Morgunblaðið - 02.07.2009, Qupperneq 40
’Það er líka mín skoðun að allartekjutengingar við námslánin eigiað afnema. Þetta er jú lán sem greitter til baka en ekki gjöf! Hér er á ferð-
inni réttlætismál. » 20
HELGI HELGASON
’Mönnum er ljóst að ríkisstjórninverður að spara í ríkisrekstrinumog það verður að eyða fjárlagahall-anum á ákveðnu árabili. En almenn-ingur vill, að staðið sé að sparnaði og
skattahækkunum á réttlátan hátt. »
20
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
’Því miður er það of víða sem ekkier gert ráð fyrir okkur sem erum íhjólastól. Hvernig er t.d. Laugaveg-urinn með öllum sínum verslunum? Það er hægt að telja á fingrum ann-
arrar handar þær sem við komumst
inn í. Ef ekki eru tröppur úti þá eru
þær inni. » 20
JÓNA GUÐMUNDSDÓTTIR
’Í hvaða liði spilar ráðherrann?Spilar hann með þjóðinni, meðskuldsettum heimilum? Spilar hannmeð atvinnulífinu og þjóðinni semreynir að fá hingað erlenda fjárfesta,
atvinnuuppbyggingu? Eða spilar hann
með öðru liði? » 21
SIGURÐUR INGI JÓHANNSSON
’Með einfaldri breytingu á reglu-gerð frá árinu 2004 getur Alþingigert verðandi foreldrum kleift að leita til fleiri ættleiðingarfélaga enþessa eina félags sem haft hefur yf-
irumsjón með ættleiðingum á Íslandi
síðustu ár. » 21
ODDNÝ STURLUDÓTTIR
Skoðanir
fólksins
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 183. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SKOÐANIR»
Staksteinar: Rautt og milliliðalaust
Ísland
Forystugreinar: Návígi í vísindaráði
Flest erum við aflögufær
Pistill: Loksins pláss fyrir fólk?
Ljósvakinn: Brosað með augunum
í Tyru-fríi
FL Group gaf frá sér milljónir
Ekkert greitt af lánum … í fimm ár
Vextir … nema hundruðum milljarða
Kanna peningaþvott í …knattspyrnu
VIÐSKIPTI»
!
"
# $
%
%
"
&' ("'
" )
*+,-./
+01-*,
*0/-2.
+2-/0,
*/-3/
*,-.,3
**,-32
*-20.4
*/.-34
*31-0*
5 675 *# 89: +00/
*+,-1/
+01-,3
*0/-,3
+2-/3,
*/-141
*,-,*,
**3-0,
*-20/+
*/,-2+
*31-.*
+20-,403
&;<
*+3-*/
+0/-*1
*0/-//
+4-04,
*/-/0,
*,-,,.
**3-2/
*-2*2
*/,-/
*3/-0*
Heitast 22°C | Kaldast 10°C
Suðlæg átt, 5-10 m/s,
en hægari breytileg átt
eða hafgola N- og A-til.
Skýjað og þurrt að
mestu S- og V-til. »10
Tveir Þjóðverjar
hafa verið ráðnir til
þess að kynna ís-
lenskar listir á bóka-
sýningu í Frankfurt.
»32
LISTIR»
Þýskir
útsendarar
TÓNLIST»
Joe Pug heldur tónleika
á Rósenberg í kvöld. »33
Helgi Snær Sigurðs-
son skrifar um um-
deild verk Ragnars
Kjartanssonar í
Feneyjum og segir
þau vera einlæg. » 34
AF LISTUM»
List og
útskýringar
TÓNLIST»
Michael Jackson óttaðist
stöðugt um líf sitt. »38
TÓNLIST»
Paparnir enn í efsta sæti
Tónlistans. »36
Menning
VEÐUR»
1. Michael „kallaði á hjálp“
2. Árni átti í vök að verjast
3. Húsleit hjá Valitor
4. Læknir sagður faðir barna …
Íslenska krónan styrktist um 0,6%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
HÓPUR þekktra leikara undirbýr nú nýtt leikverk, Jesú
litli, er sett verður upp í Borgarleikhúsinu á nýju leikári.
Þar mun hópur trúða segja söguna af fæðingu Jesú
Krists en verkið er í anda Dauðasyndanna sem sýnt var á
síðasta leikári.
