Embla - 01.01.1949, Page 89

Embla - 01.01.1949, Page 89
ars. Mér fannst dálítið hátíðlegt við þetta ferðalag, en ekki var mér sársaukalaust að skilja við fyrsta bernskuleiksviðið mitt. Þar var svo margt, sem ekki var hægt að flytja með sér: klettar, brekkur, lækir, sléttar grundir og mikið af steinum af ýmsum stærðum, litum og lögun. Mér var nú sagt, að í Einholti væri fallegt, túnið væri stór hóll með mörgum fallegum brekkum og vötnum allt í kring. En steinar voru þar engir. Það þóttu mér ekki góðar fréttir, því að blessaða steinana hafði ég getað notað til svo margra hluta. Úr sumum voru byggð liús, heilir bæir. Svo hafði ég flestar skepnurnar mínar úr steinum. Steinana mína vildi ég því fá að fly Lja með mér. En að því var bara hlegið og sagt, að það kæmi ekki til mála. En blessuð amma mín, sem allt vildi fyrir mig gera, tók þó nokkuð af smæstu og litfegurstu stein- unum mínum í lítinn léreftspoka og lét hann í kistuna sína. Nú komu auðvitað dagar mikilla anna og umsvifa. Ég smá- vandist húsunum og umhverfinu. Og þótt mér þætti aldrei eins fallegt í Einholti og á Viðborði, þá leiddist mér þó aldrei neitt að ráði. En stundum var ég samt í hálfgerðum vandræðum með, iivað ég ætti að taka mér fyrir liendur. Umhverfið var svo nýtt og ég ekki búin að festa mig við neitt sérstakt. Vitanlega lék ég mér með systkinum mínum úti og inni öðru hvoru. En svo var alltaf löngun til að vera ein um eitthvað, og það var svo erfitt að finna það á þessum nýja stað. En eftir nokkurn tíma tókst mér það þó. Við bæinn var skemma, laus við sjálf bæjarhúsin. Að sunnan var timburþil, og þar var gengið inn í skemmuna. Þar var rúm- gafl undir lofti, og hengu þar linakkar, söðlar, beizli og reiðföt á stoðum og bitum. Svo var loft yfir, og þar var matvælageymsla. í norðurenda hússins uppi var afþiljað lítið herbergi, ein rúmlengd. Þar var lægra undir loft en í framskemmunni, og þá auðvitað hærra undir súð. Gluggi var á vesturhlið, en undir austurhlið var rúmstæði. Við norðurstafninn var skápur nokk- uð stór, og þótti mér hann mikill skartgripur. Hann var með útskornum listum og málaður ljósbrúnn. Mér var sagt, að í þessu herbergi hefðu móðurforeldrar rnínir búið að einhverju leyti og sofið þar á sumrin, en þau höfðu verið þar áður en við 87 EMBLA
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Embla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Embla
https://timarit.is/publication/759

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.