Morgunblaðið - 19.09.2009, Side 38
38 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2009
AÐVENTKIRKJAN:
Aðventkirkjan í Reykjavík | Samkoma í
dag, laugardag, hefst með biblíufræðslu
fyrir börn og fullorðna kl. 11. Einnig er
boðið upp á biblíufræðslu á ensku. Guðs-
þjónusta kl. 12. Þóra S. Jónsdóttir pré-
dikar.
Aðventkirkjan í Vestmannaeyjum | Sam-
koma í dag, laugardag, kl. 10.30. Boðið
er upp á biblíufræðslu fyrir börn og full-
orðna.
Aðventsöfnuðurinn á Suðurnesjum |
Samkoma í Reykjanesbæ í dag, laug-
ardag, hefst með biblíufræðslu kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 12. Manfred Lemke
prédikar.
Aðventsöfnuðurinn í Árnesi | Samkoma
á Selfossi í dag, laugardag, hefst með
biblíufræðslu fyrir alla kl. 10. Guðsþjón-
usta kl. 11. Jóhann Þorvaldsson prédik-
ar.
Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Sam-
koma í Loftsalnum í dag, laugardag,
hefst með fjölskyldusamkomu kl. 11.
Helgi Jónsson prédikar. Biblíufræðsla fyr-
ir börn og fullorðna kl. 11.50. Einnig er
boðið upp á biblíufræðslu á ensku.
AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur sr. Gylfi Jónsson, félagar úr Kór
Akureyrarkirkju syngja, organisti er Sigrún
Magna Þórsteinsdóttir. Sunnudagaskóli í
safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón Halla
og Heimir Bjarni.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Vænst er þátttöku fermingarbarna vors-
ins og forráðamanna þeirra. Sunnudaga-
skóli í safnaðarheimilinu á sama tíma.
Eftir guðsþjónustuna er fundur með for-
ráðamönnum fermingarbarna og skrán-
ing. www.arbaejarkirkja.is
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Börnin taka þátt í upphafsliðum mess-
unnar en fara svo ásamt Elíasi og Hildi í
safnaðarheimilið. Sr. Irma Sjöfn Ósk-
arsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari,
kór Áskirkju syngur, organisti Magnús
Ragnarsson. www.askirkja.is.
ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 11 og
barnastarf kirkjunnar. Fermingarbörn og
foreldrar þeirra sérstaklega boðin vel-
komin og veður fundað með þeim á eftir.
Kaffi. www.astjarnarkirkja.is, www.vin-
iribata.is.
BESSASTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
20. Hans Guðberg prestur og Bjartur Logi
organisti leiða stundina. Sunnudagaskóli
í Brekkuskógum 1 kl. 11. Auður S. Arn-
dal og Hans Guðberg ásamt yngri leiðtog-
um hafa umsjón með stundinni.
BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi |
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Kristín
Þórunn Tómasdóttir, organisti Páll Helga-
son, félagar úr Karlakór Kjalnesinga leiða
söng. Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra
sérstaklega boðin velkomin.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur sr. Gísli Jónasson, kór Breið-
holtskirkju syngur, organisti Julian Isa-
acs. Sunnudagaskóli á sama tíma. Kaffi
í safnaðarheimili á eftir.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11.
Samvera fyrir alla fjölskylduna, foreldrar
hvattir til þátttöku með börnunum. Hljóm-
sveit ungmenna leikur undir stjórn Re-
nötu Ivan. Guðsþjónusta kl. 14. Ein-
söngvari Erla Berglind Einarsdóttir, kór
Bústaðakirkju syngur, organisti Renata Iv-
an, prestur er sr. Pálmi Matthíasson.
Kaffi á eftir.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Magnús B. Björnsson, organisti
Kjartan Sigurjónsson, kór Digraneskirkju,
B-hópur. Sunnudagaskóli á sama tíma í
kapellu á neðri hæð. Veitingar í safn-
aðarsal á eftir. Messa kl. 20. Tónlist á
vegum Meme musik. Prestur sr. Magnús
B Björnsson. www.digraneskirkja.is.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Anna
Sigríður Pálsdóttir prédikar, Dómkórinn
syngur, organisti er Marteinn Friðriksson.
