Morgunblaðið - 14.05.2009, Side 36
36 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009
Íslenska atriðið þótti takast
nokkuð vel í fyrrakvöld og Jó-
hanna stóð sig með prýði eins og
við var að búast. Þó veltu margir
fyrir sér táknmyndunum að baki
Jóhönnu – sér í lagi höfrungnum
sem flaug svo kæruleysislega um
blátt himinhvolfið og svo freygát-
unni sem enginn Íslendingur kann-
ast við að hafa lesið um í sögukafl-
anum um Innréttingar Skúla
Magnússonar.
Eftir því sem næst verður kom-
ist var hönnunin á myndbandinu í
höndum grafísks hönnuðar hjá
RÚV og í upphafi var lagt upp með
draumkennt umhverfi sem byrjar
að kvöldi/næturlagi og endar í sól-
arupprás. Þegar til Moskvu var
komið tóku rússarnir við og hönn-
uðu útlitið enn frekar og það var
þar sem freygátan góða og höfr-
ungurinn fæddust. Þvílík steypa.
Blár höfrungur og
rússnesk freygáta
Fólk
NÚ þegar ljóst er að Ísland tekur þátt í úrslitakvöldi
Evróvisjón-söngvakeppninnar á laugardaginn verða
eflaust margir kokteilhristararnir dregnir fram og
ballskórnir pússaðir.
Ýmsir skemmtistaðir ætla að bjóða upp á sérstök
Evróvisjónkvöld að ógleymdu mögnuðu Evróvisjón-
partíi Páls Óskar sem fram fer á Nasa líkt og und-
anfarin ár. Þar koma fram helstu stjörnur landsins:
Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánson taka
„Nínu“, Gleðibankagengið Pálmi Gunnarsson og
Helga Möller mæta líka auk Selmu Björnsdóttur, Ein-
ari Ágústi og Telmu og Haffa Haff.
Á skemmtistaðnum Players í Kópavogi verður sýnt
frá keppninni á risaskjám, hljómsveitin Buff leikur
fyrir dansi á eftir og verður með sérstakt evró-
visjónþema. Plötusnúður kvöldsins á Apótekinu í
Austurstræti mun setja fókusinn á evróvisjónlög og
sama verður á Thorvaldsen þar sem Dj Jay Arr ætlar
líka að trylla lýðinn á dansgólfinu. Keppnin verður
einnig sýnd þar af skjá.
Á Oliver verður hægt að horfa á Jóhönnu Guðrúnu
af skjá og á eftir, þegar Ísland er búið að vinna, tekur
plötusnúðurinn Brynjar Már við með mikla Evró-
visjón-stemningu. Þeir sem kíkja inn á English Pub
geta ekki látið keppnina framhjá sér fara því þar verð-
ur hún sýnd af fjórum risaskjám og fimm sjónvörpum.
Einar Ágúst Evróvisjónfari spilar svo eftir miðnætti.
Á Q-bar verður keppninni gert hátt undir höfði og
munu starfsmenn m.a klæðast Evróvisjóndragi.
Fleiri skemmtistaðir munu setja fókusinn á Evró-
visjón svo ekki séu nefnd ótalmörg partíin í heima-
húsum. ingveldur@mbl.is
Evróvisjónpartí út um allan bæ á laugardaginn
Páll Óskar Verður á Nasa á laugardaginn.
Markús Þór Andrésson, sýning-
arstjóri og heimildamyndasmiður
með meiru, undirbýr nú sem hann
hraðast getur sýningu Ragnars
Kjartanssonar fyrir Feneyjatvíær-
inginn sem verður opnaður í byrjun
júní. Meðfram því vinnur hann
ásamt Ragnheiði Gestsdóttur og
Dorothée Kirch að mynd um hinn
stórsnjalla myndlistarmann Hrein
Friðfinnsson. Myndin mun vera á
mörkum þess að vera heimild-
armynd og bíómynd en fyrst og
fremst rannsókn á listsköpunarferl-
inu og m.a. á því hver munurinn sé
á því að skoða myndlist eftir því
hvort áhorfandinn þekkir myndlist-
armanninn eða ekki …
Kannski ekki sumarstórmyndin
2010 en áhugaverð engu að síður.
Heimildarmynd í bígerð
um Hrein Friðfinns
Það má svo að lokum taka fram
að áhugi landsmanna á Evróvisjón
er slíkur að fimm mest lesnu frétt-
irnar á mbl.is í gær fjölluðu allar
um Jóhönnu Guðrúnu.
Kærkomin stund milli stríða frá
nöfnu hennar Sigurðardóttur?
Ótrúlega vinsælt
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„PENNINN var tekinn yfir af Nýja
Kaupþingi, og heitir núna Penninn á
Íslandi. Við það féllu allir leigusamn-
ingar úr gildi. Þá var ekkert annað
að gera en fara og
semja aftur um
þá, en það hefur
ekki tekist betur
en svo að eigend-
urnir vilja hækka
leiguna upp í upp-
hæð sem við ráð-
um ekki við að
borga,“ segir
Elsa María Ólafs-
dóttir, versl-
unarstjóri Bókabúðar Máls og
menningar á Laugavegi 18. Hugs-
anlegt er að verslunin verði flutt úr
húsnæðinu í haust, en þar hefur hún
verið allar götur síðan 1962. Ástæð-
an er sú að fyrirtækið getur ekki
greitt það leiguverð sem eigendur
húsnæðisins setja upp.
