Morgunblaðið - 22.05.2009, Síða 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2009
Morgunblaðið/Ómar
Góð stemning Nemendurnir í Seljaskóla voru að vonum ánægðir með velgengnina í mælsku- og rökræðukeppninni í Ráðhúsinu í fyrrakvöld.
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@mbl.is
,,ÞETTA er tímafrekt og getur
stundum verið svolítið erfitt, aðallega
vegna þess að maður þarf að muna
ræðurnar sínar. Það tekur oft langan
tíma en þetta var mjög gaman.“
Álfur Birkir Bjarnason, nemandi í
10. bekk í Seljaskóla, er að vonum
ánægður með sigur skólans síns í
Morgron, það er mælsku- og rök-
ræðukeppni grunnskóla Reykjavíkur
og nágrennis, í úrslitaviðureigninni
við Hagaskóla í fyrrakvöld.
„Ég hvet alla til þess að taka þátt í
svona keppni. Þetta er með því
skemmtilegra sem ég hef upplifað,“
segir Álfur sem var í sex manna sig-
urliði síns skóla.
Seljaskóli, sem hlaut um 1.530 stig
og vann með um 150 stiga mun, átti
að mæla gegn umræðuefninu, Ef við
finnum geimverur – ættum við að
boða þeim kristna trú? og það þótti
Álfi ekki erfitt.
„Sjálfur er ég ekki kristinn. Ég sé
enga ástæðu til þess að boða kristna
trú yfirhöfuð.“
Spurður hvort það hefði ef til vill
verið erfiðara að mæla gegn um-
ræðuefninu væri hann kristinn svar-
ar hann: „Það er mögulegt að það
gangi betur ef maður er hlynntur
umræðuefninu.“
Ræðukeppni grunnskólanna í ár
var einkaframtak nemendanna
sjálfra en Reykjavíkurborg styrkti
keppnina, að sögn Kjartans Magnús-
sonar, formanns íþrótta- og tóm-
stundaráðs.
„Það var ákveðið að borgin kæmi
ekki að skipulagningu keppninnar í
ár. Við vissum samt að það var áhugi
fyrir henni. Við lögðum til sal í Ráð-
húsinu og bókaverðlaun auk þess
sem hver skóli studdi sína nemendur
með einhverjum hætti,“ segir Kjart-
an.
Í fyrra var mælskukeppnin haldin
undir nafninu Málið. Var þá í fyrsta
sinn í sjö ár keppt í mælsku meðal
grunnskólanemenda.
Byggt á gömlum grunni
Keppnin í fyrra byggði á gömlum
grunni Morgron sem haldin var allt
til ársins 2001 og nú ákváðu nemend-
urnir sjálfir að endurvekja keppnina
undir því heiti.
„Nemendafélög Seljaskóla og
Hagaskóla tóku sig saman og keyptu
bikar og réðu dómara,“ greinir Álfur
frá.
Seljaskóli og Hagaskóli mættust
einnig í úrslitum í ræðukeppninni í
fyrra og hafði Seljaskóli betur eins og
í ár.
Ekki var efnt til sérstakrar gleði
að lokinni keppninni í fyrrakvöld, að
sögn Álfs þar sem vorprófin byrja í
dag. „Það var aðallega farið að sofa,“
segir hann.
Framundan er lestur skólabóka en
þegar honum er lokið gefst væntan-
legan tími til að glugga í verðlauna-
bókina, Síðustu dagar Sókratesar
eftir Platón.
Einkaframtak nemenda
Nemendafélög skipulögðu sjálf mælsku- og rökræðukeppni grunnskóla Reykja-
víkur og nágrennis Seljaskóli hafði betur í úrslitaviðureign við Hagaskóla
Fylgjandi trúboði Birna Ketilsdóttir Schram keppti fyrir hönd Hagaskóla.
Með geimverugrímu Álfur Birkir Bjarnason var í sigurliði Seljaskóla.
FORRÁÐAMENN Reykjavík-
urborgar eiga nú í samninga-
viðræðum við lífeyrissjóðina um að
þeir láni borginni
5 til 6 milljarða
króna til fram-
kvæmda á þessu
ári, samkvæmt
heimildum mbl.is.
Vonast er til þess
að samningar um
lán muni nást í
næstu viku og
verði kynntir á
fundi borgarráðs.
Reykjavíkurborg á enn eftir að
fjármagna framkvæmdir upp á tæp-
lega sjö milljarða króna sem áætl-
aðar eru á þessu ári. Borgin hefur
þegar fengið einn milljarð að láni
frá Lánasjóði íslenskra sveitarfé-
laga en lán frá lífeyrissjóðunum
myndi duga fyrir því sem upp á
vantar.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hefur helst verið deilt
um lánakjörin í viðræðum á milli
borgarinnar og sjóðanna. Flestir
stærstu lífeyrissjóðir landsins hafa
samþykkt að lána borginni en nið-
urstaða varðandi lánakjörin liggur
þó ekki enn fyrir.
Framkvæmdir á vegum borg-
arinnar hafa ekki enn verið boðnar
út en venjulega er það gert á vor-
mánuðum. Útboðin eru þó háð því
að fjármögnun til framkvæmda sé
tryggð.
Meðal framkvæmda sem háðar
eru auknu lánsfé eru áframhaldandi
bygging Norðlingaskóla og Sæ-
mundarskóla, auk leikskólabygg-
inga. Kjartan Magnússon, formaður
menntaráðs borgarinnar, sagðist
vonast til þess að samningar um lán
lægju fyrir á næstunni. „Áframhald-
andi framkvæmdir eru háðar lánsfé
og ég er vongóður um að þau mál
skýrist innan tíðar,“ sagði Kjartan í
samtali við fréttavefinn mbl.is í gær.
magnush@mbl.is
Borgin
ræðir við
lífeyrissjóði
5-6 milljarða lán
Kjartan
Magnússon
Ágúst stjúpfaðir
Kristjáns
Þess leiða misskilnings gætti í
myndatexta í blaðinu á miðvikudag
að stjúpfaðir Kristjáns Kjart-
anssonar, kartöflubónda í Tobbakoti
í Þykkvabæ, væri Kristjón Pálm-
arsson, nágranni hans í Tobbakoti
II. Ágúst Gíslason í Suður-Nýjabæ,
er lést árið 2005, var stjúpfaðir
Kristjáns og er beðist velvirðingar á
þessum mistökum.
LEIÐRÉTT