Barnastarf á kirkjuloftinu á meðan. Há-
degisbænir á þriðjudögum, kvöldkirkjan á
fimmtudögum. Æðruleysismessa kl. 20.
Karl Matthíasson prédikar.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli
kl. 11. Messa kl. 14. Organisti er Torvald
Gjerde. Kyrrðarstund í safnaðarheimilinu
á mánudag kl. 18 og kynningarfundur fyr-
ir 12 spora starfið í kirkjunni kl. 18.30, í
safnaðarheimilinu.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson, kór
Fella- og Hólakirkju leiðir almennan safn-
aðarsöng undir stjórn Guðnýjar Ein-
arsdóttur, kantors kirkjunnar. Ferming-
arbörn í Hólabrekkusókn og foreldrar
þeirrar sérstaklega velkomin. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma, ,,bangsadagur“,
börn taka með sér dúkku eða bangsa.
Umsjón Þórey Dögg og Þóra Björg. Kyrrð-
arstundir þriðjudaga kl. 12.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudaga-
skóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20. Kór og
hljómsveit kirkjunnar leiða sönginn. Kaffi
í safnaðarheimilinu á eftir.
FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl.
11. Almenn samkoma kl. 14. Ron Botha
frá S-Afríku verður gestur og prédikar.
Kaffi og samvera á eftir.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskylduhátíð
kl. 14. Tilefnið er að barnastarfið er að
hefjast eftir sumarfrí. Hátíðin hefst í kirkj-
unni með stuttri helgistund. Jakob
bangsi les og syngur, Sveppi og Ingó
koma í heimsókn. Leikir í Hallargarðinum
á eftir.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Guðrún Karlsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari, kór Grafarvogskirkju
syngur, organisti er Hákon Leifsson.
Sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Lena Rós
Matthíasdóttir, umsjón hefur Rúna,
Krakkakórinn syngur, stjórnandi er Arn-
hildur Valgarðsdóttir og undirleikari er
Stefán Birkisson.
Borgarholtsskóli | Guðsþjónusta kl. 11.
Vox populi syngur, organisti Guðlaugur
Viktorsson. Sunnudagaskóli á sama
tíma. Umsjón Gunnar Einar Stein-
grímsson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10,
bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í
umsjá Lellu og unglinga úr kirkjustarfi.
Messa kl. 11. Altarisganga og samskot
til SÍK (kristniboð). Messuhópur þjónar.
Kirkjukór Grensáskirkju syngur, organisti
Árni Arinbjarnarson og prestur er sr. Ólaf-
ur Jóhannsson. Kaffi á eftir. Kyrrðarstund
á þriðjudag kl. 12. Messa kl. 18 á
fimmtudag með Þorvaldi Halldórssyni.
GRUND dvalar- og hjúkrunarh. | Guðs-
þjónusta kl. 14 í umsjá félags fyrrum
þjónandi presta. Sr. Ingiberg J. Hann-
esson messar, söngstjóri Kjartan Ólafs-
son.
GUÐRÍÐARKIRKJA Grafarholti | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Umsjón hefur Árni Þor-
lákur Guðnason og Björn Tómas Njálsson
sér um tónlistina.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa kl.
11. Sr. Gunnþór Ingason, sóknarprestur
Hafnarfjarðarkirkju frá 1977 til 2009,
messar og kveður söfnuðinn. Organisti
Guðmundur Sigurðsson, Barbörukór
Hafnarfjarðar leiðir söng, einsöngvari er
Jóhanna Ósk Valsdóttir og fiðluleikari
Hjörleifur Valsson. Sunginn er sálmur eft-
ir sr. Gunnþór við lag eftir Finn Torfa Stef-
ánsson og sálmur eftir sr. Árna Björns-
son við lag Árna Gunnlaugssonar.
Kveðjukaffi í boði sóknarnefndar á eftir.
