Morgunblaðið - 14.05.2009, Page 25

Morgunblaðið - 14.05.2009, Page 25
Umræðan 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009 FJÖLMÖRG heimili eru að lenda í alvarlegum fjárhagsvanda vegna erlendra lána sem þau tóku fyrir efnahagshrunið, hvort sem þau voru vegna íbúðar- eða bílakaupa. Því spyr ég; eru erlend lán ennþá erlend? Skoðum einfaldað dæmi um hvernig gömlu bankarnir störfuðu: Erlendur fjárfestir keypti skulda- bréf af íslenskum banka – íslenskur banki var þar með kominn með lán frá útlöndum – íslenskur banki lán- aði það fjármagn áfram til Íslend- inga (í krónum en bundið við er- lendar myntir). Það sem svo gerðist í framhaldinu var að íslensku bank- arnir urðu gjaldþrota og þær kröf- ur sem voru í þeirra eign (þ.m.t. lán til heimila) eru komnar í hend- ur erlendu kröfuhafanna, verandi stærstu eigendur þrotabúanna. En hvað gerðist svo? Jú, nýju rík- isbankarnir urðu allt í einu hinir nýju kröfueigendur sem þýðir að þeir hafa keypt kröfurnar (erlendu lánin). Lánunum er haldið óbreytt- um af nýjum eigendum (ríkinu), þ.e. þau eru ennþá bundin við er- lendu myntirnar. En hvað greiddu nýju bankarnir fyrir þessar kröfur? Því hefur ekki verið svarað. Er kannski ekki ennþá búið að semja um endanlegt verð? Þessi spurning skiptir höfuðmáli því þarna mun hin eiginlega afskrift fara fram. Nú stendur yfir myndun efna- hagsreikninga nýju bankanna og þá fara ákvarðanir gagnvart erlendu lánunum að skipta verulegu máli. Ástæðan er sú að ef bankarnir ætla að halda áfram að tengja „erlendu lánin“ við erlendar myntir og færa þau þannig inn á efnahag sinn þá munu þeir tapa eftir því sem krón- an styrkist. En vilja ekki allir að krónan styrkist? Það væri und- arlegt ef íslensk stjórnvöld væru að gera allt til þess að styrkja gjald- miðilinn í landinu en stærstu lána- stofnanir landsins í þeirra eigu ættu það á hættu að verða fyrir verulegu tapi ef það gengi eftir. Með þessari röksemdafærslu gef ég mér að erlendar kröfur á heimilin séu ekki lengur fyrir hendi og því eru lánin í raun og veru orðin ís- lensk. En þá spyr ég aftur, hvað var greitt fyrir þessar kröfur? Í fjármálaheiminum eru málin einföld, annað hvort taparðu eða græðir á viðkomandi fjárfestingu – „win some, lose some“. Þegar heilt efnahagskerfi hrynur og þú sem fjárfestir hefur sett pening í það, þá áttar þú þig á því að þú hefur tapað. Spurningin er því aðeins þessi, hvað hefurðu tapað miklu? Til þess að fá svarið við því þarftu að finna út verðgildi eigna sem þú fjárfestir í. Hvernig gerirðu það? Varðandi umræddan eignaflokk væru ein rök að skoða verðþróun undirliggjandi veðs annars vegar (íbúðar eða bíls) og greiðslugetu skuldarans hins vegar. Umfram allt þarf þó verðið á kröfunni að vera undir þeim mörkum þar sem við- komandi gefst upp á að greiða af láninu sínu. Til þess að fá nálgun á eðlilegt verð vil ég vitna í tillögu talsmanns neytenda, Gísla Tryggvasonar, en hann vill leiðrétta erlend íbúðarlán miðað við gengið þann dag sem það var tekið og uppreikna það svo miðað við verðtryggingarstuðulinn. Þannig eru þeir sem tóku erlend lán ekki að hagnast á því m.v. þá sem hafa greitt íslenska vexti og verðtryggingu heldur eru allir jafn- ir og lánið orðið íslenskt eins og eðlilegt er, allir sitja við sama borð. Svipaða leið væri hægt að fara með bílalánin. Framkvæmdin „Erlendu lánin“ eru metin út frá breyttum forsendum og leiðrétt (sbr. tillögu Gísla). Sem viðmið í þessari umfjöllun gef ég mér að slíkt