Morgunblaðið - 19.09.2009, Page 1
L A U G A R D A G U R 1 9. S E P T E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
254. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
SYNGJA VINALÖG Á FÆR-
EYSKU OG ÍSLENSKU
«JÓGVAN OG FRIÐRIK «30 ÁR FRÁ KOMU VÍETNAMA
Flóttafólk kann vel
við sig á Íslandi
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
NORSKI fjárfestirinn Endre Røsjø og MP
Banki hf. hafa náð samkomulagi um að Røsjø
eignist hlut í bankanum að loknum fyrirhug-
uðum hluthafafundi í næsta mánuði og verði
þar með virkur hluthafi við framtíðarþróun
bankans. Þetta var tilkynnt í gærkvöldi.
Að sögn Margeirs Péturssonar, stofnanda
og stjórnarformanns MP Banka, mun Røsjø
leggja fram jafnvirði 1.400 milljóna íslenskra
króna í nýju hlutafé og verða næststærsti
hluthafi bankans á eftir Margeiri. Að hans
sögn mun enginn núverandi hluthafa selja
hlutafé í bankanum. Mar-
geir segist vera mjög
ánægður með ákvörðun
Røsjø og hún muni styrkja
bankann. „Stjórn MP
Banka og stærstu hluthaf-
ar átta sig vel á því að ef
MP Banki vill verða í leið-
andi stöðu á markaðnum
þarf bankinn að vera í
dreifðara eignarhaldi.
Fjárfesting Endre Røsjø er fyrsta skrefið í
þá átt og við erum að vinna að því að fá fleiri
stofnanafjárfesta að bankanum.“
Endre Røsjø á að baki langan feril í
Fjárfestir fyrir 1.400 milljónir
Samkomulag um að norski fjárfestirinn Endre Røsjø verði næststærsti hluthafinn í MP Banka
Unnið að því að dreifa eignaraðild og fá fleiri stofnfjárfesta að bankanum, segir Margeir Pétursson
banka- og fjárfestinga-
starfsemi, allt frá 1970. Á
meðal núverandi fjárfest-
inga hans er norska fjár-
festingafélagið Centennial
og verðbréfafyrirtækið
Pinemont Securities í
London sem er aðili að
kauphöllinni þar. Á meðal
fyrri fjárfestinga Røsjø er
Pinemont Bank í Texas í
Bandaríkjunum sem hann seldi fyrir nokkr-
um árum. Røsjø var hér á landi fyrir
skömmu til að skoða kauptækifæri. Endre
Røsjø telur fjárfestingu sína í íslenskum
banka fela í sér mikil tækifæri og vonast til
að koma að fleiri verkefnum á Íslandi á
næstunni, m.a. í gegnum norrænan fjárfest-
ingasjóð.
Í tilkynningu frá MP Banka í gærkvöldi er
haft eftir Røsjø að bankinn hafi eins og hann
sjálfur verið mjög áhættufælinn á árunum
2007-8 og lagt áherslu á ríkisskuldabréf.
„Hrunið var mikil þolraun fyrir fjármálafyr-
irtæki eins og MP Banka og forysta hans og
starfsfólk hafa sannað að þau eru þrautseig
og traust. Mér líst vel á að þróa bankann
áfram með þeim,“ segir hann. „Ég væri mjög
ánægður ef þessi fyrsta fjárfesting mín gæti
eflt traust á íslenska bankakerfið.“
Endre Røsjø Margeir Pétursson
ÓRÆÐUR svipur þessarar ungu dömu gefur til
kynna að eitthvað undarlegt sé á seyði í Sundhöll
Reykjavíkur. Gestir þar fylgdust enda með nas-
ískum uppvakningum elta norska læknanema á
röndum í kvikmyndinni Död snö. Myndin er ein
af þeim fjölmörgu sem sýndar eru á Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, RIFF, og í takt
við furðulegheit myndarinnar var hún sýnd í sér-
stöku sundlaugarbíói. | 46
Morgunblaðið/Kristinn
HROLLVEKJA Í SUNDHÖLLINNI
Greiðsluaðlögun
fyrir heimili sem
eiga í fjárhags-
legum erfið-
leikum er mein-
gölluð að mati
fjölskylduföður
sem sótti um úr-
ræðið í apríl. Mál-
ið fór fyrir dóm-
ara í síðustu viku. Sökum þess að
fjölskyldan vildi einbeita sér að
greiðslu skulda sem gátu fallið á
aðra féllst dómari ekki á beiðni um
aðlögun og taldi að með því væri ver-
ið að mismuna lánardrottnum. Ekki
hefði átt að taka tillit til þessara
skulda yfirhöfuð í greiðsluaðlögun-
inni þar sem lánardrottnar gætu
gert fjárnám í eignum ábyrgðar-
aðila. Fáránlegt, segir faðirinn. Ekk-
ert blasir annað við þessari sex
manna fjölskyldu en gjaldþrot og
telur faðirinn undarlegt að það sé
talið ásættanlegra, þar sem kröfu-
hafar fái þannig ekkert í sinn hlut en
þau hafi haft mikinn hug á að vinna
skipulega að því að greiða niður
skuldir á næstu árum. Fjölskyldan
hefur yfirgefið landið. | 4
Gjaldþrot
álitið betra
en úrræðið
Forgangsröðun talin
mismuna kröfuhöfum
Antichrist, nýjasta kvikmynd Lars
von Triers, hefur ýmist verið hlaðin
lofi eða lasti. Gagnrýnendur jafnt
sem áhorfendur skiptast í andstæða
hópa, fullir aðdáunar eða viðbjóðs.
Lesbók
Heilagt stríð Lars
von Triers
Bækur Stiegs Larssons um Mikael
Blomkvist og Lisbeth Salander hafa
notið fádæma vinsælda. Annað
bindið var að koma út á íslensku, en
þar nýtur Salander sín til fulls.
Gleggri mynd af
Lisbeth Salander
Í kvikmyndinni Eyes Wide Open,
sem sýnd verður á yfirstandandi
kvikmyndahátíð, segir af ástum
sem eru ekki einungis forboðnar,
heldur einfaldlega ekki til.
Forboðnar ástir
karlmanna
FRAMSÓKNARMENN og sjálf-
stæðismenn vísa á bug ummælum
Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis-
ráðherra í kvöldfréttum í gær þess
efnis að þeir hafi brotið trúnað í
sambandi við viðbrögð Breta og
Hollendinga í Icesave-málinu.
Sjálfstæðismenn segja í yfirlýs-
ingu að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
virt umbeðinn trúnað og yfirlýs-
ingar forsætisráðherra séu ósannar
og ómerkilegar. Þær beri að túlka
sem hótun um að mál verði leidd til
lykta með átökum, en þingflokkur
Sjálfstæðisflokksins vinni af heil-
indum.
Höskuldur Þórhallsson, þingmað-
ur Framsóknarflokksins í fjár-
laganefnd, segir að ummæli Jó-
hönnu séu „ekkert annað en
ómerkilegur lygaáróður og alger-
lega úr lausu lofti gripin“. Hann
óttast að verið sé að undirbúa harð-
ar aðgerðir sem gangi þvert á sam-
þykkt Alþingis í málinu og nefnir
bráðabirgðalög í því sambandi. | 8
Vísa ásökunum um
trúnaðarbrot á bug