Morgunblaðið - 02.07.2009, Side 23

Morgunblaðið - 02.07.2009, Side 23
Minningar 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2009 ✝ Guðmundur Jóns-son fæddist í Kjólsvík í Borgarfirði eystra 20. sepember 1918. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli laugardaginn 20. júní 2009. For- eldrar hans voru Jón Magnússon, f. 15. febrúar 1880, d. 24. ágúst 1946 og Sól- veig Sigurbjörns- dóttir, f. 12. júlí 1889, d. 28. nóvember 1927. Látin systkini Guðmndar eru, Kristberg, f. 15. janúar 1916, d. 5. desember 1996, Magnús, f. 3. júlí 1917, d. 13. nóv- ember 1981. Kristborg, f. 8. janúar 1923, d. 28. nóvember 1992. Eft- irlifandi systir hans er Sigurbjörg, f. 10. febrúar 1920. 3. júlí 1944, kvæntur Svanborgu Jónsdóttur, f. 14. apríl 1947. Sem ungur drengur fer Guð- mundur til Brúnuvíkur til Lukku og Sigurðar og er þar í tvö ár. Fer aftur heim til föður síns í Kjólsvík, eftir það stundaði hann búskap með bróður sínum Kristbergi í Breiðuvík en hætti búskap 1947. Kringum 1945 og 1946 byggir Guðmundur sér hús í Borgarfirði eystra og fór gangandi daglega frá Breiðuvík yfir Gagnheiði til Borg- arfjarðar. Var á vertíðum í Vest- mannaeyjum áður en hann flutti til Reykjavíkur um 1953, þar sem hann kynntist konu sinni Guðlaugu árið 1955. Vann við fiskvinnslu í Hraðfrystistöðinni á „Grandanum“ og lengi sem verkstjóri hjá Jón Halldórssyni í „Verbúð 23“. Frá 1980 vinnur hann hjá Garðastáli þangað til hann hættir vegna ald- urs. Útför Guðmundar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 2. júlí og hefst athöfnin klukkan 13. Guðmundur kvænt- ist 19. maí 1956 Guð- laugu Jóhanna Júl- íusdóttir frá Hokinsdal í Arn- arfirði, f. 12. janúar 1916, d. 21. mars 1997. Þau eignuðust tvo syni, a) Jón, f. 26. október 1956, kvænt- ur Guðrúnu Sig- urbjörnsdóttir, f. 11. maí 1953, þau eiga einn dreng Guð- mundur H., f. 2. febr- úar 1988, og b) Við- ar, f. 8. nóvember 1958. Fyrri maður Guðlaugar var Skúli Zophaníasson, f. 28. ágúst 1914., d. 4. júní 1948 og áttu þau tvo syni, a) Þóri, f. 17. ágúst 1937, kvæntan Unu O. Guðmundsdóttir, f. 10. október 1937, og b) Júlíus, f. Nú hefur hann tengdafaðir minn loksins fengið hvíldina, þetta hafa verið erfið ár í gleymsku Alzeimer- sjúkdómsins. Ég vil þakka honum samfylgd- ina í yfir þrjátíu ár. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Guð blessi þig, Guðmundur minn. Guðrún Sigurbjörnsdóttir. Ég gleymi því aldrei þegar ég var yngri og fór í heimsókn til afa með vinum mínum, hann tók á móti okkur með hoppum og ka- ratehreyfingum eins og hann væri 25 ára. Hann var hressari en nokk- ur annar maður áður en hann veiktist, hann keyrði um allan bæ, fór í sund hvern einasta morgun og var alltaf í löngum labbitúrum um allan bæ. Það var hreint ótrúlegt þegar við fórum til Borgarfjarðar eystra og hann sýndi okkur leiðina sem hann þurfti að labba frá Breiðuvík yfir í Borgarfjörð, til að byggja húsið sitt í Borgarfirðinum. Dugn- aðurinn og krafturinn í honum var gífurlegur alveg fram á seinasta dag. Þegar ég var kominn á 16 ár, þá byrjaði hann fyrst að spyrja „Jæja Helgi minn, hvenær á svo að fara finna sér konu og byggja handa henni hús?“ Þetta sagði hann við mig reglulega alveg þangað til hann veiktist svona gíf- urlega. Ég gleymi því aldrei þegar við fjölskyldan vorum stödd í litlum bæ í Þýskalandi og foreldr- ar mínir ákváðu að fara og sýna vini mínum kastalann á staðnum. Ég og afi höfðum séð hann marg- oft áður svo við fórum bara á eitt af okkar þó mörgu röltum. Þá fundum við þessa örsmáu búð inni í lítilli hliðargötu sem seldi viský. Þetta var ekki venjuleg áfengis- verslun, því að þarna gastu valið þér flösku og svo var tappað á flöskuna. Afi var ekki lengi að grípa einhverja mjög skrýtna flösku og fylla hana af viský, sá var sáttur. Svo settumst við niður á einhverjum litlum stað og feng- um okkur að drekka, það leið ekki á löngu fyrr en kallinn vildi fara aftur í búðina og hann keypti sér aðra flösku. Svo var ekkert talað meira um það, fyrr en komið var til Íslands, þá var vínið smakkað og vínið var svo gott að enn þann dag í dag er pabbi minn að reyna finna