Morgunblaðið - 14.05.2009, Síða 33
Velvakandi 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
PABBI, KÆRASTAN MÍN ER FRÁ-
BÆR! HÚN KANN MJÖG VEL Á DÝR
ÉG VEIT ÞAÐ EKKI...
ÉG SKAL SPYRJA HANA
HVAÐ ERTU FLJÓT
AÐ REITA KJÚKLING?
ÞETTA
HEFUR VERIÐ
GÓÐ VIKA!
Æ,
NEI
ÞAÐ KOMA EKKI OFT GESTIR
TIL MÍN SEM ERU JAFN
VINGJARNLEGIR OG ÞÚ
HVERNIG VAR
RÁNSFERÐIN TIL
ENGLANDS?
HRÆÐILEG!
ÞAÐ RIGNDI
ALLAN TÍMANN!
HVAÐ TÓKSTU
MEÐ HEIM Í
POKANUM ÞÍNUM?
TVÆR REGNHLÍFAR
OG REGNGALLA
ÉG
SKAL
SVARA!
ATLI? NEI,
HANN KEMST
ÞVÍ MIÐUR
EKKI Í SÍMANN
EINS OG ER
HANN ER
Á DOLLUNNI
FLÚÐI LANGAFI
MINN TIL AÐ
SLEPPA VIÐ
OFSÓKNIR?
JÁ, ÞETTA
VORU
HRÆÐILEGIR
TÍMAR
VIÐ EIGUM AÐEINS
NÓGA PENINGA TIL AÐ
EITT OKKAR GETI FARIÐ
„SNEMMA Á TUTTUGUSTU ÖLDINNI
HVATTI RÚSSAKEISARI ÞEGNA SÍNA
TIL AÐ OFSÆKJA GYÐINGANA Í
RÍKINU. LÍFIÐ VARÐ ÓBÆRILEGT“
„LANGAFI ÞINN VAR
SAMT MJÖG HISSA ÞEGAR
FJÖLSKYLDAN HANS SAGÐI
HONUM AÐ FLÝJA LAND“
FYRST ÞÚ VILT EKKI FARA
ÚT AÐ BORÐA MEÐ SIMON
KRANDIS Í KVÖLD...
ALDREI!
ÆTLA ÉG AÐ LÁTA MIG HVERFA
SKRÍTIÐ... ÞÚ HAFÐIR EKKI
MIKLAR ÁHYGGJUR AF ÞVÍ AÐ ÉG
MYNDI MEIÐA MANNINN ÞINN
Æ, NEI! HANN GÆTI
LAGT TVO OG TVO
SAMAN OG ÁTTAÐ
SIG Á ÞVÍ AÐ ÉG ER
KÓNGULÓARMAÐURINN
HVAÐ VARÐ
UM JÚNÍ?
SUMARFRÍIÐ
ER AÐ
HVERFA EINS
OG DÖGG
FYRIR SÓLU!
ÞAÐ HVERFUR ALLT OF
HRATT! VIÐ VERÐUM AÐ
NÝTA TÍMANN SEM VIÐ
HÖFUM! VIÐ
VERÐUM AÐ
LEIKA OKKUR!
HVAÐ Á HANN EFTIR AÐ
GERA Í LOK ÁGÚST?
Æ, NEI!
ÞAÐ HEFUR
LIÐIÐ
HÁLFTÍMI FRÁ
ÞVÍ FYRIR
HÁLFTÍMA
SÍÐAN!
Æ, NEI! Æ, NEI!
ÞAÐ ER STRAX
KOMINN JÚLÍ!
Grasagarðurinn er bæði fagur og fræðandi og er gönguferð um hann nær-
andi fyrir sál og líkama. Í kvöld kl. 20 verður fyrsta fræðsluganga sumars-
ins í Grasagarðinum en þá mun Hjörtur Þorbjörnsson, safnstjóri garðsins,
upplýsa gangandi gesti um töfra og fjölbreytni hátíðarlilja. Eftir leiðsögn-
ina er boðið upp á heitt piparmintute.
Morgunblaðið/Ómar
Gengið í Laugardal
Er þetta í lagi?
FINNST virkilega eng-
um neitt athugavert við
það að Edda Rós Karls-
dóttir sé orðin ráðgjafi
hjá Alþjóðagjaldeyr-
issjóðnum og Ásgeir
Jónsson hafi sést vera að
gefa nýju ríkisstjórninni
góð ráð í efnahags-
málum?
Þessi tvö voru helstu
sölumenn hjá bönkunum
sem settu okkur á haus-
inn, komu reglulega í
fjölmiðla og sögðu okkur
hvað allt væri frábært í
bönkunum og t.d. hvað
Danir væru nú vitlausir að vera að
gagnrýna okkur. Þau sögðu okkur
líka að það væri frábært að kaupa
hlutabréf í bönkunum og fleiri fyr-
irtækjum korteri áður en allt fór á
hausinn. Þau sögðust hafa vit á hlut-
unum og við gleyptum við því. Ég segi
fyrir mína parta að ef þetta er fólkið
sem á að hjálpa okkur upp úr krepp-
unni þá líst mér ekki á blikuna. Hvers
vegna fjallar enginn fjölmiðill um
ábyrgð þessa fólks á hruninu? Vill
kannski ríkisstjórnin fá Jón Ásgeir til
að ráðleggja sér við endurreisn at-
vinnulífsins líka?
Reiður Íslendingur.
