Embla - 01.01.1949, Page 27

Embla - 01.01.1949, Page 27
eitt sinn, er hreinsað var til í bókakostinum. Sagt er, að upphaf- lega hafi verk Sapphóar fyllt níu bækur, eins og komizt er að orði, en þær voru allar gjörsamlega upprættar á byzantiska tíma- bilinu af siðgæðisvörðum þeirra daga. Þó hafa tvö lieil kvæði og mikið af kvæðisbrotum eftir hana geymzt á þann hátt, að grískir og rómverskir sagnaritarar hafa tekið þau upp í ritum sínum og vitnað til þeirra. En þessar reytur úr kvæðum hennar bera ósvikið aðalsmerki listarinnar, svo óhrekjanlega, að vegna þeirra verður höfundi þeirra jafnan skipað í allra fremstu röð meðal Ijóðskálda veraldar. Ekki er vitað með vissu, hvenær Sapphó fæddist eða dó, en blómaskeið hennar hefur verið um 6 öldum f. Kr. Hún fæddist á eynni Lesbos, annað hvort í Mytilene eða Eresus, sem eru borgir þar. í Mytilene átti hún heima lengst af ævi sinni. Lesbos er fræg frá alda öðli vegna þess, hve þar er dásamlegt loftslag, gróðursæld og náttúrufegurð. Þótt eyjan sé hálend, er þar djúpur jarðvegur, þar grær vínviður, olífur og hveiti. Lesbos átti frjóar nýlendur um langt skeið, bæði í Litlu-Asíu og Þrakíu. Vínið frá Lesbos var mjög eftirsótt, og siglingar og verzlun færðu landsmönnum björg í bú, svo að þar var almenn velmegun. Á þessari fögru, sólvermdu ey ólst Sapphó upp, og fegurðin umhverfis hana varð að ljóðum á vörum hennar. Sapphó giftist ríkum andriönskum kaupmanni, er hét Cerkolas, en hann mun hafa andazt ekki löngu síðar. Þau áttu eina dóttur saman, sem Cleis hét. Sapphó lrefur unnað dóttur sinni mjög og lýsir hún því í einu kvæði sínu, segir, að hún sé fögur sem gullblóm og sér dýrmætari en öll auðæfi Lesbosar. Sapphó sjálfri er svo lýst, að hún hafi verið smávaxin og dökk á brún og brá. Alkaios skáld, samlandi hennar, orti til hennar ástarljóð, og er efni þess eitthvað á þessa leið: Fagurhærða, hýr- brosandi Sapphó, mig langar að segja þér það, sem mér býr í brjósti, en ég kem mér. ekki að því. Þessu svaraði hún lipurt og rösklega: Sé ósk þín hrein og fögur, blygðast þú þín ekki fyrir liana, heldur berð hana frjálslega fram. Þegar Sapphó var komin á efri ár, hefur ungur maður beðið hennar fyrir konu, en hún svarar því, að hún sé of gömul til þess að giftast honum, hann skuli velja sér unga konu. EMBLA 25
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Embla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Embla
https://timarit.is/publication/759

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.