Sunnudagaskóli á sama tíma í safn-
aðarheimili. Gregorsk messa á mið-
vikudagsmorgnum kl. 8. Prestur sr. Þór-
hallur Heimisson. Morgunverður á eftir í
safnaðarheimilinu.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barna-
starf kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr.
Birgi Ásgeirssyni, Magneu Sverrisdóttur
djákna og hópi messuþjóna. Berit Okken-
haug, norskur prestur, tekur þátt í mess-
unni. Félagar úr Mótettukór Hallgríms-
kirkju syngja, organisti er Björn Steinar
Sólbergsson.
HAUKADALSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
20.30. Organisti er Jón Bjarnason, sr.
Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast
prestsþjónustuna.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar, fé-
lagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða
safnaðarsöng, organisti er Jón Ólafur Sig-
urðsson. Sunnudagaskóli kl. 13.
www.hjallakirkja.is.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam-
koma kl. 20 í umsjón Sigurðar Ingimars-
sonar. Hilmar Símonarson syngur ein-
söng. Tónlist og beðið fyrir sjúkum.
HJÚKRUNARHEIMILIÐ Ás | Messa kl.
15.
HVAMMSTANGAKIRKJA | Messa kl. 14.
Prestur sr. Sigurður Grétar Sigurðsson,
félagar úr Gideonfélaginu koma í heim-
sókn og kynna starfsemi félagsins. Kaffi
á eftir. Tekið er við samskotum til félags-
ins.
HVERAGERÐISKIRKJA | Guðsþjónusta
og barnastarf kl. 11. Fundur með ferm-
ingarbörnum og foreldrum á eftir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma fyrir alla aldurshópa kl. 11. Ræðu-
kona er Dianne De Jong. Alþjóðakirkjan í
hliðarsalnum kl. 13. Samkoma á ensku.
Lofgjörðarsamkoma kl. 16.30. Ræðu-
maður er Vörður Leví Traustason.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barnastarf kl.
11. Fræðsla fyrir fullorðna á sama tíma.
Friðrik Schram útskýrir valda kafla í Biblí-
unni. Samkoma kl. 20. Lofgjörð og fyr-
irbænir. Friðrik Schram prédikar,
www.kristskirkjan.is.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn
Arnórs Vilbergssonar, organista. Sr. Erla
Guðmundsdóttir stýrir barnastarfinu,
prestur er sr. Sigfús Baldvin Ingvason.
Kynning verður á eftir á Alfanámskeiðum.
KFUM og KFUK | Sunnudagssamvera kl.
20. Sr. Ólafur Jóhannsson hefur hug-
vekju. Tónlist, söngur og boðskapur.
KOTSTRANDARKIRKJA | Messa kl. 14.
KÓPAVOGSKIRKJA | Barnastarf kl. 11 í
nýja safnaðarheimilinu. Umsjón Inga, Sig-
ríður og Þóra. Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Sigurjón Árni Eyjólfsson prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Félagar úr kór Kópavogs-
kirkju syngja og leiða safnaðarsöng, org-
anisti og kórstjóri Lenka Mátéová.
LANGHOLTSKIRKJA | Hátíðamessa og
barnastarf kl. 11. 25 ára vígsluafmæli
Langholtskirkju. 10 ár eru frá helgun org-
els og steindra glugga. Stóri fjöl-
Orð dagsins:
Enginn kann tveimur
herrum að þjóna.
(Matt. 6.)
MESSUR Á MORGUN
✝ Jóhann Lárus Sig-urðsson var fædd-
ur á Stokkseyri 20.
febrúar 1924. Hann
lést á Landakoti 2.
september sl.
Foreldrar hans voru
Sigurður Ingimund-
arson, f. 27.8. 1891, d.
9.7. 1944 og Anna
Helgadóttir, f. 9.6.
1892, d. 12.11. 1979.
Systkini Jóhanns voru
þau Haraldur, Unnur,
Georg og Ester en þau
eru öll látin. Jóhann
fluttist með foreldrum sínum og
systkinum til Reykjavíkur haustið
1925. Jóhann kvæntist 8. apríl 1950
Ragnheiði Böðvarsdóttur, f. 17.8.
