Morgunblaðið - 02.07.2009, Blaðsíða 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2009
STANGVEIÐI
Eftir Kjartan Þorbjörnsson
golli@mbl.is
VEIÐI í Selá í Vopnafirði hófst með
glæsibrag, að sögn Orra Vigfús-
sonar, eins leigutaka árinnar. Að
venju voru það bræðurnir Vífill,
Þengill, Ketill og Ólafur Oddssynir
sem veiddu fyrstu tvo dagana og
hálfum betur. Veitt er á fjórar
stangir í Selá í byrjun sumars en
þeim fjölgar síðan í allt að átta
stöngum. Orri sagði þetta næstbestu
opnun í sögu árinnar. „Þeir náðu
núna tuttugu löxum á bilinu átta til
tólf punda. Venjulega eru þessi holl
að gefa sex til átta, jafnvel upp í tíu
laxa. Þetta er mjög góð opnun.“
Sömu veiðiholl í áratugi
Orri sagði nær eingöngu stundaða
fluguveiði í Selá og flestum löxum sé
sleppt aftur. Hann segir seiða-
búskap með besta móti og að áin sé
orðin ein gjöfulasta laxveiðiá lands-
ins, þar hafi veiðst 2,400 laxar á ári
að meðaltali síðustu fjögur ár. Sömu
veiðiholl hafi stundað ána í áratugi
og erfitt fyrir nýja veiðimenn að
komast að.
Laxveiði hófst í Breiðdalsá í gær.
Þröstur Elliðason leigutaki sagði
mikla ró yfir veiðinni fyrstu vaktina.
„Við erum með svo gamla veiði-
menn. Þeir eru á tíræðisaldri og
geta varla staðið í fæturna sumir.
Við erum að reyna að láta þá veiða af
bátum. Það gengur frekar brösug-
lega. Þeir settu í einn en misstu í
löndun.“ Þröstur segir mikið en gott
vatn í ánni. Einhverjir laxar séu
farnir í gegnum teljarann í Beljanda
og einn hafi veiðst á urriðasvæði
langt uppi í á, áður en formlegt lax-
veiðitímabil hófst. „Þetta verður
bara að hafa sinn gang. Það er enn
eftir að veiða helminginn af ánni.
Það þarf að veiða þetta af viti.“ sagði
Þröstur að lokum.
Morgunblaðið/Golli
Boltalax úr Laxá David Thormar með fyrsta tuttugu punda lax sumarsins sem við sögðum frá í veiðipistli á síðasta
þriðjudag. Sá tók Black Ghost í Laxá í Aðaldal en veiðimaðurinn var á höttunum eftir urriða.
„Við erum að reyna að
láta þá veiða af bátum“
Næstbesta opnun frá upphafi í Selá Erfitt fyrir nýja
veiðimenn að komast að „Veiðimenn á tíræðisaldri“
Frábær veiði er þessa stundina í
Norðurá. Fyrsta 100 laxa hollið
lauk þar veiðum í fyrradag. Að
sögn Grétars Þorgeirssonar veiði-
varðar gengur laxinn hratt upp
ánna. Aðfaranótt þriðjudags fóru
200 laxar í gegnum teljarann í
Glanna og 100 nóttina á eftir.
„Þeir eru að moka alveg núna.
Einn var búinn að ná sex úr Poka í
morgun klukkan átta. Allt grálús-
ugum löxum,“ sagði Grétar, en
Poki er veiðistaður mjög ofarlega
í Norðurá, við rætur Holtavörðu-
heiðar. Hann sagði menn aðallega
notast við gárutúbur og smáar
flugur með þessum frábæra ár-
angri. Mjög heitt hafi verið síð-
ustu daga, 22 stiga hiti og vatns-
hitinn kominn yfir 12 gráður strax
í hádeginu.
Risastór sjóbirtingsganga
Í frétt á veiðivefnum krafla.is er
sagt frá mikilli sjóbirtingsgöngu í
Laxá í Kjós. Þar segir að veiðmenn
hafi orðið varir við mörg hundruð
væna birtinga sem hafi gengið
eina nóttina, beint uppá frísvæð-
ið. Haft er eftir heimildarmönnum
að um 200 vænir birtingar séu í
Káranesfljótinu einu. Nánast allt
sé þetta mjög vænn fiskur, 4-8
pund.
