Morgunblaðið - 22.05.2009, Side 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2009
Omeprazol Actavis
- öflugt lyf við brjóstsviða og súru bakflæði
Notkunarsvið: Omeprazol Actavis inniheldur ómeprazól sem hemur seytingu á magasýru. Omeprazol Actavis er notað við
tilfallandi brjóstsviða og súru bakflæði. Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum, samtímis notkun lyfja sem innihalda
claritrómýcín hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi, samtímis notkun lyfja sem innihalda atazanavír. Varúð: Gæta skal
sérstakrar varúðar: Ef verulegt og óvænt þyngdartap verður, við endurtekin uppköst, ef erfiðleikar eru við að kyngja, við
blóðuppköst eða blóð í hægðum, ef lifrar- eða nýrnastarfsemi er skert. Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota
lyfið nema að ráði læknis. Omeprazol Actavis inniheldur súkrósa. Meðganga/brjóstagjöf: Leitið ráða hjá lækni áður en lyfið
er notað. Akstur og notkun véla: Aukaverkanir, svo sem þreyta, svimi og sjón- og heyrnartruflanir, geta komið fram og geta
haft áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Algengar aukaverkanir eru niðurgangur, hægðatregða,
vindgangur, ógleði, uppköst, svefntruflanir, sundl, höfuðverkur eða þreyta. Þessar aukaverkanir verða yfirleitt vægari við
áframhaldandi meðferð. Skammtastærðir: Fullorðnir: 1 sýruþolið hylki eftir þörfum. Ekki má nota meira en 20 mg á
sólarhring. Ef einkennin hverfa ekki eftir að Omeprazol Actavis hefur verið notað í 14 daga skal hafa samband við lækninn
vegna þess að einkennin gætu verið af öðrum orsökum. Gleypa á sýruþolnu hylkin með glasi
af vökva. Sýruþolnu hylkin ætti að taka fyrir máltíð (t.d. morgunmat eða kvöldmat) eða á
fastandi maga. Hvorki má tyggja né mylja sýruþolnu hylkin. Lesið vandlega leiðbeiningar sem
fylgja lyfinu. Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Janúar 2009.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
I
/
S
ÍA
/
A
C
TA
V
IS
9
0
3
0
3
0
Af litlum neista…
20 mg, 28 stk. – fáanlegt án lyfseðils í næsta apóteki
Nýttmagalyf
án lyfseðils
Eftir Sigrúnu Ernu Geirsdóttur
sigrunerna@mbl.is
SKEMMTIFERÐASKIPIÐ Voyager er í raun
fimm stjörnu fljótandi hótel, með öllum þeim
þægindum sem því fylgir. Þarna má finna spila-
víti, safn kvikmynda og tölvuleikja, íþróttasali,
sundlaug, læknastofu og heilsulind. Allt að sjálf-
sögðu fyrsta flokks. Reglulega kemur fyrir að
stórfyrirtæki taki skipið á leigu og má nefna að
framleiðendur Porsche leigðu það nýverið til að
kynna nýjustu bifreiðina fyrir umboðsmönnum
sínum. Voru þá tveir Porche-bílar til sýnis í
skipinu.
Efnaðir Bandaríkjamenn
Forstjóri skipafélagsins, Mark Conroy,
ferðast með skipinu í þessari ferð en alls rekur
Regent félagið fjögur skemmtiferðaskip.
Ferðast hann nokkrum sinnum á ári með skip-
um félagsins. ,,Skipið tekur 700 farþega og 450
eru í áhöfn á skipi af þessari stærð, 42.000 tonn,
en það telst frekar lítið. Ástæðan er sú að öll
herbergin eru stór og með eigin svalir. Skipið er
hugsað sem lúxusskip,“ segir Conroy. Farþeg-
arnir eru flestir frá Bandaríkjunum en Bretar
og Ástralir eru líka fjölmennir. Meðalaldur far-
þega er nokkuð lægri en gengur og gerist al-
mennt á skemmtiferðaskipum, eða rúmlega
fimmtíu ár í stað sjötíu. Þá er nokkuð um fjöl-
skyldufólk með börn í eldri kantinum. ,,Meiri-
hluti okkar farþega hefur ferðast með okkur áð-
ur og margir fara í nokkrar ferðir í röð, það er
ekki óalgengt að fólk sé kannski hundrað nætur
í einu. Einn farþeginn hefur verið hér í þúsund
nætur.“ Kreppan hittir því ekki alla jafnt fyrir
og er fullbókað í nánast allar ferðir skipsins í ár.