1921. Foreldrar hennar voru Böðvar
Jónsson, d. 1954 og Guðrún Skúla-
dóttir, d. 1965.
Jóhann og Ragna hófu búskap í
Sigtúni í Reykjavík, en árið 1954
fluttu þau á Birkimel 6 þar sem
Ragna býr enn. Börn Jóhanns og
Ragnheiðar eru: a) Birna lyfjatækn-
geirsdóttir, f. 1987. Börn Harðar eru:
a) Högni Alvar, f. 2004 og Vigdís Elf-
ur, f. 2006. 2) Finnur Sveinsson, f.
17.4. 1986. Jóhann lauk námi frá Loft-
skeytaskólanum 1946 og starfaði hjá
Kveldúlfi 1946-1954, hjá Landssíman-
um frá 1955 og síðan hjá Póst- og
símamálastofnun þar til hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir 1994. Hann
var varaformaður Félags íslenskra
símamanna um árabil og var fram-
kvæmdastjóri þess á árunum 1974-
1979. Jóhann var í samninganefnd
BSRB um áraraðir og voru réttinda-
og kjaramál vaktavinnufólks honum
einkum hugleikin. Jóhann var hag-
leiksmaður mikill og vandvirkni og
nákvæmni voru honum í blóð borin.
Hann var víðlesinn, hvort heldur um
þjóðmál, sagnfræði, ættfræði eða
önnur þau mál sem voru í umræðunni
á hverjum tíma. Ef einhverjar líkur
voru á að í nýútkominni bók væri
fróðleikur sem vert væri að vita var
sú bók umsvifalaust lesin.
Það kom varla fyrir að hann gæti
ekki lagt eitthvað til málanna af
þekkingu og innsæi og var hann jafn-
an miðdepill umræðna í fjöl-
skylduboðum.
Útför Jóhanns var gerð frá Foss-
vogskapellu 18. september.
ir, f. 23.3. 1954, maki
Ásgeir Jónsson, f.
30.10. 1951. Börn
þeirra eru: 1) Jóhann
Örn, f. 24.8. 1970, maki
Guðný Guðnadóttir, f.
1970.
Börn þeirra eru: Ar-
on, f. 1998 og Birna, f.
2001. 2) Ragnheiður, f.
6.3. 1978, sambýlis-
maður Heiðar Þór-
hallsson, f. 1970. 3)
Sturla, f. 20.7. 1980, bú-
settur í Düsseldorf.
b) Gunnar sölustjóri,
f. 14.9. 1955, maki Marta Loftsdóttir,
f. 19.3. 1955. Börn Gunnars frá fyrra
hjónabandi eru: 1) Árni Beck, f. 28.2.
1978, sambýliskona Mie Rasmussen,
f. 1972, búsett í Kaupmannahöfn.
Dóttir þeirra er Rósa Sif, f. 2009. 2)
Guðrún Björg, f. 9.11. 1980, maki Pét-
ur Ingi Pétursson, f. 1974.
Börn þeirra eru: a) Ingunn Lind, f.
2006 og Emil, f. 2009. Fóstursynir
Gunnars eru: 1) Hörður Sveinsson, f.
22.1.1981, sambýliskona Gígja Hólm-
Jóhann tengdafaðir minn er fallinn
frá. Hann kvaddi þennan heim á
Landakoti umvafinn sínum nánustu.
Ég kynntist Jóhanni fyrir 12 árum
þegar við Gunnar sonur hans hófum
sambúð. Jóhann og Ragna tóku mér
vel strax í upphafi og þeim var ávallt
umhugað um mig, syni mína og barna-
börn. Jóhann var vandaður, heil-
steyptur maður sem hugsaði vel um
fjölskyldu sína.
Jóhann og Ragna komu tveimur
börnum til manns og eignuðust fimm
barnabörn og fimm barnabarnabörn.
