Morgunblaðið - 14.05.2009, Síða 28
28 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009
✝ Guðný GróaÓlafsdóttir, (Lóa),
fæddist á Efri-
Brúnavöllum á Skeið-
um hinn 7. febrúar
1921. Hún lést á Land-
spítalanum 7. maí síð-
astliðinn.
Foreldrar hennar
voru Ólafur Gestsson,
f. 20. september 1888,
d. 21. ágúst 1968, og
Sigríður Jónsdóttir, f.
12. janúar 1893, d. 19.
febrúar 1969. Systkini
Lóu: Jón, f. 24. febr-
úar 1920, d. 6. október 1982, Gest-
ur, f. 30. júní 1922, d. 23. janúar
1988, Eggert, f. 27. ágúst 1923, d.
16. febrúar 1978, Hjörtur, f. 14. jan-
úar 1926, d. 1. nóvember 2004, Guð-
laug, f. 9. febrúar 1928, og Ingunn,
f. janúar 1930 er lifði í þrjár vikur.
Lóa giftist hinn 11. ágúst 1945
Jóni Sigurðssyni húsasmið, f. 8.
september 1916, d. 8. desember
2004. Þau eignuðust þrjú börn, 1)
Sigríður, f. 9. september 1947, d. 20.
júlí 1997, maki Mark A. Peterson f.
27. júní 1951, barn þeirra er Inga
Lóa, f. 27. mars 1995. Börn Sigríðar
með fyrri manni sínum, Úlfari Ey-
steinssyni, f. 23. ágúst 1947, eru
Stefán, f. 20. júlí 1967, kvæntur
Ingi Ingimarsson, f. 19. október
1965, og Páll Lúther Ingimarsson, f.
15. ágúst 1974, dóttir hans er Jó-
hanna Marín, f. 22. ágúst 2000. 3)
Reynir, f. 7. ágúst 1965, kvæntur
Kristínu Sigurðardóttur, f. 18.
ágúst 1963, börn þeirra eru Jónína
Guðrún, f. 22. júní 1983, Reynir Þór,
f. 1. desember 1991, Viktoría Sif, f.
8. apríl 1995.
Lóa ólst upp á Efri-Brúnavöllum
á Skeiðum. Hún fluttist til Reykja-
víkur þegar hún hóf sambúð með
manni sínum. Bjuggu þau fyrstu ár-
in á Laugateigi 6 en lengst af
bjuggu þau í Garðsenda 3 og síð-
ustu árin í Hæðargarði 35. Lóa
stundaði nám við Húsmæðraskóla
Reykjavíkur og urðu húsmóð-
urstörf hennar ævistarf. Hún starf-
aði þó við ýmislegt samhliða þeirri
vinnu og má þar nefna prjónastörf á
prjónastofum og hreingerningar
við HHÍ. Á tímabili ráku þau hjónin
gistiheimili með morgunmat fyrir
erlenda ferðamenn að Garðsenda 3.
Lóa var mikil hannyrðakona og
prjónaði margar lopapeysur sem
nutu mikilla vinsælda en auk þess
að prjóna, saumaði hún út og mál-
aði á postulín. Hún tók þátt í ýmiss
konar félagsstarfi alla sína tíð og
starfaði meðal annars lengi vel í
Kvenfélagi Laugarness.
Útför Lóu fer fram frá Bústaða-
kirkju í dag, 14. maí og hefst at-
höfnin kl. 15.
Meira: mbl.is/minningar
Bjarklindi Aldísi Guð-
laugsdóttur, f. 19.
apríl 1969, börn
þeirra eru Úlfar
Bjarki, f. 3. sept-
ember 1988, Birgir
Þór, f. 3. júní 1991,
Eyrún Ósk, f. 21. apríl
1995, og Guðný
Hrönn, f. 8. apríl
1972, gift Heimi
Helgasyni, f. 21. ágúst
1970, börn þeirra eru
Perla, f. 25. apríl
2003, og Alexander
Nói, f. 15. apríl 2005.
Barn Guðnýjar með Arnari Laufdal
Aðalsteinssyni, f. 29. maí 1964, er
Sara Laufdal, f. 13. ágúst 1992. 2)
Hilmar, f. 16. desember 1954,
kvæntur Jóhönnu Gunnlaugs-
dóttur, f. 24. nóvember 1947, barn
þeirra er Jón Óskar, f. 16. desember
1979, sambýliskona Sigríður Linda
Vigfúsdóttir, f. 27. maí 1982, barn
þeirra er Anna Marý, f. 24. desem-
ber 2008. Barn Hilmars með Ragn-
heiði Guðfinnsdóttur, f. 17. desem-
ber 1955, er Guðfinnur Heiðar, f.
