Morgunblaðið - 19.09.2009, Qupperneq 21
Fréttir 21ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2009
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
NATO hvatti í gær Rússa til aukins samstarfs í ör-
yggismálum og velti þeirri hugmynd upp, að eld-
flaugakerfi þeirra, Bandaríkjanna og NATO yrðu
tengd. Rússnesk stjórnvöld, sem hafa fagnað mjög
þeirri ákvörðun Bandaríkjastjórnar að hætta við
að koma upp gagneldflaugakerfi í Austur-Evrópu,
segjast munu skoða þessar tillögur gaumgæfilega.
„Við þurfum á Rússum að halda í glímunni við
helstu vandamál okkar tíma,“ sagði Anders Fogh
Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, á fundi í
Brussel í gær. Við ættum að kanna hvort unnt sé í
fyllingu tímans að tengja saman eldflaugavarna-
kerfi Bandaríkjanna, NATO og Rússlands.“
Tæknilega gerlegt
Dmítrí Rogozín, sendiherra Rússa hjá NATO,
sagði, að tölvufræðingar hefðu þegar sýnt fram á
það með tilraunum, að þetta væri gerlegt en hann
sagði, að rússnesk stjórnvöld myndu þurfa nokk-
urn tíma til að kanna málið.
Anders Fogh Rasmussen hvatti Rússa einnig til
samstarfs við Atlantshafsbandalagið á öðrum svið-
um og í nýju samstarfsráði. Á þeim vettvangi ætti
að vera unnt að leysa úr flestum ágreiningsmál-
um. Bauð Rasmussen rússneskum sérfræðingum
að taka þátt í þeirri endurskoðun, sem nú á sér
stað á vígbúnaðar- og varnarmálastefnu NATO
vegna hinnar breyttu heimsmyndar.
Nýtt upphaf?
Samskipti NATO og Rússa bötnuðu mjög er
kalda stríðinu lauk en hafa versnað aftur. Fór að-
ild sumra fyrrverandi kommúnistaríkja í A-Evr-
ópu fyrir brjóstið á Rússum og m.a. hefur verið
deilt um afvopnunarmál og eldflaugavarnir og
átökin í Georgíu bættu ekki úr. Hugsanlegt er, að
ákvörðunin um að hætta við uppsetningu gagneld-
flaugakerfis í A-Evrópu og ræða Rasmussen verði
til að bæta aftur samskipti NATO og Rússa. Hafa
þeir brugðist við með því að hætta við að koma fyr-
ir eldflaugum í Kalíníngrad.
Hvetur Rússa til samstarfs
Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, leggur til
að eldflaugakerfi Bandaríkjanna, NATO og Rússlands verði tengd í fyllingu tímans
Reuters
Tímamótaræða Anders Fogh Rasmussen er hann
skoraði á Rússa að auka samstarfið við Nato.
ÞESSI palestínska kona tók í gær þátt í minningar-
athöfn um þá, sem létu lífið í fjöldamorðunum í Sabra-
og Shatila-flóttamannabúðunum í Beirút fyrir 18 árum.
Bar hún myndir af látnum ástvinum sínum en tölur eru
mjög á reiki, allt frá nokkrum hundruðum manna upp í
hálft fjórða þúsund. svs@mbl.is
Reuters
Fjöldamorðin í Sabra og Shatila í Líbanon
18 ár liðin frá ódæðinu
ÍRANSKIR harð-
línumenn réðust
á tvo helstu leið-
toga stjórnar-
andstæðinga í
gær er þeir
efndu til mót-
mæla í Teheran.
Þúsundir
manna mót-
mæltu harð-
stjórninni í Íran
en Mir Hossein Mousavi, helsti leið-
togi stjórnarandstöðunnar, mátti
forða sér er harðlínumenn réðust á
bíl hans og hótuðu honum dauða.
Réðust þeir einnig á Khatami, fyrr-
verandi forseta, en stuðnings-
mönnum tókst að bjarga honum.
svs@mbl.is
Ráðist á leiðtoga
stjórnarandstöð-
unnar í Íran
Harðlínustjórn-
inni mótmælt.
ÞJÓFAR herja á fólk og fjölskyldur
sem aldrei fyrr og víða á Vest-
urlöndum má tala um eins konar
faraldur í því
sambandi. Það er
því mikil gróska í
alls kyns örygg-
isbúnaði og alltaf
að koma fram
eitthvað nýtt.
Eitt af nýju
tækjunum í Dan-
mörku er svo-
kölluð þokubyssa
en hún er tengd
mörgum nemum
og gefur frá sér þykkan en skað-
lausan reykjarmökk sé einhver
óboðinn á ferð í íbúðinni. Er hann
svo svartur, að hugsanlegur þjófur
sér alls ekki neitt, ekki til að stela
og varla til að komast aftur út.
Ærandi hávaði
Annað tæki er sírenan. Hún er
líka tengd nemum um alla íbúð og
vælið í henni er um 115 desíbel.
Þjófurinn eða þjófarnir gerðu fátt
annað en að halda fyrir eyrun og
líklega væri von á lögreglunni með
fyrra fallinu. Leggja sérfræðingar
mikla áherslu á, að fólk vandi valið
á þessum tækjum til að engin hætta
sé á, að þau fari af stað að ástæðu-
lausu.
