Morgunblaðið - 19.09.2009, Page 26

Morgunblaðið - 19.09.2009, Page 26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2009 ÞAÐ er með ein- dæmum hvernig þessi ríkisstjórn ætlar að beygja Þingeyinga og aðra Norðlendinga og um leið að ganga end- anlega frá mögulegri uppbyggingu atvinnu- og mannlífs hér fyrir norðan. Hug- myndafræði, málflutn- ingur, framgangur og rök ráðherra og þing- manna eru ótrúleg. Í fyrsta lagi hugnast ríkisstjórninni ekki að vinna og nýta þá orku, sem hugsanlega finnst á háhitasvæðum í Þingeyj- arsýslum í orkufrekan iðnað. Heldur verður þeim tíðrætt um að nýta orkuna í „eitthvað annað“. Þvert á vilja heimamanna sem hafa í áratugi búið við ástand kreppu og sam- dráttar. Í öðru lagi hefur framganga þeirra, umræða og meðferð málsins skaðað alla íbúa í Þingeyjarsýslum. Hvar liggur ábyrgðin? Þekkingarleysi, skilningsleysi og framkvæmdaleysi einkennir þessa ríkisstjórn. Þessi rík- isstjórn hefur leitt til þess að fólk íhugar brottflutning. Þetta er grát- legt en því miður staðreynd málsins. Það er búið að hafa íbúa hér að fíflum. Ef þetta er pólitíkin sem bjóða á upp á, Guð blessi þjóð og land. Ef teknar eru til nánari skoðunar umfjallanir og ummæli þingmanna og ráðherra Samfylkingarinnar, sér- staklega þegar þeir hafa látið sjá sig á Húsavík, hafa þeir staðfastlega lofað stuðningi við verkefnið um álver við Bakka. Hvar eru heilindi manna, trú- verðuleiki og heiðarleiki nú þegar sömu aðilar snúa baki við því fólki sem þeir færðu þessi loforð. Það skyldi þó ekki vera að Samfylkingin hefði notað þetta verkefni sem skipti- mynt þegar stjórnarsáttmálinn var gerður milli Samfylkingarinnar og VG? Og hvernig má það vera að með- höndlun ríkisins á þessu verkefni lúti allt öðrum lögmálum en önnur sam- bærileg verkefni á landinu? Það skyldi þó ekki vera vegna þess að önnur verkefni eru til upp- byggingar á suðvest- urhorni landsins? Mað- ur óneitanlega spyr sig að hinu og þessu nú þegar fer að líða að því að ríkisvaldið þurfi að taka ákvörðun. Ég geri þó ráð fyrir að rök- færslur ríkisstjórn- arinnar fyrir ákvörðun sinni vanti ekki þar sem það virðist vera eina listin sem kunna þarf í pólitík. Ég reyndar býst einnig við því að ríkisstjórnin nái að telja lands- mönnum trú um að „eitthvað annað“ sé það besta. VG hefur alfarið verið mótfallið ál- versuppbyggingu á landinu og er svo sem ekkert við það að athuga. Þetta er skoðun og sjónarmið sem ber að virða. En vandamálið er að löngu áð- ur en VG komst í ríkisstjórn var verk- efnið um álver við Bakka komið á og allir sem að því komu þá með ákveðna stefnu sem bundin var í viljayfirlýs- ingu. Nú þegar er búið að eyða umtals- verðum fjármunum í verkefnið. Stefnumörkun hefur legið fyrir frá upphafi þar sem verkefnið var vel skilgreint og bundið við upphaf og endi. Til að verkefnið verði að veru- leika þarf að finna orku. Þetta er ein- falt verkefni, vel skilgreint og hefur verið unnið af mikilli fagmennsku allra aðila. En því miður hefur stjórn- völdum tekist með íhlutun sinni að gera framgang verkefnisins óbæri- legan og dýran, fyrir utan að mis- bjóða íbúum á Norðausturlandi. Nú þegar dregur að því að taka þurfi ákvarðanir snýst málflutningur VG út á „eitthvað annað“. Hvorki fjöl- miðlum né almenningi hefur tekist að fá upplýsingar um hvað þetta „annað eigi að vera“. Jú, það hefur verið bent á gagna- ver, kísilflöguverksmiðjur og eitthvað fleira. Ryki er slegið í augu almenn- ings í landinu og gefið til kynna að einhver erlend fyrirtæki ætli sér að ráðast í stórtækar og mannaflsfrekar framkvæmdir á landsbyggðinni. Raunveruleikinn er sá að þetta eru eingöngu athuganir hjá þessum að- ilum en fáir þeirra eru tilbúnir að fjárfesta á eigin kostnað. Það er verið að falast eftir stuðningi ríkis og sveit- arfélaga til að koma þessum fram- kvæmdum í farveg. Ég verð illa svik- inn ef þessir aðilar munu ekki einnig leita eftir því að ríki og eða sveit- arfélög komi að fjármögnuninni á þeim. VG og Samfylkingin eru tilbúin að slá út af borðinu samning við eitt af bestu álfyrirtækjum heimsins, Al- coa, fyrir hugsanlega eitthvað annað, eitthvað sem er algjörlega óskilgreint og enginn veit hver stendur að baki eða heldur með hvaða hætti á að fjár- magna fyrirhugaðar framkvæmdir. Er hægt að byggja framtíð samfélags á „einhverju öðru“? Verndun eða friðun er ein leið sem hægt er að fara, en fyrir slíka nýtingu þarf væntanlega að greiða og eru landsmenn tilbúnir að taka þá fjár- muni úr ríkissjóði? Hækka skatta og aðrar álögur? Nei, ég held ekki og því tel ég eðlilegt að ríkisstjórnin fylgi þeim áformum sínum að leyfa heimamönnum að vinna að þeim málum er varða af- komu þeirra og framtíð. Það má ljóst vera að heimamenn geta tryggt verndun og nýtingu auðlinda í sinni heimabyggð svo sómi sé að. Hér eru allir íbúar náttúrusinnar sem er umhugað um umhverfi sitt. Það ætti því ekki að koma þingmönn- um á óvart að hér í Þingeyjarsýslum er meiri hiti en sá er einskorðast við jarðhita, því hér er fólki heitt í hamsi og finnst eðlilega það hafa verið svik- ið fyrir „eitthvað annað“. Aftaka í boði ríkisstjórnarinnar Eftir Guðbjart Ellert Jónsson »Því miður hefur stjórnvöldum tekist með íhlutun sinni að gera framgang verkefnisins óbærilegan og dýran... Guðbjartur Ellert Jónsson Höfundur er fjármálastjóri og staðgengill sveitarstjóra Norðurþings. RAGNARI Þór Ing- ólfssyni hefur orðið tíð- rætt um gegnsæi í bloggfærslum sínum, greinaskrifum í blöð og í viðtölum við fjölmiðla og þá helst tengt mál- efnum Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (Lv). Hinsvegar hefur skort á að hann skrifi eða tali með þeim hætti að gegnsæi ríki. Er nýj- asta grein hans í Morgunblaðinu hinn 13. september gott dæmi um það, enda full af rangfærslum, er misvís- andi og vægast sagt blekkjandi á köflum. Í fyrsta lagi lætur hann að því liggja að stjórn VR, sem hann situr í og skipaði núverandi fulltrúa VR í stjórn Lv, hafi samþykkt tillögu hans um að óska eftir ákveðnum upplýs- ingum frá stjórnendum og stjórn Lv, sem hann situr ekki í. Það er einfald- lega ekki rétt. Í öðru lagi heldur hann því fram að stjórnendur sjóðsins neiti „stjórnarmönnum okkar“ um upplýs- ingar og á þá væntanlega við þá aðila sem sitja bæði í stjórn VR og Lv. Að- spurðir tjá þessir sömu stjórnarmenn mér að þeir hafi fengið allar þær upp- lýsingar sem þeir hafi óskað eftir, enda eru þeir æðstu stjórnendur sjóðsins. Eru þeir að