Morgunblaðið - 14.05.2009, Síða 8

Morgunblaðið - 14.05.2009, Síða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009 Morgunblaðið/Ásdís Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is TILKYNNINGUM um skiptalok í þrotabúum hefur fjölgað verulega upp á síðkastið. Þannig hafa það sem af er árinu birst í Lögbirtingablaðinu tilkynningar um að skiptum hafi lokið í alls 406 þrotabúum. Þá hefur einnig orðið mikil fjölgun tilkynninga um gjaldþrot fyrirtækja og einstaklinga, þar sem bústjórarnir eru að auglýsa eft- ir kröfum í viðkomandi bú. Í gær birtust 18 tilkynningar um að skiptum hafi lokið í þrotabúum. Um er að ræða 17 fyrirtæki og einn ein- stakling. Viðkomandi aðilar eru staðsettir víða um land, en flestir á höfuðborgarsvæðinu Kröfur í búin 18 námu alls rúmlega 2007 milljónum króna. Í 16 þrotabúum fundust engar eignir og töpuðu kröfuhafar þar samtals rúmum 519 milljónum króna. Gjaldþrotin eru misjafnlega stór í sniðum, allt frá 4,6 milljónum upp í tæpar 913 milljónir króna. Langstærsta þrotabúið, sem gert var upp, var Tæknival hf., Síðumúla 34, Reykjavík. Kröfur í það bú námu samtals 912,7 millj- ónum króna. Þar af voru veðkröfur 415 milljónir og al- mennar kröfur 462 milljónir. Upp í kröfurnar greiddust rúmar 87 milljónir. Næsthæstu kröfurnar voru í þrotabú Þórsafls ehf., Skútahrauni 15, Hafnarfirði, samtals 575,4 milljónir. Upp í kröfurnar greiddist 271 milljón. Önnur þrotabú, þar sem kröfur voru yfir 50 milljónir eru: GT Reykjavík, 111 milljónir, Genaral Systems/Software Ís. ehf., 93 milljónir, Ný-ung ehf., 76 milljónir, Fjárfestinga- félagið Fjárfestir ehf., 71 milljón og Trémax ehf., 69 milljónir. Æ fleiri bú eru gerð upp  16 þrotabú af 18 voru eignalaus og 519 milljónir töpuðust  Kröfur í þrotabú Tæknivals samtals tæpar 913 milljónir Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is FARI allt á versta veg þarf að færa hlut eig- enda bankanna niður og bankana í ríkiseigu. Þetta má lesa úr glærum fjármálakrísu- sérfræðingsins, Andrew Gracie, sem Davíð Oddsson vitnaði til í Kastljósviðtali í febrúar. Seðlabankinn nýtti áætlun Gracie til að þrýsta á um viðbúnaðaraðgerðir sem reyndi á þegar Glitnir komst í þrot í septemberlok í fyrra. Seðlabankinn fékk Andrew Gracie til að búa til viðlagaáætlun um hvernig ætti að bregðast við komandi mánuðum vegna vanda bankanna við að fjármagna sig. Skýrsla sérfræðingsins var munnleg og kynnt seðlabankastjórunum í glæruformi eftir viðræður hans við starfsmenn Seðlabankans 27.-29. febrúar 2008. Strax í mars 2008 var niðurstaðan kynnt samráðshópi sem í sátu ráðuneytisstjórar forsætis-, fjármála- og viðskiptaráðuneytis auk forstjóra Fjármálaeft- irlitsins og fulltrúa Seðlabankans. Samráðshóp- urinn kom m.a. að undirbúningi lagasetningar sem seinna varð að neyðarlögunum. Morgunblaðið hefur nú glærur viðbún- aðarsérfræðingsins undir höndum eftir að Seðlabankinn fékk leyfi rannsóknarnefndar Al- þingis til að afhenda þær. Blaðið kærði upp- haflega synjun bankans til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Gracie vann að viðbúnaðarmálum í Bank of England. Hann setti síðar upp sitt eigið fyr- irtæki í viðbúnaðarmálum, Crisis Management Analytics, og var hann fenginn til að undirbúa og hrinda í framkvæmd viðlagaæfingu nor- rænna seðlabanka, fjármálaeftirlita og fjár- málaráðuneyta sem haldin var í september 2007. „Ég þekkti Andrew að góðu og lagði til að Seðlabankinn fengi hann sem ráðgjafa. Hann kom í febrúar, kynnti sér það sem við vorum að vinna og setti í kjölfarið fram aðalatriðin í því sem við þyrftum að gera í undirbúningi okkar að aðgerðaráætluninni,“ segir Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Seðlabank- ans. Bankarnir án fjármögnunar Á glærunum má lesa að vandinn hafi verið að markaðurinn hafi verið búinn að loka á íslensku bankana. Engin trygging hafi verið fyrir því að hann opnaðist í tíma svo Glitni tækist að endur- fjármagna sig í október síðastliðnum eða Kaup- þingi á fyrsta fjórðungi þessa árs, en þá voru erlend lán á gjalddaga. „Vandinn var sá að bankarnir höfðu ekki aðgang að erlendum lána- mörkuðum, sem hafði verið vandamál frá haustinu áður. Stórir gjalddagar voru fram- undan og ljóst að brugðið gæti til beggja vona,“ segir Tryggvi. Í glærunum stendur að tvær leiðir séu mögu- legar: Sú góða; að markaðir opnist og bank- arnir bjargi sér. Eða sú vonda; að markaðirnir opnist ekki