Morgunblaðið - 22.08.2009, Side 34
34 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2009
✝ Oddgeir Guð-jónsson fæddist í
Tungu í Fljótshlíð 4.
júlí 1910. Hann lést
föstudaginn 14. ágúst
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Guðjón Jónsson, f.
20.3. 1872, d. 5.4.
1952 og Ingilaug
Teitsdóttir, f. 4.8.
1884, d. 26.7. 1989.
Systur Oddgeirs eru
Guðrún, f. 17.3. 1908,
d. 14.6. 2001, Sig-
urlaug, f. 8.6. 1909
og Þórunn, f. 11.8. 1911.
Oddgeir kvæntist 2.5. 1942 Guð-
finnu Ólafsdóttur ljósmóður, f.
19.7. 1922, d. 28.8. 2008. Hún var
dóttir Ólafs Sveinssonar og Mar-
grétar Steinsdóttur, bænda á
Syðra-Velli í Flóa. Börn þeirra eru:
1) Guðlaug læknaritari á Hvols-
velli, f. 1945, gift Sigurði Sigurðs-
syni húsasmíðameistara, f. 1942.
Börn þeirra: a) Elín Rósa, f. 1967,
búsett í Reykjavík. b) Sigurður
Oddgeir í Reykjavík, f. 1972,
kvæntur Hallveigu Sigurðardóttur,
f. 1963, sonur þeirra Sigurður
Oddgeir, f. 2004. Dætur Hallveigar
frá fyrra hjónabandi Þórhalla
Mjöll og Rakel Sif Magnúsdætur, f.
Rangæinga 1956-1980, formaður
ungmennafélagsins Þórsmerkur, í
skólanefnd frá 1954 og formaður
1958-1962, sat í sóknarnefnd, í
stjórn Kirkjukórs Fljótshlíðar, var
formaður Gróðurverndarnefndar
Rangárvallasýslu, sat í sveit-
arstjórn Fljótshlíðarhrepps 1974-
1982, í sýslunefnd 1977-1987, í
sáttanefnd, sat í varastjórn MBF,
formaður ritverksins Sunnlenskar
byggðir og sat í útgáfustjórn
Goðasteins. Þau Guðfinna fluttu á
Hvolsvöll 1991. Oddgeiri var veitt-
ur riddarakross hinnar íslensku
fálkaorðu fyrir fræðastörf og efl-
ingu íslensks handverks árið 2003.
Oddgeir stundaði fræði- og rit-
störf, skrifaði greinar í Goðastein,
á ljóð í Rangæskum ljóðum og
samdi nokkur sönglög. Síðustu ár-
in söng hann með kór eldri borg-
ara á Hvolsvelli. Hann stundaði
ættfræðirannsóknir, safnaði ör-
nefnum og þjóðlegum fróðleik, sér-
staklega um Fljótshlíðina. Hann
hafði dálæti á Njálssögu og var
fróður um Njáluslóðir. Oddgeir
var hagleiksmaður og í seinni tíð
vann hann smámuni úr tré og sótti
námskeið í útskurði. Meðal starfa
hans á seinni árum var að taka
þátt í endurbyggingu á Breiðaból-
staðarkirkju.
Útför Oddgeirs verður gerð frá
Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð í
dag, 22. ágúst, og hefst athöfnin
klukkan 14.
1994. 2) Ólafur
Sveinn dýralæknir í
Ayton í Skotlandi, f.
1951, kvæntur Fionu
MacTavish hjúkr-
unarfræðingi, f. 1956.
Synir þeirra Geir f.
1988, og Brynjar f.
1989. Ólafur var áður
kvæntur Elínu Mar-
gréti Jóhannsdóttur,
f. 1952. Dætur þeirra
eru a) Hulda f. 1970,
gift Árna Jóni Egg-
ertssyni, f. 1970. Syn-
ir þeirra Ólafur
Þorri, f. 1996, Kjartan Bjarmi, f.
1998 og Elvar Breki, f. 2002. b)
Berglind f. 1976, sambýlismaður
Alexander Biesinger f. 1972. Synir
þeirra Róbert, f. 2002 og Daníel, f.
2005. c) Arndís Finna f. 1978, sam-
býlismaður Niklas Johansson f.
1974. Sonur þeirra er Rasmus
Bjarki, f. 2008.
