp-fyrirlitning
þeirra sem þar réðu húsum (hér per-
sónugerðir af kostulega útlítandi
Branagh), gerði að verkum að upp
risu svokallaðar „sjóræningjastöðv-
ar“, staðsettar um borð í gömlum
fiskiskipum sem lagt var rétt utan
bresku landhelginnar
„Radio Rock“ er sjálfsagt byggð á
Radio Caroline, frábærri sjóræn-
ingjastöð sem sendi út gullald-
arpoppið allan sólarhringinn. Ég
man ekki betur en að hún heyrðist
hér norður í höf, líkt og Radio Lux-
embourg sem sendi út svipaða tón-
list. Því miður fær þessi ágæta stöð
og „sjóræningjarnir“, sem henni
stjórnuðu, bragðdaufa umfjöllun í
The Boat That Rocked. Myndin er
undir væntingum frá hendi Curtis,
sem leikstýrði Love Actually, eftir
að hafa gert af og til góða hluti sem
handritshöfundur. Hann fyllir
myndina af „skrautlegum“ per-
sónum sem eru plötusnúðar sjóræn-
ingjastöðvarinnar, undir stjórn
Quentins, sem Nighy gerir að lit-
lausum manni í litskrúðugum bún-
ingum. Lífið um borð er eitt, langt
og úldið partí og kvennafar því
skipsfarmar grúppía (klæddar að
hætti Mary Quant) koma reglulega
til að fullnægja kynferðislegum þörf-
um plötusnúða. Vesælu ástaræv-
intýri er bætt út í lífið um borð og
spurningum um óvisst faðerni eins
plötusnúðsins. Það eina sem gleður
eyrað eru lagstúfar eftir Kinks og
aðra snillinga þess sjöunda og fyrr-
greindur Branagh sem er skemmti-
lega ýktur sem ímynd þröngsýnnar
valdastéttar.
Curtis fyllir bátinn af frægum
leikurum, líkt og hans er vani. Því
miður, stórleikarinn Hoffman er að
mestu leyti gleymdur, líkt og
Thompson. Ifans á sér e.t.v. áhang-
endur sem eru ánægðir með frammi-
stöðu hans, leikarinn var mun skárri
á velktri nærbrókinni í Notting Hill
sem byggð er á öðru og margfalt
betra handriti Curtis.
Hugmyndin, að minnast vel þeg-
innar tímamótastarfsemi Radio Car-
oline við að opna eyru heimsins fyrir
dægurtónlist sem breytti heiminum,
er út af fyrir sig góðra gjalda verð en
er víðs fjarri markmiðinu. The Boat
That Rocked er stjórnlaus kláfur í
hafsnauð.
saebjorn@heimsnet.is
Bátur í nauðum
Rokkbátur „The Boat That Rocked, er stjórnlaus kláfur í hafsnauð,“ segir meðal annars í dómnum.
Smárabíó, Borgarbíó
The Boat That Rocked
bmnnn
Leikstjóri: Richard Curtis. Aðalleikarar:
Philip Seymour Hoffman, Bill Nighy,
Rhys Ifans, Chris O’Dowd, Gemma Ar-
terton, Kenneth Branagh, Jack Daven-
port, Nick Frost, Emma Thompson, Ja-
nuary Jones. 129 mín. England. 2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
Í upphafi The Boat That Rocked,
kemur fram að á öndverðum 7. ára-
tugnum eyddi BBC 45 mínútum af
sínum dýrmæta útsendingartíma í
popptónlist. Slík var íhaldssemin
hérlendis að Gufan taldi Lög unga
fólksins yfrið nóg fyrir okkur ung-
lingana. Þátturinn stóð í klukku-
tíma á viku, þar fyrir utan fengum
við að hámarki 45 mínútur til við-
bótar af eðalpoppi sem skaut upp
kollinum, einkum í Óskalögum sjó-
manna og sjúklinga, ef minnið
bregst mér ekki Á laugardags-
kvöldum var uppáhaldsefni Guf-
unnar „syrpur“, (LP). með ein-
hverjum erlendum
danshljómsveitum sem enginn man
lengur. Að flestu öðru leyti stóð
„gamla, góða Gufan“, sig með
þeirri prýði sem einkennir dagskrá
hennar enn þann dag í dag.
