Morgunblaðið - 14.05.2009, Qupperneq 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
FORMENN stjórnarandstöðuflokk-
anna eru bundnir trúnaði og gátu því
afar takmarkað tjáð sig um þings-
ályktunartillöguna þegar eftir því
var leitað. Bæði Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins,
og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokks, sögðu
þó, að þeir væru afar undrandi.
Orðrétt sagði Bjarni: „Þessi
þingsályktunartillaga sem grund-
völlur fyrir viðræður við Evrópu-
sambandið kom mér verulega á
óvart.“ Sigmundur Davíð bætti við
að framsetningin væri allt öðruvísi
en hann hefði búist við. Báðir funda
þeir – hvor í sínu lagi – með Össuri
Skarphéðinssyni, utanríkisráðherra,
í dag auk Birgittu Jónsdóttur, þing-
konu Borgarahreyfingarinnar. Þar
hyggst ráðherrann freista þess að ná
samstöðu um skref í málinu. Miðað
við fyrstu viðbrögð formannanna
verður það erfitt.
Á samleið með Framsókn
Össur segist ekki endilega sam-
mála því, alla vega ekki hvað varðar
Framsóknarflokkinn og Borg-
arahreyfinguna. „Staðan er þannig
að það er mjög lítill munur á afstöðu
minni sem utanríkisráðherra til þess
með hvaða hætti á að ganga til aðild-
arviðræðna og Framsóknarflokks-
ins. Ég er reiðubúinn að hlusta á það
hvort forysta flokksins telur ástæðu
til að breyta með einhverjum hætti
þessari greinargerð.“
Hann bendir jafnframt á að Borg-
arahreyfingin hafi tjáð sína afstöðu
með skýrum hætti og sett fram þrjú
skilyrði. „Ég vil gjarnan ræða við
þingmenn Borgarahreyfingarinnar
um málið því ég tel að það sé ekki
erfitt að uppfylla þau skilyrði og ég
er þeim í reynd hlynntur.“
Hvað varðar afstöðu Sjálfstæð-
isflokksins segir Össur að honum sé
hún mætavel ljós. „En ég tel það
mína skyldu að kanna hvort ein-
hverjir fletir séu til samstöðu. Ég
hef hlustað með stakri athygli á þær
ræður sem formaður Sjálfstæð-
isflokksins hefur flutt á Alþingi um
Evrópumálin og mér hefur fundist
hann bæði skynugur og framsýnn
stjórnmálamaður.“
Nægur tími til umræðna
Tillaga stjórnarflokkanna, sem er
á ábyrgð utanríkisráðherra, er af-
dráttarlaus og greinargerðin stutt.
Össur hefur skýringar á því. „Það er
ekki minn stíll að vera með langar og
miklar greinargerðir um mál sem
ekki er svo flókið. Það er verið að
reyna að ná þannig áfanga að þjóðin
geti tekið afstöðu í þjóðaratkvæða-
greiðslu, með upplýstum hætti, þ.e.
með samning fyrir framan sig. Sá
samningur verður til synjunar eða
samþykktar.“
Össur segir tillöguna verða lagða
fyrir Alþingi í næstu viku, en það sé
svo þingsins að ákveða hvenær mælt
verði fyrir því. Hann segir málið vel
undirbúið af hálfu stjórnvalda, hann
hafi sjálfur notað allan þann tíma
sem gefist hefur síðan ríkisstjórnin
var mynduð til að undirbúa það.
Einnig telur hann að nægur tími gef-
ist fyrir umræður í sölum Alþingis
og innan nefnda, en forsætisráð-
herra hefur lýst því yfir að stefnan
sé að leggja inn umsókn um ESB í
júlímánuði.
Formenn undrandi á tillögu
um aðildarviðræður við ESB
Morgunblaðið/Golli
Kynning Drög að þingsályktunartillögu um aðildarviðræður við ESB voru kynnt stjórnarandstöðunni í gær.
Funda með utanríkisráðherra sem freistar þess að ná breiðri samstöðu um málið
Ýmislegt þarf að breytast til að
breið samstaða náist meðal
þingflokkanna um þingsályktun-
artillögu um aðildarviðræður við
ESB sem lögð verður fram á Al-
þingi í næstu viku.
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu lokaði tveimur kannabisverk-
smiðjum í Hafnarfirði á þriðjudag.
Fjórir karlmenn voru handteknir
vegna málanna tveggja, þrír á þrí-
tugsaldri og einn á fertugsaldri.
Lagt var hald á um fjögur hundruð
kannabisplöntur á ýmsum stigum
ræktunar. Auk þess var gerð hús-
leit hjá tveimur mannanna og
fannst þarf töluvert af maríjúana.
