Morgunblaðið - 14.05.2009, Page 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009
Bankahrunið hefur meðal annarsverið rakið til þess að slakað
var á kröfum um bindiskyldu, sem
auðveldaði stjórnendum bankanna
að fara glannalega að ráði sínu.
Nú hefur verið ákveðið að afnemabindiskyldu með öllu á Alþingi.
Ljóst er að þjóð-in mun anda
léttar við þessa
ráðstöfun.
Bindiskyldanvar birting-
armynd gamalla
kynjahugmynda.
Karlar á þingi voru skyldaðir tilað vera með bindi, en engar
slíkar kvaðir voru settar á konur.
Þetta gekk vitaskuld þvert á allar
hugmyndir um jafnrétti og má
velta fyrir sér hvort þessi krafa
hafi ekki fælt frá hæfileikafólk,
sem ella hefði sóst eftir setu á
þingi.
Hálsbindi er í raun ekki annað enhengingaról og hver vill ganga
með snöru um hálsinn á hinu háa
alþingi?
Þá er hætt við því að hálstau heftiblóðflæði til höfuðsins og hafi
þar með takmarkandi áhrif á rök-
vísi, hugsun og andagift.
Því má búast við að nú leysist úrlæðingi nýr kraftur á þingi. Nú
verði tekið til við að bæta úr stöðu
heimilanna af krafti, sem hæfir
hinni brýnu þörf, og hafist handa af
undanbragðalausri eljusemi við að
moka upp úr forarvilpu fjármála
stjórnmálaflokkanna þannig að
þeir geti endurunnið traust al-
mennings.
Búsáhaldabyltingin hefur skilaðsínu.
Góður Hnútamenn
á undanhaldi.
Afnám bindiskyldu
FRUMVARP um frjálsar handfæraveiðar, svo-
kallaðar strandveiðar, er í smíðum í landbúnaðar-
og sjávarútvegsráðuneytinu. Stefnt er að því að
leggja frumvarpið fram á vorþinginu, sem hefst á
morgun. Nái frumvarpið fram að ganga er stefnt
að því að strandveiðarnar hefjist strax í sumar.
Að sögn Sigurgeirs Þorgeirssonar ráðuneytis-
stjóra hefur ráðuneytið leitað álits ýmissa aðila við
samningu frumvarpsins. Ef frumvarpið verður
samþykkt reiknar hann með því að það verði end-
urskoðað næsta vetur, með hliðsjón af því hvernig
framkvæmdin gengur í sumar. Því megi segja að
veiðarnar í sumar verði nokkurs konar tilrauna-
veiðar.
Samkvæmt hugmyndum Steingríms J. Sigfús-
sonar, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, verður
heimilt að veiða 8,627 tonn af fiski í frjálsum hand-
færaveiðum í sumar. Meðal annars á byggðakvóti
þessa fiskveiðiárs að fara í þennan flokk, en eftir
er að úthluta honum.
Eins og fram hefur komið í fréttum hefur bloss-
að upp mikill áhugi á þessum veiðum. Þannig hef-
ur eftirspurn eftir bátum, sem eru 15 tonn eða
minni, rokið upp úr öllu valdi. sisi@mbl.is
Strandveiðifrumvarp í smíðum
Frjálsar handfæraveiðar hefjast strax í sumar ef Alþingi samþykkir frumvarpið
Morgunblaðið/Jim Smart
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 11 skýjað Lúxemborg 17 skýjað Algarve 22 léttskýjað
Bolungarvík 15 léttskýjað Brussel 20 léttskýjað Madríd 23 léttskýjað
Akureyri 16 heiðskírt Dublin 10 skúrir Barcelona 20 léttskýjað
Egilsstaðir 12 léttskýjað Glasgow 15 heiðskírt Mallorca 20 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 10 skýjað London 13 alskýjað Róm 26 heiðskírt
Nuuk -3 léttskýjað París 22 skýjað Aþena 25 heiðskírt
Þórshöfn 10 léttskýjað Amsterdam 20 heiðskírt Winnipeg 10 skúrir
Ósló 14 heiðskírt Hamborg 17 heiðskírt Montreal 18 léttskýjað
Kaupmannahöfn 12 heiðskírt Berlín 17 heiðskírt New York 18 heiðskírt
Stokkhólmur 14 heiðskírt Vín 16 léttskýjað Chicago 14 skúrir
Helsinki 15 léttskýjað Moskva 14 alskýjað Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
14. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3.29 0,9 9.30 3,1 15.26 1,0 21.53 3,3 4:15 22:34
ÍSAFJÖRÐUR 5.29 0,5 11.14 1,5 17.11 0,6 23.34 1,8 3:56 23:03
SIGLUFJÖRÐUR 1.13 1,2 7.40 0,3 13.52 1,0 19.34 0,5 3:38 22:47
DJÚPIVOGUR 0.36 0,7 6.18 1,7 12.28 0,6 18.54 1,9 3:39 22:10
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á föstudag
Austan kaldi og súld eða dálítil
rigning af og til um landið
sunnanvert, en yfirleitt hægari
og bjart norðantil. Hiti 7 til 17
stig, hlýjast norðvestantil.
Á laugardag, sunnudag,
mánudag og þriðjudag
Austlæg átt, 3-10 m/s og sums
staðar þokuloft við ströndina
austantil, en annars víða létt-
skýjað, einkum vestantil. Áfram
hlýtt í veðri.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Skýjað með suðvesturströnd-
inni og súld eða dálítil rigning
af og til og hætt við þokulofti á
annesjum austanlands, en ann-
ars víða léttskýjað. Hiti 7 til 17
stig, hlýjast á Norðurlandi.