fyrir október og hið opinbera þurfi að grípa inn í. Þá er rakið hvað felist í hvorri leið fyrir sig og hvernig stjórnvöld þurfi að bregðast við hvorri leið fyrir sig og búa til við- lagaáætlun. Gracie mat það svo að ef markaðirnir opn- uðust að nýju væri samt líklegt að bankarnir þyrftu að greiða meira fyrir fjármögnunina. Þeir þyrftu að breyta fjármögnun sinni. Þá þyrftu þeir að selja eignir og styrkja eigið fé. Annars gengi hún ekki upp. En opnuðust markaðir ekki þyrftu stjórnvöld að takmarka það opinbera fé sem veitt væri í bankana og draga úr því að einkaaðilar sæktu í opinbera sjóði. Ef bankarnir væru ekki rekstr- arhæfir þyrfti að færa niður hlutafé eigenda þegar eignarhaldið færðist til ríkisins. Þá sýnir Gracie hvernig kostnaður eykst við hvora leið fyrir sig, þá vondu og þá góðu. Hann nefnir einnig þá hvöt sem bankarnir hefðu til þess að bíða í lengstu lög í von um að mark- aðirnir opnuðust að nýju og þeir gætu fjár- magnað sig. Þá myndi kostnaðurinn við skellinn aukast og valkostunum fækka eftir því sem tím- inn yrði naumari til að grípa inn í. Að þessu loknu lagði Gracie línurnar að því sem stjórnvöld þyrftu að gera frá febrúar á síð- asta ári og fram í október; einskonar aðgerða- áætlun. Í fyrsta lagi þyrfti að meta kostnaðinn af því hvað fjármálaáfall gæti kostað. Það var gert eins og sjá má í skýrslu Seðlabankans um fjár- málastöðugleika 2008. Með hliðsjón af al- þjóðlegri reynslu taldi bankinn að heildartap við fjármálaáfall gæti numið allt að 400 til 500 milljörðum króna eða 30-40% af vergri lands- framleiðslu eins árs, en það myndi dreifast á all- mörg ár. Næst skref væri að fara yfir valkosti og und- irbúa aðgerðaáætlunina. „Það gerðu Seðla- bankinn og Fjármálaeftirlitið sameiginlega í apríl 2008,“ segir Tryggvi. Í þriðja lagi ættu bankinn og fjármálaráðu- neytið að koma með sameiginlega stefnu í mál- inu og hann tímasetti aðgerðirnar. Þá ætti að senda skilaboð til bankanna um að þeir yrðu að fjármagna sig ellegar yrði gripið til aðgerða. Spurður hvort það hafi verið gert svarar Tryggvi: „Mismunandi skoðanir eru á því hvað var gert og hvort nógu mikið væri gert en ým- islegt var gert.“ Skilaboð Gracie hafi hins vegar verið um sameiginlega afstöðu. Tryggvi segir það í höndum rannsóknarnefndarinnar að skera úr um þessi atriði. Þá var settur tímaás á aðgerðirnar. „Ég vil fullyrða að ráðgjöf Andrew Gracie hafi hjálpað til. Þó að viðlagavinnan hafi ekki getað komið í veg fyrir áfallið dró hún úr þeim skaða sem varð,“ svarar Tryggvi, beðinn um að meta árangur viðlagaáætlunarinnar. Morgunblaðið/Ómar Seðlabankinn Bankinn leitaði til fjár- málakrísusérfræðings vegna stöðunnar. Morgunblaðið/Kristinn Fyrrum Seðlabankastjóri Davíð Oddsson segir margoft hafa verið varað við stöðunni. Morgunblaðið/Samsett mynd Í ríkiseigu Glitnir, Kaupþing og Landsbank- inn fóru allir í þrot. Lausaféð var uppurið. Með áætlun ef bankarnir færu í þrot  Seðlabankinn vann viðbúnaðaráætlun við bankagjaldþroti sem gæti orðið í október  Krísusérfræð- ingur mælti með því að eignarhlutur eigenda yrði færður niður og færður ríkinu setti það fé inn í bankana Davíð Oddsson sagði í Kastljósviðtali að Seðlabankinn hefði varað við bankagjald- þroti og fengið einn hinn færasta fjár- málastöðugleikasérfræðing til ráðagerðar. Niðurstaðan hefði verið kynnt stjórnvöld- um. Blaðið hefur glærur sérfræðingsins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hópfaðmlag Starfsmenn Glitnis hughreystu hver annan í október eftir fall bankans.      !  " #  $%          !  &    '  (  )  & * + ,  -     (   (      .    (  )  (  ,    !   / !    0 '        / !     ,    $%  1   " "   „Við fengum til að mynda í febrúar einn færasta fjármálastöðugleikasérfræðing í Evrópu til að vinna fyrir okkur viðbragðsáætlun. Í þessari áætlun gerum við ráð fyrir því að bankakerfið fari á hausinn í október – í október. Við sendum þessa skýrslu til ríkisvaldsins.“ Davíð Oddsson, fyrrum seðlabankastjóri, í Kastljósi 24. febrúar Seðlabankinn áætlaði bankagjaldþrot í október ELDRI BORGARA FERÐIR um fornar byggðir á Suður-Grænlandi. Fimm daga ferðir í júlí og ágúst. Allt innifalið. Allar upplýsingar veitir Emil Guðmundsson í síma 898 9776. Einnig hægt að senda tölvupóst á emil@flugfelag.is REYKJAVÍK Grænland Narsarsuaq ÍS L E N S K A /S IA .I S /F L U 45 01 1 02 .2 00 9 flugfelag.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.