10. febrúar 1976, unnusta Guðrún
Ósk Þrastardóttir, f. 20. janúar
1981, barn þeirra er Elínheiður, f.
27. mars 2005. Börn Jóhönnu frá
fyrra hjónabandi eru Gunnlaugur
Elsku mamma mín, ekki átti ég
von á því að þú myndir yfirgefa mig
núna. Þú ert búin að vera svo ótrú-
lega hress, dansandi í gegnum lífið
til síðasta dags í orðsins fyllstu
merkingu. Alltaf varstu brosandi og
aldrei man ég eftir þér í vondu
skapi. Það voru forréttindi að fá að
eiga þig sem móður, alltaf til staðar
hvort sem um erfiðleika var að etja
eða til að gleðjast, en það kunnir þú
svo sannarlega. Þú slepptir aldrei
góðri veislu, margar hélstu sjálf en
uppveðraðist öll er þér var boðið til
veislu. Þakklátur er ég almættinu
því að þú skyldir geta verið með
okkur í fermingarveislu Viktoríu
Sifjar, þar með kláraðir þú að vera
viðstödd fermingu allra barnabarna
þinna. Margt brölluðum við saman
en upp úr stendur þó Flórídaferðin
sem við fórum 2006. Ég spurði þig
hvort þú værir til í að skreppa með
okkur þó að við þyrftum að keyra
frá Baltimore eða um 1.200 km
hvora leið. Þér þótti það nú lítið
mál og leist á það sem ævintýri sem
það sannarlega varð. Listakona
varstu mikil, þú prjónaðir hlýjar og
fallegar lopapeysur, saumaðir út
glæsilegar myndir og málaðir
glæsileg málverk á diska og bolla.
Allt verður þetta geymt til minn-
ingar um þig. Það er erfitt að
kveðja þig og sætta sig við að geta
aldrei leitað ráða hjá þér eða sagt
þér hvað á daga mína hefur drifið,
þú hafðir alltaf tíma til að hlusta. Í
lífi mínu er nú tómarúm sem ég
þarf að leita leiða til að fylla. Ég
veit að þú fórst sátt, án þess að
þjást og full tilhlökkunar að hitta
pabba og Siggu systur hjá Guði. Ég
sakna þín meir en orð fá lýst.
Hvíldu í friði, elsku besta mamma
mín.
Reynir.
Elsku hjartans amma og
langamma, það er svo skrítið að þú
skulir vera farin frá okkur. Enginn
átti von á að þú færir svona snögg-
lega, þú sem varst full af lífsgleði
og alltaf svo mikið að gera hjá þér.
Það er bara rétt hálfur mánuður
síðan þú varst að sýna línudans.
Það var alltaf árlegur viðburður að
koma til þín á jóladag í mat, allir
hlökkuðu svo til, þá hittumst við og
þá var sko líf í tuskunum. Þú varst
sú sem hélst utan um mannskapinn
eftir að Sigga dóttir þín dó langt
um aldur fram eftir erfið veikindi.
Já, þú hefur fengið þinn skammt af
erfiðleikum í lífinu, það eru ekki
mörg ár síðan Jón afi og langafi dó
eftir erfið veikindi líka. Það var eins
og þú tvíefldist við hvert áfallið,
ekkert gat stoppað lífsgleði þína.
Okkur langar að þakka þér fyrir
alla þína ást og þá gleði sem þú
veittir okkur. Okkur langar að
kveðja þig með fallegu ljóði.
Heilsu og lífi fjarar stundum fljótt,
fyrr en varir komin dauðans nótt.
þannig endi ævileiðin þín,
áður en varði látna vina mín.
Á kveðjustund hef margt að
þakka þér,
þakka allt hið góða er sýndir mér.
Þökk fyrir samleið þín og hreina
dyggð,
þakka fasta vináttu og tryggð.
(Guðlaugur Sigurðsson.)
Elsku amma og langamma, minn-
ing þín lifir.
Stefán, Bjarklind, Úlfar
Bjarki, Birgir Þór og
Eyrún Ósk.
