Morgunblaðið - 22.08.2009, Síða 48
48 Menning
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2009
Mikið er ánægjulegtað sjá að Raimi erhorfinn aftur á vithrollvekjunnar, þó
ekki sé nema um sinn. Drag Me
to Hell er líkt og fyrstu verkin
hans (The Evil Dead, Darkman)
gerð í anda gömlu góðu hryll-
ingsmyndanna þar sem spenna
illsku og fordæðuháttar grípur
áhorfandann heljartökum. Raimi
er hátt yfir það hafinn að hræða
bíógesti með þeim ódýru brell-
um og subbuskap sem oftar en
ekki einkennir þessa ágætu
kvikmyndagrein upp á síðkastið.
Sagan sjálf er ekki ýkja frum-
leg, minnir óneitanlega á Thin-
ner, eftir Stephen King, en
Raimi bætir og kætir ófögn-
uðinn með sínum görótta gálga-
húmor svo skelfingin fær aukna
útrás í móðursýkislegum hlátra-
sköllum.
Myndin ætti að vera skyldu-
áhorf bankastarfsmönnum, ég
mæli með að ríkisstjórnin sendi
nokkra rútufarma í bíó til að
sýna þjónustufulltrúum og þeim
sem æðri þeim eru í gogg-
unarröðinni að hæg er leið til
Helvítis ef þeir neita bág-
stöddum um umbun. Því kynnist
bankamærin Christine Brown
(Lohman), hún er á höttunum
eftir stöðuhækkun en húsbóndi
hennar efast um harðfylgni
hennar og ákveðni. Þegar Frú
Ganush (Raver), níðfátæk sí-
gaunakona, biður um vesæla
framlengingu svo hún haldi hús-
kofa sínum notar Christine
tækifærið og neitar, aðallega til
að viðra hörðu hliðina.
Hún veit ekki blessunin hvað
hún er að kalla yfir sig því Ga-
nush reynist rammgöldrótt og
leggur bölvun á Christine eftir
að bankamærin hefur auðmýkt
hana á ögurstund. Nornin legg-
ur á og mælir um að hún verði
komin í greipar djöfulsins La-
miu innan þriggja sólarhringa.
Það sem tekur við er mein-
fyndinn ófögnuður þar sem hin
pena og prúða Christine breytist
í flagð undir fögru skinni til að
flýja eldinn og brennisteininn.
Hún er óbangin við að grípa til
örþrifaráða, enda siðferðinu voð-
inn vís ef við blasir hraðferð til
Heljar. Lohman er einkar trú-
verðug og afgreiðir umskipti
bankameyjarinnar mjög svo trú-
verðuglega. Brellurnar eru
fyrsta flokks, ekkert blóð sem
heitið getur, frekar sér maður
skuggum bregða fyrir af horn-
um og hala. Sjálf er frú Ganush
eftirminnilega óféleg með sínar
forljótu klær og fölsku tennur
og er einkar sannfærandi í með-
förum Raver. Myndin er hval-
reki fyrir unnendur hryllings-
mynda af gamla skólanum,
ofbeldið og hrollurinn með kóm-
ísku ívafi og blessunarlega laus
við kvalalosta. Fagmannleg í alla
staði og ástæða til að geta sér-
staklega ónotalegrar tónlistar
Christophers Youngs.
Bölvun lögð á bankamey
Í grískri goðafræði er getið
um kvendjöfullinn Lamiu,
sem áður var íðilfögur
drottning yfir Afríkuríkinu
Líbíu. Lagði ófögnuður þessi
sér gjarnan kornabörn til
munns. Breska ljóðskáldið
John Keats orti frægt kvæði
um fyrirbrigðið á öndverðri
19. öld, og lýsir því sem fag-
urri konu með snáksvöxt frá
mittisstað. Í seinni tíð hefur
nafnið gjarnan verið tengt
vampírum í hrollvekjum.
Líbíski kven-
skrattinn Lamia
Hrollvekja Ganush, rammgöldrótt og níðfátæk sígaunakona biður um
framlengingu á láni svo hún haldi húskofa sínum en er neitað. Hún
leggur þá bölvun á bankamær sem hefur auðmýkt hana á ögurstund.
Sambíóin
Dröslaðu mér til vítis – Drag Me to
Hell
bbbmn
Leikstjóri: Sam Raimi. Aðalleikarar:
Alison Lohman, Justin Long, Lorna
Raver, Dileep Rao, David Paymer. 96
mín. Bandaríkin. 2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
SÖNGKONAN Norah Jones, sem sló í gegn
svo um munaði með plötu sinni Come Away
With Me árið 2002, vinnur nú að sinni fjórðu
plötu.
Platan kemur út á djassmerkinu virta Blue
Note, en engu að
síður hefur Jones
fjarlægst þær rætur
sínar að mestu. Með
Come Away With
Me (yfir tíu milljón
eintök seld) sópaði
söngkonan að sér
Grammy-verðlaun-
um og þægilegur,
höfgakenndur og
rauðvínsleginn
hljómurinn skilaði
plötunni upp að
ornandi arineldum
um allan heim. Var
það Íslendingurinn
S. Husky Hoskulds sem var arkitekt að þeim
hljómi.
Þegar rennt er yfir listann yfir samstarfs-
menn hvað nýju plötuna varðar er sem Jones
ætli að kafa heldur meira niður í jörðina. Upp-
tökustjóri er Jacquire King (Kings of Leon,
Modest Mouse) og Ryan Adams og Will Sheff
úr dauðakántríbandinu frábæra Okkervil Ri-
ver leggja til lög. Einnig semur Jesse Harris
með söngkonunni, en hann samdi með henni
lagið vinsæla „Don’t Know Why“
Jones segist hafa ákveðið að vinna með
King þar sem hann sá um hljóðvinnsluna á
plötu Tom Waits, Mule Variations, plötu sem
hún heldur mikið upp á.
Hvíslað er um að Jones sé að færast nær jað-
arkántríi með plötunni, en hún er meðlimur í
slíkri sveit. Kallast hún hinu spaugilega nafni
The Little Willies og eftir hana liggur sam-
nefnd plata þar sem breitt er yfir lög með
Hank Williams, Willie Nelson og Fred Rose
Síðasta plata Jones, Not Too Late, kom út
2007.
Nýtt frá Noruh
Jones í nóvember
Hlaðin Norah Jones átti
fullt í fangi með verð-
launastytturnar sem
hún fékk fyrir Come
Away With Me.