Morgunblaðið - 12.05.2009, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 12.05.2009, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2009 Þeir sem vilja leigja sér húsnæði eða bjóða eign til leigu geta nú einfaldlega farið á mbl.is mbl.is/leiga er miðstöð þeirra sem vilja skoða leigumarkað- inn, hvort heldur sem er fyrir atvinnuhúsnæði eða íbúðarhús- næði. Þeir sem vilja bjóða eignir til leigu geta keypt vikuskrán- ingu á vefnum fyrir 1.000 kr. eða heilan mánuð á 3.500 kr. – meira fyrir leigjendur F í t o n / S Í A Nýjung á mbl.is fyrir leigjendur og þá sem vilja leigja eignir mbl.is/leiga Lionsklúbbur Blönduóss varð fimm- tíu ára í byrjun mánaðarins og var tímamótanna minnst með ýmsu móti. Meðal annars var gefið út veg- legt afmælisblað þar sem farið er yf- ir starf klúbbsins síðustu hálfa öld. Kennir þar margra grasa og er ljóst að þáttur Lionsklúbbsins í stuðningi við líknar- og menningarmál í hér- aðinu er býsna drjúgur. Stærsta einstaka verkefni sem klúbburinn styður á þessu ári er styrkur til kaupa á nýju pípuorgeli í kirkjuna.    Gömlu sundlauginni á Blönduósi var endanlega lokað 1. maí síðastliðinn. Sundlaugin hefur þjónað Blöndu- ósingum og fleirum í gegnum tíðina en laugin er farin að láta verulega á sjá og því hafa bæjaryfirvöld ákveð- ið að setja ekki frekari fjármuni í viðhald hennar. Eins og komið hefur fram í fréttum er verið að byggja nýja glæsilega sundlaug á Blönduósi og er gert ráð fyrir að hún verði opnuð á næsta ári þannig að næstu mánuði verða Blönduósingar að leita í sund til nágrannasveit- arfélaga.    Líkast til hefur verið ritaður nýr kafli í sögu bæjarins á sunnudaginn með skipan Jóns Bjarnasonar í embætti ráðherra. Jón er að öllum líkindum fyrsti Blönduósingurinn til að gegna ráðherra embætti. A- Húnavatnssýsla er gróið landbún- aðarhérað og má telja öruggt að mörg góð ráð getur Jón Bjarnason sem landbúnaðarráðherra þegið úr sínu heimahéraði og má víst telja að einhverjir verði til þess að veita honum þau.    Það er töluverður áhugi fyrir því í bænum að fá nýtt blóð inn í atvinnu- starfsemina. Líta menn einkum til þess að reist verði hér orkufrekt netþjónabú sunnan við bæinn á svæði sem kallast Hnjúkaflói. Telja fróðir menn að það þurfi allt að 200 hektara svæði undir slíka starfsemi og er bæjarkerfið á fullu við að und- irbúa hugsanlega komu netþjónabús til Blönduóss.    Leirdúfuskotfimi er íþrótt sem nýt- ur töluverðra vinsælda á Blönduósi. Í skotfélaginu Markviss á Blönduósi eru 39 félagar og hafa þeir yfir að ráða einhverju besta æfinga- og keppnissvæði á landinu. Fyrir skömmu æfði landsliðið í leirdúfu- skotfimi á Blönduósi og létu skytt- urnar afar vel yfir aðstöðunni.    Vorið er komið og sumar er í nánd. Þetta sjáum við meðal annars á því að gæsirnar eru komnar á grænu svæði bæjarins sem og krían í ósinn. Söfnin sem kennd eru við hafís og heimilisiðnað eru í óða önn að und- irbúa opnun og kaffihúsið Ljón norðursins rétt við Hafíssetrið er vaknað af vetrardvala og þeir sem eiga erindi í gamla bæjarhluta Blönduóss geta alltaf vænst þess að sjá sauðmeinlausa hundinn Fúsa á ferli með bænaraugun sín. Sumir segja að Fúsi sé elsti hundur í heimi með sín 23 ár í sálarkistunni. Jón Sigurðsson fréttaritari Ljósmynd/Jón Sigurðsson Leirdúfur Landsliðið í leirdúfuskotfimi við æfingar á Blönduósi. BLÖNDUÓS Jóhann Guðni Reynisson sendirVísnahorninu kveðju: „Eins og margir vita er allnokkur rígur milli FH og Hauka í Hafnarfirði. Ég er FH-ingur og get því ekki klárað vís- una eins og best væri fyrir rímið. En þetta er þó tilraun af minni hálfu til að óska Haukum til hamingju: Sjá má í augum Gaflaranna glampa sem gleðjast núna flestir. Því meistaratitli Hafnfirðingar hampa, já, Haukar eru … alveg ágætir!!!!“ Hjálmar Freysteinsson orti að gefnu tilefni: Iðrast synda mættu menn og minnka aðeins grínið. Okkur drepur alla senn influensu svínið. Þá Ármann Þorgrímsson: Lengi gekk ég ljúfan veg lífs míns dofnar sinna Alla daga iðrast ég ekki gjörða minna. Kristján Eiríksson lagði orð í belg: Og seinna blessuð börnin segja og bera harm í hljóði – flest: Já, undarlega ýmsir deyja, hann afi dó úr svínapest. Loks Davíð Hjálmar Haraldsson, sem varð hugsað til séra Hjálmars dómkirkjuprests: Þegar andláts flýgur fregn og fyllast kirkjugarðar er það huggun harmi gegn að Hjálmar okkur jarðar. VÍSNAHORN pebl@mbl.is Af Haukum og iðrun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.