Oddgeir ólst upp í Tungu í
Fljótshlíð. Hann var til sjós 1928-
1941, vann sem smiður í Reykjavík
1941-1942 og tók síðan við búi af
föður sínum vorið 1942. Oddgeir
var hreppstjóri Fljótshlíðarhrepps
1959-1984, sat í stjórn Bún-
aðarfélags Fljótshlíðarhrepps
1946-1976, í stjórn Kaupfélags
Nú er afi minn horfinn á braut.
Hann ætlaði aldrei að verða 100 ára og
hann stóð við það. Hann var einn af
föstu punktunum í minni tilveru og
þótt hann hafi verið tilbúinn að yfir-
gefa þetta jarðlíf, þá er sárt að missa
þann sem manni þykir vænt um.
Það eru margar minningarnar sem
koma upp í hugann þegar hugsað er til
baka. Ljúfustu minningarnar mínar
um afa eru sennilegar stundirnar eftir
mat í Tungu þegar afi sagði sögu.
Helst var það sagan um Búkollu sem
hann sagði mér og það er sú saga sem
ég hef síðan sagt börnunum mínum
þegar beðið er um sögu. Eitt sumar
vann ég á Tumastöðum og bjó þá í
Tungu hjá afa og ömmu. Á þeim tíma
var amma oft að vinna á Selfossi,
þannig að við afi vorum ein í kotinu.
Við áttum notalegt sumar saman það
árið og ég kynntist afa betur en áður.
Það var mikið lesið og stundum spilaði
afi á orgelið. Þetta orgel skipar reynd-
ar stóran sess í huga mér þegar hugs-
að er til baka til heimsókna í Tungu.
Við fengum alltaf að glamra á orgelið
og afi reyndi stundum að kenna okkur
einföld lög.
Efst í huga mér á þessari stundu er
þakklæti fyrir allar góðu stundirnar í
Tungu og á Hvolsvelli sem ég átti með
afa mínum. Hvíldu í friði, elsku afi.
Hulda.
Oddgeir í Tungu var sómamaður.
Hann unni Hlíðinni sinni fögru og
kenndi okkur að meta sveitina, náttúr-
una, að þekkja jurtir og fugla, þjóð-
legan fróðleik og örnefni. Hann las
fyrir okkur sögur, og kenndi okkur
sönglög og sálma. Okkur eru kær
sumrin í Tungu þar sem við tókum
þátt í bústörfunum og lærðum um-
gengni við dýr og vélar.
Iðjusemina lærðum við í Tungu því
okkur var kennt að láta ekki verkin
bíða. Afi lét helst ekki verk úr hendi
falla og hélt vinnusemin honum gang-
andi allt fram í andlátið. Hann sagði
stundum að hann væri eins og gömul
maskína sem mætti ekki stoppa, þá
færi hún ekki í gang aftur. Sem dæmi
má nefna að á þriðja degi af viku ferða-
lagi í Skotlandi í tilefni níræðisafmæl-
isins lét hann þau orð falla að „heima
biðu hans ótal verkefni“, og hvort ekki
væri ráð að halda heim. Að sitja auð-
um höndum átti ekki við hann.
Hann hvatti okkur til náms og var
stoltur af afrekum okkar þó að hann
skildi ekki almennilega hvers vegna
við þurftum að þvælast til útlanda til
að ganga í skóla eða vinna. Hann var
glaðastur þegar við komum heim aft-
ur.
Að fæðast í torfbæ í sunnlenskri
sveit og lifa í næstum heila öld og upp-
lifa tæknibyltingar eins og tunglgöng-
una og fjarskiptabyltinguna eru um-
breytingar sem okkar kynslóð getur
ekki gert sér í hugarlund. Afi nýtti sér
tæknina en gleymdi aldrei upprunan-
um og því sem forfeðurnir höfðu kennt
honum. Hann hafði sérstaka unun af
smíðum og vann stóra og smáa smíða-
gripi fram í háa elli.
Afi var það sem í dag myndi vera
kallað „mjúkur maður“ og framsýnn.
Hann var jafnréttissinni, kannski
vegna þess að hann ólst upp með
þremur systrum sem gengu í öll verk.
Um miðja síðustu öld var ekki sjálf-
gefið að giftar konur í sveit sæktu sér
menntun, en afi sá ekkert því til fyr-
irstöðu að amma lærði til ljósmóður og
stundaði vinnu utan heimilis meðfram
bústörfum. Afi eldaði og bakaði og við
vöndumst því að engin störf væru sér-
stök karla- eða kvennastörf. Voru
vöfflurnar hans rómaðar í Hlíðinni.