Annað ráð, sem ekki er nýtt af
nálinni, er að koma fyrir tölvuflögu
í tækjum, sem líklegt er að þjóf-
arnir ásælist. Með GPS-staðsetn-
ingartæki er síðan hægt að finna
þau og oft þjófana líka. svs@mbl.is
Ný ráð í stríðinu við
innbrotsþjófana
Betra að vera við
öllu búinn.
ast og eins og fyrr segir munu gest-
irnir hvergi sjá neitt, sem minnir á
okkar venjulegu tilveru.
Boðið verður upp á fleiri ferðir,
sem kenndar eru við ýmislegt í Pott-
er-bókunum, til dæmis Þrígaldraleik-
ana og Hippógriffínið, en allar leiðir
enda vitanlega inni í Hogwart-
kastala og hann verður engin smá-
smíði.
Einstæð upplifun
„Í þessum ferðum lifnar við megn-
ið af myndunum og bókunum. Við
höfum nýtt okkur tæknina út í ystu
æsar til að gefa fólki alveg einstæða
upplifun,“ sagði Paul Daurio, fram-
leiðandi „Galdraheims Potters“.
Hér hefur aðeins fátt eitt verið
nefnt enda hefur verið og er enn mikil
leynd yfir framkvæmdinni. Til dæmis
eru allir, sem vinna við garðinn,
bundnir þagnareiði. Þó er vitað, að á
teikningunum er gert ráð fyrir allt að
20 byggingum, þar á meðal þremur
verslunum, veitingastað og öðrum
húsum. Allt hverfist þó um galdra-
skólann í Hogwart en kastalinn verð-
ur jafnhár 15 hæða byggingu.
Haft er eftir fólki, sem er kunnugt
framkvæmdinni og kannski ekki
bundið þagnareiðnum, að í ferðunum
eða a.m.k. í einni ferðinni muni fólk
sitja á enda hreyfanlegs arms, sem
fer eftir brautarteinum. Sveiflast
armurinn til og frá og allt eftir því
hvað verið er upplifa hverju sinni.
Ekki þarf að nefna það, að þeir,
sem leggja leið sína í „Galdraheim
Potters“, geta farið þaðan meira en
klyfjaðir alls kyns galdradóti.
svs@mbl.is
Á VORI komanda mun Universal-
fyrirtækið opna nýjan og risastóran
skemmtigarð í Orlando í Bandaríkj-
unum og eru margir farnir að bíða
þess með mikilli eftirvæntingu.
„Galdraheimur Potters“ heitir hann,
nákvæm eftirlíking af sviðsmyndinni
í Potter-bókunum, og þess verður
gætt, að ekkert af því, sem einkennir
okkar hversdagslega heim, verði til
að spilla upplifun gestanna.
„Ferðin forboðna“ verður fyrsta
skrefið inn í „Galdraheim Potters“ og
hún hefst á brautarstöðinni í Hogs-
meade. Þar verður að sjálfsögðu ys
og þys og Hogwart-hraðlestin mun
þeyta flautuna og blása frá sér mikl-
um gufumekki er hún kemur inn á
stöðina. Allt verður sem raunveruleg-
Lofa gestum einstæðri upplifun og
ævintýrum í „Galdraheimi Potters“
Risastór skemmti-
garður í anda
Potter-myndanna
opnaður næsta vor
Hogwart-kastali Þær kynningarmyndir, sem hafa verið birtar, hafa ekki
orðið til að draga úr áhuga og eftirvæntingu Potter-aðdáenda.
SETJIÐ einn
krepping af blá-
berjum út á
morgunverð-
ardiskinn og
slen og einbeit-
ingarleysi munu
ekki gera ykkur
lífið leitt síðar
um daginn.
Þetta ráðleggja
breskir vísinda-
menn en þeir hafa komist að því,
að bláber eru bráðholl fyrir heil-
ann. Ein handfylli daglega er
rétti skammturinn.
Það voru vísindamenn við
Reading-háskóla, sem uppgötv-
uðu þetta, en þeir gerðu tilraunir
á tveimur hópum. Fékk annar
bláber með morgunmatnum en
hinn ekki. Síðar um daginn var
lagt fyrir þá próf, sem reyndi á
einbeitinguna. Niðurstaðan var
mjög afgerandi. Þeir, sem fengu
bláber, stóðu sig miklu betur,
munaði þar allt að 20%.
Löngu er vitað, að bláber eru
góð fyrir heilsuna en í þeim er að
finna mikið af efnum, sem eyða
skaðlegum sindurefnum. Þessi
sömu efni auka síðan blóðflæði
og súrefnisupptöku í heila.
svs@mbl.is
Bláber holl
fyrir heilann
Komum, tínum
berin blá.
Til sölu hlutur í FF 800 ehf.
Til sölu úr þrotabúi 26% hlutur í félaginu FF 800 ehf.
Aðaleign félagsins er fasteignin að Eyraveg 2 á Selfossi
en það hýsir m.a starfsemi Hótel Selfoss.
Frekari upplýsingar veitir, f.h. skiptastjóra Karls Axelssonar,
Dagmar Arnardóttir hdl., LEX lögmannsstofu, í síma 590 2600.