Ástandið á ísa köldu landi
GLANSPÍAN Paris Hilton segir að
erfiðasta lífsreynsla sín hafi verið
þegar hundurinn hennar hvarf. Þessi
ummæli stúlkunnar hafa vakið tölu-
verða athygli í ljósi þess að hún hef-
ur lent í einu og öðru um ævina, en ár-
ið 2003 lak kynlífsmyndband með henni
og fyrrverandi unnusta hennar, Rick
Salomon, á netið. Þá eyddi hún 23
dögum í fangelsi árið 2007 eftir að
hafa verið fundin sek um að keyra án
þess að hafa til þess tilskilin réttindi. Hún
segir þetta þó ekki hafa verið neitt miðað
við það þegar chihuahua-hundurinn henn-
ar, sem nefnist Tinkerbell, hvarf.
„Það var svo hræðilegt. Hún var týnd í
heila viku og ég vissi ekki hvort hún
kæmi aftur eða ekki. Þetta var eins og að
missa barnið sitt. Hún var samt bara rétt
hjá allan tímann, heima hjá gamalli konu.
Konan horfði hins vegar ekkert á sjón-
varpið þannig að hún vissi ekki að hund-
urinn minn var horfinn. En svo sá hún
auglýsingu þannig að ég fékk Tinkerbell
aftur,“ segir Hilton.
Hundahvarf verra
en kynlífsmyndband
Reuters
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Hart í bak (Stóra sviðið)
Creature - gestasýning (Kassinn)
Ó, þú aftur - afmælissýning leikhópsins Hugleiks (Smíðaverkstæðið)
Í Óðamansgarði - ópera í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík
Kardemommubærinn (Stóra sviðið)
Fim 14/5 kl. 20:00Aukas. Ö
Fim 14/5 kl. 20:00 U
Fös 15/5 kl. 20:00 Ö
Fös 15/5 kl. 20:00 U
Sun 17/5 kl. 20:00
Mið 20/5 kl. 20:00
Fös 22/5 kl. 20:00
Fös 15/5 kl. 20:00 U
Lau 16/5 kl. 20:00
Sun 17/5 kl. 20:00
Fös 22/5 kl. 20:00
Sun 24/5 kl. 20:00
Mið 27/5 kl. 20:00
Lau 23/5 kl. 20:00
Fim 28/5 kl. 20:00
Fös 29/5 kl. 20:00
Fös 29/5 kl. 18:00 U
Lau 30/5 kl. 14:00 U
Lau 30/5 kl. 17:00 U
Fim 4/6 kl. 18:00 U
Fös 5/6 kl. 18:00 U
Lau 6/6 kl. 14:00 U
Lau 6/6 kl. 17:00 U
Lau 16/5 kl. 14:00 U
Lau 16/5 kl. 17:00 U
Sun 17/5 kl. 14:00 U
Sun 17/5 kl. 17:00 U
Sun 24/5 kl. 14:00 U
Þri 26/5 kl. 18:00 U
Mið 27/5kl. 18:00 U
Sun 7/6 kl. 14:00 U
Sun 7/6 kl. 17:00 U
Lau 13/6 kl. 14:00 Ö
Lau 13/6 kl. 17:00 Ö
Sun 14/6 kl. 14:00 U
Sun 14/6 kl. 17:00 U
Sun 30/8 kl. 14:00
Sýningar haustsins komnar í sölu
Yfir 40 uppseldar sýningar. Sýningum lýkur 15. maí
Kolklikkaður leikhúskonsert - aðeins fjórar sýningar
Aðeins tvær sýningar
Snarpt sýningatímabil - miðaverð aðeins 1.500 kr.
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Einleikjaröð- Sannleikurinn (Litla sviðið)
Lau 23/5 kl. 19:00 ný aukaU Lau 23/5 kl. 22:00 ný aukaU
Ökutímar (Nýja sviðið)
Mið 13/5 kl. 20:00 5kort U
Fim 14/5 kl. 20:00 6kort U
Fös 15/5 kl. 19:00 U
Lau 16/5 kl. 16:00 7kort U
Sun 17/5 kl. 19:00 U
Mið 20/5 kl. 19:00 8kort U
Fim 21/5 kl. 20:00 Ö
Fös 22/5 kl. 19:00 aukas Ö
Lau 23/5 kl. 19:00 aukas
Sun 24/5 kl. 20:00 aukas
Mið 27/5 kl. 20:00 9kort U
Fim 28/5 kl. 20:00 10kort U
Fös 29/5 kl. 19:00 Ö
Aðeins sýnt í maí.