Elsku besta amma, nú ertu farin
til guðs, farin til Siggu og afa. Það
er svo tómlegt í hjarta okkar núna
eftir að þú fórst frá okkur því þú
varst svo stór partur af lífi okkar
allra. Yndislegt fannst okkur að þú
gast verið hjá okkur á ferming-
ardegi Viktoríu Sifjar því veislur
voru þitt líf og yndi. Okkur finnst
við vera svo heppin að hafa fengið
að kynnast jafn frábærri konu og
þú varst. Við hefðum ekki getað
valið okkur betri ömmu en þig, þú
varst alltaf svo hress og skemmti-
leg. Það var alltaf notalegt að koma
í Hæðargarðinn til þín og fá pönnu-
kökur. Eins er ferðin sem við fórum
saman til Flórída 2006 svo eftir-
minnileg. Það var svo skemmtilegt
þegar þú varst að lesa enskuna upp
fyrir okkur eins og t.d. þegar það
stóð „closed „og þú last klósett, og
þegar við leiðréttum þig þá hlóst þú
manna mest. Við áttum líka frábær-
ar stundir í jólaboðunum á jóladag
þegar við komum til þín í Hæð-
argarðinn, og á gamlárskvöld þegar
þú varst hjá okkur var alltaf glatt á
hjalla, mikið sungið og dansað við
harmonikku undirleik ömmu
Gunnu.
Takk fyrir frábærar stundir,
elsku besta amma, megir þú hvíla í
friði.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Þín barnabörn
Nína, Reynir Þór
og Viktoría Sif.
Við andlát Lóu, móðursystur
minnar, koma í hugann margar
góðar minningar sem ljúft er að
rifja upp. Þær systur Lóa og
Lauga, móðir mín, voru tengdar
sterkum fjölskyldu- og vináttubönd-
um alla tíð. Fyrstu minningarbrot
mín tengjast sólríkum sumardögum
í sveitinni hjá ömmu og afa á Efri-
Brúnavöllum þegar flutt var í sveit-
ina á vorin og ekki snúið til baka að
hausti fyrr en nauðsynlegt var
vegna skólagöngu barnanna. Þar
var lagður grunnur að þeirri sam-
heldni og vináttu sem hefur fylgt
okkur æ síðan.
Alltaf var maður aufúsugestur
hjá Lóu og hennar fjölskyldu og
notalegt var að byrja búskapinn í
kjallaranum hjá Lóu og Jóni í
Garðsendanum, geta hlaupið upp og
fengið ráð um bakstur á hjóna-
bandssælu, aðstoð við að prjóna
hæl á sokk eða barnapössun smá-
stund.
Lóa var mikil félagsvera og
ómissandi þátttakandi í öllum fjöl-
skylduboðum hjá okkur, það var jú
bara svo gaman að bjóða henni því
hún kunni svo vel að njóta stund-
arinnar. Stundum fórum við tvær í
bíltúr austur í Grímsnes og heim-
sóttum foreldra mína í sumarbú-
staðinn. Hún var alltaf til ef eitt-
hvað skemmtilegt bauðst, svo var
líka ósköp notalegt að sitja og
spjalla í Hæðargarðinum, og þá
notaði hún tímann og prjónaði lopa-
peysur eða saumaði út, enda mikil
hannyrðakona og margir fallegir
munir sem eftir hana liggja.
Það má með sanni segja að Lóa
hafi lifað með reisn og henni varð
að ósk sinni að fá að kveðja með
reisn. Hún skapaði sér innihaldsríkt
og gefandi líf, þó að missir dóttur
og eiginmanns hafi markað djúp
spor en hún naut þess líka að eiga
góða fjölskyldu.
Elsku Hilmar, Reynir, Stefán,
Guðný Hrönn og fjölskyldur, inni-
legustu samúðarkveðjur og Guð
veri með ykkur.
Ég kveð þig, hugann heillar minning
blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Þakka þér fyrir það sem þú
varst mér og mínum, elsku
frænka. Guð geymi þig.
Guðný Rut og fjölskylda.
Aldrei hefur mér fundist ég
þurfa svar við því af hverju Guðný
Gróa Ólafsdóttir, móðursystir mín,
gekk alltaf undir nafninu Lóa.
Þeim sem þekktu hana er hins
vegar ljóst hversu vel nafnið átti
við hana því það boðar birtu; vor
og sumarkomu. Hlýjum móttökum
Lóu fylgdi sólskinbros, og sam-
ræðum fylgdi jákvæðni og einstök
tilhlökkun; til næsta verkefnis,
næsta dags, framtíðarinnar. Þessa
viðmóts hef ég notið alla mína ævi;
allt frá því að stórfjölskyldan hélt
meira og minna öll til á sumrin á
fæðingarstað Lóu, Efri-Brúnavöll-
um á Skeiðum.
