Embla - 01.01.1949, Side 66
móður hennar illa. — En það var samt eitthvað spennandi við alla
þessa Iicrmenn, þó ekki væri vert að segja mikið. Ekki hafði
það alltaf gengið orðalaust, að hún fengi að fara tit á kvöldin,
og einhvern veginn datt það í hana, að þessar kringumstæður
myndu ckki bæta úr því.
Rúmt ár var liðið frá því hernámið átti sér stað. Ennþá sat
Sigríður frá Gróf við gluggann sinn og saumaði. Það var orðið
daglegt brauð að sjá erlenda hermenn ganga fram og aftur
um götuna, en aldrei gat hún vanist því. í hennar augum var
þessum mönnum alltaf ofaukið. En það var mesta furða, hvað
litlir árekstrar urðu. Margar leiðinlegar sögur heyrði hún samt,
en það var nú kannske eitthvað orðum aukið.
Svala dóttir hennar var alltaf mikið úti, hún vissi hreint ekki
urn hana langtímum saman.
Öll höfðu þau reynt að hafa áhirf á hana, en hún svaraði því
illu einu, sagði þau gerðu sér rangt til, og treystu sér ekki í neinu,
hún væri þó engu síður fær um að sjá um sig en hin systkinin. —
Nú seinast sagði hún þeim öllum, að hún hefði ráðið sig á veit-
ingahús, yrði að vinna fram eftir annaðhvort kvöld, — og ætlaði
að sofa heima. — Þetta var nú seinasta vonin, á meðan hún fékkst
til að sofa heima.
Ekkjan hafði reynt að beita sínum ítrustu og bcztu áhrifum,
og þá hafði Svala lofað henni öllu góðu og beðið hana að treysta
sér. Við það sat, þetta urðu þau öll að sætta sig við.
Það var einkennilegt, hvað Svala gat verið ólík öllum hinum
börnunum, líklega var það uppeldinu að kenna. Það höfðu aldrei
verið gerðar jafn strangar kröfur til hennar og hinna barnanna.
Hún var yngst, og öll höfðu þau borið liana á höndum sér. Þetta
gat verið ástæðan. Hættan gat oft orðið mest, þegar menn töldu
sig gera það allra bezta.
Þannig hugsaði vesalings ekkjan, þegar hún vissi, að hennar
fortölur voru árangurslausar. Aftur á móti fagnaði Svala því,
hvernig komið var. Síðan hún fór að vinna, hafði hún nóga pen-
inga, — svo mikla, að hún liafði aldrei látið sér detta í hug, að
það væri liægt að leggja fram jafn litla vinnu fyrir svo hátt kaup.
64
EMBLA