Reykjavík er fyrsti áfangastaðurinn í tíu daga
ferð skipsins en næst liggur leiðin til Vest-
mannaeyja, þá Færeyja og svo Bretlandseyja.
Að jafnaði liggur skipið við festar í 24 klukku-
stundir á hverjum stað. Um fjögur hundruð far-
þegar komu um borð í skipið í gær en hingað
höfðu þeir flogið í þeim tilgangi.
Hljóðbylgjubyssur
Fyrir skemmtiferðaskip gilda afar strangar
reglur um hver má koma um borð. Ef farþegi
óskar eftir að koma með gesti verður að láta
vita með góðum fyrirvara. Farið er í gegnum
málmleitartæki og fá gestir sérstaka passa svo
hægt sé að fylgjast með nákvæmlega hver er
um borð á hvaða tíma. Conroy segir að örygg-
iskerfi skipsins sé afar fullkomið og nefnir að
um borð séu til dæmis nokkurs konar byssur
sem skjóta hljóðbylgjum. Eru þær hafðar um
borð sem vörn gegn sjóræningjum en skipið hef-
ur þó aldrei lent í neinum vandræðum af því
tagi.
Voyager er rúmlega 200 metrar á lengd, rís
54 metra frá sjávarmáli og er á ellefu hæðum.
Þótt skipið hafi verið smíðað árið 2003 var það
nánast algerlega endurnýjað að innan í desem-
ber sl. ,,Við fögnum ákaflega þessari hreyfingu
gegn reykingum,“ segir Conroy og brosir. ,,Nú
má bara reykja á tveimur stöðum í skipinu og
það kemur til með að spara okkur mikinn kostn-
að.“ Skipið kostaði 250 milljón evrur, sem þykir
vænn skildingur fyrir skemmtiferðaskip af þess-
ari stærð. Það er þó ekki aðeins íburður skips-
ins sem gerir það sérstakt því í stað hefðbund-
inna skrúfna sem knýja skipið áfram toga
skrúfur Voyagers það áfram og má snúa skrúf-
unum á alla vegu. Skipið getur því siglt til hliðar
og getur lagt sjálft að bryggjunni. ,,Nýjasta
tækni er alls staðar nýtt til hins ýtrasta,“ segir
Conroy. Undir það tekur annar skipstjóri skips-
ins, Gianmario Sanguineti, sem verið hefur skip-
stjóri á Voyager í rúmt ár. Hann hefur þó mun
lengri skipstjórnarreynslu og hefur verið á sjón-
um í rúm tuttugu ár. ,,Voyager er ótrúlega með-
færilegt skip sem unun er að stjórna.“
Um Atlantshafið á fljót-
andi fimm stjörnu hóteli
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins komið Fullbókað í flestallar ferðir
Morgunblaðið/Ómar
Miðdepill Glæsilegur hringstigi nær í gegnum allt skipið. Fyrir miðri mynd má sjá norskt listaverk.
Forstjórinn Mark Conroy Stjórnar skipafélaginu og ferðast reglulega með skipum félagsins.
LÖGREGLAN á Selfossi hefur
fengið ábendingar um akstur fjór-
hjóla og torfæruhjóla utan vega
og slóða á Hengilssvæðinu og víð-
ar um Árnessýslu. Akstur utan
vega er bannaður og ætlar lög-
reglan að auka eftirlit með ut-
anvegaakstri.
Í tilkynningu frá lögreglunni á
Selfossi segir að það ætti ekki að
dyljast nokkrum manni að akstur
af þessu tagi valdi gróðurspjöllum
og það sem verra sé að hver sá
sem sjái hjólför eftir annan telji
sig mega nýta sér þau og þar með
myndist á skömmum tíma slóði
sem verði varanlegur.