„Allt frá því að eigandinn keypti
húsið hefur hann viljað hækka leig-
una, sem við teljum að reksturinn
myndi aldrei geta staðið undir. Við
viljum náttúrlega alls ekki fara, en
það þarf auðvitað að vera rekstr-
argrundvöllur,“ segir Elsa og bætir
því við að bráðabirgðasamningur sé
nú í gildi, og að hann renni út í ágúst.
Hún vill þó engar tölur nefna í því
sambandi.
„Ég vona að það finnist einhver
flötur á þessu en ég veit þó ekki
hvort ég hafi ástæðu til að vera
bjartsýn. Eigandinn þarf eðlilega að
fá sitt, enda hefur allt hækkað í þjóð-
félaginu og hann keypti náttúrlega á
versta tíma. En ég veit hins vegar
ekki hver á að geta borgað þessa háu
leigu sem hann er að biðja um.“
Algjör synd
Aðspurð segir Elsa um mjög mikla
hækkun að ræða, og að hún nálgist
það sem gengur og gerist í versl-
unarmiðstöðvum hér á landi. „Það
ber mikið í milli þannig að ég er ekk-
ert rosalega bjartsýn. Það gæti þó
verið smáséns því ég sé ekki hvað
gæti komið hérna inn og staðið undir
þessari leigu. En ég veit náttúrlega
ekkert hvað eigandinn hefur í huga,“
segir hún. „Það er að vísu mjög góð-
ur gangur í versluninni, og það væri
algjör synd ef við þyrftum að færa
okkur. En ef í hart fer myndum við
sjálfsagt gera það, en það væri auð-
vitað algjör synd fyrir menningu
þessa lands að missa þetta. Þetta er
náttúrlega besta bókabúðin í bæn-
um, þótt ég segi sjálf frá. Við heyrum
það mikið frá útlendingum sem hing-
að koma að þeir hafi ekki komið inn í
svona flotta bókabúð. Við verðum
mjög stolt þegar við heyrum það.“
Afborganir hækka
Bjarki Júlíusson hjá eignarhalds-
félaginu Kaupangi sem á húsnæðið
Laugaveg 18, segir að samninga-
viðræður standi yfir. „Það er verið að
semja um þetta, en þeir eru með
skammtímasamning á meðan menn
eru að átta sig á þeim breytingum
sem urðu þegar Nýja Kaupþing tók
fyrirtækið yfir. En ég held að leigan
sé eins og eðlilegt er,“ segir Bjarki
og bætir því við að afborganir af hús-
næðinu hafi hækkað líkt og af öðru
húsnæði á Íslandi, en Kaupangur
keypti húsnæðið árið 2007. Hann vill
ekki tjá sig um málið að öðru leyti.
Mál og menning í hættu
Hugsanlegt að Bókabúð Máls og menningar þurfi að flytja af Laugavegi 18
Leiguverð of hátt að sögn verslunarstjórans Flytja annað ef í það fer
Morgunblaðið/Eggert
Vinsæl verslun „Þetta er náttúrlega besta bókabúðin í bænum, þótt ég segi sjálf frá,“ segir Elsa María Ólafsdóttir.
Elsa María
Ólafsdóttir
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
SPLUNKUNÝ íslensk sjónvarps-
þáttasería, Snæfells-saga, er nú í bí-
gerð. Á heimasíðu Blueeyes Produc-
tions / Sagnar ehf. sem framleiðir
þættina kemur fram að höfundar
þeirra séu þeir Friðrik Erlingsson,
Ásgrímur Sverrisson og Marteinn
Þórisson. Alls verður um sex fimm-
tíu mínútna langa þætti að ræða og
verða þeir sýndir í Ríkissjónvarpinu
sem hefur tekið þátt í þróun þátt-
anna. Óvíst er hvenær þættirnir fara
í tökur og ekkert hefur enn verið
ákveðið um hvenær þeir verða tekn-
ir til sýninga.
Heiður og sæmd
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hafa þættirnir verið í
undirbúningi í hátt í tvö ár. Um
frumsamið handrit er að ræða og
vísar nafnið í Íslendingasögurnar
þótt þættirnir gerist í nútímanum.
Þættirnir gerast í Reykjavík en
nafnið vísar til þess að þeir fjalla um
Snæfells-fjölskylduna, fjölskyldu út-
gerðarmanna sem man tímana
tvenna. Líkt og í Íslendingasög-
unum spila hugtök á borð við heiður
og sæmd stóra rullu í þáttunum en
þeir gerast bæði á sviði stjórn- og
fjármála. Snæfells-fjölskyldan má
muna sinn fífil fegurri en vinnur
hörðum höndum að því að ná aftur
sinni fyrri stöðu í samfélaginu. Þætt-
irnir koma þannig bæði inn á góð-
ærið og hrunið, þótt þeir hafi verið í
undirbúningi frá því löngu áður en
það varð.
Framleiðendur þáttanna verða
þau Baltasar Kormákur og Agnes
Johansen.
Þrír höfundar með sjón-
varpsþáttaseríu í bígerð
Morgunblaðið/Kristinn
Framleiðandinn Baltasar Kormákur framleiðir ásamt Agnesi Johansen.
Snæfells-saga segir frá fjölskyldu útgerðarmanna
Erfitt er að segja til um hvert
meðal leiguverð á versl-
unarhúsnæði við Laugaveginn
er um þessar mundir, enda
margt sem spilar inn í, svo sem
nákvæm staðsetning, ástand
húsnæðis og tegund samnings.
Samkvæmt óformlegri könnun
Morgunblaðsins er algengt fer-
metraverð á bilinu 2.000 til
2.500 krónur. Þó herma heim-
ildir að hægt sé að fá töluvert
lægra verð við götuna, enda
mikið af lausu húsnæði þar.
2.000 til 2.500 kr.