Morgunblaðið - 14.05.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
SVIFRYKSMENGUN var það mikil í Reykja-
vík í gær að fólki með ofnæmi eða alvarlega
hjarta- eða lungnasjúkdóma var ráðlagt að
vera ekki úti í grennd við miklar umferð-
argötur. Þetta mikla svifryk má rekja til
mengunar sem berst til landsins með sterkum
vindum frá meginlandi Evrópu og til sandfoks
af Suðurlandi. Þá er óvenjumikið óson í and-
rúmsloftinu þessa dagana.
Samkvæmt mælingum voru loftgæði í
Reykjavík léleg klukkan níu í gærkvöldi;
styrkur svifryksins þá 117 míkrógrömm á
rúmmetra; en gæðin voru miðlungs að með-
altali frá miðnætti. Heilsuverndarmörk eru 50
míkrógrömm á rúmmetra.
Þegar styrkur svifryks er innan við 50 hefur
það lítil áhrif á heilsufar, þegar það er á bilinu
50 til 100 geta einstaklingar með astma fundið
fyrir einkennum en þegar styrkurinn fer yfir
100 ætti fólk með ofnæmi, hjarta- eða lungna-
sjúkdóma, að vera á varðbergi.
Þegar styrkurinn er orðinn meira en 150
getur fólk sem ekki stríðir við vandamál í önd-
unarfærum orðið fyrir óþægindum.
Þakkar fyrir snjó á hálendinu
Tonie Gertin Sørensen, starfsmaður astma-
og ofnæmisfélagsins, segir mjög einstaklings-
bundið hve fólk er næmt fyrir mengun. Um
það bil 15% þjóðarinnar séu með astma en erf-
itt sé að segja til um hve margir þjáist við að-
stæður eins og í gær. En einhverjir séu þannig
að þeir verði að halda sig innandyra við að-
stæður eins og voru í borginni í gær, þótt hún
hafi ekki staðfest tilfelli um það nú.
Að sögn Sveins Runólfssonar landgræðslu-
stjóra kemur það mikla sandryk sem hrjáð
hefur höfuðborgarbúa að mestu frá suður-
ströndinni. „Síðustu daga hefur verið vinda-
samt á Suðurlandi. Svona sandfok, sem kemur
aðallega frá Þorlákshafnarsvæðinu og Land-
eyjasöndum, er algengt í maí; gróður er ekki
kominn nægilega vel af stað til þess að draga
úr fokinu, en þetta minnir okkur á að við eig-
um ennþá langt í land við að endurheimta
gróðurlendi fyrri alda,“ sagði landgræðslu-
stjóri.
Sveinn segir mikið mistur hafa verið með
allri suðurströndinni. „Landgræðslufólk er
ekki kátt í dag. En við þökkum þó fyrir að há-
lendið skuli enn hafa vörn af snjónum,“ sagði
hann við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Óvenjumikið óson
Sigrún Karlsdóttir, sérfræðingur hjá Veð-
urstofu Íslands, segir að óvenjumikið óson við
yfirborðið sé vegna loftmassa sem berst sunn-
an úr Evrópu. Hvasst hefur verið síðustu daga
og þá „njótum“ við t.d. útstreymis frá bílum á
meginlandinu. Það er, sem sagt, að hluta til að
minnsta kosti, útblástur bifreiða sem veldur
þessu aukna ósoni. „Við viljum hafa óson í
heiðhvolfinu þar sem það virkar sem skjöldur
og gleypir hættulega sólargeisla en óson við
yfirborð jarðar er ekki æskilegt og getur verið
hættulegt heilsu manna,“ sagði Sigrún.
Á varðbergi vegna svifryks
Eina ráð sumra astmasjúklinga að halda sig innandyra Mikið sandfok af suðurströndinni og
mengun berst frá meginlandinu „Enn langt í land við að endurheimta gróðurlendi fyrri alda“
Í HNOTSKURN
»Svifryk er agnir sem eru minni en 10míkrómetrar að stærð; það er aðeins
um það bil 1/6 af þvermáli hárs!
»Ein rannsókn hefur farið fram hér áuppruna svifryks að vetrarlagi. Þá
kom í ljós að yfir 60% allrar mengunar
að vetri eru vegna samgöngutækja og
þar leika nagladekkin stórt hlutverk.
ÓFÖGUR sjón blasir við fólki í Úlf-
arsárdal í Reykjavík, þar sem ein-
hverjir hafa losað sig við steypu-
styrktarjárn, gömul vörubretti,
ónýtt sement og alls kyns rusl. Mest
var við götuna Mímisbrunn, skammt
frá stórhýsi Bauhaus við Vestur-
landsveg. Staðurinn sést ekki vel frá
veginum og því getur fólk athafnað
sig þarna í ró og næði og einhverjir
hafa greinilega nýtt sér það.