Sparnaðurinn lifi
NÝJA ríkisstjórnin þeirra Jóhönnu
og Steingríms segist ætla að spara og
skera niður og er gott ef það tekst. Í
kvöldfréttum sjónvarps sagðist Stein-
grímur m.a. ætla að spara ferðakostn-
að, risnu og fleira. Ríkisstjórnin byrj-
ar sparnaðinn með því
að fljúga til Akureyrar
til að halda fyrsta rík-
istjórnarfundinn á Ak-
ureyri, kjördæmi Stein-
gríms. Já, og hann
tekur það sérstaklega
fram að hann ætli bara
að fljúga í almennu
áætlunarflugi. Er búið
að selja allar einkaþot-
urnar úr landi? Ekki
hægt að fá eina lánaða?
Eflaust finnst mörg-
um kostnaður við svona
flugferð með tilheyr-
andi, bílum, mat o.fl.
ekki skipta neinu meg-
inmáli, en ég vil bara
minna á að einn frægur fjár-
málamaður hér áður fyrr sagði þegar
menn voru að hneykslast yfir að hann
reiknaði vexti alltaf upp á aur, já jafn-
vel einn eyri. „Hvert hár gerir skugga,
góði minn.“ Það er nefnilega þannig
að þegar mörg hár koma saman þá
verður skugginn stór.
Þetta rifjaðist bara svona upp við
orð þeirra Steingríms og Jóhönnu.
Þau þurfa að sýna gott fordæmi og
byrja að spara og muna að hvert hár
gerir skugga.
Óli.
Bíllyklar í óskilum
BÍLLYKLAR á TM-lyklakippu
merkt nafni fundust í Smárahverfi í
Kópavogi. Upplýsingar í síma 896-
0424.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa-
vinna og smíði/útskurður 9-16.30,
botsía kl. 9.30 leikfimi kl. 11. helgistund
kl. 10.30, myndlist kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Vorgleði kl. 17.
Handverkssýning hefst á morgun, þar
er sýnt það helsta sem unnið hefur
verið í vetur og stendur sýningin til 29.
maí, opið er kl. 9-16 virka daga. Línu-
danshópur sýnir dans kl. 14 á morgun.
Dalbraut 18-20 | Viðtalstími matsfull-
trúa félagslegrar heimaþjónustu er kl.
13. Bíóstund í setustofu kl. 13.30.
Digraneskirkja | Leikfimi kl. 11.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Bingó í Gjábakka kl. 13.30, stjórnandi
Sigurbjörn Ólafsson. Gleðigjafarnir
syngja í Gullsmára á föstudag kl. 14,
stjórnandi Guðmundur Magnússon.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids
kl. 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl.
9.05 og 9.55, rammavefnaður í handa-
vinnustofu, bingó kl. 13.30 og myndlist-
arhópur kl. 16.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa-
vinnustofan opin kl. 9-16, ganga kl. 10,
brids kl. 13. Kynning á sumarstarfsemi
verður föstudaginn 8. maí kl. 15.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Gönguhópur kl. 11, vatnsleikfimi kl. 12,
karlaleikfimi kl. 13, botsía kl. 14. Síðasti
dagur vorsýningar í Jónshúsi.
Félagsstarf Gerðubergi | Helgistund
kl. 10.30 í umsj. sr. Svavar Stefánsson.
Frá hádegi eru vinnustofur opnar, m.a
myndlist, perlu/bútasaumur, kóræfing
kl. 16. Uppl. í s. 575-7720.
Hraunbær 105 | Boccia kl. 10, leikfimi
kl. 11, félagsvist, kl. 14.
Hraunsel | Rabb kl. 9, bíó 10.30, leik-
fimi í Bjarkarhúsi kl. 11.20, sundleikfimi
Ástjarnarlaug kl. 11.50, glerskurður kl.
13, bingó kl. 13.30, púttstofa kl. 9-17.
Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir kl. 9,
botsía kl. 10, félagsvist kl. 13.30, aftur
af stað kl. 16.10. Böðun f. hádegi og
hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Kaffi í Betri stofunni
kl. 9, listasmiðja kl. 9-16, leikfimi kl. 10,
Stefánsganga kl. 9.10, dísir og drauma-
prinsar kl. 13.30, línudans kl. 15, tangó
kl. 18. Uppl. í s. 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð | Opið púttmót í
Sporthúsinu Dalsmára kl. 10-12.30. Í
íþróttah. Sýning Glóðarfélaga og gesta-
hópa verður kl. 15 í íþróttah. Digranesi.
Sýnd verða atriði frá „Golden Age“ á
Kanarí sl. haust. Enginn aðgangseyrir.
Húsið opnað kl. 14.30.
Korpúlfar, Grafarvogi | Sundleikfimi kl.
9.30 á morgun í Grafarvogslaug.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu-
stund, spjall og léttar æfingar kl. 9.45.
Handverks- og bókastofa opin kl. 13,
botsía kvennaklúbbur kl. 13.30. Hár-
greiðslustofa, s. 862 7097, fótaað-
gerðastofa, s. 552 7522.
Norðurbrún 1 | Leikfimi kl. 9.45, leir-
listarnámskeið og handavinna, botsía
kl. 10, smíðaverkst. opið, bókabíll kl.
10.
Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9.15-
15.30, kóræfing kl 13.30, leikfimi kl. 13
og tölvukennsla kl. 15. Hárgreiðsla og
fótaaðgerðir kl. 9-16.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Bókband,
postulín, morgunstund, botsía, fram-
haldssagan, handavinnustofan opin eft-
ir hádegi, spilað og stóladans.