Benedikt Erlingsson leikstýrir verkinu en leikararnir
Bergur Þór Ingólfsson, Halldóra Geirharðsdóttir og
Kristjana Stefánsdóttir verða í trúðabúningum í hlut-
verkum sínum. Þrátt fyrir að innihald verksins sé unnið
úr jólaguðspjallinu og það sé flutt af trúðum er tekið sér-
staklega fram að sýningin sé ætluð fullorðnu fólki, en
ekki börnum. | 34
Trúðar undirbúa
fæðingu frelsarans
Benedikt
Erlingsson
GARÐAR Gunnlaugsson knattspyrnumaður hjá CSKA
Sofiu í Búlgaríu hefur fengið tilboð um að koma til félags í
Úsbekistan en hann yrði þá fyrstur Íslendinga til að reyna
fyrir sér í því fjarlæga landi. Garðar hefur ekki náð sér á
strik í Búlgaríu, meðal annars vegna meiðsla, en eigin-
kona hans, Ásdís Rán Gunnarsdóttir, hefur hins vegar
fengið mörg verkefni sem fyrirsæta.
„Mér líkar svo sem vel hérna í Sofiu en hvað fótboltann
varðar er eina vitið fyrir mig að færa mig um set. Það er
bara leiðinlegt að vera að rífa fjölskylduna upp með rótum
núna því krakkarnir eru búnir að koma sér vel fyrir og
konunni gengur náttúrlega vel,“ sagði Garðar. | Íþróttir
Garðar Gunnlaugsson
hugsanlega til Úsbekistans
Garðar
Gunnlaugsson
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
ÞORGEIRSKIRKJA í Ljósavatns-
skarði er opin alla daga í sumar og
guðfræðinemi eða prestur á staðn-
um frá klukkan 10 að morgni til 17
síðdegis. Á þeim tíma gefst ferða-
mönnum kostur á því að setjast nið-
ur við kertaljós í kirkjunni, íhuga,
hlusta á fallega tónlist, eiga jafnvel
bænastund og þiggja kaffi.
Kirkjan við Ljósavatn er eina
„vegkirkja“ landsins eins og und-
anfarin sumur. „Séra Gylfi Jónsson
átti hugmyndina að því að nýta
þessa fallegu kirkju á þennan hátt,
eftir að hann kom í „vegkirkju“ er-
lendis,“ sagði Matthildur Bjarna-
dóttir guðfræðinemi sem var við
störf í Þorgeirskirkju í gær þegar
blaðamann bar að garði.
„Fólki gefst kostur á því að skoða
staðinn og fá upplýsingar um hann
og síðast, en ekki síst, njóta þessarar
yndislegu altaristöflu, sem er örugg-
lega sú fallegasta á Íslandi og þótt
víðar væri leitað.“
Altaristaflan í Þorgeirskirkju er
vægast sagt óvenjuleg og sú eina hér
á landi, svo vitað sé, sem Guð almátt-
ugur skapaði sjálfur; gafl kirkjunnar
er risastór gluggi og fyrir utan blas-
ir náttúran við; Ljósavatn og fjöllin í
kring. Altaristaflan er því marg-
breytileg, eftir veðri og birtu.
Matthildur sagði einhverja koma í
kirkjuna alla daga og að gestir væru
fleiri um helgar en annars. Margir
væru þó enn helsti mikið að flýta sér.
„Það er meira um Íslendinga hér en
erlenda gesti í sumar og greinilegt
að Íslendingar eru farnir að ferðast
meira um landið sitt en áður.“
Kirkjan var reist Þorgeiri Ljós-
vetningagoða til heiðurs en hann bjó
á næsta bæ. „Hér getur fólk fræðst
um Þorgeir og síðan er upplagt að
leggja leið sína á eftir að Goðafossi,
þangað sem Þorgeir henti goð-
unum,“ sagði Matthildur Bjarna-
dóttir.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Óvenjuleg altaristafla Óhætt er að segja að altaristaflan í Þorgeirskirkju sé óvenjuleg og mismunandi er hún eftir veðri og því hvort sést til sólar.
„Fallegasta altaristaflan“
Ferðafólki boðið að staldra við í Þor-
geirskirkju við Ljósavatn alla daga