Varla er hægt að minnast Lóu
án þess að Jón Sigurðsson, eig-
inmaður hennar, sem lést fyrir
rúmum fjórum árum, komi einnig
upp í hugann og sé hluti af sög-
unni, svo samrýnd voru þau. Það
fór ekki til dæmis ekki framhjá
saklausu barninu þegar Jón bar að
garði á Efri-Brúnavöllum um helg-
ar að milli þeirra var eitthvað
meira en sameiginleg væntum-
þykja á mannvænlegum börnum
sínum. Ástin leyndi sér ekki!
Á uppvaxtarárum mínum var
áfangastaður ferðalaga innan
borgarmarkanna oftar en ekki
Garðsendi 3 þar sem Lóa og Jón
byggðu sér hús í kringum 1960.
Það þriggja hæða musteri hafa
þeir systrasynir, Hilmar sonur
þeirra og undirritaður, ávallt talið
sér trú um að hafa átt heilmikinn
þátt í að reisa. Þetta var þó í þá
daga sem sveinar þessir höfðu þau
hjáverk með byggingavinnunni að
stauta sig fram úr Litlu gulu hæn-
unni og draga til fyrstu stafa. Auð-
vitað voru meiri tafir en hjálp af
þessum köppum en það lýsir
kannski best hversu eðlislægt það
var þeim hjónum að leyfa öllum að
njóta sín að þeir töldu lengi fram-
eftir aldri að framlag þeirra hefði
þarna skipt sköpum. Slíkar fyr-
irmyndir voru Lóa og Jón í mann-
legum samskiptum og styðja það
viðhorf að góð uppeldisgildi sem
sýnd eru í verki taka öllum fræð-
um fram.
Það var einstaklega gaman að
fylgjast með kraftinum og lífsgleð-
inni í Lóu. Þótt árin væru farin að
telja og líkamskerfin hikstuðu öðru
hvoru var hvergi slegið af. Þegar
stefnt var á ferðalög eða boðið til
veislu var Lóa aldrei hikandi, auð-
vitað var hún tilbúin að taka þátt.
Og ekki fór á milli mála að hún
naut hverrar stundar í félagsskap
annarra og gaf mikið af sér. Þrátt
fyrir að vera komin vel á níræð-
isaldurinn var hún iðulega með síð-
ustu gestum heim og fór með sama
glaða viðmótið og hún bar í hús
þegar hún mætti.
Lóa var afskaplega dugleg,
sterk og staðföst kona; kona sem
var ekki hægt annað en bera virð-
ingu fyrir og hrífast með. Þegar
kallið kom nokkuð óvænt var hún
án efa tilbúin að taka því með sínu
lagi og hún kvaddi með þeirri reisn
sem alltaf einkenndi hana og um-
vafin því ástríki sem hennar nán-
ustu ávallt sýndu henni.
Með söknuði er Lóa kvödd en
fyrst og fremst er í huga okkar
fjölskyldunnar þakklæti fyrir að
hafa fengið að njóta svo ríkulegra
samvista við hana. Undir þau orð
vill móðir mín, Guðlaug Ólafsdótt-
ir, taka þegar hún kveður sína
kæru systur og áratuga trúnaðar-
vin og pabbi einnig, sem eignaðist í
mágkonu sinni leikfimifélaga á síð-
asta ári.
Blessuð sé minning Lóu frænku.
Ólafur Haukur Jónsson.
Guðný G. Ólafsdóttir
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minn-
ingargreinar ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að ber-
ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánu-
degi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist.
Minningargreinar
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og kær
vinkona,
ARNHILDUR HÓLMFRÍÐUR REYNIS,
Skipholti 21,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 12. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Lísa-Lotta Reynis, Börkur Árnason,
Michael Einar Reynis, Geirþrúður Jónsdóttir,
Elva Björk Barkardóttir,
Hrannar Árni Barkarson,
Arnar Daði Reynis,
Eva Lind Reynis,
Dúfa Sylvía Einarsdóttir, Guðmundur Ragnarsson,
Anna Sigríður Einarsdóttir, Hrafn Andrés Harðarson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
KÁRI ÞÓRIR KÁRASON
múrarameistari,
Presthúsum,
Vestmannaeyjum,
síðast til heimilis
Hlíðarhúsum 1-3,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að morgni
sunnudagsins 10. maí.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 15. maí kl. 15.00.
Anna J. Eiríksdóttir,
Þórunn Káradóttir Hvasshovd, Stein Hvasshovd,
Aðalsteinn F. Kárason,
Bergþór N. Kárason, Guðríður Jónsdóttir,
Berglind A. Káradóttir, Sigurður H. Árnason,
Ragnheiður S. Káradóttir, Pálmi Þ. Ívarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.