Morgunblaðið - 22.08.2009, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 22.08.2009, Qupperneq 27
Daglegt líf 27VIÐTALIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2009 Hvað þá að það breyti einhverju núna fyrir sextug börn.“ Hatur er öllum óhollt Allnokkrir íslenskir rithöfundar hafa látið til sín taka í kjölfar bankahruns með greinaskrifum, bókum um hrunið og þátttöku í mótmælum. Þú hefur ekki verið áberandi á þessum vettvangi. Af hverju ekki? „Það hefur aldrei látið mér vel að stíga fram og básúna út sýn minni á hin ýmsu þjóðfélagsmál. Það þýðir alls ekki að ég hafi ekki áhuga á þeim eða þau komi mér ekki við. Ég er einfaldlega sú gerð af höfundi sem þetta hentar ekki sérstaklega vel. Margir af kollegum mínum hafa staðið sig afskaplega vel á þessum vettvangi. Ég held að þær gríð- arlegu umbyltingar sem hér hafa orðið muni fyrr eða síðar skila sér í verkum allra rithöfunda sem á ann- að borð fjalla um eitthvað sem snertir raunveruleikann. Allt í einu erum við að lifa einn af stærstu at- burðum Íslandssögunnar. Og allt leitar út um síðir“ Hvernig horfir við þér, hvað gerðist og hverjum er um að kenna? „Ég er ekki reiðubúinn að segja hvað er nákvæmlega hverjum að kenna. Hvað þá hvað taka skal til bragðs. Við höfum nú horft upp á þrjár ríkisstjórnir í röð ekki vita sitt rjúkandi ráð um eitt eða neitt. Það væri því skrítið ef ég hefði þessi ráð. En auðvitað er ljóst að við höfum flest lifað í gríðarlegri blekkingu meðan stórabóla stóð yfir. Það varð öllum ljóst daginn eftir bankahrun- ið. En eins og segir einhversstaðar í nýju bókinni: Það var ekki fyrr en eftir hrunið sem allir sáu það fyrir. Ég held að það muni að lokum koma í ljós og verða nokkuð víðtæk samstaða um það hver meinsemdin var. Það er nauðsynlegt að komast til botns í þessum málum og kveisu- naglarnir þurfa allir að nást úr þeim kýlum sem verið er að rannsaka þó sársaukafullt verði. Annars er hætt við að ígerðin malli áfram og við sitj- um þá í besta falli uppi með þjóð- félag sem verður afskaplega örótt, ef ekki örkumla.“ Á þjóðin að vera reið mjög lengi? „Þjóðin hefur fullt leyfi til að vera reið. En reiðin ein og sér skilar af- skaplega litlu, jafnvel þótt hún sé réttlát, því hún leiðir til hugarfars sem er ákaflega neikvætt og lam- andi. Fólk þarf að beina huganum að uppbyggilegri tilfinningum. Ég er farinn að gera dálítið af því að yrkja heilræðavísur, til dæmis þessa ný- lega: Styðja á startara, stara á það bjartara, hafa séð það svartara, sussa á kvartara. Ég hef líka lagt til að „Maður hef- ur nú“ eftir Gunnar Reyni Sveins- son verði nýr þjóðsöngur Íslend- inga.“ Þú hefur aldrei verið sérstaklega flokkspólitískur, er það ekki rétt? „Ég hef aldrei verið í neinum stjórnmálaflokki.“ Þú hefur samt þó nokkrum sinn- um fengið yfir þig gusur vegna vin- áttu við Davíð Oddsson. „Jú, jú og það er allt í lagi, dálítill gusugangur er þó allténd skárri en eilíf lognmolla. Öll eigum við góða vini sem við kunnum vel að meta þó þeir séu umdeildir. En auðvitað eru í þjóðfélaginu hatursöfl á kreiki sem beinlínis vilja beina reiðinni á þenn- an eina stað. Mörgum hentar það vel og vönduð forvinna til staðar sem handhægt hefur reynst að grípa til. En ef þetta verður niðurstaðan er ég ansi hræddur um að batinn hjá okkur verði ekki mikill. Hatur er öll- um óhollt, óhollast þeim sem hatar.“ Innrás enskrar tungu Með reglulegu millibili heyrist sagt að íslenskan eigi undir högg að sækja, þjóðin sé að glata málvit- und og enginn geti lengur skrifað góðan stíl. Hvað heldurðu að sé rétt í þessu? „Í langan tíma hefur staðið yfir mikil innrás enskrar tungu og ef við höldum ekki vöku okkar þá getum við glatað tengslum við eigið mál og menningu og þá er illa farið. Í kvik- myndum, sjónvarpsþáttum og tölvu- heimum er enskan yfirgnæfandi. Vaxandi undanlátssemi er við þetta allt saman, jafnvel á stöðum þar sem ætti að standa fast á því að hlutir séu á íslensku. Æ algengara er til dæmis að heyra í fréttum og út- varpsþáttum óþýdd viðtöl við ensku- mælandi fólk. Þá er verið að segja við okkur: Ísland er tveggja mála land. Þetta er mjög skaðlegt. Við eigum að standa fast á því að ís- lenska sé opinbert mál á Íslandi. Al- þingi samþykkti reyndar síðastliðið vor íslenska málstefnu þar sem í fyrsta sinn er kveðið skýrt á um þetta. Ég held hins vegar ekki að ís- lenskur ritstíll sé á einhverjum sér- stökum villigötum eða fari daglega hnignandi. Sennilega hefur aldrei verið skrifað jafn mikið á íslensku og einmitt núna. Margt af því er ekki fagurt en íslenskan er líka brúksmál og aðalatriðið er að hún haldi áfram að vera nothæf og til í allt. Auðvitað detta á hana ein- hverjir blettir og á hana koma hrukkur en hún verður bara að þola það.