Hann var sjálfstæður maður sem
vildi ógjarnan vera upp á aðra kominn.
Missir hans var mikill þegar amma féll
óvænt frá í ágúst í fyrra. Hann saknaði
hennar á hverjum degi. Hann bjó einn
eftir andlát ömmu og vildi ekki hafa
það á annan veg. Þegar við systkinin
buðumst til að keyra fyrir hann þáði
hann það oftast, en þó með þeim orð-
um: „en ég get alveg keyrt sjálfur“,
sem var laukrétt. Hann þvertók líka
fyrir að fara á elliheimili fyrr en hann
væri orðinn gamall.
Við kveðjum sómamanninn afa okk-
ar Oddgeir í Tungu í dag og þótt sökn-
uðurinn sé mikill gleðjumst við líka því
nú eru afi og amma saman á ný.
Því er ekkert eftir nema að þakka
fyrir allar góðu stundirnar, allar gjaf-
irnar, og þá er ekki vísað til þeirra ver-
aldlegu heldur hinna, minninganna og
lærdómsins sem lifir í huga okkar og
hjarta.
Elín Rósa Sigurðardóttir,
Sigurður Oddgeir Sigurðsson.
Þegar síminn hringdi eftir miðnætti
vissi ég hvers eðlis var. Ósköp fannst
mér það nú viðeigandi að nafni þinn og
vinur fékk tíðindin fyrstur um andlát
þitt, elskulegi afi Oddgeir. Svona haga
örlögin sér stundum einkennilega.
Mín fyrsta hugsun var: Nú er kátt í
Paradís, Oddgeir kominn aftur til
Finnu sinnar.
Fráfall hennar var þér erfitt og
þungt í fyrra og þú aldrei meira en
hálfur maður eftir brotthvarf hennar.
Söknuður þinn rauf stórt skarð í líf þitt
og varð þér tíðrætt um það.
Alltaf var jafn gott að leita til þín
þegar um smíðaverk var að ræða enda
mikill hagleiksmaður þar að verki.
Eru mér efst í huga kistusmíðar
þínar fyrir kisurnar okkar. Kisturnar
urðu þrjár og sú síðasta í fyrra undir
20 ára gömlu Kisu okkar.
Ég varð þeirra gæfu aðnjótandi að
þú færðir mér útskorinn prjónastokk
árið 2005 sem er listasmíði og fagur-
lega útskorinn. Þykir mér alveg ein-
staklega vænt um þennan grip. Ger-
semi sem mun ylja mér um
hjartarætur um ókomna tíð og minna
mig á þig.
Það verðu skrítið fyrir afastrákinn
þinn og nafna að fara ekki í heimsókn
til þín þegar við förum austur í kom-
andi framtíð. Þú varst í miklu uppá-
haldi hjá honum og afar kær, enda
mikill afastrákur, þessi elska.
Elsku Guðlaug mín. Núna myndast
mikið tómarúm hjá þér. Umhyggja
þín og óendaleg iðni var Oddgeiri mikil
blessun. Ekki síst eftir að móðir þín
féll svona skyndilega frá. Það var hon-
um ómetanlegt að eiga svona góða og
umhyggjusama dóttur til að aðstoða
sig við það sem til þurfti.
Ég kveð þig, elskulegi Oddgeir afi,
með þakklæti og virðingu fyrir þá
blessun að hafa fengið að kynnast þér.
Góða ferð og ég bið að heilsa Finnu
ömmu. Guð geymi ykkur sæmdar-
hjón.
Aðstandendum sendi ég mínar inni-
legustu samúðarkveðjur og bið Guð að
geyma ykkur.
Hallveig Sigurðardóttir og börn.
Oddgeir í Tungu er horfinn á braut
og með honum saga heillar aldar. Fjöl-
mennt ættar- og vinalið „saknar
manns úr ranni.“ Hvar sem hann fór
þá setti hann þann svip á umhverfið að
eftir var tekið. Andlátsfregnin kom
mér á óvart þótt æviárin væru orðin
mörg. Fram á þetta ár ók Oddgeir bíl
sínum um götur Hvolsvallar, sótti
heim vini og söng í kór eldri borgara.
Hann var mér lengi einna hugstæð-
astur allra vandalausra manna.
