Morgunblaðið - 14.05.2009, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 14.05.2009, Qupperneq 13
Fréttir 13INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009 Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is SAMBÝLI stóru sjósvölu og lunda í Elliðaey í Vestmannaeyjum hefur vakið athygli vísindamanna. Í sum- ar á að rannsaka þetta sambýli betur með aðstoð holumyndavélar, að sögn dr. Erps Snæs Hansens, sviðsstjóra vistfræðirannsókna hjá Náttúrustofu Suðurlands. Sjósvöl- urnar virðast notfæra sér dugnað lundans við holugröft og gera sér hreiður í lundaholum. Lundinn er svo innar í holunni sem getur verið meira en 1,5 metra djúp. Lundinn er þrifalegur og útbýr afdrep þar sem pysjan gerir þarfir sínar. Sambýli lunda og sjósvölu af því tagi sem sést hefur í Elliðaey er ekki þekkt annars staðar, að sögn Erps. Stórar fuglabyggðir Í Vestmannaeyjum er stærsta lundabyggð í heimi og áætlað að þar sé meira en 1,1 milljón lunda- hola. Ábúðarhlutfallið, þ.e. hlutfall þeirra para sem verpa, er breyti- legt milli ára. Í fyrra var það talið vera 62% og varpstofninn sam- kvæmt því um 704 þúsund pör. Stærsta sjósvölubyggð Evrópu er einnig í Vestmannaeyjum. Fjöldi sjósvala þar er áætlaður a.m.k. 150 þúsund pör, en þær gætu verið fleiri að mati Erps. Sjósvalan er þekkt við Atlantshaf og Kyrrahaf. Stærstu byggðir sjósvölu við At- landshaf eru á eyjum við austur- strönd Kanada. Erpur sagði niðurstöður frum- rannsókna í Elliðaey gefa til kynna að útbreiðsla og þéttleiki sjósvöl- unnar fylgi útbreiðslu og þéttleika lundans. Ætlunin er að kanna þetta í fleiri eyjum Vestmannaeyja. Lundinn í Vestmannaeyjum hef- ur átt erfitt uppdráttar undanfarin sumur og fáar pysjur komist upp. Lundavarpinu seinkaði sumarið 2007 um þrjár vikur. Það er mesta seinkun sem sést hefur frá árinu 1971. Könnun þá leiddi í ljós að ekki voru nema 39% af holunum í gangi sem varpholur. Erfiðleikar lundans eru aðallega raktir til skorts á æti, en sandsíli er uppi- staðan í fæði lundans í Vest- mannaeyjum. Fæðuskortur og urðarkettir Erpur sagði vísbendingar um að erfiðlega gangi hjá skrofunum í Ystakletti. Þar er ekki ætisskorti kennt um heldur urðarköttum og að þeir drepi skrofurnar. Kattag- reni hafa fundist í skrofuholum og í þeim verið fuglahræ. Einu katta- greni var eytt í Ystakletti í fyrra. Meindýraeyðir Vestmannaeyja- bæjar veiddi um 50 ketti á Eiðinu í fyrra en þaðan hefðu þeir getað farið í fuglabyggðirnar í Heima- kletti, Miðkletti og Ystakletti. Um var að ræða kettlinga sem enn voru með mjólkurtennur og höfðu því líklega verið bornir út. Sjósvölur og lundar í sambýli Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson Lundar Lundinn grefur sér holu og útbýr þar hreiður. Sjósvölur hafa tekið hús á lundunum í Vestmannaeyjum.  Sjósvölur gera sér hreiður í lundaholum  Talið að urðarkettir drepi skrofur Í HNOTSKURN »Stóra sjósvala er um 22 sentimetra löng og vegur ekki nema 40-50grömm. Hún er sjófugl og kemur aðeins til lands um varptímann. »Sjósvalan er helst á ferli á nóttinni og því sjaldséð í björtu. Aðal-varpstöðvar hennar hér á landi eru í Vestmannaeyjum. »Skrofur verpa hér á landi aðeins í Ystakletti í Vestmannaeyjum.Þær verpa í holum líkt og lundinn og sjósvalan. »Fullvaxin skrofa er um 30-38 sentimetra löng og vegur um 300 -500 grömm hver fugl. Sjósvala Elsta merkta íslenska sjósvalan sem hefur endurheimst var a.m.k. 23 ára gömul. Morgunblaðið/Ómar MIKIL vinna hefur verið hjá starfs- fólki í landvinnslu Brims hf. á Ak- ureyri það sem af er ári. Starfsfólkið nýtur mikillar framleiðslu í óvenju góðum álagsgreiðslum og þeir sem vilja hafa getað unnið yfirvinnu. Fyrstu fjóra mánuði ársins var unnið úr 3.300 tonnum af hráefni og það er 55% aukning frá sama tíma í fyrra, að sögn Ágústs Torfa Hauks- sonar framkvæmdastjóra. Þriðj- ungur afurðanna fer ferskur á mark- að, beint til neytenda, mest hnakkastykki. Aðrar afurðir eru frystar í neytendaumbúðum eða fara til frekari vinnslu og pökkunar er- lendis. Um 120 starfsmenn eru við land- vinnslu Brims á Akureyri. Ágúst segir að vinnslan verði ekki stoppuð í sumar, nema fjóra daga í vikunni eftir verslunarmannahelgi. Búið er að ráða fjörutíu manns, mest nem- endur úr skólum, til að leysa fasta starfsfólkið af í sumar. helgi@mbl.is Vinnsla eykst hjá Brimi hf. Aðeins vikustopp í landvinnslunni Þorskur Bestu stykkin af fiskinum eru flutt fersk á erlenda markaði. SKÓGARNES – orlofssvæði Rafiðnaðarsambands Íslands P & Ó / po.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.