þessa búð. Ég mun alltaf muna eftir honum afa mínum, þessum litla orkubolta sem gat oft og tíðum verið meiri prakkari en ég. Loksins færðu að hitta ömmu sem þú ert búinn að sakna svo gífurlega og auðvitað líka systkinin þín þau Kristberg, Magnús og Kristborgu. Ef ég þekki þig rétt þá siturðu núna með bros á vör í Breiðuvíkinni að raula eitthvert lítið harmonikulag. Ég elska þig. afi minn. Þinn son- arsonur og nafni, Guðmundur Helgi. Guðmundur Jónsson ✝ Eiginmaður minn, JÓN ÍSBERG fyrrv. sýslumaður í Húnavatnssýslu, Brekkubyggð 36, Blönduósi, verður jarðsunginn frá Blönduóskirkju föstudaginn 3. júlí kl. 14.00. Þórhildur Ísberg. ✝ Elskuleg móðir mín, dóttir, systir og mágkona, HLÉDÍS GUNNARSDÓTTIR, Snægili 9, Akureyri, sem lést þriðjudaginn 23. júní, verður jarðsungin frá Garðskirkju í Kelduhverfi fimmtudaginn 2. júlí kl. 14.00. Elvar Pálsson, Kristveig Árnadóttir, Ómar Gunnarsson, Hrafnhildur Stella Sigurðardóttir, Árni Grétar Gunnarsson, Margrét Sigurðardóttir. ✝ Innilegt þakklæti til allra sem sýndu okkur ómetan- lega vináttu, hlýhug og samúð við andlát og útför okkar kæru móður, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, BIRNU SALÓMONSDÓTTUR. Salómon Viðar Reynisson, Þóra Lind Karlsdóttir, Ásgrímur Víðir Reynisson, Helga Þorsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, ÁRNI JÓHANNES HALLGRÍMSSON, Breiðuvík 6, Reykjavík, lést á Landspítalanum sunnudaginn 28. júní. Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánu- daginn 6. júlí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið og Hjartaheill. Ásdís Ásgeirsdóttir, Ása Árnadóttir, Sigurdór Friðjónsson, Kristjana Vilborg Árnadóttir, Hannes Björn Friðsteinsson, Guðrún Árnadóttir, Ásgeir Óskarsson, Ásgeir Þór Árnason, Karlotta Jóna Finnsdóttir, Hallgrímur Árnason, Sigurður Árnason, Kari Anne Østby, Dagný Árnadóttir, Hafsteinn Hróbjartur Hafsteinsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, FRIÐGERÐUR GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR, Engjavegi 34, Ísafirði, verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 4. júlí kl. 14.00. Steinunn S. L. Annasdóttir, Halldór Benediktsson, Vilhelm S. Annasson, Særún Axelsdóttir, Ásgerður H. Annasdóttir, Ómar Ellertsson, Bergþóra Annasdóttir, Kristján Eiríksson, Sigmundur J. Annasson, Agnes Karlsdóttir, Guðný Anna Annasdóttir, Sigurjón Haraldsson, Dagný Annasdóttir, Húnbogi Valsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SVERRIR LEÓSSON útgerðarmaður, Aðalstræti 68, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 7. júlí kl. 13.30. Auður Magnúsdóttir, Magnús Sverrisson, Unnur Dóra Norðfjörð, Ásthildur Sverrisdóttir, Jóhann Björgvinss., Ebba Sverrisdóttir, Sveinbjörn Bjarnason, Ragnhildur Sverrisdóttir, Steinar Sigurðsson, afabörnin og langafastrákarnir. ✝ Okkar frábæra móðir, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, INGA VALBORG EINARSDÓTTIR, Gullsmára 5, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudaginn 1. júlí. Jarðarförin fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 10. júlí kl. 13.00. Soffía Sveinsdóttir, Sveinn M. Sveinsson, Auður E. Guðmundsdóttir, Guðmundur G. Sveinsson, Einar Sveinsson, Arnild Mölnvik, Sigurður V. Sveinsson, Sigríður Héðinsdóttir, Þórlaug Sveinsdóttir, Guðmundur Friðjónsson, barnabörn, barnabarnabörn, barnabarnabarnabörn og makar þeirra. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ELÍSABET HANNESDÓTTIR íþróttakennari, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð að morgni miðvikudagsins 1. júlí. Anna Björg Sveinsdóttir, Ingólfur Sigmundsson, Ingveldur Sveinsdóttir, Þóra Sveinsdóttir, Sveinn Ingimar Sveinsson, Linda Margrét Arnardóttir, ömmubörn og langömmubarn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, MARGRÉT J. JÓNSDÓTTIR, Hlévangi, Keflavík, áður Sóltúni, Garði, lést aðfaranótt miðvikudagsins 1. júlí. Hafsteinn Júlíusson, Sigríður Auðunsdóttir, Kristín Oddbjörg Júlíusdóttir, Karl Ásgrímsson, Hreiðar Júlíusson, Salóme Kristinsdóttir, Guðný Júlíusdóttir, Helmuth Guðmundsson og ömmubörnin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.