Morgunblaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 20
20 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2009 Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is VÍSBENDINGAR úr talningu í sum- ar á hrefnu á landgrunninu benda eindregið til að hrefnum hafi aftur fjölgað verulega. Í talningu 2007 kom í ljós að hrefnu hafði fækkað stórlega á landgrunninu frá árinu 2001. Talningu á hrefnu er nýlokið og liggja niðurstöður ekki fyrir. Gísli Víkingsson, hvalasérfræðingur á Hafrannsóknastofnun, segir að greinilega sé talsvert meira af hrefnu á landgrunninu en var árið 2007. Hins vegar sé það ekki jafnmikið og kom út úr mælingum árið 2001. Samkvæmt talningunni 2001 voru hrefnur við landið taldar 43.600, en aðeins 10-15 þúsund árið 2007. Ör- yggisfrávik eru veruleg hvað þessar tölur varðar. Við könnun í Faxaflóa síðasta sumar, sem er eitt þéttsetn- asta hrefnusvæðið, þótti ljóst að hrefnu var farið að fjölga aftur á land- grunninu. „Samfara vísindaveiðum á hrefnu árin 2003 til 2007 voru gerðar miklar rannsóknir á stofninum,“ segir Gísli. „Fækkun hrefnu var mikil á land- grunnssvæðinu árið 2007 og hugs- anlega árin á undan. Við vildum tengja þessa fækkun erfiðum fæðu- skilyrðum á landgrunnninu, en á þessum tíma bárust fréttir um af- komubrest hjá sjófuglum. Sandsíli hafði brugðist árin á undan og á þess- um tíma vorum við einmitt að fá nið- urstöður úr fæðurannsóknum hrefnu, sem sýna hversu mikilvægt sandsílið er hrefnunni á þéttasta svæðinu sunnan- og vestanlands,“ segir Gísli. Hann segir að fæðuvalið sé mismun- andi eftir landsvæðum og geti verið allt frá litlum sílum upp í boldungs- þorsk. Ekki liggi fyrir upplýsingar um hvar hrefnan hélt sig meðan fæðu- skilyrðin voru erfið hér við land. Skil- yrði hafi verið erfið til talningar úr skipum á sumum veigamiklum svæð- um árið 2007, en reynt hafi verið að telja hrefnu allt að ströndum Græn- lands og norður til Jan Mayen. Ýms- ar breytingar hafi orið á lífríki sjávar á síðustu árum og ekki sé ólíklegt að hrefnan hafi fært sig norðar til að afla fæðu. Ekki sé talið líklegt að hrun hafi orðið í hrefnustofninum. Hjá Hafrannsóknastofnun er verið að vinna úr rannsóknum sem gerðar voru á hrefnu 2003-2007. Niðurstöð- urnar verða kynntar fyrir Alþjóða- hvalveiðiráðinu innan tveggja ára. Hrefnustofninn að bragg- ast eftir nokkur mögur ár Ekki ólíklegt að hrefnan hafi haldið í fæðuöflun á norðurslóð þegar sílið brást Ljósmynd/Maria Iversen. Tveir mánuðir Merkið komið í steypireyðina á Skjálfandaflóa 23. júní, en síð- an hefur hún synt yfir átta þúsund kílómetra og sent reglulega frá sér merki. STARFSMAÐUR Hafrannsókna- stofnunar hefur í sumar gert mæl- ingar og tekið sýni úr þeim 85 hvöl- um sem komið hefur verið með að landi í Hval- firði. Úrvinnsla úr gögnum hefst strax í haust að vertíð lokinni. Gísli Víkings- son hvalasérfræð- ingur segir að miklar rann- sóknir hafi verið gerðar á langreyði árin 1986-89 þegar vísindaveiðar voru stundaðar og einnig hafi rann- sóknir verið gerðar áður. Mikilvægt hafi verið að taka upp þráðinn þegar veiðar hófust á langreyði síðastliðið vor því ýmislegt hafi breyst í sjón- um á síðustu tveimur áratugum. Kynþroski sveiflast „Síðan vísindaveiðunum var hætt fyrir 20 árum hefur langreyðum fjölgað talsvert milli Íslands og Grænlands, en þar er aðalveiði- svæðið,“ segir Gísli. „Við töldum því mikilvægt að taka sýni núna til að rannsaka aldur og kynþroska og einnig fæðu og orkubúskap. Við vilj- um vita hvort eitthvað er farið að sverfa að með auknum fjölda og hugsanlega aukinni samkeppni um fæðuna. Við könnum líka hvernig kynþroska er háttað, en hann hafði sveiflast talsvert og gat orðið á bilinu frá 8-12 ára. Við töldum á sín- um tíma að þetta væri tengt fæðu- framboði og vexti og viljum halda þessum rannsóknum áfram,“ segir Gísli. Elsta langreyður sem greind hef- ur verið hér við land var 94 ára. Fullvaxin langreyður er 18 til 22 metrar á lengd og vegur 40 til 70 tonn. Aðalfæða hér við land eru svifkrabbadýr, einkum ljósátan náttlampi, en einnig uppsjáv- arfiskur, loðna og síli. Langreyður dvelur á Íslandsmiðum frá maí og fram í október. Taka sýni úr veiddum langreyðum Vilja vita hvort sverf- ur að vegna fjölgunar Gísli A. Víkingsson Steypireyðurin sem merkt var í Skjálfandaflóa 23. júní hefur síðustu daga tekið því rólega suður af Reykjanesi. Á þessum tæplega tveimur mánuðum hefur dýrið farið víða og vonast