Söngvaseiður - „Stórkostleg skemmtun“ Pressan
Mið 13/5 kl. 20:00 4kort U
Fim 14/5 kl. 20:00 5kort U
Fös 15/5 kl. 20:00 6kort U
Lau 16/5 kl. 16:00 7kort U
Sun 17/5 kl. 16:00 U
Sun 17/5 kl. 20:00 8kort U
Mið 20/5 kl. 20:00 U
Fim 21/5 kl. 16:00 U
Fim 21/5 kl. 20:00 9kort U
Fös 22/5 kl. 20:00 10kort U
Lau 23/5 kl. 20:00 U
Sun 24/5 kl. 16:00 U
Mið 27/5 kl. 20:00 ný aukasU
Fim 28/5 kl. 20:00 U
Fös 29/5 kl. 20:00 U
Lau 30/5 kl. 20:00 U
Mán 1/6 kl. 16:00 ný aukaU
Mið 3/6 kl. 20:00 U
Fim 4/6 kl. 20:00 U
Fös 5/6 kl. 20:00 ný aukasU
Lau 6/6 kl. 16:00 U
Lau 6/6 kl. 20:00 U
Sun 7/6 kl. 16:00 U
Fim 11/6 kl. 20:00 Ö
Fös 12/6 kl. 20:00 ný aukasU
Lau 13/6 kl. 14:00 U
Sun 14/6 kl. 16:00 U
Frumsýning 8. maí!
Við borgum ekki (Nýja sviðið)
Hárbeittur gamanleikur eftir Dario Fo
Fös 5/6 kl. 20:00 fors.
Lau 6/6 kl. 19:00 frums.U
Lau 6/6 kl. 22:00
Mið 10/6 kl. 20:00
Fim 11/6 kl. 20:00
Fös 12/6 kl. 20:00
Lau 13/6 kl. 20:00
Sun 14/6 kl. 20:00
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
Fúlar á móti ATH! sýnt í Íslensku Óperunni Sími 511 4200
Aðeins örfáar sýningar
Fim 14/5 kl. 20:00 U
Fös 15/5 kl. 20:00 U
Sun 17/5 kl. 20:00 U
Fös 22/5 kl. 20:00 Ný sýn
Fim 28/5 kl. 20:00 Ný sýn
Fim 4/6 kl. 20:00 Ný sýn
Fös 5/6 kl. 20:00 Ný sýn
Lau 6/6 kl. 20:00 Ný sýn
Sun 7/6 kl. 20:00 Ný sýn
LEIKKONAN Liv
Tyler er heltekin af
húlahoppi. Hún segir
að eina leiðin til að hún
haldi sér í formi sé að
gera æfingarnar
skemmtilegar. Meðal
annars notar hún húla-
hring til að styrkja
magann og er það ein
af hennar uppáhalds-
æfingum.
„Ég er nýbúin að fá
mér húlahring, ég set
uppáhaldslagið mitt á
fóninn og húlahoppa
svo þar til laginu lýkur
og ég er búin á því.
Það er mjög skemmti-
legt,“ segir Tyler.
Hin 31 árs leikkona
er staðráðin í að fá ekki líkamsrækt á heilann og reynir
að einblína á það sem henni líkar við líkama sinn.
„Það eina sem þú getur gert er að gera þitt besta og
sættast við sjálfan þig eins og þú ert. Ég hef alltaf haft
stóran maga en sem betur fer er ég með mjóa ökkla.“
Húlahopp
í uppáhaldi
Húla Liv Tyler, í bláum kjól,
með Kate Hudson.
Reuters
TÓNLISTARMAÐURINN
Boy George er laus úr
fangelsi, ellefu mánuðum
fyrr en til stóð. Hann var
dæmdur í fimmtán mán-
aða fangelsi í janúar fyrir
að hafa haldið norskum
fylgdarpilti föngnum
heima hjá sér á árinu
2007.
Samkvæmt fréttum
breskra fjölmiðla var Boy
George látinn laus vegna
góðrar hegðunar en hann
þarf að ganga með stað-
setningartæki um ökklann
næstu mánuði og mæta á
fundi hjá skilorðsfulltrúa
sínum reglulega.
Boy George, sem er 47 ára og fyrrum söngvari Cult-
ure Club, var sakaður um að hafa handjárnað 29 ára
gamlan Norðmann, Audun Carlsen, og barið hann með
járnkeðju þegar hann reyndi að flýja íbúð popparans í
kjölfar nektarmyndartöku.
George, sem heitir réttu nafni George O’Dowd, ját-
aði að hafa handjárnað Carlsen í apríl árið 2007. Hann
sagði hins vegar að hann hefði gripið til þessa ráðs eftir
að grunsemdir vöknuðu hjá honum að Norðmaðurinn
hafi átt við tölvuna hans og náð þaðan ljósmyndum.
Laus Boy George er aftur
meðal frjálsra manna.
Laus úr fangelsi
Hundakona
Paris
Hilton.