„Þetta er verulega sóðalegt. Það
er alveg grátlegt að sjá þennan sóða-
skap,“ sagði Óttarr Örn Guðlaugs-
son, formaður hverfisráðs Grafar-
holts og Úlfarsárdals, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi. Hann
skoðaði sig þar um eftir að blaðið
benti honum á hvers kyns var.
„Það er ekki gott að segja hvers
vegna fólk gerir þetta. Annað hvort
nenna menn ekki með þetta í Sorpu
eða þeir eru að spara. En fólk ætti að
hafa í huga að þetta eru ekki rusla-
haugar og með því að ganga svona
um umhverfi sitt sparar það ekki
neitt, með framtíðina í huga,“ sagði
Óttarr Örn.
Sumt af því sem þarna var að finna
þarf ekki að greiða fyrir þegar það er
skilið eftir í Sorpu þannig að líklega
er leti um að kenna í að minnsta kosti
einhverjum tilfellum.
Auk þess sem nefnt hefur verið
var töluvert af ýmiskonar rusli á
svæðinu sem greinilega hefur fokið í
rokinu undanfarna daga. „Ég skora
á einstaklinga og byggingaverktaka
í Úlfarsárdalnum að ganga betur
um; að tjóðra laust dót niður og
farga því ónýta með þeim hætti sem
lög gera ráð fyrir. Það er leiðinlegt
að sjá einangrunarpappa, plast og
annað drasl hér á víð og dreif. Þetta
er grátlegt; við viljum ekki hafa Úlf-
arsárdalinn svona sóðalegan,“ sagði
Óttarr Örn. skapti@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Algjör steypa! Steypustyrktarjárn og múrbrot sem fortjald, líklega vegna leti, að fallegri byggð í Grafarholtinu.
„Grátlegt að sjá
þennan sóðaskap“
Formaður hverfisráðs hvetur til betri umgengni í Úlfarsárdal
Hreint land… Ýmislegt lauslegt hefur fokið í hvassviðrinu síðustu daga.
REKSTRARNIÐURSTAÐA Ár-
borgar fyrir síðasta ár var neikvæð
upp á 1.364 milljónir króna. Að sögn
bæjarstjóra vega þar langþyngst
vextir, verðbætur og gengismunur. Í
allri samstæðunni er halli vegna
fjármagnsliða 1,4 milljarðar króna.
Ragnheiður Hergeirsdóttir bæj-
arstjóri segir að mikil uppbygging
hafi átt sér stað á Árborgarsvæðinu
á umliðnum árum. „Það hafa verið
tekin lán fyrir hluta af þeirri upp-
byggingu og það er mjög dýrt að
skulda í dag.“
Strax síðasta haust var gripið til
aðhaldsaðgerða í bæjarfélaginu og
gripið til ýmissa ráða til að draga úr
almennum
rekstrarkostnaði.
Einnig hefur ver-
ið farið í töluverð-
an niðurskurð við
gerð fjárhags-
áætlunar fyrir
þetta ár. Ragn-
heiður segir enga
svartsýni í Ár-
borg, fólksfjölgun
hafi verið mikil
og ef atvinnulífið glæðist og lifnar
yfir íbúðamarkaði muni hlutirnir
halda áfram að þróast á jákvæðan
hátt fyrir bæjarfélagið.
andri@mbl.is
Tæplega 1,4 millj-
arða tap í Árborg
Fjármagnsliðir vega verulega þungt
Ragnheiður
Hergeirsdóttir
HÆSTIRÉTTUR felldi í gær úr
gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir
karlmanni sem Héraðsdómur
Reykjavíkur úrskurðaði í varðhald
til 5. júní nk. Maðurinn er ásamt
bróður sínum grunaður um að hafa
nauðgað 19 ára stúlku. Réttinum
þótti saksóknari ekki hafa fært fyr-
ir því viðhlítandi rök að halda ætti
manninum í varðhaldi á grundvelli
almannahagsmuna.
Stúlkan sakar mennina um að
hafa nauðgað sér í bifreið nálægt
Kolaportinu aðfaranótt 2. maí.
Mennirnir voru handteknir um
morguninn og úrskurðaðir í gæslu-
varðhald. Héraðsdómur féllst á
kröfu lögreglu sl. föstudag um að
framlengja varðhald yfir öðrum
þeirra, en með dómi Hæstaréttar
hefur þeim nú báðum verið sleppt
úr haldi. andri@mbl.is
Báðum sleppt úr haldi
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
42
04
0
04
.2
00
8