mat gefi að greitt hafi verið 50% fyrir lánin m.v. gengi dagsins í dag. Erlendi kröfuhafinn (eigandi lánsins) afskrifar því hin 50% og þar með er fjárhagslegt tjón hans orðið staðreynd og komið út úr kerfinu. Eðli málsins sam- kvæmt á þessi afskrift að ganga óskert til skuldara en ekki sitja eftir hjá nýjum eig- anda kröfunnar, þ.e. nýjum ríkisbanka. Niðurstaða: M.v. þessa tillögu geta allir verið sáttir, þ.e.a.s. kröfuhafinn fær tals- vert upp í sína kröfu, skuldarinn er aftur kominn með raunhæfa stöðu (sam- bærilega og nágranni hans sem keypti alveg eins íbúð en tók lán hjá Íbúða- lánasjóði) og nýr ís- lenskur banki er kom- inn með góða eign (góð eign er eign sem líklegt er að lendi ekki í vanskilum). Aðgerðin veldur ekki umróti í þjóðfélaginu því eng- inn skuldari hagnast umfram annan. Er- lendu lánin hafa nán- ast öll verið veitt af bönkum eða sparisjóð- um sem hafa farið í þrot. Það er því mjög takmarkaður kostnaður sem þessi leið hefur í för með sér fyrir íslenska ríkið þar sem afskriftirnar lenda alfarið á kröfuhafanum (þrotabúunum). Sá kostnaður sem til fellur er niðurgreiðsla þeirra er- lendu lána sem eftir standa hjá lánastofnunum sem hafa ekki verið teknar yfir af ríkinu, s.s. sparisjóð- um og minni bönkum. Sá kostnaður yrði óverulegur. Að lokum Mikilvægt er að halda hvatanum hjá fólki til þess að greiða af lán- um. Einhvers staðar eru skilin milli þess þar sem baráttan er enn þess virði og þess að láta allt flakka og byrja upp á nýtt. Einhvers staðar liggja líka mörkin milli sanngirni og ósanngirni. Það er alveg klárt að þau eru ekki þar sem málin standa nú, eitthvað þarf að gera. Tækifær- ið er núna. Eru erlend lán ennþá erlend lán? Eftir Magnús J. Hjaltested » Þegar heilt efna- hagskerfi hrynur og þú sem fjárfestir hefur sett pening í það, þá átt- ar þú þig á því að þú hef- ur tapað. Spurningin er því aðeins þessi, hvað hefurðu tapað miklu? Magnús Hjaltested Höfundur er viðskiptafræðingur. Evrópa í kastljósinu háskólinn á bifröst FRUMGREINADEILD: • Staðnám • Fjarnám SÍMENNTUN: • Máttur kvenna • Diplómanám í verslunar- stjórnun • Rekstur smærri fyrirtækja • Ýmis námskeið VISKIPTADEILD: • BS í viðskiptafræði, stað- og fjarnám • BS in Business Administration • MS in International Finance and Banking • MS in International Business • MS í stjórnun heilbrigðisþjónustu • Opið markaðsnám ANNA • Prisma, diplómanám í samvinnu við LHÍ • Opið meistaranám í öllum deildum LAGADEILD: • BS í viðskiptalögfræði • ML í lögfræði • MA í skattarétti • LL.M í evrópskum viðskipta- og félagarétti FÉLAGSVÍSINDADEILD: • BA í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði • BA í alþjóðafræði • MA í menningarstjórnun • MA í Evrópufræðum E N N E M M / S ÍA / N M 3 7 9 8 1 Meistaranám í Evrópufræðum Í meistaranámi í Evrópufræðum er nálgunum stjórnmálafræði, sagnfræði, hagfræði og lögfræði fléttað saman í eina þverfaglega heild. Námið veitir einstaka innsýn í Evrópu- samrunann og hentar þeim sem vilja starfa á alþjóðvettvangi eða að tengslum Íslands við önnur lönd. Það er blanda af staðnámi og fjarnámi. Nemendur fara í námsferð til Brussel og hafa möguleika á að taka hluta af námi sínu við erlenda háskóla. Evrópufræðin á Bifröst hafa hlotið margvís- legar alþjóðlegar viðurkenningar. Evrópu- fræðasetur Háskólans á Bifröst er til að mynda eini íslenski þátttakandinn í SENT - samstarfsneti Evrópufræða í álfunni. www.bifrost.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.