Jóhann hvatti sína nánustu til dáða
hvort heldur það var varðandi mennt-
un eða framgöngu í íþróttum eða
hverju því sem hans fólk tók sér fyrir
hendur. Hann hafði metnað fyrir
börnin sín og barnabörnin og lagði
ávallt mikla áherslu á mikilvægi
menntunar.
Jóhann var bókhneigður og síðustu
ár las hann öllum stundum. Þá var
gott að eiga innanbúðarkonu á bóka-
safni í fjölskyldunni því hjá henni fékk
hann ávallt nýjustu bækurnar. Hann
sat alltaf á sama stað í íbúðinni í hæg-
indastólnum sínum inni í horni og las
þar tímunum saman. Hann var haf-
sjór af fróðleik og hægt var að fletta
upp í honum eins og í alfræðiorðabók.
Samband Jóhanns við Unni systur
sína var einstaklega gott meðan hún
lifði. Ekki leið sá dagur að þau töl-
uðust ekki við. Unnur átti jörðina
Litlu-Vallá á Kjalarnesi. Þangað fóru
Jóhann og Ragna og fleiri úr fjöl-
skyldunni um hverja helgi á sumrin.
Jóhann dyttaði að húsinu eða bútaði
niður eldivið á meðan aðrir slógu
grasið eða hlúðu að gróðri. Á Vallá
undi Jóhann sér vel.
Síðustu mánuði dvaldi Jóhann á
Landakoti og í einni heimsókn minni
spurði hann mig hvort ég væri ekki
heilsuhraust. Honum var alltaf svo
annt um líðan annarra. Ekki átti ég
von á að hann yrði allur örfáum vikum
seinna.
Jóhann minn, ég þakka þér fyrir all-
ar góðu stundirnar sem við áttum
saman. Missir fjölskyldunnar er mikill
en Rögnu þó mestur.
Hvíl þú í friði.
Þín tengdadóttir,
Marta Loftsdóttir.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífs þíns nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Með þessum orðum kveð ég Jóhann
afa. Tómlegt verður í horninu á Birki-
melnum þar sem afi sat og las í bók
eða hlustaði á fréttir. Ef bók var við
hönd var hún ávallt lögð niður til að
taka á móti kossi á kinnina og á full-
orðinsárum mínum tóku oft rökræður
við eftir kossinn. Mér þótti afi vera al-
varlegur maður og ýmsar reglur voru
við lýði sem ég fór líklega yfirleitt eft-
ir, sérstaklega eftir að ég sletti óvart
rauðkáli yfir alla eldavélina heima hjá
afa og ömmu. Það skipti afa nefnilega
miklu máli að hafa snyrtilegt í kring-
um sig og var hann fljótur að taka upp
klútinn ef honum sýndist vera skítur í
eldhúsinu eða blettur á bílnum. Þann
eiginleika höfum við sem eftir erum
einnig tamið okkur.
Matarboðin á Birkimelnum eru of-
arlega í huga. Afi sá um eldamennsk-
una og það var ekkert til sparað, allar
þarfir voru uppfylltar hvort sem það
voru Ora-baunir eða útlenskar baunir,
kalt eða heitt rauðkál, allir fengu það
sem þeir óskuðu. Síðustu misseri voru
afa erfið vegna veikinda en hann setti
alltaf sína erfiðleika til hliðar til að
spyrjast fyrir um líðan okkar barna-
barnanna eða langafabarnanna.
Elsku afi, takk fyrir allar minningarn-
ar og góðu stundirnar sem þú gafst
mér.
Guðrún Björg Gunnarsdóttir.
Elsku langafi, nú ertu farinn frá
okkur og vonandi líður þér vel. Þú
varst alltaf svo góður við okkur lang-
afabörnin, faðmaðir okkur og kysstir.
Við eigum eftir að sakna þín.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Ingunn Lind og Emil
Pétursbörn.
Jóhann L. Sigurðsson
Sveit Ljónanna bikarmeistari
Sveit Ljónanna vann glæsilegan
sigur, 171-99, á sveit Júlíusar Sig-
urjónssonar í 64 spila bikarúrslita-
leik sem háður var 13. september.
