Embla - 01.01.1949, Page 29

Embla - 01.01.1949, Page 29
látnar koma fram á hátíðunum, sem haldnar voru guðunum til dýrðar. Þessir skólar, ef nefna má þessar stofnanir því nafni, voru í nánu sambandi við guðsdýrkunina, og voru gjarna helgaðir ein- hverjum vissum guði eða gyðju. Sapphó hafði einn slíkan skóla; liann var helgaður Afrodite, ástargyðjunni. Þar kenndi hún ung- um stúlkum að tigna fegurðina í ýmsum myndum. Að sögn henn- ar sjálfrar elskaði hún skraut og glæsileik, dýr ilmvötn, mjúk hæg- indi og kostulega dúka. Ekki var henni síður hugleikið um fagran klæðnað, og í kvæðum sínum lýsir hún með sterkum orðum skrautlegum búningum. Hún talar um marglita skó fagurgerða, purpurakjóla, þunnar, fíngerðar treyjur og dýra' höfuðdúka. Vafalaust hefur hún kennt nemendum sínum að bera klæði sín með virðuleik. Hún spyr eitt sinn á þessa leið: Hvernig getur þú látið töfrast af svo óglæsilegri stúlku, hún kann ekki einu sinni að sveipa klæðunum um ökla sér. Aftur á móti fer hún niðrandi orðum um konu, sem hældist um yfir hringum sínum. Heimska kona, einn liringur er ekki þess virði að vera stolt af honum. En hún elskaði blóm og talaði um þau eins og hina fegurstu skart- gripi, sem prýddu konurnar. Manstu, segir hún, þegar við lögðum sveiga úr rósum og fjólum að liöfði þér og vöfðum fléttum úr vorblómum um hvítan liáls þér. Blómin höfðu líka trúarlegt gildi. Guðirnir sýndu þeim miskunn, sem gengu frain fyrir þá prýddir blómum, en sneru ásjónu sinni frá þeim, sem ekki báru neina kransa. Sapphó kvað ljóð sín fyrir ungu stúlkurnar, nemendur sína. Hún opnaði þeim hug sinn og leitaðist við að kenna þeim list sína. Við guðsþjónustur sínar sungu þær og dönsuðu í tungls- ljósinu kringum blómskrýtt altarið. Sorgin er ekki fögur, en það er gleðin, og hjá þeim, sem tigna fegurðina, mega ekki heyrast kveinstafir. Hellenar dáðu æsku og fegurð, og sú aðdáun léði viðmóti eldra fólks við yngra sinn svip og gat leitt til siðspillingar. Sapjihó hefur fengið þann dóm, að í húsi hennar hafi dafnað siðleysi, en heilbrigð skynsemi segir okkur, að slíkt séu fráleit ósannindi. Hefði svo verið, er fullvíst, að höfðingjarnir í Hellas hefðu ekki sent henni dætur sínar til fræðslu og fósturs, enda er það sannað, EMBLA 27
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Embla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Embla
https://timarit.is/publication/759

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.