Morgunblaðið - 02.07.2009, Page 16
16 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2009
Innifalið í tjaldsvæðisgjaldi er eftirfarandi:
Heitir pottar, sturtur, aðgengi að interneti, óvenju fjölbreytt afþreyingar- og leiksvæði með
mini-golfi, trambólínum, risaleikkastala, leikjastétt og afþreyingardagskrá.
Verð pr. nótt: 900 kr. fullorðnir, 400 kr. börn 7-15, frítt börn 0-6.
Miðvikutilboð: 2 fyrir 1 - Helgartilboð: 3 fyrir 2
Söguvettvangurinn í Fossatúni er ævintýraganga þar sem hægt er að
kynnast tröllum, náttúru og örnefnum.
Fjölskylduvænt tjaldsvæði
Tjaldsvæðið í Fossatúni er stað-
sett í miðjum Borgarfirði, þaðan
er stutt í helstu ferðamannastaði
og þjónustu á Vesturlandi.
Greinagóðar upplýsingar á heimasíðu:
www.fossatun.is - Sími 433 5800
Páll Bergþórsson gerir sér þaðað leik að yrkja á hverjum
degi um veðurfarið á fasbókina,
eins og hann kallar hana, eða eitt-
hvert náttúrufyrirbrigði. 12. júní
tók hann fyrir sumarmóðu:
Hljóðir fuglar eggjum á
eiga von á góðu.
Akrafjall og Esjan blá
una í sumarmóðu.
13. júní: Skýjadeili.
Morgungeislar gægjast fram
gegnum skýjadeili,
koma auga á hól og hvamm,
Helgafell og Keili.
14. júní: Sólfarsvindur.
Vindar læðast létt og hljótt.
Landið dregur andann rótt,
að í dag en út í nótt.
Ekki er í bili lengra sótt.
15. júní: Bláber.
Hjalaði berjavísir vænn:
Víst er ég ennþá súr og grænn.
Síðar meir þegar sólin skín
sætur og blár ég freista þín.
16. júní: Dropinn í fossinum
Reis ég úr hafi í heiðloft blá,
hneig svo niður í bergvatnsá.
Loksins ég Huldu landsins sá.
Leitt er að hverfa í skyndi frá.
17. júní: Hlýnun
Undan þúsund ára fönn
ylurinn landið seiðir,
gróðurfeld í óða önn
yfir sandinn breiðir.
Hjálmar Freysteinsson gaf sig fram sem
höfund vísunnar:
Óli og Bína á Ysta-Hnaus
áttu sambúð góða.
Hann var alveg heyrnarlaus,
hún var blaðurskjóða.
VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is
Af veðri og náttúru
Þessi uppskrift úr bókinni er frá Hall-
dóri Halldórssyni bæjarstjóra og Guð-
finnu Hreiðarsdóttur
Fyrir 4–6.
1–1½ kg sólþurrkaður saltaður þorskur
½ dl hveiti
3 msk jómfrúarolía
75 g beikon, skorið í fína strimla
1–2 laukar, saxaðir
6–12 hvítlauksgeirar, skornir í sneiðar
1 kvistur ferskt rósmarín
½ rauð paprika, skorin í litlar sneiðar
½ græn paprika, skorin í litlar sneiðar
1 dl rauðvín
3 dl fisksoð
6 tómatar
100 g möndluspænir
Nýmalað salt og svartur pipar
Skerið saltfiskinn í jafna bita. Veltið
honum upp úr hveitinu og steikið á
pönnu í mjög heitri ólívuolíu. Látið
saltfiskstykkin á fat og kryddið með
svörtum pipar. Steikið því næst beik-
onið, laukinn, hvítlaukinn og papr-
ikurnar í ólívuolíunni í u.þ.b. 4 mín-
útur. Bætið rósmarínlaufunum og
rauðvíninu saman við, látið suðuna
koma upp og hellið þá fisksoðinu út í.
Látið nú allt sjóða saman í u.þ.b. 10
mínútur.
Skerið tómatana í tvennt og fjar-
lægið kjarnann með skeið. Skerið tóm-
atkjötið í litla teninga. Þurrristið
möndluspænina á pönnu og malið þá í
matvinnsluvél eða bara með skeið.
Þegar sósan er soðin er tómatbitunum
og möndlunum bætt út í. Ristaðar
möndlurnar þykkja sósuna, jafnframt
því að gefa gott bragð.
