Morgunblaðið - 02.07.2009, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2009
fyrir alla sem
rífandi hamingja!
www.gottimatinn.is Það er auðvitað betra að moka en rífa.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-1
0
9
7
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
FÉLAG íslenskra bifreiðaeigenda,
FÍB, vill fá sæti við borðið með við-
skiptaráðuneytinu og fjármögnunar-
fyrirtækjum, sem ræða nú möguleg
úrræði vegna vandans sem gengis-
tryggð bílalán hafa skapað fyrir
heimilin í landinu.
Íslensk bílalán, gengistryggð að
hluta eða í heild, nema 115 milljörð-
um króna. Þetta kom fram í svari
Gylfa Magnússonar viðskiptaráð-
herra við fyrirspurn um bílalán í er-
lendri mynt á Alþingi í gær. Sam-
kvæmt úttekt Seðlabanka Íslands,
sem gerð var fyrir viðskiptaráðu-
neytið, eru 40.414 manns með bíla-
lán, sem gengistryggð eru að ein-
hverju leyti. Sagði ráðherrann að
heildarverðmæti bílanna, sem lán-
veitendurnir eiga veð í, væri nánast
ómögulegt að meta. Þá sagði hann að
um 11% heimila þyrftu að verja yfir
30% af ráðstöfunartekjum í afborg-
anir af bílalánum.
Ekki talað við samtök neytenda
Gylfi sagði að samstarf ráðuneyta
væri komið í gang til að kanna hvort
hægt væri að grípa til úrræða vegna
erlendra bílalána, til viðbótar þeim
sem þegar bjóðast hjá fjármálafyr-
irtækjum. Héldu fulltrúar ráðuneyta
fund með bílafjármögnunarfyrir-
tækjum í gær. Niðurstöður þessarar
könnunar verða birtar um leið og
þær liggja fyrir, að sögn ráðherra.
Snemma í vor sendi FÍB við-
skiptaráðherra erindi út af stöðu
bílalána og ýmsu þeim tengdu. Að
sögn Runólfs Ólafssonar, fram-
kvæmdastjóra félagsins, var erindið
ítrekað fyrir skemmstu, en viðbrögð
höfðu ekki borist þegar Gylfi Magn-
ússon hélt ræðuna á þingi í gær.
„Við teldum mjög eðlilegt að FÍB
fengi sæti við þetta borð. Við óskum
eftir því að taka þátt í þessari vinnu,“
segir Runólfur. Athugasemdir FÍB
lúta að ýmsum atriðum varðandi
neytendarétt. Runólfur segir að það
yrði mjög jákvætt ef menn settust
niður til að ræða þessi mál.
Athugasemdirnar varða til dæmis
uppgjör samninga sem eru komnir í
vanskil. „Þar eru ýmis ákvæði í
samningum sem við teljum vera á
gráu svæði og mörg fyrirtækin hafa
gengið allt of hart fram gagnvart
neytendum,“ segir hann.
115 milljarða bílavandi
40.414 manns skulda bílalán sem gengistryggð eru í heild eða að hluta
Ráðuneyti ræða við bílalánafyrirtæki Samningar á gráu svæði segir FÍB
» Gengistryggð bílalán nema í heild 115 millj-
örðum og hafa rokið upp síðan árið 2007
» 11% heimila verja yfir 30% ráðstöfunartekna í
afborganir af bílalánum eins og staðan er í dag
SKIPVERJA sakaði ekki þegar skútan sem þeir
voru á strandaði á Engeyjarrifi í gærkvöldi.
Björgunarsveitin Ársæll var kölluð á staðinn og
aðstoðaði mennina við að komast á þurrt. Í kjöl-
farið var unnið að því að koma skútunni á flot og
tókst það giftusamlega.
Óljóst var í gærkvöldi um skemmdir á skút-
unni og hvers vegna henni var stýrt inn fyrir við-
miðunarbauju.
BJARGAÐ EFTIR STRAND Á ENGEYJARRIFI
Morgunblaðið/Ómar
RÍKISSTJÓRNIN tapar töluverðu fylgi og nýtur nú að-
eins stuðnings 49% þjóðarinnar, samkvæmt nýjum þjóð-
arpúlsi Gallup sem Ríkisútvarpið greindi frá í kvöld-
fréttatíma í gærkvöldi. Sjálfstæðisflokkurinn mælist að
nýju stærsti stjórnamálaflokkur landsins. Könnun Gall-
up náði til 7.300 manns á tímabilinu 28. maí til 29. júní.