“ Erfið áföll Í dag ertu sextugur. Er margt sem þú hefðir viljað hafa öðruvísi í þínu lífi? „Það er ekki margt sem ég hefði endilega viljað hafa öðruvísi af því sem mér er sjálfrátt. Ég starfa ekki mikið í Hefðiáttfélaginu. Ég tel að í heildina litið sé ég hamingjumaður þótt fjölskyldan hafi orðið fyrir mjög erfiðum áföllum. Því hefði ég auðvitað viljað breyta en það er bara ekki í mínu valdi. Við misstum tvo elstu syni okkar, Kristján lést tæp- lega þrítugur vorið 2002 og Ólafur lést 1998 tuttugu og þriggja ára.“ Hvernig komstu í gegnum þá miklu sorg? „Slíka sorg kemst maður ekki í gegnum heldur fer maður kringum hana aftur og aftur. Þegar maður uppgötvar svo að maður hefur þrátt fyrir allt einhvern veginn komist af og getur notið lífsins þá trúir maður því varla og segir við sjálfan sig: Gekk ég í gegnum slíka hluti? Gerð- ist þetta í raun og veru? Ég lýsti þessari tilfinningu einhverntíma í ljóði: Ferðin heldur áfram og hún getur verið ágæt en hún er allt önn- ur en til stóð. Maður leggur upp frá nýjum stað og þar getur landslagið verið fagurt og margt skemmtilegt borið við en það hefur samt orðið stefnubreyting. Maður neyddist til að taka annan kúrs en maður var á.“ Trúirðu á Guð? „Að þýfga mig mikið um trúmál er álíka gáfulegt og að yfirheyra raf- virkja eða pípara um tæknileg smá- atriði í múrverki eða úrsmíði. Ég er trúheftur, þarna er bara heilt svið sem vantar í mig. Þar með er ekki sagt að ég vilji meina að ekkert sé manninum æðra. Ég get alveg ímyndað mér einhvers konar óræð- an alheimsanda sem er okkur æðri. En frá mínum bæjardyrum séð þarf slík afstaða ekki að eiga neitt skylt við trúarbrögð. Kannski er hún bara liður í því að geta hrifist, eins og maður hrífst af fagurri list og mik- ilfenglegu landslagi. Formleg guðstrú er ekki mín deild.“ Heimsmet á afmælisdaginn Hvað er framundan hjá þér á rit- vellinum? „Ég er með einar tvær skáldsögur í smíðum, mislangt komnar og hef unnið í þeim með hléum en þó jafnt og þétt. Ég ætla ekki að segja um hvað þær eru eða sýna neinum inn á verkstæðið meðan þar er allt á rúi og stúi. Svo er ég með nokkur ljóða- prójekt í gangi og smásögur verða til jafnt og þétt auk þýðinga. Kost- urinn við rithöfundarstarfið er sá að það er ekki hægt að verða atvinnu- laus.“ Hvernig ætlarðu að halda upp á afmælisdaginn? „Ég held upp á afmælið mitt með því að hlaupa hálfmaraþon. Ég er á sérsamningi við þá sem sjá um Reykjavíkurmaraþonið, þannig að ég hef einn manna fengið að skipta heilu maraþoni milli ára. Ég er þakklátur fyrir það en hef reyndar orðið að sæta því að árið sem líður á milli reiknast inn í tímann minn. Að þessu sinni er ég að ljúka við hlaup sem ég ætlaði að klára í fyrra en varð að hætta við vegna lasleika. Ég lýk því við hlaup núna sem hófst 2007. Tíminn í þessu heila maraþoni sem ég vonast til að klára í dag verður því væntanlega tvö ár og ríf- lega fjórir klukkutímar. Ég held að enginn hafi hlaupið maraþon á jafn löngum tíma, þannig að þetta verður heimsmet.“ Morgunblaðið/Kristinn » Þjóðin hefur fullt leyfi til að vera reið. Enreiðin ein og sér skilar afskaplega litlu, jafn- vel þótt hún sé réttlát, því hún leiðir til hugarfars sem er ákaflega neikvætt og lamandi. Fólk þarf að beina huganum að uppbyggilegri tilfinningum. Ég er farinn að gera dálítið af því að yrkja heilræða- vísur, til dæmis þessa nýlega: Styðja á startara, stara á það bjartara, hafa séð það svartara, sussa á kvartara.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.