Morgunblaðið - 02.07.2009, Side 32
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
HALLDÓR Guðmundsson, verk-
efnisstjóri vegna heiðursþátttöku
Íslendinga á Bókasýningunni í
Frankfurt 2011, hefur ráðið tvo
Þjóðverja til að sjá um ólíka hluta
hinnar íslensku sýningar, annars
vegar Matthias Wagner K sem list-
rænan stjórnanda og hins vegar
Thomas Böhm sem verkefnastjóra
bókmennta í Þýskalandi.
„Böhm mun hjálpa okkur að
koma íslenskum bókmenntum og
höfundum á framfæri við þýsk og
önnur erlend bókaforlög. Hann hef-
ur stjórnað lengi bókmenntastofnun
í Köln og er kunnugur öllum hnút-
um,“ segir Halldór. Wagner K sér
einkum um myndlist og það sem
snýr að henni, hann er reyndur sýn-
ingarstjóri og hefur unnið mikið
fyrir Ísland og með Íslendingum.
„Hann er s.s. að vinna í því að í
tengslum við þetta verði líka glæsi-
legt sýningarprógramm.“
Varanlegur ávinningur
„Það sem við viljum meðal annars
sjá og höfum verið að skoða er
möguleikinn á tengingu mismun-
andi listgreina sem yngri kynslóðin
á Íslandi hefur verið óhrædd við,“
útskýrir Halldór og nefnir sem
dæmi tengingu bókmennta við
myndlist og tónlist. „Mér finnst
meginatriðið í þessu að þetta sé
ekki bara ein hátíð heldur að það
komi út úr þessu einhver var-
anlegur ávinningur og það er nátt-
úrlega kosturinn við bækurnar, þær
verða til áfram.“
Spurður að því hvaða myndlist-
armenn fái að sýna verk sín eða
hvaða tónlistarmenn fái að leika
tónlist sína segir Halldór það fara
að hluta til eftir því á hverju þýskir
sýningarstjórar hafa áhuga.
„Sýningarstjórinn okkar úti setur
sig í samband við sýningarhaldara
sem eru í Frankfurt og kannski víð-
ar í Þýskalandi og svo bjóðum við
þeim hingað og þeir mynda sér sína
eigin skoðun. Ég held það sé ekki
endilega skynsamlegt að búa bara
til einhvern pakka og ætla að flytja
hann út heldur verðum við líka að
finna á hverju menn í útlöndum
hafa áhuga.“
Tveir Þjóðverjar ráðnir til að kynna íslenskar listir á Bókasýningunni í Frankfurt
Stjórar Matthias Wagner K, vinstra megin, listrænn stjórnandi íslenska hluta Bókasýningarinnar í Frankfurt og Thomas Böhm, verkefnisstjóri bókmennta.
Í HNOTSKURN
» Íslendingar eru heiðurs-gestir Bókasýningarinnar
í Frankfurt 2011, þeirri
stærstu sinnar tegundar í
heiminum. Heimasíða til-
einkuð þátttökunni hefur ver-
ið opnuð og er slóðin www.sa-
genhaftes-island.is.
» Fimm manns koma aðskipulagi íslenska hlutans.
Auk Halldórs, Böhm og Wag-
ners K eru það Rakel Björns-
dóttir aðstoðarverkefnisstjóri
og Katrín Árnadóttir, skipu-
lagsstjóri í Þýskalandi.
Möguleikinn á tengingu listgreina
32 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2009
12 ÞÚSUND gestir heimsóttu ís-
lenska skálann á Feneyjatvíær-
ingnum í júní og er það 70% fleiri en
sóttu skálann á seinasta tvíæringi
þegar Steingrímur Eyfjörð var
fulltrúi Íslendinga. Ragnar Kjart-
ansson er fulltrúi Íslands í ár og sýn-
ir tvískipt verk sem ber nafnið The
End, fremur gjörning fram til 22.
nóvember og myndbands- og hljóð-
innsetningu.
Af þessum 12 þúsund heimsóttu
fimm þúsund skálann á foropn-
unardögum 3.–7. júní. Þeirra á með-
al var listáhugafólk frá erlendum
söfnum og listastofnunum, eins og
segir í tilkynningu frá Kynning-
armiðstöð íslenskrar myndlistar,
KÍM.