Svarhlutfall var 60%.
Ríkisstjórnin hefur ekki notið minni stuðnings frá því
hún var mynduð, í febrúar síðastliðnum. Þá naut hún
stuðnings ríflega 60% þjóðarinnar. Stjórnarflokkarnir
missa báðir fylgi, skv. þjóðarpúlsinum. Samfylkingin,
sem undanfarna mánuði hefur mælst stærsti flokkurinn
með um 30% landsmanna á bak við sig, fengi 25% at-
kvæða ef kosið yrði til Alþingis nú. Vinstri græn missa
fjögur prósent frá kosningunum, mælast nú með 18%.
Stjórnarandstaðan bætir við sig fylgi
Þegar litið er til stjórnarandstöðuflokkanna snýst
dæmið við. Sjálfstæðisflokkur bætir við sig fjórum pró-
sentum frá kosningunum og mælist nú með 28%. Þá
sögðust 17% aðspurðra mundu kjósa Framsóknarflokk-
inn ef gengið yrði til kosninga í dag. Vinsældir Fram-
sóknarflokksins hafa ekki verið jafn miklar – í Gall-
upkönnun – frá árinu 2003.
Einnig eykst fylgi við Borgarahreyfinguna en hún
hlaut sjö prósent í síðustu alþingiskosningum. Hún
mælist nú með níu prósenta fylgi.
Ríkisstjórnarflokkarnir
hafa misst töluvert fylgi
Morgunblaðið/Ómar
Missa fylgi Vinsældir ríkisstjórnarinnar hafa minnkað
eftir því sem erfiðari ákvarðanir eru teknar.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist
á nýjan leik stærstur flokka
SKRIFAÐ hefur
verið undir samn-
ing þess efnis að
veiðar fyrir lönd-
um Hólmavaðs
og Ytra-Fjalls í
Laxá í Aðaldal
færist yfir í svo-
kallaðar Nesveið-
ar. Árni Pétur
Hilmarsson, tals-
maður Nestorf-
unnar, sagði þá geta boðið upp á níu
stanga veiðisvæði eftir þessar breyt-
ingar. „Þetta breytir öllu fyrir okk-
ur. Það var skarð fyrir skildi þegar
við misstum Núpasvæðið. Þá fækk-
aði stöngunum hjá okkur úr átta í
sex.“ Hann sagði það hafa verið
svakalegt högg fyrir félagið, ekki
síst fyrir reksturinn á veiðihúsinu,
en nánast vonlaust sé að reka það
með sama fastakostnaði þegar 30%
fækkun sé á viðskiptavinum.
Margir frægir og góðir veiðistaðir
skipta því um hendur á næsta ári.
Má þar helsta nefna Hólmavatns-
stíflu að vestan og Óseyri. Þessir
staðir hafa hingað til tilheyrt svæð-
um fimm og sex hjá Laxárfélaginu.
Þessi breyting hefur í för með sér að
veiðimenn hver frá sínum leigutaka
munu í auknum mæli veiða hver á
móti öðrum. Aðspurður sagði Árni
Pétur alveg klárt að þetta yrði erf-
iðara. En þetta myndi örugglega
leysast. „Helst hefði ég viljað hafa
þetta eins og þetta var. En það er
ekki um það að velja.“ | 14
Nes-menn
nældu í
Hólmavað
Veiðimaður við
Hólmavaðsstíflu.
Miklar breytingar í
Laxá í Aðaldal
SEXTÍU prósent þeirra sem tóku
afstöðu í könnun Gallup um Icesave-
samkomulagið sögðust andvíg því.
Greint var frá könnuninni, sem gerð
var 10.-24. júní sl., í kvöldfréttum
Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi.
Könnunin náði til 2.500 manns, en
hlutfalls svarenda var ekki getið.
Nítján prósent svarenda sögðust
hins vegar hlynnt samkomulaginu
við Breta og Hollendinga og 21%
sagðist hvorki hlynnt né andvígt.
Fleiri konur eru andvígar en karlar.
60% á móti
samningum