Fyrsta 100 laxa holl sumarsins úr Norðurá
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@mbl.is
EINAR Steingrímsson, prófessor
við Háskólann í Reykjavík, segir
það vekja efasemdir um að það hafi
staðist stjórnsýslulög þegar nokkrir
þeirra sem tóku þátt í að semja
reglur og velja áherslusvið fyrir svo-
kallaða markáætlun Vísinda- og
tækniráðs í fyrra sóttu um styrki og
hlutu brautargengi í fyrsta úrtaki.
Ekki í anda laganna
„Hluti Vísinda- og tækniráðs
myndaði hópinn sem valdi úr um-
sóknunum. Til stóð að ráðið sjálft
tæki endanlega ákvörðun um úthlut-
un en eftir athugasemdir frá hópi
háskólamanna breytti menntamála-
ráðherra því fyrirkomulagi og fól
stjórn Rannsóknasjóðs, sem rekinn
er samkvæmt stefnumótun Vísinda-
og tækniráðs og RANNÍS heldur
utan um, að taka ákvörðun um end-
anlega úthlutun. Það hlýtur samt að
brjóta í bága við anda stjórnsýslu-
laganna að sömu aðilar setji reglur
um úthlutun styrkja sem þeir sækja
svo sjálfir um eða taka ákvörðun um
úthlutunina,“ segir Einar.
Hann segir málsmeðferðina einn-
ig brjóta í bága við lögin um hlut-
verk sjálfs Vísinda- og tækniráðsins.
„Það á eingöngu að móta stefnu
stjórnvalda í þessum málaflokki,“
leggur hann áherslu á.
Gildir einnig um undirbúning
Margrét Vala Kristjánsdóttir,
lektor við lagadeild Háskólans í
Reykjavík, segir að samkvæmt 3.
gr. stjórnsýslulaganna eigi menn
ekki að taka ákvarðanir í eigin mál-
efnum eigi menn hagsmuna að gæta
eða ef um einhverjar aðrar aðstæð-
ur er að ræða sem draga úr óhlut-
drægni.
„Lögin segja að ef einhver er van-
hæfur til að taka ákvörðun gildi það
ekki bara um að taka hina endan-
legu ákvörðun, heldur líka að koma
að undirbúningi hennar. Ef ein-
hverjir aðilar eru teknir út sem eiga
að skoða ákvörðun og þeir eru van-
hæfir þótt þeir taki ekki endanlega
ákvörðun þá er það brot á vanhæf-
isreglum,“ segir Margrét.
Hún vill hins vegar ekki tjá sig
beint um hvort þessar reglur hafi
verið brotnar í tilfelli Vísinda- og
tækniráðs. „Það mál þyrfti að skoða
alveg sérstaklega til þess að geta
tekið afstöðu til þess.“
Efasemdir um að
Vísindaráð hafi
farið að lögum
Sé einhver vanhæfur til að taka ákvörðun
gildir það líka um undirbúning, segir lektor
Handbók með ítarlegum upplýsingum og veiðikortum fylgir.
Fæst hjá N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
31 vatnasvæði vítt og breitt um
landið fyrir aðeins 6000 krónur
Þú
ákveður
svo hva
r og
hvenær
þú
veiðir
veidikortid.is
Hver seg
ir að
það sé d
ýrt
að veiða
?
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
www.svfr.is – Sími 568 6050
Úrval veiðileyfa…
laxveiði
silungsveiði
…fyrir alla
VEIÐIMENN sem voru í Fnjóská
um síðustu helgi sögðust hafa orðið
varir við mikið af fiski í ánni. „En
hann kemst ekki uppfyrir Kolbeins-
pollinn og það er rosalega erfitt að
ná þeim, það er svo mikið vatn. 120
rúmmetrar á sekúndu.“ sagði Hjör-
leifur Steinarsson, en hann og félg-
ar hans náðu þó þremur löxum úr
ferðinni. Þeir fengu einnig níu sjó-
bleikjur auk nokkra staðbundinna
urriða sem þeir náðu í efri ánni.
„Við fórum á stað sem heitir Neðra
lækjarvik, sem er fyrir neðan Kol-
beinspoll. Þar sjáum við fullt af
bleikju sem er að reyna að stökkva
fossinn og einn og einn lax líka.
Áttatíu til hundrað og eitthvað
sentimetra langa. Mágur minn setti
í eitt svona kvikindi á spún. Maður
sá bara sporðblöðkuna og fékk
hroll. Hann skellti sér útí straum-
inn og sleit allt um leið.“
Mikið vatn í
Fnjóská