„Sýningin er opin klukkustund
lengur á degi hverjum en árið 2007
en þó má skýra aukninguna að
mestu leyti með jákvæðri umfjöllun
sem sýningin hefur fengið í erlend-
um fjölmiðlum áður en hún var opn-
uð og einnig í kjölfar foropnunar-
daganna,“ segir í tilkynningunni. Þá
megi einnig gera ráð fyrir að aðsókn
að þjóðarskálum í næsta nágrenni
hafi haft sitt að segja um aðsókn.
Sýningin er opin alla daga nema
mánudaga og stendur til 22. nóv-
ember 2009.
70% fleiri
en árið 2007
Ragnar Hér með fyrirsætunni.
NÁTTÚRULEG fegurð er
heiti ljósmyndasýningar sem
opnuð verður í Skotinu í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur á há-
degi í dag. Þar sýnir ljósmynd-
arinn Stefán Steinn, sem hefur
verið búsettur í Danmörku frá
1993, myndröð sem sýnir nátt-
úruna í sinni einföldustu mynd.
Þótt viðfangsefnið sé list-
rænt og fallegt eitt og sér er
markmiðið samt sem áður að
vekja áhorfandann til umhugsunar og „horfa“ á
bak við það sem augað sér – og sjá það sem
ímyndunin nemur. Sýningin er opin virka daga kl.
12-19 og 13-17 um helgar og er aðgangur ókeypis.
Myndlist
Náttúruleg fegurð
Stefáns Steins
Mynd eftir
Stefán Stein
FYRSTU tónleikar í röð há-
degistónleika í Dómkirkjunni í
sumar verða á hádegi í dag kl.
12.15. Þar koma fram þau
Tómas Guðni Eggertsson, org-
anisti Grindavíkurkirkju og
verðandi organisti Seljakirkju,
og Sif Tulinius, annar kons-
ertmeistari Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands. Tómas Guðni
flytur verk eftir Bach og
Buxtehude, og saman spila þau
verk eftir Bach, Buxtehude, Gluck og Mascagni.
Tónleikarnir eru haldnir á vegum Félags ís-
lenskra organleikara í samvinnu við alþjóðlegt
orgelsumar í Hallgrímskirkju.
Tónlist
Sif og Tómas Guðni
í Dómkirkjunni
Tómas Guðni
Eggertsson
SIGRÍÐUR Níelsdóttir opnar
í dag sýningu á klippimyndum í
verslun 12 Tóna við Skóla-
vörðustíg. Í frétt um sýninguna
segir: „Það kveður við nýjan
tón í myndum hennar, him-
inblár og aðrir náttúrutónar
eru sérstaklega áberandi að
þessu sinni. Þetta er engin til-
viljun, því Sigríður flutti úr
Reykjavík á síðasta ári austur
á land og „sér nú betur í him-
ininn en áður“.“ Sigríður á fjölda aðdáenda því
auk þess að sinna myndlist hefur hún sent frá sér
rúmlega 60 geisladiska á undanförnum 9 árum og
vakið verðskuldaða athygli heima og erlendis.
Myndlist
Blárri blámi hjá
Sigríði Níelsdóttur
Sigríður
Níelsdóttir
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
GETUR verið að fagurfræðileg
tengsl séu milli arkitektúrs í Japan
og á Íslandi?
Þeirri spurningu veltir Guja Dögg
Hauksdóttir arkitekt fyrir sér í fyr-
irlestri sem hún kallar: Landslag og
fagurfræði – efni og hugsun í byggt
form, og haldinn verður í Norræna
húsinu á menningarhátíðinni 101 To-
kyo í kvöld kl. 20.
„Það sem í fyrstu slær mig sem
ólíkar nálganir í japanskri bygging-
arlist og þeirri vestrænu leiðir mig
að þeirri spurningu hvort Ísland sé
nokkuð svo sérstaklega vestrænt í
þessum skilningi þegar allt kemur til
alls. Við höfum þá sérstöðu að hafa
verið á jaðri evrópskrar menningar,
meðan Evrópubúar voru að temja
sína náttúru og leggja ása í gegnum
landslagið – drottna yfir umhverfi
sínu. Við stóðum utan við þetta, og
kannski getum við ekki tamið okkar
náttúru á sama hátt og Evrópubúar.