vísindamenn til að fá upplýsingar frá send- inum sem lengst og hugsanlega fram á vetur þegar hvalir halda suður í höf. Haldið verður áfram með gervihnattamerkingar á hvölum í haust, en þær eru bæði flóknar og kostnaðarsamar. Nokkrum sinnum hefur slíkum sendi verið komið í hnúfubaka en merkin hættu að senda eða duttu úr dýrunum eftir skamman tíma. Fleiri en Íslendingar hafa átt í erfiðleikum með að fá merki frá hnúfubak, því hvalasérfræðingar víða um heim hafa átt í svipuðum vanda. Hnúfubakur er kvikur í yfirborði, stekkur gjarnan upp úr og lætur sig falla með tilheyr- andi bægslagangi, sem er ekki æskilegt fyrir viðkvæman tölvubúnað. Haldið áfram með gervihnattamerkingar Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is MEIRIHLUTI Íslendinga virðist ekki vera reiðubúinn að draga úr eig- in losun koldíoxíðs með notkun sam- göngutækja. Þetta kemur fram í könnun Andreu Eiðsdóttur og Höllu Bjarkar Jósefsdóttur sem þær unnu fyrir B.Sc lokaritgerð þeirra í við- skiptafræði úr Háskólanum í Reykja- vík á fyrri hluta þessa árs. Niðurstöð- urnar benda þó til þess að Íslendingar hafi engu að síður áhyggjur af loftslagsbreytingum og þegar þátttakendur voru spurðir hvort þeir væru sammála því að al- menningur, fyrirtæki og stóriðjufyr- irtæki ættu að greiða fyrir eigin losun gróðurhúsalofttegunda, sögðust flestir vera sammála því. Í rannsókn þeirra var leitast við að athuga hvort Íslendingar séu tilbúnir að draga úr eigin losun koldíoxíðs þegar kemur að samgöngum. Takmarkaður áhugi á almenn- ingssamgöngum í stað bíls Alls svaraði 321 þátttakandi spurn- ingalista sem lagður var fyrir þá. Þær benda á að hver Íslendingur losi um 3 tonn af koldíoxíði á ári, er meginástæðan sé mikil bílaeign landsmanna. Flestir svarendur töldu ólíklegt að bifreiðafjöldi þeirra muni minnka á næstunni og því bendi fátt til þess að bifreiðaeign þjóðarinnar muni drag- ast saman næstu tvö árin. Af þessu draga þær þá ályktun að landsmenn séu ekki tilbúnir til að draga úr losun koldíoxíðs þegar kemur að notkun fólksbifreiða. Aðeins fimmtungur þátttakenda sagðist vera tilbúinn að nota eingöngu almenningssamgöng- ur í stað þess að eiga bifreið. Segja þær niðurstöður rannsókna í öðrum löndum sýna að fólk sé viljugt til að notast meira við almenningssam- göngur til að draga úr losun gróð- urhúsalofttegunda „en hér á landi virðist vera minni vilji fyrir því“. Ófúsir að minnka eigin losun  Meirihlutinn ekki tilbúinn að breyta bílanotkun til að draga úr losun koldíoxíðs  Áhyggjur af loftslagsbreytingum  Almenningur og fyrirtæki greiði fyrir losun Morgunblaðið/Ómar Mikil bílaeign Hver Íslendingur losar um 3 tonn af koldíoxíði á ári. Aðeins lítill hluti Íslendinga hefur einhvern hug á að fá sér umhverfisvænni ökutæki á næstunni samkvæmt niður- stöðum rannsóknar Andreu Eiðsdóttur og og Höllu Bjark- ar Jósefsdóttur. Í könnun þeirra kom í ljós að um 9,5% svarenda sögðu mjög líklegt eða frekar líklegt að þeir mundu skipta yfir í umhverf- isvænna ökutæki á næstu 24 mánuðum. Flestir eða 44% töldu það aftur á móti mjög ólíklegt að þeir mundu skipta en 17% tóku ekki afstöðu til þess- arar spurningar. Ef eingöngu er litið á þá sem sögðu lík- legt að þeir mundu skipta yf- ir í umhverfisvænni ökutæki sögðu 27,6% ástæðuna þá að þeir vildu fá sér umhverf- isvænni bifreið. Rúm 51% sögðust vilja fá sér eyðslu- minni bíl. Tæp 10% segja lík- legt að þeir fái sér umhverfisvænni bíl SALA á sýklalyfjum er meiri á Ís- landi en annars staðar á Norður- löndunum, að því er kemur fram í árlegri norrænni samantekt. Á Íslandi voru seldir 23 skil- greindir dagskammtar á hverja 1.000 íbúa á dag í fyrra. Í Svíþjóð, þar sem sala sýklalyfja er minnst, var salan 15 skammtar á hverja 1.000 íbúa á dag. „Það er engin nýlunda að Íslend- ingar noti meira af sýklalyfjum en aðrar Norðurlandaþjóðir, hvað svo sem veldur því. Sumir hafa haldið því fram að þetta sé félagslegt en aðrir að þetta stafi af rysjóttri veðr- áttu nema hvort tveggja sé,“ segir Mímir Arnórsson, lyfjafræðingur hjá Lyfjastofnun Íslands. Mímir segir að dregið hafi örlítið úr notkun sýklalyfja hér. „Það hef- ur verið stíf herferð gegn óþarfri notkun þeirra. Hún veldur bæði lyfjafræðilegum og læknisfræðileg- um vanda því að smátt og smátt mynda bakteríur ónæmi gegn þess- um lyfjum.“ ingibjorg@mbl.is Morgunblaðið/Sverrir Sala sýkla- lyfja mest hér
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.