Kvartanir hafa borist lögreglu
alls staðar að úr Árnessýslu um
akstur fjórhjóla um holt og hæðir.
Um hverja helgi megi sjá ökutæki
með kerru sem á eru tvö eða fleiri
torfærutæki streyma austur eftir
Suðurlandsvegi svo ljóst megi vera
að talsverð aukning sé á notkun
þessar tækja.
„Lögreglan skorar á ökumenn
torfærutækja og jeppabifreiða að
halda sig á vegum og við-
urkenndum slóðum og hlífa nátt-
úrunni. Aðrir eru beðnir að standa
vaktina með lögreglunni og gera
viðvart verði þeir varir við akstur
utan vega og eftir atvikum að taka
ljósmyndir af ökutækjunum sem
lögreglan gæti nýtt sér við rann-
sókn mála,“ segir í tilkynningu
lögreglunnar.
Lögreglan á Selfossi
mun auka eftirlit með
akstri utan vega
Morgunblaðið/Einar Falur
VERÐ á dísilolíu og bensíni er nú
nánast hið sama en olían kostaði í
gær 163,8 kr. og bensínið 164,9 kr.
hjá N1. Magnús Ásgeirsson, hjá N1,
segir ástæðuna þá að í fyrsta sinn í
mörg misseri hafi eðlileg eftirspurn
áhrif á verðið.
,,Á veturna er mikil eftirspurn
erlendis eftir olíu til húskyndingar
en nú hefur hún minnkað. Á móti
kemur vaxandi eftirspurn eftir
bensíni og þetta veldur hækkun
bensínverðs og lækkun olíuverðs,“
segir Magnús.
sigrunerna@mbl.is
Jafnvægi á elds-
neytismarkaði
FRAMSÓKNARMENN þráast við
að yfirgefa flokksherbergi sitt í Al-
þingishúsinu, eða „græna her-
bergið“ svokallaða, þrátt fyrir þá
ákvörðun forseta Alþingis að þeir
eftirláti Vinstri grænum herbergið
með þeim rökum að þingflokkur
þeirra sé nú orðinn stærri eftir gott
gengi í kosningunum.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
forseti Alþingis, vildi ekki staðfesta
að málið væri í þessum farvegi þegar
eftir því var leitað. Sagði Ásta að
reynt yrði að leysa málið, sem tekið
yrði upp eftir helgina, í bróðerni.
Árni Þór Sigurðsson, þingmaður
VG, lýsir afstöðu Framsóknar svo:
„Ég veit að þeir hafa ekki viljað
fara út úr þessu herbergi af því að
þeir hafa svo mikil tilfinningatengsl
við það. Það er okkur algjörlega
óviðkomandi. Þetta er ekki deila á
milli okkar og Framsóknar. Það er
mikill misskilningur.
Við höfum ekki gert kröfu um að
fá þetta framsóknarherbergi. Við
höfum aðeins gert kröfu um að fá
þingflokksherbergi sem er nægj-
anlega stórt fyrir VG. Herbergið
sem við erum í rúmar ekki allan
þingflokk VG svo að það er yf-
irstjórnar þingsins að finna út úr
því. Það er ekki þannig að þing-
flokkar eigi herbergi. Við þurfum að
fá þingflokksherbergi í þinghúsinu.
Það segir sig sjálft. Herbergi sem
hefur 11 sæti rúmar ekki 14 manna
þingflokk VG.“
Árni Þór telur málið tímasóun.
„Þetta er algjörlega fáránlegt mál
í sjálfu sér, að menn geti eytt miklu
púðri í að tala um eigin þingflokks-
herbergi á sama tíma og þeir kvarta
yfir því í þinginu að ríkisstjórnin sé
ekki að koma með nein mál sem
varða fjölskyldur og atvinnulíf í
landinu. Okkur finnst þetta algjört
aukaatriði.“
baldur@mbl.is
Þeir sitja sem fastast
Framsóknarmenn vilja ekki gefa eftir græna herbergið
„Fáránlegt mál,“ segir þingmaður Vinstri grænna
Morgunblaðið/Kristinn