Sveit Ljónanna tapaði fyrstu
tveim lotum af fjórum, 29-39 í fyrstu
lotunni, 44-31 í annarri, vann síðan
41-6 í þriðju og 20-60 í þeirri fjórðu.
Spilarar í sigursveitinni eru þeir
Hlynur Angantýsson fyrirliði, Her-
mann Friðriksson, Aron Þorfinns-
son, Ragnar Hermannsson og Daní-
el Sigurðsson.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 15. september var
spilað á 16 borðum.
Meðalskor var 312. Úrslit urðu
þessi í N/S:
Björn Karlsson – Jens Karlsson 353
Sigurður Hallgrímss. – Anton Jónsson 343
Unnar Guðmss. – Ólöf Ólafsdóttir 336
Magnús Oddsson – Oliver Kristófersson 330
A/V:
Skarphéðinn Lýðss. – Hulda Mogensen 389
Sverrir Jónsson – Óli Gíslason 372
Haukur Guðmundss. – Bragi V. Björnss. 370
Nanna Eiríksd. – Bergljót Gunnarsd. 359
Bridsfélag Reykjavíkur
Seinna kvöldi af 2 í fyrstu tví-
menningskeppni félagsins lauk með
samanlögðum sigri Guðmundar
Snorrasonar og Daníels Sigurðsson-
ar með 116,9 stig.
Úrslit kvöldsins urðu þessi:
Guðm. Snorras - Daníel Sigurðss 63,4%
Sverrir Kristinss - Stefán Jóhannss. 62%
Kristj. Snorras.- Baldur Bjartmarss. 58,6%
Halldóra Magnúsd. - Hrafnh. Skúlad. 55%
Ómar F. Ómarss. - Kristinn Þóriss. 54,6%
Næst er þriggja kvölda Butler-tví-
menningur þar sem allir spila við
alla.
Bridsfélag Kópavogs
Vetrarstarf Bridsfélags Kópavogs
hófst með eins kvölds tvímenningi
fimmtudaginn 17. september.
Mjög góð þátttaka var en það
mættu 18 pör og voru menn á einu
máli um að það væri mjög gott að
spila í nýja salnum sem bridsfélagið
spilar nú í.
Eftir harða keppni urðu úrslitin
þessi í N-S:
Baldur Bjartmarss.-Halldór Þorvaldss. 284
Heimir Tryggvas.-Árni Már Björnss. 273
Arngunnur Jónsd.-Halldóra Magnúsd. 228
A-V:
Jens Jensson-Jón Steinar Ingólfss. 259
Þorsteinn Berg-Sveinn Rúnarss. 227
Birna Stefnisd.-Aðalst. Steinþórss. 223
Fimmtudaginn 24. september
hefst þriggja kvölda tvímenningur.
Spilað verður í félagsheimilinu
Gjábakka í Fannborg 8.
Spilamennska hefst kl. 19. og eru
spilarar hvattir til að mæta tíman-
lega.
Við viljum hvetja alla gamla og og
nýja félaga til að koma og eiga góða
stund við spilaborðið.
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, mánud. 14. sept.
Spilað var á 13 borðum. Meðalskor
312 stig. Árangur N-S:
Gísli Hafliðason - Björn E. Pétursson 372
Friðrik Hermannss. - Björn Árnason 365
Elías Einarsson - Höskuldur Jónsson 347
Árangur A-V:
Friðrik Jónsson - Tómas Sigurjónsson 363
Sigurður Jóhannss. - Siguróli Jóhannss. 354
Magnús Jónsson - Gunnar Jónsson 340
Tvímenningskeppni fimmtud.
17.sept. Spilað var á 9 borðum. Með-
alskor 216 stig.Árangur N-S
Magnús Oddss. - Oliver Kristóferss. 269
Ólafur B. Theodórs - Björn E. Péturss. 255
Ragnar Björnsson - Jón Lárusson 226
Árangur A-V
Friðrik Jónsson - Tómas Sigurjónss. 255
Hilmar Valdimarss. - Óli Gíslason 241
Magnús Jónsson - Gunnar Jónsson 223
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is