Morgunblaðið - 02.07.2009, Page 36
Í fyrsta sinn á Hróarskeldu
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
„ÞETTA verður há-
punktur ársins,“
sagði eftirvænting-
arfullur Sölvi Þór
Hannesson í samtali
við Morgunblaðið í
gær. Sölvi ætlar á
Hróarskelduhátíðina
í fyrsta skipti og seg-
ist hlakka mikið til.
Hann átti flug til
Danmerkur í nótt og ætlaði að vera mætt-
ur á tónleikasvæðið um hádegi í dag, en þá
hefst hátíðin formlega.
„Ég er mikill áhugamaður um tónlist og
því algjör draumur að komast á hátíð eins
og þessa.“
Og það væri seint hægt að saka Sölva
um að hafa ekki unnið heimavinnuna sína
fyrir hátíðina en hann er búinn að hlusta á
tónlist með öllum þeim sveitum sem fram
koma á hátíðinni, um 120 talsins.
„Þetta er búið að taka mig um tvo mán-
uði en ég er búinn að uppgötva heilan hell-
ing af skemmtilegri tónlist,“ segir Sölvi.
„Ég reyni að kaupa sem mest af tónlist-
inni og stunda ólöglegt niðurhal eins lítið
og ég mögulega get,“ segir hann en bætir
við að það sé vissulega orðið talsvert dýr-
ara áhugamál með slæmu gengi krón-
unnar.
Hlakka mest til Kanye West
Sölvi hlakkar mest til að sjá Kanye
West á hátíðinni, hann sé búinn að vera
aðdáandi hans lengi.
„Svo hlakka ég líka mikið til að sjá
Coldplay, Oasis og Slipknot svo fátt eitt sé
nefnt.“
Sölvi heldur úti bloggsíðu þar sem hann
er meðal annars búinn að búa sér til áætl-
un um hvaða tónleika hann ætlar að
sækja. Einnig hyggst hann skrifa fréttir
frá hátíðinni inn á síðuna, eftir því sem að-
stæður leyfa og er slóðin solvithor.blogs-
pot.com fyrir þá sem hafa áhuga á að
fylgjast með tónlistaráhugamanninum á
Hróarskeldu.
Sem fyrr segir er þetta í fyrsta sinn
sem hinn 17 ára Sölvi fer á hátíðina en
hann er búinn að sanka að sér heilræðum
frá sér reyndari Hróarskelduförum.
„Ég hef aðallega fengið ráðleggingar
um að pakka niður sólarvörn og stutt-
buxum,“ segir Sölvi en bongóblíða hefur
fram að þessu leikið við hátíðargesti og er
útlit fyrir að svo verði áfram yfir helgina.
AP
Rokk og ról Sól og blíða verður á Hróarskeldu í ár.
Sölvi Þór Hannesson
Sölvi Þór er búinn að hlusta á tónlist með öllum þeim 120 sveitum sem koma fram á hátíðinni
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2009
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
FLOTTASTA
HASARMYND
SUMARSINS
Frá leikstjóranum Michael Bay ásamt
stórleikurunum Shia LaBeouf, John Torturo
og kynþokkafyllstu leikkonu heims Megan Fox
„STÆRRI, FYNDNARI, FLOTTARI ...
EF ÞÚ FÍLAÐIR FYRSTU MYNDINA,
ÞÁ ÁTTU EFTIR AÐ DÝRKA ÞESSA!“
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!
„KRAFTMIKIL ADRENALÍNSPRAUTA
FRÁ UPPHAFI TIL ENDA.”
„RÚSSÍBANAMYND SUMARSINS ...”
S.V.
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
ATH: FYRSTA SÝNING ER KL. 13:30 Í ÁLFABAKKA
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
TRANSFORMERS 2 kl. 4D - 7D - 10D POWERS. KL. 10 10 DIGITAL
THE HANGOVER kl. 4 - 6D - 7 - 8D - 9:10- 10:20D 12 DIGITAL
CORALINE 3D m. ísl. tali kl. 43D L 3D DIGTAL
TRANSFORMERS 2 kl. 2 - 5:30 - 8D - 11D - Powersýning kl. 11 10 DIGTAL THE HANGOVER LÚXUS VIP kl. 3:40 - 5:50
TRANSFORMERS 2 kl. 8 - 11 - Powersýning kl. 11 LÚXUS VIP STAR TREK XI kl. 10:20 10
ÍSÖLD 3 m. ísl. tali kl. 1:303D - 3:403D - 5:503D L STÍGV. KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 L
ÍSÖLD 3 m. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 L HANNAH MONTANA kl. 5:50 L
THE HANGOVER kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 8:10 - 8:30 - 10:20 - 10:30 - 11 12
Á LISTA yfir þá rúmlega
100 listamenn sem fram
koma í tónlistarveislunni á
Hróarskeldu má finna
eftirfarandi nöfn:
Nick Cave
Coldplay
Nine Inch Nails
Oasis
Pet Shop Boys
Slipknot
Grace Jones
The Mars Volta
Mew
Lily Allen
Pete Doherty
Röyksopp
The Mars Volta
Kanye West
Trentemöller
Böndin á
Hróarskeldu