Kannski er hún einfaldlega of sterk.
Að því leyti eru mörg atriði í bygg-
ingarlist hér öðruvísi en á megin-
landinu. Japan er virkt eldfjallaland
eins og okkar land, þótt það sé grón-
ara og hlýrra,“ segir Guja.
Hún segir Japani hafa þá trú, eins
og Íslendinga, að í náttúrunni búi
alls kyns vættir. Afstaða þeirra til
náttúrunnar og þeirra óútskýrðu
afla sem þar búa sé því ekki ólík því
sem tíðkist meðal Íslendinga.
„Í vestræna heiminum hefur
áherslan verið á formið. Ef við för-
um til baka í tíma er áherslan meiri á
rýmið sem snertiflöt manns og nátt-
úru – ekki aðskilnað. Um aldir voru
húsin okkar beinlínis hluti af nátt-
úrunni og sennilega ekki meðvituð
fagurfræðileg hugsun í því, þótt
menn reyndu sig við ýmsar út-
færslur í torfhleðslum. Í Japan er
sama áhersla á rýmið, en ekki form-
ið og þeir eiga sérstakt orð, ma, yfir
þennan snertiflöt manns og náttúru.
Í samtímabyggingarlist á Íslandi
hafa arkitektar í vaxandi mæli verið
að leita í þetta og hugsað meira um
rými en form og unnið með sam-
hljóm manns og náttúru. Þessi virð-
ing fyrir náttúrunni, umfram það að
drottna yfir henni, er sameiginleg í
byggingarlist þjóðanna beggja.“
Guja Dögg Hauksdóttir talar um byggingarlist Íslands og Japans
Í samhljómi við náttúruna
Guja Dögg Líkindi með íslenskri
byggingarlist og japanskri.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
NORÐURLÖNDIN
verða í sviðsljósinu í
nýrri sumartónleikaröð
í Fella- og Hólakirkju
sem hefst í kvöld. Fern-
ir tónleikar verða kl. 20
á fimmtudagskvöldum í
júlí. Guðný Einars-
dóttir organisti í Fella-
og Hólakirkju skipu-
leggur tónleikaröðina.
Einleikur, kammer-
músík og kórsöngur verður á dag-
skránni, og meðal listamanna sem
koma fram eru Háskólakórinn í Ár-
ósum, Trio Nordic Block, David
Schlaffke organisti og Maryia
Semotyuk flautuleikari. Í kvöld
verður það þó organistinn sjálfur,
Guðný Einarsdóttir,
sem spilar, ásamt Evu
Þyri Hilmarsdóttur
píanóleikara. „Þetta
verður spennandi
prógramm í kvöld,
frönsk tónlist, mjög
bragðmikil. Við spil-
um báðar einleiks-
verk og svo saman
Messu fátækra eftir
Erik Satie sem er
frekar sjaldan flutt,“
segir Guðný. „Fella-
og Hólakirkja er gott
tónlistarhús. Það var fyrir tilviljun
að tónleikaröðin varð til. Tónlist-
armennirnir voru allir á leiðinni
hingað í sumar, og mér fannst upp-
lagt að bjóða þeim að halda tón-
leika hjá mér og gera úr því tón-
leikaröð.“
Bragðmikil músík
og Messa fátækra
Ný tónleikaröð, Sumartónar í Elliðaárdal,
hefur göngu sína í Fella- og Hólakirkju
Guðný Einarsdóttir
Þær sem hafa átt
þann draum að sjá
leikarann Magnús Jónsson
á sokkaböndum fá ósk
sína uppfyllta á næst-
unni33
»
Í umfjöllun um nýja plötu píanóleik-
arans Önnu Guðnýjar Guðmunds-
dóttur í gær kom fram rangt netfang
hjá listamanninum, fyrir þá sem
vilja panta sér eintak. Hið rétta net-
fang er agg@simnet.is. Beðist er
velvirðingar á þessu.
Leiðrétt