Við vorum báðir vaxnir úr sama
góða jarðvegi íslenskrar alþýðumenn-
ingar, áttum sama áhuga á sögu og
fræðum sögulands, unnum jafnt ljóð-
um og lögum, gátum glaðst með glöð-
um og hryggst með hryggum. Um-
fram mig hafði Oddgeir mikinn
hagleik handa og góðrar ljóðlistar.
Margar lausavísur hans á léttum nót-
um urðu héraðsfleygar. Sönglög hans
munu lengi lifa manninn. Lengi prýddi
hann kirkjusöng á Breiðabólstað með
fagurri bassarödd. Þykkar skjala-
möppur varðveita nú iðju fræðimanns-
ins, bændatöl og örnefnaskrár úr
Fljótshlíð og merkir sagnaþættir, auk
annars efnis. Okkur Rangæingum er
það vansi að hafa ekki efnt til Odd-
geirsbókar úr þeim fræðasjóði.
Löngum var mér það að ráði í fræða-
sýsli er rak í strand að slá á þráðinn til
Oddgeirs og varð alltaf að góðu bætt-
ari.
Oddgeir hafði góðar forsagnir á öll-
um hlutum bæði hvað varðaði búsýslu
og almenn mál. Hann var lengi einn af
forystumönnum sveitar sinnar í fé-
lagsmálum og sveitarstjórn. Hin
seinni árin fannst mér hann vera topp-
urinn á mannlífi Rangárþings og réðu
því í senn aldur og mannvit. Ekki gat
skemmtilegri mann í kynnum. Af
fundi hans fór maður að jafnaði fróðari
Oddgeir Guðjónsson✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
GÍSLI ALBERTSSON
húsasmíðameistari,
Engihjalla 17,
Kópavogi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð föstu-
daginn 14. ágúst.
Útför hans fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn 24. ágúst
kl. 13.00.
Vilborg Guðrún Víglundsdóttir,
Arndís Gísladóttir, Ingvi Þór Ástþórsson,
Viglundur Gíslason, Yuka Yamamoto,
Albert Gíslason, Ólöf Erna Ólafsdóttir,
Birgir Gíslason, Kristjana Schmidt,
Guðrún Ósk Gísladóttir, Jóhann S. Ólafsson,
Þórhildur Gísladóttir, Hallur Egilsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir mín, amma okkar og langamma,
SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR
frá Stardal,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund miðviku-
daginn 19. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Lágafellskirkju Mosfellsbæ
miðvikudaginn 26. ágúst kl. 15.00.
Sigrún Gunnarsdóttir,
Ingimundur Ellert Þorkelsson, Aðalheiður Lind Þorsteinsdóttir,
Heiða Mjöll Stefánsdóttir, Hörður Harðarson,
Alexandra Eyfjörð, Anna Steina og Aron Andri,
Baldur Elfar, Alda Björk, Unnur Mjöll og Hlynur Breki.
✝
Ástkær móðir, tengdamóðir og amma,
HEIÐA MAGNÚSDÓTTIR
frá Haukadal,
lést á dvalarheimilinu Lundi þriðjudaginn 18. ágúst.
Útförin fer fram frá Skarðskirkju þriðjudaginn
25. ágúst kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Ólafssjóð
og Krabbameinsfélagið.
Atli Haukur, Teitur og fjölskyldur.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGMUNDUR GUÐMUNDSSON
stýrimaður,
Hraunbæ 92,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
aðfaranótt miðvikudagsins 19. ágúst.
Þórdís Eggertsdóttir,
Sigríður Birgisdóttir, Sigurður Hafsteinn Steinarsson,
Hafþór Freyr Sigmundsson, Kristín Helga Ólafsdóttir,
Ingibjörg Sigurðardóttir,
Þórir Björn Sigurðarson,
Steinar Orri Hafþórsson,
Ólöf Hafþórsdóttir,
Þórdís Hafþórsdóttir,
Sigmundur Freyr Hafþórsson
og langafabörn.
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HALLDÓRA HALLDÓRSDÓTTIR
frá Vörum,
Garði,
lést á Garðvangi, Garði, fimmtudaginn 20. ágúst.
Þórður Kr. Kristjánsson, Ásta Guðmundsdóttir,
Guðmundur Þórðarson, Kristín Couch,
Dóra Þórðardóttir Ramsey, William Tomas Ramsey,
Petra Þórðardóttir,
Anna Rós Guðnadóttir,
Ásta Bergmann Guðnadóttir,
Bríet Guðmundsdóttir,
Marín Guðmundsdóttir,
Lillian Marin Ramsey.