Saltið og piprið eftir smekk. Það er
hægt að mauka alla sósuna í mat-
vinnsluvél en hún er betri aðeins gróf-
ari og kornóttari með bitunum í.
Setið sósuna í eldfast mót og raðið
saltfiskstykkjunum ofan á. Setjið mótið
í 200°C heitan ofn í nokkrar mínútur
og berið svo fram, e.t.v. með góðri
kartöflumús, fersku salati og brauði.
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
Eigi einhver leið fram hjá Edinborgar-húsinu á Ísafirði á laugardagskvölder ekki ósennilegt að þeim hinumsama muni berast veisluglaumur,
ómur af tónlist og angan af krásum til vita og
eyrna. Þá fer fram í áttunda skipti salt-
fiskveisla Byggðasafns Vestfjarða, þar sem
boðið verður upp á dýrindis saltfiskkrásir úr
hráefni sem verkað er með aldagömlum aðferð-
um. Þá verður stiginn dans við lifandi tónlist
nokkurra þekktustu tónlistarmanna landsins.
„Fyrsta hátíðin var árið 2002 en við komum
henni á í tilefni 150 ára afmæli Ásgeirsversl-
unar sem var starfrækt í Neðstakaupstað á Ísa-
firði og var á sínum tíma einn stærsti útflutn-
ingsaðili á saltfiski hérlendis,“ segir Jón
Sigurpálsson, forstöðumaður Byggðasafnsins.
„Þetta heppnaðist svo vel að við héldum áfram
og þetta hefur verið óslitið síðan.“
Fyrir veisluna verkar byggðarsafnið sól-
þurrkaðan saltfisk samkvæmt gömlu aðferð-
inni, þar sem fiskurinn er breiddur út á fiskreit
safnsins. „Það er hinn raunverulegi bacalao
sem Spánverjar og suðrænar þjóðir eru svo
hrifnar af,“ heldur Jón áfram. „Venjulega höf-
um við fengið gestakokka til að matreiða fisk-
inn, menn sem allir eru rómaðir fyrir elda-
mennsku sína. Síðan hefur verið hlaðborð af
þessum réttum í veislunni og dansað eitthvað
fram eftir kvöldi.“
Dansað í Neðsta
Í ár stendur enn meira til en ella því Byggða-
safnið hefur ásamt Bókaútgáfunni Opnu ráðist
í útgáfu matreiðslu- og sögubókarinnar Veisl-
urnar í Neðsta en í henni er birtur drjúgur hluti
uppskrifta veisluréttanna sem töfraðir hafa
verið fram við þetta tækifæri í gegn um tíðina.
Bókinni fylgir geisladiskurinn Ball í Tjöruhús-
inu sem inniheldur tónlist Saltfisksveitar Villa
Valla en sveitin hefur séð veislugestum fyrir ið-
andi tónlist í gegn um tíðina, s.s. enskum valsi,
rúmbu, cha cha cha, sömbu og jive. Í hljóm-
sveitinni eru auk Vilbergs Vilbergssonar Jó-
hanna V. Þórhallsdóttir, Páll Torfi Önund-
arson, Tómas R. Einarsson og Matthías MD
Hemstock.
Það er ekki síst vegna þessarar útgáfu sem
búist er við enn fleiri gestum í veisluna í ár en
ella og því hefur verið ákveðið að færa hana í
Edinborgarhúsið úr Tjöruhúsinu, þar sem hún
er alla jafna haldin. „Í ár munu úrvalskokkarnir
okkar úr Tjöruhúsinu hins vegar hvíla gesta-
kokkana okkar,“ segir Jón og bætir við með
stolti að það ætti ekki að vera amalegt enda
þyki Tjöruhúsið með betri sjávarréttar-
stöðum landsins.
„Þetta er allt í léttum stíl og músíkin og
veisluglaumurinn skín í gegn um bókina,“ segir
Sigurður Svavarsson útgefandi hjá Opnu um
nýju bókina. „Samt er líka í henni mikill sögu-
legur fróðleikur. Mér þótti mjög gaman að lesa
um hvað Ísafjörður var undirlagður af þessum
hvíta fiski allt sumarið og hvað þetta var stórt í
sniðum og miklu meira en ég hafði gert mér
grein fyrir áður.“
Hvítur fiskur um allan fjörð
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Hráefnið Jón Sigurpálsson (í miðið) og starfsmenn af safninu voru hæstánægðir með verkunina á saltfiskflökunum þegar þeir skoðuðu þau í gær.
Katalónskur saltfiskréttur