Átta þúsund plöntur
Frá áramótum hefur verið lagt
hald á nærri átta þúsund kannabis-
plöntur. Fyrstu þrjá mánuðina var
lagt hald á sex þúsund plöntur, og
það er 23% meira en samanlagt
magn sem lögreglan lagði hald á
árin 2005-2008. andri@mbl.is
Tveimur
verksmiðjum í
Hafnarfirði lokað
Morgunblaðið/Júlíus
KONA um þrítugt hefur verið úr-
skurðuð í farbann til 10. júní að
kröfu lögreglu höfuðborgarsvæð-
isins en hún er grunuð um aðild að
innflutningi fíkniefna og milli-
göngu um vændi. Gæsluvarðhald
yfir henni rann út á þriðjudag.
Karl Steinar Valsson, yfirmaður
fíkniefnideildar lögreglunnar,
sagði í samtali við fréttavef Morg-
unblaðsins, mbl.is, fyrr í mán-
uðinum, að hugsanleg tengsl væru
milli konunnar og tveggja belg-
ískra kvenna á þrítugsaldri sem
teknar voru í Leifsstöð með um 350
grömm af kókaíni í síðasta mánuði.
Við sakbendingu bentu konurnar,
sem dæmdar voru í 10 mánaða
fangelsi, á þann sem skipulagði
smyglið. andri@mbl.is
Grunaður hór-
mangari í farbanni
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
FORSVARSMENN sveitarfélaga
hittust á fundi á Grand Hóteli í gær
og ræddu rekstrarvanda sveitarfé-
laga í landinu. Halldór Halldórsson
formaður Sambands íslenskra sveit-
arfélaga og bæjarstjóri á Ísafirði
segir forsvarsmenn sveitarfélaga
gera sér grein fyrir að staðan sé erf-
ið um þessar mundir. „Þessi kreppa
er langvinnari en flest sveitarfélög
gerðu ráð fyrir í upphafi þessa árs.
Þess vegna þurfa forsvarsmenn
sveitarfélaga að horfa lengra fram í
tímann og endurskipuleggja þjón-
ustustig sveitarfélaga frá a til ö,“
sagði Halldór í samtali við Morg-
unblaðið að loknum fundi í gær.
Hann sagði líklegt að staðan kall-
aði á lagabreytingar til að auðvelda
sveitarfélögum að gera nauðsyn-
legar breytingar. Að sögn Halldórs
var fundurinn vel sóttur en boðið
upp á að fylgjast með honum í gegn-
um fjarfundarbúnað. Það nýttu
fulltrúar sér sem ekki sáu sér fært
að mæta á staðinn.
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
borgarstjóri í Reykjavík, var meðal
þeirra sem tóku til máls á fundinum.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins lagði hún áherslu á að
forsvarsmenn sveitarfélaga skuld-
uðu íbúum í landinu það að þeir
legðu til hliðar „pólitískt karp“ og
sameinuðust um að mæta þeim
mikla vanda sem sveitarfélög væru
í.
Eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu í gær er fyrirsjáanlegt að
skuldastaða sveitarfélaga, og ekki
síst dótturfélaga þeirra, verði
íþyngjandi í langan tíma. Sér-
staklega eru það vaxtaberandi
skuldir í erlendri mynt sem eru
sveitarfélögum erfiðar. Fram-
kvæmdir þeirra margra hafa verið
fjármagnaðar með erlendum lánum,
sérstaklega á það við orkuveitur og
hafnarsjóði sem nú standa höllum
fæti.
Halldór segir niðurstöðu fund-
arins hafa verið þá að kjörnir
fulltrúar þyrftu að standa saman um
að ná tökum á rekstri sveitarfélaga.
Morgunblaðið/RAX
Ræða saman Halldór Halldórsson segir að endurskipuleggja þurfi þjón-
ustustig sveitarfélaga. Halldór sést hér ræða við Árna Sigfússon kollega
sinn úr Reykjanesbæ á fundi um stöðu sveitarfélaga fyrr í vetur.
Staða sveitarfélaga
verri en áætlað var
Borgarstjóri sagði
ekkert rými fyrir
„pólitískt karp“
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu upplýsti í gær að
rúmlega helmingur þeirra fíkniefna sem smyglað var til
landsins með belgísku skútunni Sirtaki frá meginlandi
Evrópu hefði verið amfetamín eða 55 kíló. Þetta er mesta
magn amfetamíns sem reynt hefur verið að flytja til
landsins í einu lagi og lögregla leggur hald á. Alls var
lagt hald á 109 kíló af fíkniefnum.
Auk amfetamínsins var lagt hald á 34 kíló af marí-
júana, 19,5 kíló af hassi, og 9.400 e-töflur. Sex karlmenn
sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins og eiga yfir höfði
sér þunga dóma verði þeir fundnir sekir. andri@mbl.isSkútan Sirtaki.
Með 55 kíló af amfetamíni
Myndavélar, mikið úrval
kynntu þér verðin á
fotoval.is
Myndavéla-
viðgerðir
Skipholti 50B
Sími 553 9200
www.fotoval.is • mail: fotoval@fotoval.is