halda upplýs- ingum leyndum fyrir sjálfum sér? Ef ekki, við hvern á Ragnar Þór þá? Á hann við nafna sinn Ragnar Önundarson, stjórnarformann Lv, sem stjórn VR skipaði að minni tillögu í stjórn sjóðsins einmitt vegna gagnrýni hans á fjár- festa og fjármálastofn- anir fyrir hrun, auk mik- illar fagþekkingar hans og reynslu úr fjár- málaheiminum? Þó að draugar séu gegnsæir þá eru þeir oftast skynvilla og við verðum að skilja það að draugarnir í öll- um skúmaskotum búa oft í höfði okkar sjálfra. Einnig má skilja það sem svo að þessa tillögu Ragnars Þórs hafi þurft á stjórnarfund VR svo að hann sjálfur næði eyrum stjórnarformanns og framkvæmdastjóra sjóðsins. Það er heldur ekki rétt. Ég hafði sjálfur milli- göngu um að koma á fundi með Ragn- ari Þór og nýkjörnum stjórnarfor- manni sjóðsins skömmu eftir skipun hans. Þá hélt stjórn Lv sérstakan upp- lýsingafund fyrir stjórnarmenn VR hinn 1. september sl. og kom Ragnar Þór þar að spurningum sínum og fékk svör. Eins og að ofan greinir hefur Ragn- ar Þór ítrekað fengið svör við fyr- irspurnum sínum, einnig í tölvupósti. Hins vegar er hann ekki sáttur við svörin, en stjórn Lv telur sig hafa veitt honum þau svör sem henni er heimilt lögum samkvæmt. Við það sættir Ragnar Þór sig ekki. Hann krefst þess af öðrum að þeir brjóti lög. Hægara er um að tala en í að komast. Þá virð- ist hann halda að upplýsingar sem ekki má veita sé unnt að fá í trúnaði. En hvað vakir þá fyrir Ragnari Þór? Hvað ætlar hann sér með þessar upp- lýsingar sem hann óskar eftir og heit- ir að umgangast af trúnaði og getur því ekki deilt með öðrum? Hvað vill hann sýna fram á? Hvað vill hann sanna eða afsanna? Hver er hinn raunverulegi tilgangur? Ég hef spurt hann að því en ekki fengið skýr svör. Þar er skortur á gegnsæi. Hinsvegar má færa fyrir því rök að skortur sé á gegnsæi í starfsemi fjár- málastofnana og lífeyrissjóða. En til að breyta því þarf að breyta lögum. Er það verkefni löggjafans og vil ég hvetja hann til þess að endurskoða lög og reglugerðir þar að lútandi í samvinnu við lífeyrissjóði landsins og setja þeim samræmdar reglur um upplýsingagjöf til sjóðsfélaga. Það er gegnsæi til gagns. Draugar og annað gegnsætt Eftir Kristin Örn Jóhannesson »… stjórn Lv telur sig hafa veitt honum þau svör sem henni er heimilt lögum sam- kvæmt. Við það sættir Ragnar Þór sig ekki. Hann krefst þess af öðr- um að þeir brjóti lög. Kristinn Örn Jóhannesson Höfundur er formaður VR. – meira fyrir áskrifendur Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16.00 mánudaginn 28. september. Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105, kata@mbl.is Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um vinnuvélar, atvinnubíla, jeppa, pallbíla, fjölskyldubíla og fl. föstudaginn 2. október 2009. Í þessu blaði verða kynntar margar þær nýjungar sem í boði eru fyrir leika og lærða Meðal efnis verður : Vinnuvélar Námskeið um vinnuvélar. Atvinnubílar. Fjölskyldubílar. Pallbílar. Jeppar. Nýjustu græjur í bíla og vélar. Varahlutir. Dekk. Vinnufatnaður. Hreyfing og slökun atvinnubílstjóra. Ásamt fullt af öðru spennandi efni og fróðleiksmolum. Vinnuvélar og bílar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.